Morgunblaðið - 14.01.1995, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 14.01.1995, Blaðsíða 48
48 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 1995 MORGVNBLAPm MARISA.TOMEI R.OBER.T DOWNEYJR ★★★ MORGUNPÓST4JIRINN HX ÞRIR Ein stelpa, tveir strákar, þrír möguleikar threesome Sýnd kl. 9 og 11. b. i 12 ára. KARATESTELPAN Sýnd kl. 5. Miðaverð kr. 350 Mioaverð kr. 550. Sýnd kl. 7. Síðustu sýningar. 16500 STJÖRNUBÍÓLÍNAN SÍMI 991065 Taktu þátt í spennandi kvikmyndagetraun. Verðiaun: Only you bolir og boðsmiðar á myndir í STJÖRNUBÍÓI. Verð kr. 39,90 mín. AÐEINS ÞU MARISA TOMEI ROBERT DOWNEY JR. BONNIE HUND, JOAQUIM DE ALMEIDA, FISHER STEVENS (COLD FEVER) í frábærri rómantískri gamanmynd. Hlátur — grátur og allt þar á milli. í leikstjórn stórmeistarans NORMANS JEWISON Sýnd, 5, 7, 9 og 11. Einheijar í golfí um sex hundruð ► SEX hundruð íslendingar hafa farið holu í höggi á golf- vellinum. Einherjar, en svo kall- ast þeir sem það afrek vinna komu saman 30. desember þar sem nýir klúbbfélagar voru boðnir velkomnir. Alls urðu þeir 62 á sl. ári sem er það mesta frá upphafi. Fjölgun hefur verið mikil á síðustu árum og geta má þess að árið 1973 voru ein- herjar aðeins um fimmtíu tals- ins. Á myndinni má sjá hluta af hópnum sem fór holu í höggi á síðasta ári. Golfmót TERENCE Stamp í hlutverki kynskiptingsins Bernadette, uhí l\elaiua Laugardag: 10-16 (báða Sonnuda^. U\. 12-17 íKv. Herradeild: Leburjakkar frá 9.900 Peysur 5.900, nú 2.900 Rúllukragapeysur 2.900, nú 990 Stakir jakkar Charlys 15.900/16.900,nú 9.900 Jakkaföt frá 9.900 Uppreimaöir skór frá 3.900 j I.ois gallabuxur 3.900 Dömudeild: Peysur 5.900, nú 3.500 Bolir 3.900, nú 1.900 Skór 6.900, nú 4.900 Skór 5.900, nú 3.900 Lois gallabuxur 3.900 Háhælaskór 3.900/4.500, nú 1.900 Snyrtivörudeild: ★ 20% afsláttur af öllum náttfötum ★ 10% afsláttur af öllum ilmvötnum Laugavegi, sími 17440 Kringlunni, sími 689017 Stamp stór- stjarna á ný BRESKI kvikmyndaleikarinn Ter- ence Stamp skaust öllum á óvart á nýjan leik upp á stjörnuhimininn þegar hann fór með hlutverk kyn- skiptingsins Bemadette í ástralska smellinum Priscilla: Drottning eyði- merkurinnar, sem nú er sýnd í Há- skólabíói. Fyrir frábæra frammistöðu sína í myndinni hefur Stamp verið tilnefndur til Golden Globe verðlaun- anna sem afhent verða 31. jariúar næstkomandi í Hollywood, en auk þess var myndin sjálf tilnefnd til verðlauna sem besta söngva- og gamanmyndin. Stamp varð á sínum tíma frægur svo að segja á einni nóttu þegar hann lék á móti Peter Ustinov í myndinni Billy Budd árið 1962. Árið 1965 lék hann í spennumyndinni The Collector, sem var ein fyrsta myndin sem gerð var um raðmorðingja, og 1967 lék hann svo á móti Julie Christie í Far From The Madding Crowd, og þar með var hann orðinn að einskonar persónugervingi sjö- unda áratugarins. Á þessum árum lék Stamp í myndum nokkurra helstu kvikmyndaleikstjóra tímabilsins, t.d. William Wyler, Joseph Losey, Fed- erico Feliini, Pier Paolo Pasolini og Peter Brook. En þegar þessum at- hafnasama áratugi lauk má segja að Stamp hafí sjálfum verið öllum lokið, því hann nánast hvarf af sjón- arsviðinu næsta áratug. Sögusagnir hermdu að hann hefði gengið af göflunum og farið á bólakaf í eiturly- fjaneyslu, og sjálfur viðurkennir hann að einhver flugufótur sé fyrir því. En hann segir að brotthvarf sitt úr kvikmyndum hafí þó fyrst og fremst stafað af því að honum hafi einfaldlega ekki boðist nein hlutverk og því hafí hann lagt land undir fót og farið í skoðunarferð um heiminn. „Af því að ég var horfinn af sjónar- sviðinu spunnust allskyns furðuleg- ar sögusagnir um afdrif mín, og þannig átti ég til dæmis að vera heilaskaddaður á hæli í Sviss eða sestur að í helli á Indlandi í stans- lausri vímu,“ sagði Stamp í nýlegu blaðaviðtali. Tíu árum seinna, eða árið 1978, skaut Stamp svo öllum á óvart upp kollinum á nýjan leik í kvikmyndum, en þá birtist hann skyndilega í stórs- mellinum Superman. Aðdragandi þess segir Stamp að hafí verið sá að þegar hann var staddur á ferða- lagi á Indlandi hafí honum skyndi- lega borist skilaboð frá leikstjóra myndarinnar, Richard Donner, sem boðið hafí honum hlutverk í tveimur Supermanmyndum með Marlon Brando, og svo sannarlega hafí hann ekki þurft að hugsa sig tvisvar um. Þetta varð til þess að Stamp fóru að berast hin og þessi hlutverk og má þar meðal annars nefna auka- hlutverk í Wall Street Olivers Stone, The Hit, sem Stephen Frears gerði, og The Sicialan, sem Michael Cimino leikstýrði. Hann hefur á þessum tíma einnig fengist við ritstörf, og eftir hann liggja meðal annars sjálfsævi- saga í þremur bindum og skáldsagan the Night sem út kom 1993. Stamp segir að hlutverk kynskipt- ingsins í Priscillu hafi verið hið mest krefjandi sem hann hefur tekið að sér til þessa, en hann segist hins vegar ekki búast við að taka að sér annað slíkt þar sem hann forðist all- ar endurtekningar. Næst mun hann taka að sér hlutverk fíðluspilandi kynlífsráðgjafa í kvikmyndinni Bliss sem nýliðinn Lance Young kemur til með að leikstýra. Hann segist ekkert vera smeykur við að leika í mynd óþekkts leikstjóra og vísar hann í því sambandi til þess að Priscilla hafí aðeins verið önnur kvikmyndin sem Stephan Elliot leikstýrði. Stamp sem nú er 55 ára segir auk þess að á þeim aldri vilji menn helst fá að taka að sér einungis þau verkefni sem þeir hafi áhuga á og líki við, og einmitt það eigi við hlutverk hans í Bliss þar sem hann verður umvaf- inn fögrum konum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.