Morgunblaðið - 31.12.1994, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 31.12.1994, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ I DAG LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1994 45 Árnað heilla STJÖRNUSPA Q/\ÁRA afmæli. f dag, O Vrgamlársdag, er átt- ræður Gils Guðmundsson, rithöfundur, fyrrverandi alþingismaður. Hann tek- ur á móti gestum á heimili sínu, Laufásvegi 64, á milli kl. 15 og 18 í dag. Q /\ÁRA afmæli. Áttræð Ov/verður á morgun, ný- ársdag, Hildur Halldórs- dóttir, Sléttuvegi 15, Reykjavík. Hún verður að heiman á afmælisdaginn. /\ÁRA afmæli. Sex- Ö\/tugur verður á morg- un, nýársdag, ívar Júlíus- son, netagerðarmaður og fyrrverandi útgerðar- maður, Höfðavegi 10, Húsavík. Hann verður heima á afmælisdaginn. fT/VÁRA afmæli. í dag, ÖUgamlársdag, er fímmtugur Þórður Kjart- ansson, Torfufelli 9, Reylgavík. Eiginkona hans er Regina Aðalsteinsdótt- ir. Hjónin dvelja á Manor House á Englandi um ára- mótin. /»/\ÁRA afmæli. í dag, Ov/31. desember, ersex- tug Auður Jónasdóttir, bóndi, Eiði, Grundarfirði. fT /\ÁRA afmæli. Fimm- Ö V/tug er á morgun, nýársdag, Guðrún Jóa- kims Karlsdóttir, þroska- þjálfi, Lindarholti 10, Olafsvík. _ Eiginmaður hennar er Úlfar Víglunds- son, vörubílsstjóri. Þau taka á móti gestum á heim- ili sínu eftir kl. 20 á afmæl- isdaginn. SKAK Umsjón Margcir Pctursson ÞESSI staða kom upp á fyrsta borði í viðureign Dana og Hollendinga á Olympíu- skákmótinu í Moskvu. Lars Bo Hansen (2.580) hafði hvítt og átti leik gegn Jan Timman (2.635). Hollend- ingurinn lék síðast 33. — Kg8-f8?? og gaf kost á máti í fjórða leik: 34. He8+!+ og Timman gafst upp er hann sá fram á 34. - Hxe8, 35. Dd6+ - He7, 36. Dd8+ - He8, 37. Dxe8 mát. Þessi viðureign var háð í næstsíðustu umferð mótsins og lauk með jafn- tefli 2-2, sem verður að telj- ast mjög góð niðurstaða fyr- ir Dani. En í síðustu umferð biðu þeir afhroð gegn Kín- verjum, '/2—3‘/2 og enduðu aðeins í 28.-32. sæti með 31 v., einum vinningi á eftir íslendingum. . p' /\ÁRA afmæli. í dag, OUðl. desember, gaml- ársdag, verður fimmtug Halla Kjartansdóttir, Heinabergi 16, Þorláks- höfn. Eiginmaður hennar er Erlendur Jónsson. Þau dvelja erlendis um þessar mundir. BRIDS Umsjón Guðm, Páll Arnarson DÓMNEFNDIR í brids koma oft fram í gervi Salómóns konungs. Á HM í tvímenn- ingi í Albuquerque biðu menn spenntir eftir úrskurði dómnefndar í eftirfarandi deilumáli: Norður gefur; allir á hættu. Norður ♦ Á753 f 75 ♦ GIO ♦ ÁD973 Vestur Austur ♦ 1064 llllll ♦ D2 f 2 f K843 ♦ ÁK752 ♦ D983 ♦ K865 Suður ♦ KG98 ♦ 1042 f ÁDG1096 ♦ 64 ♦ G Vestur Norður Austur Suður - Pass Pass 1 hjarta Pass 2 lauf Pass 2 hjörtu Pass 2 spaðar1 Pass 3 hjörtu2 Pass 3 grönd3 pass 4 hjörtu Pass Pass Pass ■Gervisögn, skiptingu. spuming um 2Sýnir fjórlit í spaða. 3Eftir langa umhugsun. fr/\ARA afmæli. Á DV/morgun, 1. janúar, nýársdag, verður fimmtug- ur Guðmundur Sigurðs- son, framkvæmdastjóri Vogabæjar hf., Voga- gerði 8, Vogum. Hann og kona hans taka á móti gest- um laugardaginn 7. janúar nk. í safnaðarheimili Innri- Njarðvíkur frá kl. 17. í AV voru sigurvegarar mótsins Pólveijamir Szy- manowski og Lesnicwski. Þeir kvöddu keppnisstjóra að borð- inu strax eftir að suður sagði fjögur hjörtu. Þeir vildu meina að hin langa umhugsun norð- urs við þremur hjörtum hefði haft áhrif á þá ákvörðun suð- urs að taka út þremur grönd- um í fjögur hjörtu. (Norður hafði reyndar gleymt hvað svarið á þremur hjörtum þýddi og upplýsti mótheija sinn réttilega um það.) Keppnisstjóri breytti skor- inni í þijú grönd, einn niður. NS áfrýjuðu til dómnefndar og það valt á úrskurði hennar hvort Pólveijamir eða Banda- ríkjamehnimir Hamman og Rosenberg yrðu í fyrsta sæti. Ef skorinni hefði verið breytt [ 4 hjörtu, hefðu Pólveijamir lent broti úr stigi fyrir aftan Bandaríkjamennina. En dómnefndin komst að óvenjulegri niðurstöðu. Hún mat það svo að það væru jafn- ar líkur á því að suður hefði passað þijú grönd eða breytt í fjögur hjörtu án umhugsunar norðurs. Því bæri að gefa skor sem væri mitt á milli þess að spila 4 hjörtu (+620) og 3 grönd (+100). Pólver- jamir lækkuðu við það um 7 stig, en héldu þó fyrsta sæt- inu. LEIÐRETT Skaðar Reykjavíkurborg í grein Vilhjálms Jónssonar, „Gestrisni I Reykjavík", sem birt var í Morgunblað- inu í gær, föstudag, er prentvilla, sem leiðrétta þarf. Orðrétt átti viðkom- andi málsgrein að vera svo: „Olíufélögin hafa á und- anförnum árum skilað dijúgum skattpeningum til ríkis og borgar. Ljóst er að með því að eyðileggja rekstrargrundvöll benzín- stöðva á Reykjavíkursvæð- inu, með bijálæðislegri yf- irfjárfestingu, er vegið að heildar útkomu félaganna. Ég er alveg viss um að hin vanhugsaða flaustursaf- greiðsla þessa máls á eftir að skaða, (ekki skapa eins og misritaðist) Reykjavík- urborg um marga tugi millj- óna á ári hvetju, varlega áætlað“. cftir Franccs Drake STEINGEIT Afmælisbarn dagsins: Þér getur vegnað vel í við- skiptum ogþú hefurlist- ræna hæfileika. Hrútur (21. mars -19. apríl) ** Þér gengur svo vel með það sem þú ert að gera í dag að þú hefur fulla ástæðu til að fagna komandi ári þegar kvöldar. Naut (20. apríl - 20. maí) Þú átt erfitt með að taka mikilvæga ákvörðun varð- andi fjármálin. En þegar kvöldar skemmtir þú þér konunglega í vinahópi. Tvíburar (21. mai - 20. júní) J» Hikaðu ekki við að leita að- stoðar við lausn á erfiðu verkefni, því betur sjá augu en auga. Þú nýtur kvöldsins heima. Krabbi (21. júní - 22. júlf) H§8 Þér miðar hægt við lausn á heimaverkefni árdegis, en þegar á daginn líður gengur allt betur, og þú skemmtir þér í kvöld. Ljón (23. júlí — 22. ágúst) Þú ert á réttri leið í vinnunni og horfur í fjármálum fara batnandi. Þú býður heim gestum til að fagna nýju ári í kvöld. Meyja (23. ágúst - 22. september) Þú hefur í mörg hom að líta heima í dag, en í kvöld ertu í hátíðarskapi og sækir fagn- að sem stendur langt fram á nótt. V^g (23. sept. - 22. október) Þú kemur miklu í verk heima í dag. í kvöld fagnar þú kom- andi ári og minnist þeirra góðu ára sem nú eru liðin í aldanna skauL Sporódreki (23. okt. - 21. nóvember) Gættu þess að glata ekki einhveiju sem þú hefur mætur á í dag. Þú verður í hátíðarskapi í kvöld og skemmtir þér vel. Bogmaöur (22. nóv. - 21. desember) & Þótt enn sé ekki komið nýtt ár vinnur þú að því að láta áramótaheit þín varðandi vinnuna rætast. Njóttu kvöldsins. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú gefur vini í vanda góð ráð í dag, og þú ert að íhuga ferðalag. í kvöld nýtur þú ánægjulegra stunda í hópi góðra vina. Vatnsberi (20. janúar- 18. febrúar) Þú þarft að ljúka gömlu verkefni áður en þér gefst tími til að blanda geði við aðra í dag og eiga ánægju- legt gamlárskvöld. Fiskar (19. febrúar-20. mars) Þú átt erfitt með að gera upp hug þinn varðandi fyrir- hugað ferðalag. Láttu það ekki spilla ánægjulegum ára- mótafagnaði í kvöld. Stjörnuspána á aó lesa sem dœgradvöl. Sþár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni visindalegra staóreynda. rjflLBRAUTAStóUNN NÁM XIL MEISTARAPRÓFS í IÐNGREINUM ÍSL. Haustönn Vorönn 5 ein MVE 103 BÓK 103 ENS/DAN 4 ein MLÖ 102 KFR 102 STÆ 2 ein MAR 103 REK203 EÐL103 3 ein STJ103 VRR 102 EFN 103 3 ein VIÐ 203 MTR 101 SKS 172 Innritun fyrir vorönn verður 4., 5 og 7. janúar 1995. FB þegar þú velur verknám N°Z ARAMOTAHEIT Láttu ekki snobb og fölsk lof- orö ráöa vali þínu á snyrti- vörum. Ekkert krem tekur hrukkurnar burt en viö getum komiö í veg fyrir öldrun og minnkað hrukkudýpt með réttum kremum. Hotfaerðu þér þessar ráð- leggingar frá sérfraeöingum Boots. VANDAMÁLIN: Húðin verndar líkamann fyrir utanaðkomandi áhrifum, eins og kulda, þurrki, hita og sól. Streita, mataræði og svefn hafa mikil áhrif á húðina. Álagið er mest á húðina á veturna, hún verður líflaus, þurr og flagnar oft. LAUSNIRNAR: Gerðu að vana daglega um- hirðu húðar. Hreinsaðu að kveldi með hreinsimjólk og andlitsvatni. Nuddaðu síðan vel með næt- urkremi. Á morgnana skaltu hreinsa með andlitsvatni og næra vel með No7 dagkremi sem bæði nærir og ver húðina. Sértu um og yfir þrítugt er gott að eiga No7 augnkrem því öldrun byrjar oft fyrst kringum augun. No7 býður einnig uppá frábært Positive Action krem sem er djúpnær- andi dag/næturkrem í einu. Eldri dömur ættu að fá sér Nurture hrukkukrem sem minnkar hrukkudýpt og eflir teygjanleika húðar. Gefðu þér eitt kvöld annað slagið til að dekra við sjálfa þig- i----------------------------1 Fáðu þér andlitsbað. Þú J þrífur húðina með hreinsi- J mjólk og berð síðan á þig ! No7 prótín næringarmaska, i slappar af í 15 mínútur og J hreinsar síðan maskann af J með volgu vatni. Styrkirog j róar húðina með No7 and- i litsvatninu, berð á þig j augnkremið kringum aug- J un og hrukkukremið á j hrukkusvæðin, nuddar að I síðustu vel á þig nætur- i kreminu og ferð svo j snemma að sofa. Þú lítur J örugglega betur út daginn J eftir! i----------------------------1 No7 er frá Boots sem er eitt stærsta lyfjafyrirtæki í heimi. Þú færð gott verð og frábært innihald í einföldum pakkn- ingum No7. No7 fæst í betri snyrtivöru- verslunum og apótekum. VITRAR VELJA No7 Gleðilegt No7 ár. Barbara Attenborough Acc. Auglýsing
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.