Morgunblaðið - 31.12.1994, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 31.12.1994, Blaðsíða 38
38 LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNUA UGL YSINGAR Sjúkrahús Suðurlands óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing til starfa sem fyrst. Á sjúkrahúsinu er blönduð hand- og lyflækningadeild auk 7 rúma fæðingar- og kvensjúkdómadeildar. Allar nánari upplýsingar veitir hjúkrunar- forstjóri í síma 98-21300. 1. vélstjóra vantar á Sunnuberg GK-199. Upplýsingar í síma 92-68699. SÍVAKI Iðnskólinn í Hafnarfirði Reykjavíkurvegi 74 220 Hafnarfjörður Símar 51490 og 53190 Kennara vantar Kennara vantar í fríhendisteikningu og grunnteikningu á vorönn. Upplýsingar gefur skólameistari í síma 5551490. Nýárskveðja Óskum öllum viðskiptavinum okkar góðs og farsæls komandi árs. Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða. F.h. ráðningarmiðlunar Ráðgarðs, Auður Bjarnadóttir og Torfi Markússon. RÁÐGARÐUR M. STFÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF NÓATÚN 17105 REYKJAVTK SÍMI616688 Sívaki hf. auglýsir eftir starfskröftum í eftir- talin störf. - Starfskraft á skrifstofu. Þekking á bók- haldi og tollskýrslugerð æskileg. - Starfskrafta. Rafeindavirkja eða rafvirkja til að annast uppsetningar og þjónustu á öryggiskerfum. Með umsóknum þarf að fylgja meðmæli og sakavottorð. Æskilegast er að umsækendur geti hafið störf sem fyrst. Reyklaus vinnustaður. Sívaki hf. stofnað 1988, er ört vaxandi fyrir- tæki á sviði öryggisþjónustu. Umsóknir óskast sendar til afgreiðslu Mbl. merktar: „Sívaki - 18028“ fyrir 9. janúar. Gledilegt nýtt ár! Óskum viðs kipta vinuiii og umsækjendum f arsæls komandi árs. Þökkum samstarf ið á árinu sem er að líða. I. Starfsráðningar hf I Suðurlandsbraut 30 ■ 5. hæð ■ 108 Reykjavík , Sími: 88 30 31 Fax: 88 30 10 RA Cuðný Harðardóttir Afgreiðslustarf Vilt þú starfa með ungu, kraftmiklu og nýj- ungagjörnu fólki í skemmtilegu umhverfi? Við leitum að starfskrafti sem getur veitt faglega og góða þjónustu. Æskilegur aldur 20-25 ára. Umsóknir sendist afgreiðslu Mbl. fyrir föstu- daginn 5. janúar merktar: „HANZ - 18029“. Vinsamlegast látið fylgja mynd, persónulegar upplýsingar, upplýsingar um fyrri störf, nám og meðmæli. RALA Rannsóknastofnun landbúnaðarins Þróunarstarf í matvælaframleiðslu Rannsóknastofnun landbúnaðarins óskar að ráða starfsmann til rannsókna og þróunar- starfs á sviði kjöt- og mjólkurúrvinnslu. Starfsmanninum er ætlað að taka virkan þátt í samstarfi Rannsóknastofnunar land- búnaðarins og Háskólans á Akureyri um uppbyggingu rannsókna og kennslu í mat- vælafræði og tengdum greinum. Starfsvettvangur verður á Búgarði á Akur- eyri, Tilraunastöðinni á Möðruvöllum og að- stöðu Háskólans á Akureyri. Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir, er greini frá menntun og fyrri störfum, sendist: HANZ KRINGLUNNI Erlend viðskipti Öflugt fjármálafyrirtæki f Reykjavík óskar að ráða starfsmann til að annast sérhæft starf í erlendum viðskiptum við frágang á erlendum gjaldeyri, skjölum og verðbréfum. Einnig samskipti við erlendar fjármálastofnanir. Við leitum að starfsmanni sem getur starfað sjálfstætt og skipulega. Nauðsynlegt er að viðkomandi sé töluglöggur, nákvæmur og samviskusamur. Góð enskukunnátta ásamt starfsreynslu er nauðsynleg. í boði er starf hjá traustu fyrirtæki sem býð- ur góða vinnuaðstöðu og hvetjandi laun. Upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir ásamt mynd til Ráðningarþjónustu Hag- vangs hf. merktar: „Erlend viðskipti" fyrir 6. janúar nk. Forstjóra Rannsóknastofnunar landbúnaðarins, Keldnaholti, 112 Reykjavík, fyrir 1. febrúar 1995. Fatahönnuður Folda hf. óskar að ráða fatahönnuð til starfa við verksmiðju sína á Akureyri. Aðallega er um hönnun á prjónafatnaði, enn einnig á fatnaði úr ofnum efnum. Starfið felst í hönnun á mismunandi fatalínum, að hluta til í samstarfi við erlenda viðskiptaaðila. í boði er góð starfsaðstaða og gott aðstoðar- fólk. Fatahönnuðurinn þarf að hafa góða mennt- un, vera hugmyndaríkur og skapandi. Reynsla í hönnun prjónafatnaðar æskileg. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf., merktar „Fatahönnuður 450“, fyrir 7. janúar 1995. Hagvangur hf Skeifunni 19 Reykjavík Sími 8136Ó6 Róðningarþjónusta Rekstrarróðgjöf Skoðanakannanir Hagvangur hf Skeifunni 19 Reykjavík Sími 813666 Róðningarþjónusta Rekstrarróðgjöf Skoðanakannanir Fjármálafyrirtæki Áhugavert starf Öflugt fjármálafyrirtæki óskar að ráða sölu- mann á nýrri þjónustu fyrirtækisins. Starfsmaðurinn verður að geta unnið sjálf- stætt og í nánu samstarfi við aðra innan fyrirtækisins. Hann þarf að sýna frumkvæði og hafa til að bera góða samskiptahæfileika, vera skipulagður í vinnubrögðum og mikil- vægt að hann hafi góða reynslu úr íslensku atvinnulífi. Hér er einstakt tækifæri fyrir einstakling, sem vill spreyta sig hjá framsæknu fyrirtæki við sölu og markaðssetningu á mjög áhuga- verðri þjónustu. Fyrir réttan aðila eru góðir framtíðarmöguleika fyrir hendi. Háskólamenntun er æskileg. Starfsmaðurinn þarf að geta hafið störf 15. janúar 1995. Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf., merktar „Fjármálafyrirtæki 434" fyrir 7. janúar 1995. Hagvangur h if Skeifunni 19 Reykjavík 1 Sími 813666 Róöningarþjónusta Rekstrarróögjöf Skoðanakannanir LANDSPITALINN .../' þágu mannúðar og vísinda... KVENNADEILD LANDSPITALANS Deildarlæknir Deildarlæknir (reyndur aðstoðarlæknir) ósk- ast á Kvennadeild Landspítalans frá 1. febr- úar 1995. Um er að ræða fullt starf, náms- stöðu, sem ráðið er í til eins árs í senn með möguleika á framlengingu í allt að 3 ár. Umsækjandi þarf að hafa unnið a.m.k. í eitt árá kvennadeild áður. Deildarlæknirinn vinn- ur samkvæmt vinnuskipulagi sem liggur hjá sviðsstjóra eða forstöðulækni, þannig að hann færist á hálfs árs fresti milli 3ja eininga innan Kvennadeildar. Gert er ráð fyrir virku námi og tækifæri gefst til rannsóknastarfa undir handleiðslu. Umsóknir þar sem tilgreind er menntun og fyrri störf sendast til Reynis T. Geirssonar, Kvennadeild Landspítalans. Nánari upplýsingar veita Reynir T. Geirsson, prófessor og Jón Þ. Hallgrímsson, yfirlæknir í síma 601000. OLDRUNARLÆKNINGADEILD Hjúkrunarfræðingur Hjúkrunarfræðingur óskast á næturvaktir á öldrunarlækningaaeiid Landspítalans í Há- túni 10B nú þegar eða sem allra fyrst. Unn- ið er á 10 klukkustunda vöktum frá kl. 23:00 til 9:00. Til greina kemur að ráða í 25% (1 vakt í viku), 50% (2 vaktir í viku) eða 75% (3 vaktir í viku) starf. Nánari upplýsingar veitir Guðrún Karlsdóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma 602266 eða 601000.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.