Morgunblaðið - 31.12.1994, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1994 15
Uppskrift vikunnar
vínslamb
eð villijurtum
SIGFRÍÐ Þórisdóttir í Potta-
göldrum hefur haft það fyrir
reglu að gefa út fréttabréf, sem
í fyrstu var mjög smátt í sniðum
með ýmsum fróðleik. Nú hefur
hún bætt um betur og gefið
út tólf síðna bækling með dýr-
indis uppskriftum og fróðleik
um jurtakryddin hennar.
Hún segir að fólk sé duglegt
að hafa samband við sig og
gefa uppskriftir og er sumar
þeirra að finna í þessu 6. tölu-
blaði Pottagaldra sem nýlega
kom út. Fréttabréfið kostar 100
kr. auk þess sem Sigfríð er með
áskriftir.
Neytendasíðan fékk að birta
eina uppskrift úr nýja bækl-
ingnum. Fyrir valinu varð
„kampavínslamb" með villi-
jurtasósu sem Sigfríð segir að
hæfi vel á gamlárskvöldi.
Kampavínslamb
meó villiiurtasósu
1 lambalæri
villijurtablanda Pottagaldra
<3 msk. hunang
500 ml cyder
salt
svartur pipar
Nuddið Vi hluta villijurta-
blöndunnar vel í lærið. Gott er
að gera skorur í það og troða
jurtunum þar. Látið standa í
24 klst. í kæli. Blandið í skál
hunangi og % hluta af cyder-
drykknum. Hrærið vel og hellið
yfir lærið. Saltið og piprið. Lok-
ið fatinu með álpappír og steik-
ið í ofni í um 45 mín. við 170
gráðu hita. Þá er álpappírinn
tekinn af og lærið látið steikj-
ast áfram. Ausið safanum yfir
öðru hvoru þar til lærið er steikt
að ykkar smekk.
Sósa
soðið af lærinu
afgangurinn af cydernum
75 g sveppir
laukur, smátt saxaður
villijurtablandan
lamba- eða kjúklingasoðkraftur
pipar
1 peli rjómi (má sleppa)
Steikið sveppi og lauk í örlít-
illi olíu. Stráið dálítið af krydd-
blöndu yfir á meðan steikt er
og svörtum pipar. Hellið dálítið
af cyder út á og koníakslögg
ef til er og látið krauma í 10
mín. Þá er soði af lærinu hellt
yfir og vatni og soðkrafti bætt
á til að fá meira magn. Látið
krauma í 30-40 mín. Saltað og
piprað ef nauðsyn er en soð-
krafturinn inniheldur oftast salt
svo að best er að.fara varlega
með saltið. Heilið rjómanum út
í og þykkið sósuna eftir smekk.
Gjarnan má nota camenbert ost
til bragðbætingar. Smakkið til
og bragðbætið eftir eigin smekk
og tilfinningu því sósur eru ætíð
afar persónubundnar.
LITLI járnbúturinn, sem
fylgdi piparkökunni, sem
annars bragðaðist vel. Til að
gera grein fyrir stærðinni
liggur fimm krónu peningur
við hliðina.
Hart undir
tönná
jólum
HÚN VAR fremur hörð undir tönn
piparkakan, sem boðin var í einu'
jólaboðinu yfir hátíðarnar. Eins
og gerist á bestu bæjum vannst
húsmóðurinni ekki tími til að baka
smákökurnar fyrir jólin svo að hún
fór að ráði íslenskra iðnrekenda
og keypti íslenskt - piparkökur
frá Frón sem settar voru í skál og
á jólaborðið. Þegar húsbóndinn fór
svo að gæða sér á einni kökunni
dró hann allt í einu út úr sér lítinn
járnbút, sem var vel „falinn“ í
kökunni og hefði eflaust getað
valdið einhverjum usla hefði hann
fengið að fara meltingarveginn á
enda. Neytandi þessi prísaði sig
aftur á móti sælan fyrir að hafa
uppgötvað aðskotahlutinn áður en
kingt var.
Hjá Frón fengust þær upplýs-
ingar að piparkökur væru bakaðar
í kexverksmiðjunni árið um kring,
en þeim pakkað í sérstakar jóla-
pakkningar fyrir jólin. Eggert
Bogason sölustjóri sagði að leiðin-
legt væri að heyra um mál af þessu
tagi. Sem betur fer væru slík slys
afar fátíð. Ekki væri hægt að full-
yrða um hvort búturinn hafi kom-
ið með hráefninu eða úr vélum.
Clœsilegt
Kanarítiíboö
22. febrúar
3 vikur
Abeins
Vib höfum nú fengib viöbótar-
gistingu á Sonora golf smáhýsa-
garöinum, einum fegursta
smáhýsagaröinum í Maspalomas.
Snyrtilega innréttuö smáhýsi meö einu svefnherbergi, baði, eldhúsi
og stofu. Hvert smáhýsi hefur afar fallegan garð og góö sameiginleg
aðstaða er á hótelinu, góö sundlaug, bar, veitingastaöur og móttaka
opin allan sólarhringinn.
Veitokr. 77300
' pr. mann m.v. 2 í smáhýsi._____________________
Veitokr. 73.500
pr. marm m.v. 3 í smáhýsi. ___________________
Ekki innifaliö í verði ferðar flugvallarskattur og forfallagjöld kr. 3.660.
HEIMSFERÐIR
BRASILÍA
Aðeins 9 sæti laus. -22. febrÚar
Veit> frá kr. 109.200
: £kki innitetið í mbi feröar Hugvallarskattur og fortaltagjöld kr. 4.860.