Morgunblaðið - 31.12.1994, Side 35

Morgunblaðið - 31.12.1994, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1994 35 ÁSDÍS ÓLÖF ING VADÓTTIR + Ásdís Ólöf Ingvadóttir fæddist á Akureyri 10. des- ember 1968. Hún lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri 13. desember síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Akur- eyrarkirkju 22. desember. MIG LANGAR að skrifa nokkrar línur til að minnast elskulegrar, hugrakkrar systur minnar, hennar Ásdísar Ólafar. Það er svo margt sem bærist í bijósti mínu og svo mörg orð sem koma upp í hugann þegar ég minnist hennar Ásdísar minnar, en það er ótrúlega erfitt að koma þeim á blað. Mig langar að segja svo margt fallegt um hana og ég veit að það ætti ekki að vera erfitt því hún var svo yndisleg sál. Ásdís var hugrakkasta mann- eskjan sem ég hef nokkurn tímann kynnst. Aldrei gafst hún upp í þeirri erfiðu baráttu sem hún háði. Alltaf var stutt í brosið hennar bjarta og kímnigáfan var ekki langt undan. Það þurfti ekki að gera stóra hluti fyrir Ásdísi til að gera hana ham- ingjusama. Það að keyra um með hana og sýna henni hesta eða blóm nægði til að gleðja hana. Einnig gat hún setið tímunum saman með hundinn hana Perlu litlu í fanginu, klappandi henni og talandi við hana. Umhyggjan sem þær sýndu hvor annarri var einstök og tengslin þeirra á milli voru mikil. Ásdís sýndi okkur hinum í ijölskyldunni einnig alltaf mikla umhyggju og enda þótt henni liði illa þá hafði hún alltaf mestar áhyggjur af okkur hinum. Pegurðarskynið sem hún hafði var mikið og þó að sjónin hafi verið farin að bregðast henni þá tók hún alltaf eftir því sem fallegt var í náttúrunni og kringum hana. Þó að sársaukinn yfir að missa þig, elsku Ásdís mín, sé mjög mik- ill þá veit ég og vil trúa að þú sért núna heilbrigð og sterk. Ég veit að þér líður vel núna og vona að þú getir gert allt það sem þig langaði svo mikið til að gera hér á jörð en veiki, litli líkaminn þinn leyfði ekki. Ég þakka þér kærlega fyrir þær stundir sem við áttum saman og munu þær lifa í huga mínurn að eilífu. Fanney Sigrún Ingvadóttir. Þeir sem guðirnir elska deyja ungir. Lífshlaupið hennar Ásdísar var ekki langt en torsótt var það og grýtt. Frá unga aldri háði hún erfiða en einkar hetjulega baráttu við illvígan sjúkdóm sem hún að lokum varð að lúta í lægra haldi fyrir. Ásdís var einkar eftirtektarverð og minnisstæð persóna með afar næma tilfinnirigu fýrir öllu því góða og fallega í náttúrunni. Ég minnist fjölmargra ökuferða okkar, minnist þess hversu vakandi augu hún hafði með öllu því sem fram fór í kringum hana. Ekki síst hafði hún gaman Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æski- iegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-texta- skrár. Ritvinnslukerfin Word og Word- perfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins á netfang þess Mbi@centrum.is en nánari upplýs- ingar þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina og hálfa örk A-4 miðað við meðallinubil og hæfilega Knulengd — eða 3600-4000 slög. Höf- undar eru beðnir að hafa skirnarnöfn sin en ekki stuttnefni undir greinunum. af að heimsækja þá staði þar sem hesta var að fínna. Á þeim hafði hún mikið dálæti og eitt mesta yndi hennar var að horfa á fjöllin speglast í lygnum firðinum á kyrr- um sumardögum. Þá vakti athygli mína sú einstaka umhyggja sem hún alltaf bar fyrir fjölskyldu sinni. Oft lá leið okkar fram í Vín. Þar kunni hún vel við sig innan um blómin og keypti hún gjarnan eitt- MINNIIMGAR hvað gott eða fallega smágjöf handa pabba og mömmu eða systk- inunum. En Ásdís horfír ekki framar á ljósadýrð jólanna speglast í logn- kyrrum fírðingum sem henni þótti svo gaman að horfa á. Sá sem á jólum er fæddur hefur nú tekið hana til sín. Til þess fjarðar þar sem hvorki er sjúkdómur né þjáning. Að lokum, elsku Ásdís. Þökk fyr- ir allar stundirnar sem við áttum saman. Við hjónin sendum foreldr- um þínum, systkinum og öðrum aðstandendum samúðarkveðjur. Ragnheiður Kristinsdóttir. Skilafrestur vegna minningargreina Eigi minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði ef útför er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags- og þriðjudagsblað þarf grein að berast fýrir hádegi á föstudag. í miðvikudags-, fímmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf grein- in að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Útför, t BJÖRNS KRISTMUNDSSONAR, Álftamýri 54, Reykjavík, verður gerð frá Fossvogskirkju þriðjudaginn'3. janúar kl. 15.00. Stefán Kristmundsson, Þorvaldur Kristmundsson og aðrir aðstandendur. t RANNVEIG GUÐMUNDSDÓTTIR frá Skörðum, Laugarnesvegi 90, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð 24. desember. Útför hennar verður gerð frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 4. janúar kl. 13.30. Vandamenn. t Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, OTTÓ J. ÓLAFSSON, Sörlaskjóli 12, sem lést 25. desember, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 3. janúar kl. 13.30. Dætur, tengdasynir, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir okkar og tengdamóðir, KRISTÍN D. THORARENSEN, andaðist í Hafnarbúðum 29. desember. Erla Thorarensen, Ólafur Sveinsson, Jónína G. Thorarensen, Gunnar Pálsson, Benedikt Thorarensen, Guðbjörg M. Thorarensen, Bryndís G. Thorarensen. t Ástkær móðir okkar, fósturmóðir og amma, tengdamóðir, amma og lang- amma, GUÐMUNDAJ. BÆRINGSDÓTTIR, Austurgötu 36, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn 5. janúar kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins. Marinó Sigurðsson, Baldur Sigurðsson, Guðrún Sigurðardóttir, Kristín Sigurðardóttir, Ragnheiður Jónsdóttir, Kristrún Þorsteinsdóttir, Gréta Jónsdóttir, Jóhanna Jensdóttir, Sigríður Ingvarsdóttir, Böðvar Daníelsson, Hergeir á Myrini, v ÞorvaldurÖrn Árnason, Yngvi Harðarson, Hulda Jónsdóttir, barnabörn, og barnabarnabörn. - kjarni málsins! t Hjartkær kona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÞÓRDÍS SIGURÐARDÓTTIR, Nesjaskóla, Hornafirði, frá Stakagerði íVestmannaeyjum, verður jarðsungin frá Hafnarkirkju þriðjudaginn 3. janúar kl. 14.00. Guðbrandur Jóhannsson, Matthildur Sveinsdóttir, Gísli G. Sveinsson, Ingigerður Ó. Helgadóttir, Sigurbjörn Sveinsson, G. Gígja Gylfadóttir og barnabörn. t Þökkum af alhug öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinar- hug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, SÓLRÚNAR ELSU STEFÁNSDÓTTUR, Lambastekk 7, Reykjavík. Kristján Gfslason, Gylfi Kristjánsson, Birna Blöndal, Gerður Jóna Kristjánsdóttir, Jens Magnússon, Stefán Kristjánsson, Sólveig Ogmundsdóttir og ömmubörn. t Alúðar þakkir færum við öllum, sem sýndu okkur samúð og vinar- hug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, JÓHÖNNU GÍSLADÓTTUR, Hraunbæ 108, Reykjavfk. Gerður Lúðvfksdóttir, iðunn Lúðvfksdóttir, Sigurður B. Oddsson, Styrgerður Hanna Jóhannsdóttir, Gunnar Gunnlaugsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Hjartanlegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GRÉTARS ALDANS SIGURÐSSONAR prentsmiðs. Kristfn Sigurpálsdóttir, Guðmundur A. Grétarsson, Marta Jónsdóttir, Ingi Már Grétarsson, Hulda Hjaltadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir færum við öllum, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför hjartkærrar móður okk- ar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HALLDÓRU VETURLIÐADÓTTUR, dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, ásamt sérstökum þökkum til starfs- fólksins á dvalarheimilinu Höfða. Sverrir Karvelsson, Halldóra Karvelsdóttir, Brynjar ívarsson, Jónfna Karvelsdóttir, Edward Scott, Hafdís Karvelsdóttir, Sigurður Vésteinsson, Júlíana Karvelsdóttir, Hinrik Hinriksson, Karvel L. Karvelsson, Hrefna Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Hjartanlegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinar- hug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, ELÍNAR S. TRAUSTADÓTTUR, Suðurvangi 19a, Hafnarfirði. Innilegar þakkir viljum við færa læknum og öðru starfsfólki á deild 14G, Land- spítalanum. Jón Trausti Harðarson, Fjóla Kristjánsdóttir Jóhanna Harðardóttir, Birgir Þór Jósafatsson, Dagbjartur Harðarson, Anna Bergsdóttir, Guðlaugur Harðarson, Hafdfs Bogadóttir, Erlingur Harðarson, Elsa Sigurfinnsdóttir,. Björk Harðardóttir, Renos Demetriou og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.