Morgunblaðið - 31.12.1994, Side 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 691100, SÍMBRÉF 691181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Gjaldeyris-
eign rýrnað
um 13
milljarða
GJALDEYRISEIGN Seðlabanka ís-
■lands hefur rýrnað um 13 milljarða
króna frá áramótum til og með Þor-
láksmessu og breyst úr því að vera
tæpir 29 milljarðar króna um síðustu
áramót í 16 milijarða króna.
Að öllu samanlögðu stefnir í að
fjármagnsjöfnuðurinn verði neikvæð-
ur um 16-19 rnilljarða króna á þessu
ári. Það er annað árið í röð sem fjár-
magnsjöfnuðurinn er neikvæður,
en hann var neikvæður um 5,3 millj-
arða króna í fyrra. Þetta merkir að
eignir erlendis hafa aukist og skuldir
minnkað sem þessu nemur á árinu,
en öll önnur ár frá árinu 1970 hefur
fjármagnsjöfnuðurinn verið jákvæð-
ur, meira fé hefur streymt tii lands-
ins en frá því, einkum vegna erlendr-
ar skuldasöfnunar.
Aðspurður hvort þessi breyting á
gjaldeyrisstöðunni skapaði þrýsting á
gengið sagði Eiríkur Guðnason,
seðlabankastjóri, að raungengið nú
væri mjög lágt í sögulegu samhengi.
Fé hefði farið úr landi vegna erlendra
verðbréfakaupa, afborgana og fram-
virkra gjaldeyrissamninga. Það byggi
í haginn fyrir framtíðina og kallaði
væntanlega á minni þörf á gjaldeyris-
útstreymi þegar á næsta ári.
■ Gjaldeyriseignin/6
Morgunblaðið/Sverrir
SJÚKRALIÐAR fögnuðu formanni sínum, Kristínu Á. Guðmundsdóttur, með langvinnu lófataki á félagsfundi í gær, þar sem nýgerð-
ir kjarasamningar við ríkisvaldið voru kynntir. Verkfall sjúkraliða hefur staðið frá 10. nóvember.
/ Mýra-\
örœfaS^i
griinn\\ /
grunn
Vestmai
Köllugrunn
SiDii
Ahöfn bjargað
og skipið yfirgefið
um kl. 16.00, þann
29. desember
Skipið finnst aftur um
kl. 14.30 þann 30.
desember og hefur
þá siglt 55 sjómílur og
er á 3 mílna ferð til NA.
Týr með Hendrik
B á leið til hafnar
FJÓRIR skipveijar á varðskipinu
Tý komust um klukkan 17 í gærdag
úr gúmbáti um borð í hollenska
skipið Hendrik B. Reyna átti að
koma skipinu til hafnar í Vest-
mannáeyjum.
Leit hófst að nýju að skipinu í
morgun eftir að þyrlur Landhelgis-
gæslu og varnarliðs höfðu bjargað
áhöfn skipsins og átta mánaða
barni frá borði síðdegis í gær. Fokk-
er-flugvélvLandhelgisgæslunnar fór
til leitar en fann skipið ekki fyrr
en um klukkan 14.30. Varðskipið
Týr var þá í um 90 mínútna fjar-
lægð frá skipinu.
Þá hafði Hendrik B, 2.200 lesta
skip í eigu Hollendinga en skráð í
St. Vincent, siglt áfram fyrir eigin
vélarafli á um 3 sjómílna hraða og
hafði borist um 55 mílur í norðaust-
ur frá þeim stað þar sem áhöfnin
yfírgaf það.
Allmikill sjór var og allhvass
norðanvindur þegar fjórir varð-
skipsmenn fóru á gúmbát frá varð-
skipinu Tý. Þeir komust klakklaust
um borð í skipið.
Talið var að farið yrði með skip-
ið áleiðis til Vestmannaeyja í fyrstu.
Ekki var ljóst í gærkvöldi hvort Týr
drægi skipið inn eða hvort varð-
skipsmenn sigldu því inn fyrir eigin
vélarafli.
Björgunarlaun hlutfall
af verðmæti
Verðmæti skipsins er áætlað
45-50 milljóriir króna en ekki er
vitað hve mikið tjón hefur orðið á
því. Verðmæti farmsins, um 2.000
tonn af fóðurefnum, er áætlað 12
milljónir króna miðað við að hann
sé óskemmdur. Björgunarlaun
reiknast sem hlutfall af verðmæti
skips og farms og falla 40% þeirra
í hlut áhafnar þess skips sem vinn-
ur að björgun og 60% renna til út-
gerðar. Þá er einnig tekið tillit til
þess hve langan tíma tekur að færa
skipið til hafnar, hve mikla hættu
björgunarmenn leggja sig í við að
fara um borð og fleira slíkt þegar
björgunarlaun eru ákveðin.
■ Björgunarlaun/30.
Formaður Vinnuveitendasambandsins
óttast afleiðingar kjarasamnings sjúkraliða
Stefnumörkun
sem má ekkí ráða
Fjármálaráðherra segir að samningurinn skapi ekki
fordæmi í komandi kjarasamningum
GENGIÐ var frá kjarasamningi
milli Sjúkraliðafélagsins og við-
semjenda þeirra í gærmorgun.
Samningurinn felur í sér 7% launa-
hækkun og er að hluta afturvirkur.
Magnús Gunnarsson, formaður
VSI, er afar óánægður með samn-
inginn og þá stefnumörkun ríkis-
stjórnarinnar sem hann segir að í
honum felist. Hann segir að það
verði þjóðinni dýrkeypt ef samning-
urinn skapi fordæmi í komandi
kjaraviðræðum. VSÍ komi til með
að beijast gegn því að svo verði.
Fjármálaráðherra og heilbrigðisráð-
herra segja að samningurinn feli
ekki í sér neitt fordæmi. Hann taki
til launaþróunar á samningstímabili
sem sé að ljúka.
„Eg vonast til þess að aðilar al-
menna vinnumarkaðarins taki
höndum saman og reyni að koma
í veg fyrir að afleiðingar þessarar
stefnumörkunar ríkisstjórnarinnar
verði látnar bitna á fólki,“ sagði
Magnús.
Þýðir 14 milljarða í útgjöld
Magnús sagði að ef samið yrði
um 7% launahækkun við alla laun-
þegahópa þýddi það 14 milljarða
útgjaldaauka fyrir launagreiðendur
í landinu. Slík hækkun myndi leiða
til tæplega 6% hækkunar á láns-
kjaravísitölu og búast mætti við að
vextir yrðu komnir upp í 18% á
vormánuðum.
„Vinnuveitendasambandið vill
ekki glutra niður árangrinum af því
sem gert hefur verið á síðustu fjór-
um árum á þennan hátt,“ sagði
Magnús. Við munum reyna að tala
við okkar viðsemjendur um eitthvað
annað form og aðrar niðurstöður
en ef þessari stefnu ríkisstjórnar-
innar yrði framfylgt."
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra og Sighvatur Björgvinsson
heilbrigðisráðherra eru Magnúsi
ósammála um að samningurinn feli
í sér einhveija stefnumörkun.
ÆRIN Móra frá Bakka í Vatnsdal
bar tveimur fallegum gimbrarlömb-
um í gær. Að öllum líkindum eru
lömbin þau síðustu sem fæðast hér
á landi á þessu ári. Móra, sem er ær
á fimmta vetri, bar einnig um svipað
leyti í fyrra.
Kristín Lárusdóttir, húsfreyja á
Bakka, sagði að kindurnar hennar
hefðu gengið á svokallaðri Ponteyri
síðastliðið sumar, en jörðin er í eigu
„Sjúkraliðarnir eru seinasta heil-
brigðisstéttin, sem var með Iausa
kjarasamninga. Þarna má því segja
að menn hafi verið að reka smiðs-
höggið á liðinn tíma,“ sagði Sig-
hvatur.
„Eg sé ekkert tilefni til að þessi
samningur verði fordæmi fyrir aðra
samninga, sem verða gerðir á næst-
unni. Þvert á móti tel ég að það
verði í þeim samningum að taka
tillit til þess efnahagsbata, sem
framundan er, og gæta þess að
kjarasamningar verði í takt við
hann,“ sagði Friðrik.
■ Samningar sjúkraliða/4 og 6
Undirfellskirkju. Með ánum gengu
tveir hrútar. Móra hefur því að öllum
líkindum verið blæsma, þ.e. haft
egglos, um mestu ferðahelgi þjóðar-
innar, verslunarmannahelgina.
Annar hrúturinn í hópnum áttaði
sig á stöðu mála og með kirkjujörð
undir fótum var lagður grunnur að
mórauðu og gráu lambi.
Núna stendur fengitíminn hæst
og því all sérstætt að ær séu að bera.
Bar á fengitíma
Hlönduósi. Morgunblaðið