Morgunblaðið - 31.12.1994, Side 4
4 LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
SAMNINGAR SJÚKRALIÐA
S.iúkraliðar og ríkið gengu óvænt frá kjarasamningi í gærmorgun
Launahækkun
nemur 7%
SJÚKRALIÐAR og samninga-
nefnd ríkisins skrifuðu undir kja-
rasamning í gærmorgun sem batt
enda á verkfall sjúkraliða sem
staðið hefur í sjö vikur. Samning-
urinn felur í sér um 7% launa-
hækkun, sem er afturvirk að hluta
frá 15. júní og að hluta frá 1.
október. Samningurinn gildir til
áramóta eða í einn og hálfan dag.
Sjúkraliðar frestuðu verkfalli eftir
að samningur hafði verið undirrit-
aður og mættu til vinnu á kvöld-
vaktir í gær. Efnt verður tii alls-
heijaratkvæðagreiðslu um samn-
inginn nk. þriðjudag.
Kjarasamningurinn felur í sér
starfsaldurshækkun um einn
launaflokk fyrir sjúkraliða sem
hafa að baki tveggja ára starfsald-
ur. Samningurinn gerir ráð fyrir
sömu eingreiðslum og aðrir launa-
þegar sömdu um á árinu. Sjúkra-
liðar sem starfa á geðdeildum og
endurhæfingardeildum fá viðbót-
arhækkun. Þá verða tekin upp ný
starfsheiti sem fela í sér launa-
flokkahækkanir. Þessar breyting-
ar fela í sér u.þ.b. 3,5% launa-
hækkun og tekur hún gildi 15.
júní 1994.
Gerðardómur skilar
3,5% hækkun
Meginkrafa sjúkraliða var að fá
sambærilega hækkun og aðrar
heilbrigðisstéttir. Til að koma á
móts við þessa kröfu lagði samn-
inganefnd ríkisins fram tillögu
fyrr í þessum mánuði um að sér-
stökum gerðardómi yrði falið að
bera saman laun sjúkraliða við
aðrar heilbrigðisstéttir. Sjúkralið-
ar vildu að í þessum samanburði
yrði einungis miðað við hjúkrunar-
fræðinga, meinatækna, ljósmæður
og röngtentækna. Ríkið vildi hins
Sjúkraliðar
mættu til vinnu
síðdegisá gær eft-
ir 7 vikna verkfall
vegar taka mun fleiri stéttir inn í
samanburðinn. Niðurstaðan varð
sú að fara bil beggja. Auk fyrr-
nefndra stétta mun gerðardómur
taka mið af kjörum sálfræðinga,
sjúkraþjálfara, iðjuþjálfara,
læknaritara, læknafulltrúa, mat-
vælafræðinga, matartækna og
lækna. Ríkið samþykkti kröfu
sjúkraliða um að ófaglærðar stétt-
ir yrðu teknar út úr samanburðar-
hópnum.
Gerðardómur á að bera saman
laun frá ársbyijun 1992 til ársloka
1994. í upphaflegri tillögu ríkisins
var gert ráð fyrir að viðmiðunar-
tímabilið yrði 1990-1994. Dómur-
inn, sem verður skipaður tveimur
fulltrúum frá ríkinu, tveimur frá
sjúkraliðum og oddamanni frá
ríkissáttasemjara, á að skila niður-
stöðum 5. janúar nk.
Samningsaðilar hafa reiknað út
hvað muni koma út úr þessum
samanburði. Samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins frá báðum
samningsaðilum skilar saman-
burðurinn sjúkraliðum um 7%
hækkun. Fyrri launahækkun kem-
ur til frádráttar, sem þýðir að
gerðardómurinn færir sjúkraliðum
um 3,5% hækkun. Hækkunin er
einnig afturvirk og kemur til fram-
kvæmda 1. október 1994.
Fá að starfa víðar en
á hjúkrunarsviði
Hluti af samningnum er að lagt
verður fram frumvarp til laga um
sjúkraliða. Frumvarp þetta var
lagt fram á síðasta þingi og var
þá strax mjög umdeilt. Aðrar heil-
brigðisstéttir lýstu yfir mikilli
óánægju með frumvarpið og Al-
þýðusamband íslands gerir einnig
alvarlegar athugasemdir við það.
Frumvarpið var lagt fram á
ríkisstjórnarfundi í gærmorgun. í
því hefur umdeildri grein, sem
fjallar um löggildingu starfssviðs
sjúkraliða, verið felld út.
„Við munum ekki knýja á um
þessi grein verði með í frumvarp-
inu. Það er aftur á móti önnur
grein í þessu frumvarpi sem er
okkur mjög mikilvæg, en hún fjall-
ar um að sjúkraliðar geti starfað
víðar en á hjúkrunarsviði," sagði
Kristín Á. Guðmundsdóttir, for-
maður Sjúkraliðafélagsins. Þetta
þýðir að sjúkraliðum verður heim-
ilt að vinna undir stjóm annarra
en hjúkrunarfræðinga. Andstaða
er við þetta ákvæði meðal hjúkrun-
arfræðinga.
Kosið á þriðjudag
Það eru 12 samningsaðilar sem
standa að samningnum við Sjúkra-
liðafélagið. Borgarspítalinn og
Ríkisspítalarnir eru stærstu aðil-
amir, en auk þeirra em sjálfseign-
arstofnanir, sem sinna þjónustu
við aldraða, heilsustofnanir og
fleiri aðilar að samningnum. Fram
þurfa að fara sjálfstæðar at-
kvæðagreiðslur á öllum þessum
stofnunum um samninginn. Ekki
nægir að greidd séu atkvæði á
félagsfundum heldur þarf að fara
fram allsheijaratkvæðagreiðsla.
Kristín sagðist gera ráð fyrir að
atkvæðagreiðslan færi fram nk.
þriðjudag. Það þýðir að henni verð-
ur lokið áður en gerðardómur
kveður upp sinn úrskurð 5. janúar
nk.
^ Morgunblaðið/Sverrir
Á NÍÚNDA tímanum í gærmorgun skrifuðu sjúkraliðar og samn-
ingsaðilar þeirra undir nýjan kjarasamning eftir að hafa setið á
fundi alla nóttina. Hér takast Þorsteinn Geirsson, formaður samn-
inganefndar ríkisins, og Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður
Sjúkraliðafélagsins, í hendur að lokinni undirskrift. Milli þeirra
stendur Geir Gunnarsson, ríkissáttasemjari.
Ósamið við Garðvang
og Slq'ólvang
Enn er ósamið við tvær sjálfs-
eignarstofnanir, Garðvang í Garði
og Skjólvang á Höfn í Hornafírði.
Ástæðan fyrir þessu er sú að full-
trúar þessara stofnana hafa ekki
tekið virkan þátt í samningavinn-
unni. Skjólvangur sendi samninga-
nefnd ríkisins skriflegt umboð til
að ganga fram samningi, en þegar
á reyndi uppfyllti umboðið ekki
skilyrði. Kristín sagði að óljóst
væri hver væri samningsaðili fyrir
Garðvang og það hefði komið í veg
fyrir að frá samningi við heimilið
hefði verið gengið. Kristín sagðist
ekki eiga von á öðru en að gengið
yrði frá samningum við þessa að-
ila á allra næstu dögum.
Bæði á Garðvangi og Skjólvangi
vinna fáir sjúkraliðar og eru þeir
hærra launaðir en sjúkraliðar sem
vinna á stofnunum í Reykjavík.
Kristín sagði að* sjúkraliðar á
Garðvangi gerðu ekki kröfu um
launahækkanir, einungis að gerð-
ur yrði við þá formlegur kjara-
samningur.
Sighvatur
Björgvinsson
Ekki ástæða
tilaðóttast
áhrifín
SIGHVATUR Björgvinsson við-
skiptaráðherra segir enga ástæðu
til að óttast áhrif samninganna
við sjúkraliða á efnahagslífíð. Þeir
hafi einungis fengið þá leiðrétt-
ingu, sem aðrar heilbrigðisstéttir
hafi fengið.
Sighvatur segi'r að það fari eft-
ir því hvernig á málið sé litið,
hvað menn telji sjúkraliða fá mikla
hækkuri. „Þeir fá hækkun til sam-
ræmi við þær hækkanir, sem orðið
hafa að undanförnu hjá ýmsum
heilbrigðisstéttum. En það er eins
og ailtaf í kjaraumræðu, að á
meðan stéttir eru í verkfalli fínnst
öllum sjálfsagt að þær fái kjara-
leiðréttingu. Um leið og þær hafa
fengið kjaraleiðréttingu og verk-
falli er lokið, segja menn að þetta
sé ómögulegt og nú eigi allir að
fá það sama. Þetta er tvískinnung-
ur, sem ég geri ekkert með,“ sagði
Sighvatur.
— Þú lítur þá - ekkí á þessa
samninga sem fordæmi í þeirri
samningalotu, sem í hönd fer á
nýja árinu?
„Nei, aideilis hreint ekki.
Sjúkraliðarnir eru seinasta heil-
brigðisstéttin, sem var með lausa
kjarasamninga. Þama má því
segja að menn hafi verið að reka
smiðshöggið á liðinn tíma.“
í samræmi við annað
Sighvatur segist ekki hafa nein-
ar áhyggjur af áhrifum samning-
anna á efnahagslífið: JEf samið
hefði verið um 15-20%, að maður
tali nú ekki um 25%, eins og kenn-
arar biðja um, þá he.fði það verið
allt annar hlutur. En þetta er í
samræmi við það, sem menn hafa
verið að gera hjá heilbrigðisstétt-
unum.“
Friðrik
Sophusson
Ekki fordæmi
fyrir aðra
samninga
FRIÐRIK Sophusson fjármálaráð-
herra segir að kjarasamningurinn,
sem nú hefur verið gerður við
sjúkraliða verði ekki fordæmi fyrir
aðra kjarasamninga, sem gerðir
verði á næstunni. Verið sé að jafna
kjör sjúkraliða við aðrar heilbrigð-
isstéttir.
„Ég fagna því að samningar
hafa náðst, en verkfallið hefur
auðvitað haft slæm áhrif á hagi
aldraðra og sjúkra,“ sagði Friðrik
í samtali við Morgunblaðið. „Þetta
var síðasta samningalotan í kjara-
samningum sem hófust fyrir
tveimur árum og verður að líta á
samninginn með tilliti til þess að
verið er að jafna kjör sjúkraliða
við aðrar heilbrigðisstéttir, einkum
kvennastéttir í heilbrigðiskerfinu."
Verið að klára samningalotu
— Er þá ekki verið að leggja
línur fyrir komandi kjarasamn-
inga?
„Nei. Ég get ekki fullyrt ná-
kvæmlega hvað kemur út úr þess-
um kjarasamningi, vegna þess að
hann byggir að hluta á niðurstöðu
nefndar, sem mun reikna út kjara-
bætur með tilliti til viðmiðunar-
stéttanna. En þessi samningur
getur ekki orðið fyrirmynd að
komandi samningum, því að hér
er verið að klára langa samninga-
lotu og næsta verkefni er að snúa
sér að þeim samningum, sem verða
lausir um áramótin. Þar á meðal
verður kjarasamningur við sjúkr-
aliða.
Ég sé ekkert tilefni til að þessi
samningur verði fordæmi fyrir
aðra samninga, sem verða gerðir
á næstunni. Þvert á móti tel ég
að það verði í þeim samningum
að taka tillit til þess efnahags-
bata, sem framundan er, og gæta
þess að kjarasamningar verði í
takt við hann. Annars eigum við
á hættu að verðbólgan magnist
og það kemur þeim ævinlega verst,
sem minnst hafa launin."
Friðrik sagðist sem minnst vilja
segja um það hvað samningurinn
við sjúkraliða kæmi til með að
kosta ríkið, enda lægi ekki fyrir
hver hækkunin yrði. „Það verður
að taka tillit til þess að samningar
við sjúkraliða hafa verið lausir í
20 mánuði," sagði fjármálaráð-
herra.
„Verður litið
til þessa
samnings“
„ÉG ER sannfærð um að það verð-
ur litið til þessa samnings sem
sjúkraliðar gerðu. Ég tel að hann
feli í sér skref í rétt átt,“ sagði
Kristín Á. Guðmundsdóttir, for-
maður Sjúkraliðafélagsins. Hún
segir að sjúkraliðar hefðu náð um
2% launahækkun til viðbótar frá
því að slitnaði upp úr samningum
á miðvikudag þar til gengið var
frá samningum í fyrrinótt.
„Ég hef einnig sagt að þó að
okkar verkfall hefði verið brotið á
bak aftur hljóti aðrir launahópar
að horfa til þeirra kjarasamninga
sem gerðir hafa verið á síðustu
mánuðum. Með þeim var velt af
stað skriðu."
Kristín sagði að það kæmi sér
ekki á óvart þó að forysta VSÍ
væri óánægð með þann kjara-
samning sem sjúkraliðar hefðu
gert. „Eg tel að afstaða VSÍ hafí
átt stóran þátt í þeim mótbyr sem
við áttum við að etja í verkfallinu.
Ég hef trú á að VSÍ hafi haft sín
áhrif innan ráðuneyta."
Kristín sagðist telja að undir lok
samningaviðræðnanna hefði
minna verið tekið tillit til sjónar-
miða VSÍ. Skynsemin hefði verið
látin ráða ferðinni.
Höfðum 5% í hendi
á miðvikudag
„Þegar slitnaði upp úr viðræð-
um lágu á borðinu tillögur sem
við mátum að gæfu okkur um 5%
launahækkun. Við höfnuðum
þeim. í gær var komið á móts við
okkur með virkum hætti sem leiddi
síðan til þess að kallað var-til fund-
ar hjá sáttasemjara aftur. Ég tel
að við höfum samið á hárrétta
augnablikinu."
Meginkrafa sjúkraliða í verk-
fallinu var að launamunur á milli
hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða
jafnaðist. Kristín sagði að mark-
mið sjúkraliða um að launamunur
þessara stétta yrði 20% hefði ekki
náðst. ,
Kristín sagðist gera sér vonir
um að samningurinn skili sjúkral-
iðum umtalsverðum kjarabótum.
„Það er hins vegar erfitt að segja
hvað þær verða miklar vegna þess
að við féllumst á tillöguna um
gerðardóm og það kemur ekki í
ljós strax hvað hún felur í sér.“
Kristín sagðist ekki hafa fundið
fyrir öðru á fjölmennum félags-
fundi í gær en að almenn ánægja
ríkti meðal sjúkraliða með samn-
ingána.