Morgunblaðið - 14.01.1995, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 14.01.1995, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Morgunblaðið/Ámi Sæberg FJÖLNIR Torfason, framkvæmastjóri og aðaleigandi Eðalíss, sést hér handsala samstarfssamninginn við fulltrúa Arctic Marketing. Eðalís selurjökul- ís til Bandaríkjanna FYRIRTÆKIÐ Eðalís hf. í Hafnar- fírði hefur hafíð samstarf við þrjú bandarísk fyrirtæki, Arctic Market- ing, Tri Star Packaging Inc. og Glop- ak Inc. um markaðssetningu á jökulís- molum í neytendaumbúðum í NAFTA-löndunum. Var samstarfs- samningur þar að lútandi undirritaður á miðvikudag. Fyrsta sendingin fer vestur um haf um mánaðamótin mars-apríl nk., segir í fréttatilkynn- ingu. Eðalís hefur undanfarin tvö ár unnið að þróun framleiðslutækja og umbúða fyrir jökulís til útflutnings. ísinn er tekinn úr Breiðamerkuijökli og hefur fram til þessa verið fluttur til Hafnarfjarðar til úrvinnslu og pökkunar. Fjölnir Torfason, fram- kvæmdastjóri og aðaleigandi, segist binda miklar vonir við að árangur náist í sölu á Bandaríkjamarkaði enda sé þar gífurlega stór markaður fyrir ís til manneldis. Isinn úr jökiinum sé náttúruleg afurð, molamir stærri en almennt gerist auk þess sem hann kæli betur en annar ís. Hafí góð við- brögð fengist við ísnum á innienda markaðnum en hann var um skeið á boðstólum í verslunum Hagkaups. Reksturinn hefur hingað til verið fjármagnaður með eigin fé en hlutafé félagsins er alls 20 milljónir króna. Segir Fjölnir að fyrirtækið hafí ekki fengið neina fyrirgreiðslu banka og hún standi raunar ekki tii boða jafn- vel þótt tryggingar fyrir lánum hafí verið fyrir hendi. Stefnt sé að því að flytja framleiðsluna til Hornaflarðar og ráðgeri Homaíjarðarbær að leggja fyrirtækinu til allnokkurt viðbótar- hlutafé. Fjárfestingarfélagið Skandia blandar sér í slaginn um hlut Akureyrarbæjar í Útgerðarfélagi Akureyrar 8 Enginn kvótí verði fluttur frá Akureyri FJÁRFESTINGARFÉLAGIÐ Skan- dia hf. hefur fyrir hönd umbjóðenda sinna lýst sig reiðubúið til viðræðna við bæjarstjórn Akureyrar um hugs- anlega sölu bæjarins á 53% hlut sín- um í Útgerðarfélagi Akureyrar. Þar með hafa sex aðilar lýst yfir áhuga á hlut Akureyrarbæjar í ÚA, Samheiji, KEA, Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna, starfsmenn ÚA, Líf- eyrissjóður Norðurlands ásamt fleiri fjárfestum og síðast Skandia í um- boði hóps fjárfesta. „Umbjóðendur okkar em breiður hópur íýrirtækja og lífeyrissjóða," sagði Árni Oddur Þórðarson hjá Skandia í samtali við Morgunblaðið. „Við höfum jafnframt leitað eftir samstarfi við starfsfólk ÚA varðandi hugsanleg hlutafjárkaup, enda er enginn vilji væntanlegra íjárfesta, sem Skandia er umboðsaðili fyrir, tii þess að flytja fyrirtækið frá Akur- eyri. Fjárfestarnir telja að á Akur- eyri séu hagkvæm skilyrði til útgerð- ar og eru tilbúnir til þess að festa í samþykktir féiagsins að ekki komi til flutninga á kvóta frá Akureyri, hvorki að hluta né öllu lejiti." Árni Oddur sagði ennfremur að fulltrúar frá Skandia og bæjarstjórn Akureyrar myndu hittast til við- ræðna í næstu viku. Eins og fram kemur í frétt á Akureyrarsíðu Morg- unblaðsins í dag hefur bæjarstjórnin skipa fimm manna nefnd til við- ræðna við þá aðila sem sýnt hafa áhuga á hlutabréfum bæjarins í ÚA. Eftir að niðurstöður þeirra viðræðna liggja fyrir mun bæjarstjórnin taka afstöðu til þess hvort hlutabréfín verða seld. A T& T sækir fram í Evrópu Bonn. Reuter. EVRÓPSKA tölvuþjónustan Europe Online S.A. og Interchange Online Network, sem nýlega komst í eigu AT&T, hafa myndað með sér banda- lag til þess að ráða lögum og lofum í evrópskum tölvuheimi og margm- iðla iðnaði. Europe Online fær hugbúnað frá Interchange og hyggst keppa við CompuServe, hið volduga, banda- ríska einkatölvunet, um hylli vax- andi ijölda evrópskra tölvunotenda með því að höfða til óska þeirra um evrópskt efni. Vegna áherzlu Europe Online á Evrópu og á tengslin við AT&T, stærsta símafyrirtæki heims, telur Europe Online sig hafa góða mögu- leika á því að verða forystuafl í margmiðla iðnaði álfunnar. „Europe Online veitir þeim sem fyrirtækið fær efni frá hagstæð efnahagsleg skilyrði til þess að bjóða evrópskum áhorfendum beina margmiðla þjónustu,“ sagði Júrgen Ziessnitz, framkvæmdastjóri Europe Online, í yfirlýsingu. Europe Online er í eigu voldugs hóps fjölmiðla- og íjármálafyrir- tækja, þar á meðal Burda Verlag GmbH í Þýzkalandi, Matra-Hachette Multimedia í Frakklandi, brezka út- gáfufyrirtækjanna Pearson Plc, sem á Financial Times, og Penguin Bo- oks, og Meigher Communications í Bandaríkjunum. Sjálf er þjónustan á frumstigi. Hluthafar munu bjóða nokkurt efni, en Europe Online á einnig í samning- um við önnur evrópsk fyrirtæki og banka um alls konar beintengda þjónustu, til dæmis almennar fréttir og fréttir úr viðskiptaheiminum. Þjónustan á að verða tilbúin um mitt þetta ár á frönsku, ensku og þýzku til að byija með. Hrávara Málmar hækka enn, sumir á metverði UTSALA -herra- GARÐURINN Kringlunni London. Reutcr. VERÐ á helztu málmum hækkaði enn í vikunni og sumir seldust á nýju metverði. Sérfræðingar spá hærra verði að meðaltali en í fyrra — talsvert hærra verði í sumum til- fellum. Framboð minnkar. Töluverð hækkun varð á verði góðmálma, sem hefur verið lágt að undanförnu. Margt bendir til þess að umrót á gjaldeyrismörkuðum hafi leitt til aukinna málmkaupa, þótt enn sé ekki um stóraukningu að ræða. Nánar um stöðuna á hrávöru- markaði í vikunni: KOPAR. Kínveijar héldu áfram banni á koparútflutningi og sú hug- mynd komst á kreik að þeir kynnu að hefja á ný innflutning á kopar. í gær virtist hækkunin nálgast met það sem var sett í vikunni þegar 3,050 dollarar fengust fyrir tonnið, hæsta verð í tæp sex ár. ÁL.Minni birgðir stuðluðu að hæsta verði í 4 1/2 ár í London, 2,080 dollarar. Framámenn í bandarísk- um áliðnaði kváðust vissir um að bandarísk stjórnvöld mundu standa við samkomulag um að draga úr framleiðslu. Þar með dró úr nokk- urri ókyrrð á markaðnum. GULL.Áukin eftirsþurn leiddi til hærra verðs eftir lækkun í 375 dollara. Gjaldeyrisumrótið eftir hrunið í Mexíkó jók söluna. SILFUR.Náði sér aftur á strik þeg- ar Mexíkómenn sögðu að þeir mundu ekki selja silfur til þess að ná jöfnuði. HRÁOLÍA.Viðmiðunarverð traust- ara eftir aukna eftirspurn eftir olíu úr Norðursjó. KAFFI.Skiptar skoðanir um hvort Brasilía muni styðja fyrirætlanir framleiðenda um að takmarka birgðasendingar og hvort það hefði áhrif. Slíkar bollaleggingar leiddu til glundroða á markaðnum. Fundur Alþjóðakaffiráðsins, ICO, í London í næstu viku ææti að skýra málin. KAKÓ.Tonnið seldist hæst á 1,028 pund tonnið, en lækkaði svo. SYKUR.Deyfð á markaðnum leiddi til lækkana eftir hækkanir. Beðið eftir hugsanlegum kaupum Ind- veija og Kínveija HVEITI.Lítil hreyfing. JURTAOLÍA. Geldur þess að framboð virðist meira en flestar nýlegar tölur sýna. SJÓFLUTNINGAR Kostnaður við sjóflutninga á hrávöru eins og korni, járngrýti og kolum frá fdramleiðslulöndum til neytenda- markaða heldur áfram að aukast Fraktvísitalæa Baltie Exchange komst í 2,060 stig, sem er met, og hækkaði um tæplega 4% í vikunni. UTSALA 10-60% AFSLATTUR Vetrarfatnaður, skíðagallar, dúnúlpur, íþróttaskór, íþróttagallar o.fl. Nýtt kortatímabil. Opí& laugardag kl. 10-16 »hummel s SPORTBÚÐIN Ármúla 40 • Sími 813555 og 813655

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.