Morgunblaðið - 14.01.1995, Page 1
72 SIÐUR LESBOK/C/D
ll.TBL. 83.ÁRG.
LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Vaxandi áhyggjur Bandaríkjasljórnar af Tsjetsjníju
Bundinn verði endi
á blóðbaðið strax
Cleveland, Grosní, Moskvu. Reuter.
BILL Clinton, forseti Bandaríkjanna,'
hvatti í gær Rússa og Tsjetsjena til
að setjast að samningaborði og
stöðva blóðbaðið í Grosní, höfuðborg
Tsjetsjníju, og William Perry varnar-
málaráðherra sagði mikla hættu á,
að hernaðurinn kynti undir ókyrrð
annars staðar í Rússlandi. Hart var
barist í Grosní í gær en Rússar segja,
að andstaðan sé bundin við nokkrar
byggingar í miðborginni. Bendir
margt til, að þeir séu að undirbúa
lokasóknina gegn varnarsveitum
Tsjetsjena.
Clinton lagði áherslu á, að
Tsjetsjníja væri hluti af Rússlandi
og Rússar hefðu rétt á að standa
vörð um fullveldi ríkisins en hann
dró ekki dul á óánægju sína með
ástandið. Hvatti hann til, að bundinn
yrði endi á blóðbaðið strax og samið
Rússar virðast
vera að undirbúa
lokasóknina
um frið. Clinton nefndi aldrei Borís
Jeltsín, forseta Rússlands, á nafn
en ítrekaði stuðning sinn við lýðræð-
islegar umbætur í landinu.
Hættulegnr Rússum
William Perry, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, sagði í Nýju
Delhí á Indlandi, að hernaðurinn í
Tsjetsjníju væri hættulegastur Rúss-
um sjálfum og gæti valdið óstöðug-
leika annars staðar í landinu. Kvað
hann Bandaríkjastjórn hafa rætt við
rússnesku stjórnina um þessi mál
og reynt að ráða henni heilt.
Valentín Kovaljov, dómsmálaráð-
herra Rússlands, sagði á frétta-
mannafundi í gær, að andstaðan í
Grosní væri bundin við forsetabygg-
inguna og þrjár aðrar byggingar,
sem allar væru umkringdar. Voru
mestu bardagarnir við forsetabygg-
inguna og taldi /nterfax-fréttastofan
rússneska það benda til, að til stæði
að taka hana með áhlaupi.
Kristnir krossar
Fólk af rússneskum ættum er fjöl-
margt í Grosní og segja Tsjetsjenar,
að sumt af því, sem enn er í borg-
inni, hafi auðkennt dyr og glugga á
heimilum sínum með kristnum
krossum. Séu þeir skilaboð til rúss-
neskra hermanna um að þar búi
rétttrúaðir Rússar.
Reuter
Ný stjórn
mynduð á
Italíu
Róm. Reuter.
OSCAR Luigi Scalfaro Ítalíuforseti
fól í gær Lamberto Dini fjármálaráð-
herra myndun nýrrar ríkisstjórnar,
þeirrar 54. eftir stríð.
Dini vann við bankastörf þar til
hann tók sæti í stjórn Silvios Ber-
lusconis í maí í fyrra
Hann sagðist ætla að mynda ut-
anflokkastjóm og helsta viðfangs-
efni hennar yrði að glíma við fjár-
lagahalla, stokka upp lífeyrissjóða-
kerfið og gera umbætur á kosninga-
löggjöfinni.
„Stjórnin verður laus við flokka-
pólitík," sagði Dini, sem er óflokks-
bundinn, og samstundis ruku verð-
bréf upp í verði og gengi lírunnar
hækkaði.
Búist er við að stjórnin taki við
völdum um miðja næstu viku.
Bæði Berlusconi og Gianfranco
Fini, leiðtogi íjóðfylkingarinnar,
hvöttu til þess að nýjar kosningar
yrðu haldnar sem fyrst. Umberto
Bossi leiðtogi Norðursambandsins
sagði hins vegar að kosningar væru
ekki í nánd, þegar þær yrðu loks
haldnar yrði Berlusconi orðinn leið-
inlegt gamalmenni.
------♦ ♦ ♦-------
Airbus nær
Boeing
AIRBU S-flugvélaverksmiðj urnar
hafa dregið Boeing-verksmiðjurnar
uppi hvað sölu varðar, aldarfjórðungi
eftir stofnun evrópsku verksmiðj-
anna.
Undanfarna þijá áratugi hefur
markaðshlutdeild Boeing verið rúm-
lega 60% og hlutdeild Airbus aldrei
farið upp fyrir 35%. Á nýliðnu ári
seldu verksmiðjurnar tvær hins veg-
ar jafnmargar farþegaþotur, eða 120
hvor.
Segir móður-
ina hafa
bjargað sér
NÍU ára stúlka, Erika Delgado,
segir móður sína hafa kastað
sér út úr kólumbískri flugvél
eftir að sprenging varð um
borð í henni og þannig bjargað
lífi sínu. Vélin fórst á miðviku-
dagskvöld nærri Cartagena I
Kólumbíu og með henni 51 far-
þegi en Erika komst ein lífs af.
Hún brákaðist á öxl og mjöðm
en er úr lífshættu. Foreldrar
hennar og bróðir fórust í slys-
inu. Á myndinni er komið með
Eriku á sjúkrahús í Cartagena.
Conner tap-
aði fyrir
kvennaskútu
DENNIS Conner skútustjóri á
Stars & Stripes tapaði fyrir Amer-
ica3, en í áhöfn hennar eru ein-
vörðungu konur, er Ameríkubik-
arinn í skútusiglingum hófst í gær
undan San Diego í Kaliforníu.
America3, sigurskútan frá síðustu
keppni, vann startið og var alla
leið á undan skútu Conners. Þijár
bandarískar skútur keppa um
Citizen-bikarinn og réttinn til að
veija Ameríkubikarinn en í áskor-
endaflokki eru sjö skútur frá
fimm löndum. Innbyrðis keppni
þeirra um Louis Vuitton-bikarinn
og réttinn til að sigla til úrslita
um Ameríkubikarinn hefst í dag.
Undankeppninni lýkur i lok apríl
og úrslitalotan hefst 6. maí. Á
myndinni leggur áhöfn spænsku
skútunnar Rioja de Espana síð-
ustu hönd á undirbúning sinn
undan San Diego.
Nýtt lyf talið geta auk-
ið vellíðan í ellinni
Boston. Morgfunblaðið.
VÍSINDAMENN rannsaka nú nýtt
efni, sem gæti dregið úr áhrifum
öldrunar. Efnið nefnist dehydroep-
iandrosterone, skammstafað DHEÁ,
og virðist samkvæmt tilraunum, sem
gerðar voru á fólki, munu geta auk-
ið vellíðan í ellinni.
Rétt er að taka fram að hér er
ekki um það að ræða að æskubrunn-
urinn hafi verið fundinn með fyrir-
heitum um eilíft líf. DHEA gæti hins
vegar leitt til þess að aldraðir eigi
síður á hættu að verða gleymnir,
þreyttir, þjást af stökkum beinum
eða offitu. Það gæti auðveldað öldr-
uðum að komst leiðar sinnar, t.d. að
fara upp og niður stiga og ferðast
með almenningsfarartækjum.
Franski læknirinn Emile-Etienne
Baulieu, sem fann upp fóstureyðing-
arpilluna RU486, einangraði efnið
fyrir rúmum 30 árum. Þá var hann
að rannsaka áhrif testosteróns og
estrógens, sem eru lykilþættir í
DHEA.
Vísindamenn við Kaliforníuháskól-
ann í San Diego hafa nýlokið sex
mánaða tilraunum undir forystu
innkirtlafræðingsins Samuels S.C.
Yens, þar sem sjúklingum á aldrinum
40 til 70 ára var ýmist gefið DHEA
í litlum skömmtum eða óvirkur stað-
gengill í sex mánuði.
Að sögn Yens sváfu þeir sem tóku
DHEA betur, höfðu meiri orku og
áttu auðveldara með að þola streitu.
Hann sagði að sagnir um áhrif DHEA
hefðu verið á sveimi í 20 ár, en eng-
inn hefði gert alvöru rannsókn á efn-
inu þar til hann kom til sögunnar.
Yen birti niðurstöður sínar í
bandarísku vísindatímariti, Joumal
of Clinical Endocrinology and Meta-
bolism, í júní, en það virðist hafa
farið fram hjá bandarískum fjölmiðl-
um. Franskir fjölmiðlar hafa hins
vegar slegið málinu upp með stríðs-
letri og hampaði tímaritið Le Point
Baulieu fyrir „stórkostlega uppgötv-
un“.
Baulieu, sem er góðvinur Yens,
vill hins vegar hafa allan vara á og
segir að hér sé ekki fundin nein allra-
meinabót. Hann kveðst hins vegar
bjartsýnn og bendir á að þátttakend-
ur í rannsókninni hafi fundið fyrir
því að dregið hafi úr verkjum í lið-
um, auk þess sem DHEA virðist
styrkja ónæmiskerfið, sem réttlæti
að gefa það alnæmissjúklingum.
Reuter
■ Þakkar móðurinni/20