Morgunblaðið - 14.01.1995, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 14.01.1995, Blaðsíða 30
, MORGUNBLAÐIÐ 30 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 1995 r' . . SÓLEY GUNNLA UGSDÓTTIR + Sóley Gunn- laugsdóttir fæddist á Klaufa- brekkum í Svarfað- ardalshreppi 19. ág- úst 1908. Hún lést á Sjúkrahúsi Siglu- fjarðar 31. desem- ber síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Steinunn Sigtryggs- dóttir, f. 2. ágúst 1881 á Klaufabrekk- um, d. 30. janúar 1923, og Gunnlaug- ur Daníelsson, f. 20. júlí 1868 í Tjarnar- garðshorni í Svarf- aðardal, d. 12. júlí 1952 á Siglu- firði. Þau bjuggu síðast á Upsum í Svarfaðardal. Sóley var elst barna þeirra hjóna en önnur börn þeirra eru: Anna Laufey, f. 12. ágúst 1910, búsett í Reykjavík, Guðmar, f. 9. september 1913, búsettur á Akureyri, Jóhanna Kristin, f. 3. mars 1915, búsett á Akureyri, Guðjón, f. 18. maí 1917, Áfram þjóta árin sem óðfluga ský. Og tíðin verður tvenn og þrenn, og tíðin verður ný. En það kemur ekki mál við mig , ég man þig fyrir þvi... (Jóhann Jónsson) Árin hverfa eitt af öðru í aldanna skaut og skilja eftir sig minningar, sumar svo skýrar að tíminn vinnur ekki á þeim. Það er frekar að hann skerpi þær Þegar aðeins lifðu fáir tímar af árinu 1994 kvaddi gömul vinkona norður á Siglufírði þetta líf og minningar tengdar henni eru skýrar, bæði margar og góðar. Gam- all málsháttur segir að hollur granni sé gulli betri. Varla hefur sá máls- háttur sannast betur á nokkrum öðr- um en'þeim heiðurshjónum Leó Jóns- syni og Sóleyju Gunnlaugsdóttur konu hans sem kvödd er í dag. Minningar bera mig nokkra ára- tugi aftur í tímann. Sviðið er Siglu- fjörður og í húsinu að Hverfisgötu 11, tveggja hæða húsi uppi á brekku, bjuggu þijár kynslóðir á hvorri hæð. Á efri hæðinni Leó, Sóley, Minny dóttir þeirra og Gunnlaugur faðir Sóleyjar. Á neðri hæðinni bjuggu d. 20. ágúst 1994, og Liþ'a Emelía, f. 9. október 1921, búsett í Kópavogi. Frá fyrra hjónabandi átti Gunnlaugur dóttur- ina Guðrúnu og son- inn Gunnar BQddal sem bæði eru látin. Eftirlifandi eiginmað- ur Sóleyjar er Leó Jónsson, trésmiður, f. 7. september 1909 á Höfðaströnd, Grunnavíkurhreppi. Dóttir þeirra er Minny, f. 24. júlf 1934, hjúkrunarfræðingur á Sauðárkróki. Eiginmaður Minnyjar var Haukur Stefánsson, málarameistari, f. 24. ágúst 1933, d. 17. júlí 1992. Minny á tvö böm, Leó Reyni Ólason, f. 9. nóvember 1955, og Sæunni Öladóttur, f. 13. desember 1958. Leó Reynir ólst upp hjá móðurforeldrum sinum. Útför Sóleyjar fer fram frá Siglu- fjarðarkirkju í dag. foreldrar mínir, Jóhann og Helena, ásamt okkur systkinunum, sem þá vorum orðin fimm, og móðurömmu minni Ingibjörgu. Á nútímamælikvarða hefði verið talið þröngt búið á neðri hæðinni en ekki minnist ég þess að það hafi verið okkur til mikillar hindrunar á einn eða annan hátt því stiginn sem lá á milli hæðanna var æði oft í notk- un og við vorum ekki há í loftinu, systkinin, þegar við höfðum náð ótrú- legri fæmi í honum og efri hæðin var eiginlega tekin eignamámi. Allt- af var okkur tekið með kostum og kynjum og eins og við væmm aufúsu- gestir Sóleyjar og hennar fólks en ekki að þvælast fýrir. Þetta sambýli stóð yfir í nær 20 ár í sátt og sam- lyndi og þessi átroðningur, sem ein- hver hefði getað kallað svo, virtist ekkert tmfla Sóleyju við dagleg störf sem öll vom unnin fumlaust og af glaðværð og kostgæfni. Snyrti- mennska var í hávegum höfð. Hver hlutur hafði sitt hlutverk á sínum stað. Á sumrin var alltaf sól, minnir mig, og garðurinn sem var að mestu leyti verk Sóleyjar og Leós skartaði sínu fegursta. Þar vora blómabeð og há reynitré sem hægt var að klifra MINNINGAR í og það var ekki bannað. Á veturna var alltaf tunglskin og glampandi norðurljós í minningunni en einhvem tímann hefur þó snjóað því stundum var svo mikið fannfergi að við íbúarn- ir á neðri hæðinni sáum ekki skímu að utan og komumst ekki út nema með því að fara út á efri hæðinni. Sóley tók þessu öllu með jafnaðar- geði, virtist jafnvel hafa gaman af. Geðlaus var hún þó ekki og eitt af mörgum atvikum sem stimplað er í minni mitt frá þessum ámm er að ég var ráðin í vist hjá henni við að passa dóttursoninn Leó Reyni. Kaup- ið var gott, héti líklega yfirborgun í dag, en einn morguninn mætti ég ekki, var að leika mér í grenndinni. Hún sagði fátt en þó það, að allir ættu að passa það sem þeim hefði verið trúað fyrir. Það dugði. Þessum minningum mínum er ætlað að gefa mynd af heilsteyptri kbnu sem vandaði verk sín og líf sitt. Hún hafði ekki hátt og sat ekki í neinum nefndum né var á þeysingi um borg og bý. Hún var umtalsgóð og bar hag ættingja og vina fyrir bijósti. Æðrulaus til hinsta dags og einstök í huga okkar. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Hafi Sóley þökk fyrir gengin spor og hlutverk hennar í góðum bemsku- minningum. Leó, Minny, Leó Reyni, Sæunni og öðmm ættingjum sendum + Þórhildur Björg Jóhannes- dóttir fæddist á Víkinga- vatni í Kelduhverfi hinn 20. jan- úar 1899. Hún lést á heimili sínu, Hátúni 2 í Reykjavík, 31. desem- ber sl. Eiginmaður hennar var Ásmundur Eiríksson frá Reykj- arhóli í Fljótum, forstöðumaður Betelsafnaðarins í Vestmanna- eyjum og síðar FQadelfíusafnað- arins í Reykjavík. Útför Þórhild- ar fór fram mánudaginn 9. jan- úar 1995 frá Fíladelfíu. í DAG kveð ég mjög merka konu, konu sem var mér afar kær, hana Þórhildi mína. Hún var okkur börn- um safnaðarmeðlima í Hvítasunnu- við systkinin og foreldrar okkar sam- úðarkveðjur. Jóna Möller. Þegar árið 1994 var að kveðja fékk ég þær fréttir að Sóley amma hefði látist fyrr um kvöldið, það gat þá ekki endað öðmvísi þetta ár. Fyrst lést minn elskulegi faðir 27. mars, þá móðurafi minn 15. júní og nú amma. Þetta nýliðna ár rennur víst seint úr minni. Ég kallaði Sóleyju alltaf ömmu þar sem hún var eigin- kona afa míns Leós sem var faðir föður mín Gunnars. Þegar ég hugsa til baka kemur fyrsta ferðin mín til Siglufjarðar ásamt fjölskyldu minni upp í hugann, ég var þá 11 ára. Við fóram í fyrsta skiptið í Iangt ferðalag í bfl. Þetta var eins og ævintýri og fengum við alveg yndislegar móttök- ur. Amma vildi allt fyrir okkur gera og dáðist maður að því hvað hún var þolinmóð við okkur fjögur systkinin, sem þurftum mikið að spyrja og margt að sjá. Eftir það fór ég nokkr- ar ferðir í heimsóknir til þeirra og áttum við mjög notalegar stundir saman, en þær hefðu mátt vera miklu fleiri, þar sem ég bý í Bolungarvík er ekki svo gott að skreppa í heim- sókn. Amma kom einu sinni vestur til okkar með afa og fór með okkur í Flæðareyri (átthaga afa) á átthaga- mót, það var ekki verra að geta stát- að af afa og ömmu í næsta tjaldi, skemmtum við okkur öll konunglega. Amma var mjög heilsutæp síðari árin og dvaldi því á sjúkrahúsi Siglu- fjarðar, það fór ekki mikið fyrir því að hún kvartaði heldur bar hún sig alltaf svo vel. Hún var alveg yndisleg söfnuðinum mikill styrkur í nývak- inni trú okkar. Hún bað okkur að halda fast í trúna. Hún bað okkur að halda fast í trúna einnig þegar við yxum úr grasi, því að þroskast í trúnni væri okkur afar mikilvægt, samfara vaxandi þroska til sálar og líkama. Hún varaði okkur tíðum við öllum þeim freistingum sem jafnan mæta ungu fólki. Já elskulega Þór- hildur var okkur sem önnur móðir, orð hennar voru mér sannur og mik- ill fjársjóður. Leiðir okkar skildu um nokkurt árabil, þegar ég flutti af landi brott með foreldrum mínum. Síðan liðu árin eitt af öðru og komu orð og ráðleggingar Þórhildar minnar oftlega upp í huga minn á manneskja, var alltaf tilbúin að hjálpa öllum ef hún gat. Það streymdi frá henni svo mikil birta og hlýja, manni leið alltaf vel í návist hennar. Amma og pabbi höfðu frá fyrstu kynnum verið perluvinir, hafa því vafalaust verið fagnaðarfundir þegar þau hittust hinum megin. Það er gott að eiga góðar minningar til að ylja sér við þegar fram líða stundir. Hafðu bestu þakkir fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkar fjölskyldu pabba, sem þú varst sem besta móðir. Guð geymi þig, elsku amma, og styrki afa, Minny, Leó, Sæju og íjöl- skyldur þeirra. Jóhanna Sóley Gunnarsdóttir, Bolungarvík. Hjá þér hlaut hinn snauði huggun marga stund; hærra heimsins auði hófst þú sál og mund. Þeir, sem þerra tárin; þjáðum létta raun; fá við farin árin fógur sigurlaun. Böm og frændur falla fram í þakkargjörð fyrir ástúð alla árin þín á jörð; fyrir andans auðinn, arf, sem vísar leið, þegar dapur dauðinn dagsins endar skeið. (M. Markússon) Löngu og fögru lífshlaupi þínu er lokið. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Gréta Jónsdóttir. þessum árum. Síðan lá leiðin aftur heim til íslands, og þá var eitt af mínum fyrstu verkum að fara í heim- sókn til Þórhildar. Ég kom nú sem gift móðir tveggja indælla barna sem Drottinn hafði i náð sinni gefíð mér. Þessi endurfundur líður mér seint úr minni og orðum hennar þessu sinni gleymi ég aldrei, hún sagði: „Já, Inga mín. Drottinn hefír gefið þér mikið, góðan eiginmann og svo tvö svona yndisleg börn.“ Hún sagði einnig í þetta skipti við mig nokkuð sem mér fínnst að lýsi henni betur en margt annað: „Inga mín, þegar ég heyri lítið bam hjala fínnst mér það vera sem himneskur englasöng- ur.“ Elsku Þórhildur mín fyrirgef þú þessi fátæklegu minningarorð, þau koma frá hjarta mínu. Megi góður Guð blessa minninguna um góða og göfuga konu. Ingibjörg Björnsdóttir. ÞORHILDUR BJORG JÓHANNESDÓTTIR EINAR SKARPHÉÐINSSON + Einar Skarphéðinsson fædd- ist á Hjarðarbóli í Eyrarsveit 24. ágúst 1927. Hann andaðist í Landakotsspítala að morgni 3. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Skarphéðinn Sigurðsson og Sigríður Einars- dóttir. Systir Einars er Ragn- heiður Skarphéðinsdóttir hús- freyja í Grundarfirði. Eftirlif- andi eiginkona Einars er Kristin Pálsdóttir, fædd 24. júlí 1932 einnig á Hjarðarbóli í Eyrar- sveit. Henner foreldrar voru Páll Þorleifsson bóndi á Hjarðar- bóli og kona hans Jakobína Jóns- dóttir, Börn Einars og Kristínar ELSKULEGUR frændi minn, Einar Skarphéðinsson, er látinn, eftir stutta ep erfíða sjúkdómslegu. Augljóst var þeim sem til þekktu að ekki var allt með felldu varðandi heilsu hans sl. sumar. Augun sem venjulega loguðu af eldmóði og stríðni vom dauf og líflaus. Hann sem alla tíð hafði verið óþreytandi og driffjöður hvað sem þurfti að gera eða fara, virtist upp- gefínn og síþreyttur. Það var augjós- lega eitthvað mikið að. Enda kom á daginn að hinn þögli óvinur hafði unnið skaða sem ekki var hægt að bæta. Skaða sem á örskömmum tíma lagði þennan eldhuga að velli. Einar Skarphéðinsson, eða Einsi, eins og hann var ætíð kallaður hjá okkur frændfólkinu, var léttur í lund og léttur á velli, og engan mann man eru: Pálmar, f. 3.1. 1952, kvænt- ur Oddrúnu Sverrisdóttur, eiga þau fjögur börn; Sigríður, f. 5.1. 1954, gift Hallbirni Þorbjörns- syni, þau eiga tvo syni; Jakob- ína, f. 2.8. 1955, gift Guðlaugi Einarssyni, þau eiga 3 syni; Sæ- dís, f. 12.10. 1956, gift Magnúsi Jónassyni, þau eiga þrjú böm. Svandís, f. 12.10. 1956, gift Krisljáni Kristjánssyni, þeirra böm em tvö; og Svava, f. 15.8. 1965, gift Sigurði Birgi Sigurðs- syni og eiga þau tvö böm. Útför Einars verður gerð frá Gmndarfjarðarkirkju í dag. ég fótfrárri, enda ófáar smalamenn- skumar, sem hann tók þátt í, þar sem ekki var hægt að koma fyrir hestum og menn urðu að smala gangandi. Þær vom ófáar ferðimar sem hann sótti mig stelpubudduna ósjálfbjarga einhvers staðar í landareigninni á Hjarðarbóli, þar sem ég hafði skaðað mig á ökla. Þá hafði ég hlaupið meira af kappi en forsjá og komið illa nið- ur, og komst ekki heim. Einsi var þá ætíð í hlutverki sjúkrabflsins kom og sótti mig og bar mig í fanginu heim. Mér fannst hann ógurlega sterkur að geta haldið á mér oft lang- ar vegalengdir ofan úr hæðunum í kring til að koma mér í meðferð hjá ömmu sem beið heima. Mínar fyrstu minningar um þennan elskulega frænda minn ná að mér fínnst eins langt aftur og ég man vera mína á Hjarðarbóli að sumri til, en þangað fór ég á öðru ári og þar til ég var 12 ára. Ég minnist hans þegar hann og Stína frænka voru að draga sig saman. Eftirvæntingin sem lá í loftinu, þegar hans var von í heimsókn fyrstu árin mín þama, var áþreifanleg. Þá var setið á hólnum við bæinn og fylgst með veginum heim og rifist um það hver var fyrst- ur að sjá bílinn hans koma, en Éinsi átti bláan lítinn pallbíl, sem er flott- asti og besti pallbíll sem nokkurn tíma hefur verið til á íslandi, í minningu okkar stelpnanna. Þegar hann svo nálgaðist heimreiðina var hlaupið eins og fætur leyfðu til að taka á móti honum. Og þó allur hans hugur hafí efalítið verið við að hitta kæmstuna sína sem allra fyrst þá gaf hann sér tíma til að elta okkur og slást góða stund áður en hann hvarf inn til henn- ar. Einsi var sérstakur að mörgu leyti. Hjá honum var ekki til neitt sem heitir kynslóðabil. Faðir minn sem er 20 áram eldri en Einsi átti í honum jafn mikinn vin og ég eða minn mað- ur, þegar hann kom til sögunnar. Börnin okkar áttu ekki síður auðvelt með að fá**s'amsvömn hjá Einsa við sínum áhugamálum eins og þeir eldri. Hann hafði reynslu af svo mörgu og áhugasviðin virtust liggja alls staðar. Hann sá aldrei vandamál, heldur spennandi úrlausnir. Fyrir hans til- stilli geta fjölskyldumar sem sterkar rætur eiga á Hjarðarbóli enn heim- sótt staðinn og átt þar stefnumót við minningamar og kynnt yngra fólkinu í ættinni staðinn þar sem rætur þess liggja. Fyrst gerði Einsi upp gamla bæinn og var hann nýttur sem sumar- hús í mörg ár. En svo fór að tímans tönn vann á bænum og ekki varð við gert, tók frændi sig þá til og byggði nýtt sumarhús svo hægt væri að njóta staðarins áfram. Þarna hafa þau hjónin átt margar samvemstundim- ar, ásamt bömum sínum og þeirra fjölskyldum. Við ættingjamir í næsta lið höfum einnig fengið að njóta þess að dvelja hjá þeim og sækja orku á þennan stórkostlega stað. Frændfólk- ið allt hefur metið þetta mikils. Því alltaf er það eins og koma heim. Einsi og Stína bjuggu sér fallegt heimili í Grundarfirði, en þar hafa þau alltaf búið. Hjá þeim bjuggu for- eldrar hennar meðan þau lifðu. Fyrst bjuggu þau á Gmndargötu 15 og er erfítt að ímynda sér í dag hvemig hægt var að koma tólf manns í þijú lítil herbergi og hafa samt alltaf nóg rými fyrir frændgarðinn til gistingar. Én þar sem nóg hjartarými er þar er nóg húsrými. Seinna keyptu þau svo yndislegt hús á Fagurhólstúni 4 og hefur verið gestkvæmt á heimili þeirra, því ekki varð komið svo að Hjarðarbóli að ekki væri farið í veislu til Einsa og Stínu i Gmndarfirði. Þau voru sannir höfðingjar heim að sækja. Maðurinn með ljáinn gerir harða hríð að fjölskyldu okkar þessa fyrstu daga ársins. Hann heggur bæði til að lina, en einnig ótímabært að okk- ur sem eftir lifum fínnst. Þegar þess- ar línur em festar á blað er faðir minn Karl Kristjánsson enn lífs, og var eitt það síðasta sem hann bað um með fullri rænu, að Einars yrði minnst og að hann fengi að senda honum bestu kveðjur og þakklæti hans og móður minnar fyrir samvist- ir á lífsleiðinni, en þeir vom miklir mátar og hefur aldrei borið skugga á þeirra vináttu. Elsku frændi, vertu Guði falinn og hafðu þakklæti fyrir allt sem þú varst mér frá því ég á mínar fyrstu bernskuminningar og til dagsins í dag. Það er eflaust ekki oft sem hægt er að líta til baka án þess að fínna svo mikið sem eina minningu sem ekki er ljúf. Élsku Stína mín, Pálmar, Sigga, Lilla, Sædís, Svandís og Svava, ykkur öllum ásamt mökum ykkar og bömum sendi ég og fjöl- skyldan innilegustu samúðarkveðjur. Það er erfitt að sjá á bak ástvini, en minningin lifir sterk og tíminn mýkir sárin. Við biðjum Guð að styrkja ykkur. Ragnheiður Karlsdóttir. Við kveðjum nú hinstu kveðju móðurbróður okkar, Einar Skarphéð- insson, sem lést að morgni þriðja jan- úar. Við minnumst Einars fyrst og fremst sem glaðlynds manns sem við heimsóttum í sumarbústaðinn á Hjarðarbóli, þar sem hann og fjöl- skylda hans undu jafnan í tómstund- um sínum. Við bræðurnir þáðum hjá honum margar bilferðirnar þegar við voram að labba inn á Grund, því ávallt gaf hann sér tíma til að stoppa, taka okkur með og spjalla á leiðinni. Við systurnar höfðum mest af Einari að segja í gegnum dætur hans. Þó samgangur milli heimila okkar hafí kannski aldrei verið mikill er þó víst að alltaf ríkti vinskapur, virðing og einlægni í samskiptum fjölskyldn- anna. Eiginkonu Einars, börnum og barnabörnum sendum við hugheilar samúðarkveðjur. Þá senda foreldrar okkar sem nú em stödd erlendis einn- ig góðar kveðjur. Börn Ragnheiðar Skarphéðins- dóttur og Ólafs Gíslasonar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.