Morgunblaðið - 31.12.1994, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
♦
EIGNAMIÐLUNIN %
Síini 88 • 90 • 90 - Fax 88 • 90 • 95 - Síðumúla 2.1
Óskum viðskiptavinum okkar
og landsmönnum öllum
farsældar á nýju ári.
Þökkum viðskiptin
á liðnum árum.
Starfsfólk
Eignamiðlunarinnar.
Óskum landsmönnum öllum
gleðilegs árs og þökkum
ánægjuleg viðskipti á árinu
semeraðlíða.
Sæberg Þórðarson
Fasteignamiðlunin Berg,
Háaleitisbraut 58,
sími 885530,
bréfsími 885540.
911RH 01 Q70 LARUSP.VALDIMARSSON,framkvæmoastjori
L I I I 0 / U KRISTJAN KRISTJANSSON. loggiltur fasteignasau
Upplýsingar um viðskiptin á árinu 1994:
Meðaltöl seldra eigna
Raunvirði var 99% af kaupverði.
Af raunvirði var: Útborgun 62,5%, verðtryggðar áhvílandi skuldir 16,1
% og verðtryggðar eftirstöðvar 21,4% (húsbréf).
Á fyrstu 29 dögum samningstímans greiddu kaupendur 86,4% af raun-
virði útborgunar eða 53,9% af raunvirði kaupverðs.
Afhending var 26 dögum eftir undirritun kaupsamnings.
Útborgun var greidd á 159 dögum.
Hlutfall raunvirðis var 100,9% af fasteignamati.
Hlutfall raunvirðis var 65,8% af brunabótamati.
Miðað er við hækkun á lánskjaravísitölu á milli ára sem var 1,11%.
Almenna fasteignasalán sf.
var stofnuð 12. júli 1944 og varð því 50 ára sl. sumar.
Sölumenn hennar og eigendur hafa yfir 30 ára reynslu í fasteignavið-
skiptum.
Viðskiptunum fylgir ráðgjöf og traustar upplýsingar.
Bestu nýársóskir
til viöskiptamanna okkar og annarra landsmanna með þakklæti fyrir
liöið ár, traust og góð viðskipti.
• • •
Auglýsum að jafnaði
á 10. eða 11. síðu Mbl. á
þriðjudögum, miðvikudögum
og oftast á laugardögum.
ALMENNA
FASTEIGNASAIAN
LAUGwÉGn8slMAR2ÍÍ5r?l370
Reiki-
og
sjálfstyrkingarnámskeið
og
einkatímar
• Hefur þú áhuga á andlegum málefnum?
• Þarftu á sjálfstyrkingu að halda?
• Viltu ná betri tökum á lífi þínu og líðan?
• Ertu tilbúin að gera eitthvað í málinu?
Námskeið f Reykjavík
7.-8. jan.: 1. stig — helgarnámskeiö.
Upplýsingar og skráning í síma 871334.
Guðrún Óladóttir, reikimeistari.
- kjarni málsins!
FRÉTTIR
DÆTUR Sophiu, Dagbjört og Rúna, í Tyrklandi.
Morgunblaðið/Anna G. Ólafadðttir
Undirréttur í Istanbul frestar dómsuppkvaðningu
í máli Sophiu Hansen til febrúar
Bjartsýn á að hitta
dætur sínar á nýársdag
UNDIRRÉTTUR í Istanbul ákvað
á fimmtudag að fresta til 2. febrúar
nk. málflutningi í forsjármáli Sop-
hiu Hansen gegn fyrrum eigin-
manni hennar, Halim Al, vegna
tveggja dætra þeirra. Frestunin
stafar af því að dómarinn átti sam-
kvæmt tilmælum hæstaréttar í
Ankara að kynna sér tiltekin skjöl
vegna málsins, sem hann hafði ekki
fengið í hendur. „Ég verð að viður-
kenna að þessi töf olli mér vonbrigð-
um, en vonin um að hitta dætur
mínar stappaði í mig stálinu," segir
Sophia.
Að sögn Sophiu lét dómarinn í
ljós óánægju yfír að dráttur hefði
orðið á afhendingu skjalanna og
kvaðst hafa ítrekað óskað þeirra frá
innanríkisráðuneytinu og dóms-
málaráðuneytinu í Ankara. í skjöl-
unum er meðal annars staðfest að
Sophia og Halim gengu í hjónaband
á Islandi, að hann fékk íslenskan
ríkisborgararétt og að þau voru
seinast búsett hérlendis, en sam-
kvæmt því á að dæma í forræðis-
málinu eftir íslenskum lögum. Sop-
hia segir að löggilt skjöl sem stað-
festi þetta hafi fyrir margt löngu
komið frá íslandi, og því skjóti þessi
töf skökku við.
Hún segir að ekki hafi komið til
neinna óláta í undirrétti á fímmtu-
dag, Halim Al og hans fylgismenn
hafí ekki á neinn hátt haft í hótun-
um við hana. Hún hafi fengið mikla
vernd, bæði í réttarsal og á leiðinni
til hans og frá, og hafi allt farið
friðsamlega fram. Hún kveðst gera
ráð fyrir að vera um kyrrt í Istanb-
ul til 2. febrúar, en hún á enn
umgengnisrétt við dætur sínar þótt
faðir þeirra hafi brotið þann rétt
margsinnis. Á nýársdag um klukk-
an 14 á að reyna að nýju.
Hart lagt að Halim A1
„Lögfræðingur Halims AIs flutti
mér þau skilaboð að hann vildi að
ég kæmi einsömul á skrifstofu sína
sem ég tók ekki í mál. Lögfræðing-
urinn hló að því að ég sýndi merki
hræðslu við að fara ein á fund hans
og neitaði að fara án verndar emb-
ættismanna. Ég benti honum á að
hann sýndi mér ruddaskap því að
hegðun Halims Als til þessa væri
hreint ekki hlægileg, og full ástæða
væri til að fara með gát, enda hefði
hann enga stjórn á skapi sínu þeg-
ar honum mislíkaði eitthvað. Lög-
fræðingur Halims Als og lögmaður
minn reyndu báðir að sannfæra
hann um að leyfa mér að hitta
dætur mínar á mínu heimili. Hann
var mjög óánægður en lofaði að
hugsa málið og láta vita tímanlega
hvort hann samþykkti þessa tilhög-
un, sem ég tel jákvætt merki um
að hann taki sönsum," segir Sophia.
Lögmaður Sophiu sigurviss
Hún kveðst telja að á því ári sem
nú er að líða hafí málstaður hennar
styrkst til muna, og sé lögmaður
hennar meðal annars sannfærður
um að lagalegur sigur fáist innan
skamms. Hæstiréttur í Ankara hafi
sýnt sjónarmiðum hennar mikinn
skilning, og dómarinn í undirrétti,
sem grunaður var um að beygja sig
undir vilja öfgahópa, hafi fengið
ítrekaðar ávítur og í fyrradag hafí
hann verið allur annar en áður.
Málið verði væntanlega leitt til
lykta á nýju ári, fyrst 2. febrúar í
undirrétti, en síðan geti liðið þrír
til sex mánuðir áður en niðurstaða
næst í hæstarétti.
Sophia kveðst ákaflega þakklát
því fólki sem háfí stutt baráttu
hennar, ekki síst þeim sem lögðu
til styrktarloforð í seinustu land-
söfnun að verðmæti um 12 milljón-
ir króna. Hins vegar hafi aðeins
þrír fjórðu þeirrar upphæðar skilað
sér, sem sé miður, því þótt tekist
hafí að giynnka á skuldum vegna
ferðalaga til Tyrklands, lögfræði-
kostnaðar og dvalar, sé af nóg að
taka.
Innflutningur landbúnaðarvara samkvæmt GATT
Þingmenn vilja auk-
ið vald ráðherra
ÞRÍR þingmenn Framsóknarflokks
hafa lagt fram lagafrumvarp á
Alþingi um að breyta búvörulögnm
vegna gildistöku GATT-samninga.
Frumvarpið miðar að því að auka
vald landbúnaðarráðherra við
ákvörðun verðjöfnunargjalda á
innfluttar búvörur með því að fella
út ákvæði um samráðsskyldu við
önnur ráðuneyti eða ríkisstjórn.
í vor þegar búvörulögum var
breytt vegna EES-samninga náðist
samkomulag milli stjómarflokk-
anna um að lögfesta heimild til
landbúnaðarráðherra að leggja
verðjöfnunargjöld á tilgreindar
innfluttar landbúnaðarvörur sem
jafnframt eru framleiddar hér á
landi.
Hluti af samkomulaginu var sér-
stakt ákvæði í búvörulögunum um
að við ákvörðun verðjöfunargjalda
skuli ráðherra hafa sér til ráðu-
neytis nefnd þriggja manna, einum
skipuðum án tilnefningar, öðrum
af fjármálaráðherra og þriðja af
Viðskiptaráðherra sem eiga að
tryggja nauðsynlegt samráð milli
ráðuneyta. Náist ekki samkomulag
í nefndinni skuli ráðherra bera
málið undir ríkisstjórn.
Lög æðri ályktun
í ályktun, sem Alþingi sam-
þykkti á fimmtudag um fullgild-
ingu GATT-samnings um stofnun
Alþjóðaviðskiptastofunarinnar,
segir meðal annars að landbúnaða-
ráðherra verði tryggt forræði um
allar efnislegar ákvarðanir í því
stjómkerfí sem varðar landbúnað tJ
og innflutning landbúnaðarvara. u
Jón Baldvin Hannibalsson utan-
ríkisráðherra sagði á Alþingi að lög
væru æðri þingsályktunum og því
gildi ákvæðin í búvörulögunum um 0
samráð landbúnaðarráðherra við
náðuneytanefnd og ríkisstjórn við
ákvörðun jöfunargjalda.
í kjölfarið lögðu Páll Pétursson,
Guðni Ágústsson og Jóhannes Geir
Sigurgeirsson þingmenn Fram-
sóknarflokks fram lagafrumvarp
um að fella út þá málsgrein í bú-
vörulögunum sem kveður á um
samráð við ákvörðun verðjöfnunar-
gjalda. í greinargerð segir að máls-
greinin sé orðin úrelt í ljósi álykt-
uP,ar J^1Þingis um fullgildingu Al-
þjóðaviðskiptastofnunarinnar.