Morgunblaðið - 14.01.1995, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUK 14. JANÚA'R 1995
'MöMliyLÁÖlÐ
FRÉTTIR
Fíllinn
of líkur
grísnum
Heilbrigðisráðherra um yfirlýsingar læknafélaganna
Fj árhagslegir hags-
munir settir á oddinn
BÓNUS sf. hefur krafíst þess að
Austurlenska vöruhúsið í Hafnarfírði
hætti þegar notkun
vörumerkis fyrir-
tækisins og fjar-
lægi það af versi-
unarhúsnæði þess
þar sem það bijóti
gróflega gegn hags-
munum Bónuss. Um-
rætt vörumerki Austur-
lenska verslunarfé-
lagsins er spari- f ^
baukur í formi jö'
bleiks ffls á gulum J
grunni, en vöru-^xT^ . y
merki Bónuss sf. er v^jfcL/®
bleikur sparigrís á gulum grunni.
Að sögn Boga Jónssonar, eiganda
Austurlenska vöruhússins, var fyrir-
myndin að vörumerki hans sparibauk-
ur frá íslandsbanka. Skilti með vöru-
merki fyrirtækisins var sett upp á
verslunarhúsnæðinu í gær, og
skömmu síðar barst skeyti frá lög-
manni Bónuss þar sem því var haldið
fram að vörumerkið bijóti gróflega
gegn hagsmunum Bónuss.
Jafnframt var tilkynnt að verði
vörumerkið ekki íjarlægt af verslun-
arhúsnæðinu og notkun þess hætt
eigi síðar en innan sólarhrings myndi
Bónus grípa til nauðsynlegra aðgerða.
Bogi sagði að hann hefði fengið
faglega umsögn um málið og ljóst
væri að þetta væri á því sem kalla
mætti grátt svæði. Sagðist hann ekki
ætla að hætta notkun vörumerkisins
að svo stöddu heldur láta reyna á það
hvaða aðgerða Bónus myndi grípa til.
SIGHVATUR Björgvinsson heil-
brigðisráðherra segir að yfirlýs-
ingar frá læknafélögum um að
félagsmenn þeirra treysti sér ekki
til að starfa samkvæmt samning-
um við Tryggingastofnun ríkisins
verði tilvísanakerfi komið á taki
af allan vafa um að fagleg sjónar-
mið séu ekki sett á oddinn heldur
fremur fjárhagslegir hagsmunir
lækna.
Fjöldi ályktana hefur verið
sendur út af hinum ýmsu læknafé-
lögum þar sem þau mótmæla harð-
lega áformum um tilvísunar-
skyldu. Telja nokkur þeirra sér
ekki fært að starfa innan slíks
kerfis né fyrir Tryggingastofnun
ríkisins. Segir meðal annars í
ályktun fundar Skurðlæknafélags
íslands að ekki hafi verið sýnt
fram á fjárhagslegan ávinning til-
vísanaskyldu og sé óhagræði og
skrifræði sem af henni hljótist
augljóst.
Skoði landslög
„Ég bið lækna um að skóða
nánar sína stöðu og landslög áður
en þeir rasa um ráð fram. Þetta
sýnir einfaldlega það að ágreining-
urinn snýst ekki um heilbrigðismál
eða sjúklingana heldur eru þetta
hrein hagsmunaátök. Þeir lýsa því
yfir að þeir ætli í verkfall gegn
Fagleg sjónarmið
ráða ekki afstöð-
unni til tilvísana-
kerfisins
ríkinu sem vinnuveitanda. Sér-
fræðingar fara ekki í verkfall
vegna sjúklinga heldur vegna
hagsmuna sjálfra sín,“ segir Sig-
hvatur.
Sighvatur vísar á bug fullyrð-
ingum lækna í þá veru að ekki
hafi verið sýnt fram á fjárhagsleg-
an ávinning af tilvísanakerfinu. í
þeim löndum sem tilvísanakerfi sé
við lýði sé það viðurkennt að fjár-
munir séu vel nýttir og heilbrigðis-
þjónusta á mjög háu stigi. Margir
þessara sérfræðinga hafi sjálfir
numið eða unnið í löndum þar sem
þetta kerfi er í gildi.
„Margir sérfræðingar sem eru
með rekstur úti í bæ eru jafnframt
á launaskrá sem sérfræðingar á
spítölum hjá ríkinu. Þeir eru vænt-
anlega ekki að segja upp þeim
störfum sínum. Það myndi gerast
í mörgum tilvikum að í stað þess
að sérfræðingar fá sjúklinga á
stofur sínar úti í bæ fengju þeir
þá til sín á spítalana þar sem þeir
vinna sem Iaunþegar. Er þeim það
eitthvert kappsmál? Það hefur
ekki komið fram ennþá að sér-
fræðingar hyggist líka segja upp
sem launþegar,“ segir Sighvatur.
Könnun Ríkisendurskoð-
mm minnti á könnun Ríkis-
endurskoðunar á launamálum
lækna sem gerð var fyrir tveimur
árum en þar hefði komið fram að
dæmi væru til þess að yfirlæknir
í fullu starfi hjá ríkinu sem væri
jafnframt með rekstur stofu úti í
bæ hefði haft hærri tekjur fyrir
rekstur stofunnar en sérfræðingur
í sömu starfsgrein sem eingöngu
var með stofurekstur. Þriðjungur
til helmingur af tekjum þeirra 800
lækna sem könnunin náði til var
vegna starfa á eigin stofu.
Sighvatur benti einnig á nefnd
sem hann skipaði til að fara ofan
í þessi mál. í henni hefði formaður
Læknafélags íslands átt sæti.
Nefndin hefði staðfest niðurstöður
Ríkisendurskoðunar.
„Ég átti ekki von á svo hörðum
viðbrögðum því ég vænti þess ekki
að læknar gerðu það strax svo
augsýnilegt að deilan stæði ekki
um stefnu í heilbrigðismálum held-
ur um fjárhagslega hagsmuni,“
segir Sighvatur.
Stóra stundin
ERILL var í Borgarleikhúsinu
í gærkvöldi, rétt fyrir frumsýn-
ingu á stærstu uppfærslu árs-
ins, söngleiknum Kabarett. Á
meðan gestir lögðu bílum sín-
um, kíktu í leikskrána eða fengu
sér konfektmola var verið að
leggja síðustu hönd á förðun
leikara og búninga, sem óneit-
anlega setja mikinn svip á sýn-
inguna.
Talsverð spenna lá í loftinu;
15 mínútur til stefnu og gættu
Ingvar E. Sigurðsson og Edda
Heiðrún Backman þess vand-
lega að útlitið væri sem skyldi
og allt á sínum stað, en þau
fara með hlutverk skemmtana-
stjórans og Sally Bowles í sýn-
ingunni. Þótt sumir væru
spenntir var ekki annað að sjá
en að sviðsmennirnir væru hinir
rólegustu. Sátu þeir í makindum
og spiluðu í einu herbergjanna
og létu ysinn utandyra sig litlu
skipta.
Morgunblaðið/Sverrir
Borgarsijóri leggur til að staða forstöðumanns Kjarvalsstaða verði auglýst
Stefnubreyting í
ráðningarmálum
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri, hefur ákveðið að
leggja til við borgarráð að staða
forstöðumanns Kjarvalsstaða verði
auglýst laus tii umsóknar, eftir að
ósk þar að lútandi barst frá samtök-
um myndlistarmanna.
Ráðningarsamningur Gunnars
B. Kvaran forstöðumanns rennur
út 1. febrúar næstkomandi og hefur
menningarmálanefnd samþykkt
samhljóða tillögu um að hann verði
endurráðinn. Gunnar kvaðst í sam-
tali við Morgunblaðið ætla að sækja
um stöðuna.
Borgarstjóri segir það tímabært
að tekin verði upp sú grundvallar-
regla að allar stöður yfirmanna,
nýjar stöður og aðrar stöður sem
losna hjá borginni, verði auglýstar
hér eftir. Þannig gefist fólki kostur
á að koma sér á framfæri.
Skiptar skoðanir eðlilegar
Gunnar segir að viðbrögð mynd-
listarmanna hafi ekki komið sér
sérstaklega á óvart, og í ljósi þess
að gerð hafi verið stefnubreyting á
ráðingarmálum innan borgarkerfis-
ins, sé ósköp eðlilegt að staða for-
stöðumanns sé auglýst iaus.
„í stöðu sem minm, þar sem far-
ið er með ákveðið vald, í þessu tii-
viki í listasafni, eru alltaf skiptar
skoðanir um framgang og listrænt
forræði á hverjum tíma. Því má
alltaf búast við slíkum viðbrögðum.
Ég vænti þess að starfsemi safnsins
og inntak þess verði skoðað, og
ráðning verði metin út frá þeim
forsendum þegar væntanlegar um-
sóknir eru metnar,“ segir hann.
„Miðað við þá menntun sem ég hef
og reynslu, tel ég mig hafa sann-
gjarna möguleika á að fá endur-
ráðningu."
Dugandi og áhugasamur
„Almennt finnst mér ekkert óeðli-
legt við, þegar menn eru ráðnir tíma-
bundinni ráðningu, að þeir eigi
möguleika á framlengingu,“ segir
Ingibjörg. „Sérsfaklega ef að þeim
sem verið er að vinna fyrir líkar vel
þeirra störf og það er með Gunnar.
Hann hefur verið mjög dugandi og
áhugasamur forstöðumaður. Ég get
því vel skilið menningarmálanefnd
og stuðning hennar við hann.“
„Gunnar hefur staðið sig vel og
við vildum hafa hann áfram,“ sagði
Guðrún Jónsdóttir formaður menn-
ingarmálanefndar. „Það er menn-
ingarmálanefndar að leggja fram
tillögu um ráðningu í stöðuna og
nefndin samþykkti samhljóða að
mæla með endurráðningu Gunnars
í stöðuna. Okkur fínnst ekki óeðli-
legt að endurráða einu sinni.“
Tillaga um sex ár
Inga Jóna Þórðardóttir og Jóna
Gróa Sigurðardóttir borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins, bókuðu að
óþarfi væri að taka fram í tillög-
unni ákveðin tímamörk um hversu
oft yrði endurráðið í stöðuna. Guð-
rún sagði að sér fyndist æviráðning
í stöðuna ekki koma til greina en
ástæðulaust að banna endur-
ráðningu einu sinni.
„Menn þurfa sinn tíma til að ná
sér á strik,“ sagði hún. „Við lögðum
til að endurráðning næði til sex ára
eins og upphaflegi ráðningartíminn
en það má auðvitað endurskoða."
Heimur vínsins
í Perlunni
Áfengis-
varnaráð
segir lög
vera brotin
ÁFENGISVARNARÁÐ telur
að lögregian eigi að grípa inn
í sýningu sem haldin verður um
helgina í Perlunni undir yfir-
skriftinni Heimur vínsins.
„Við teljum að þarna sé verið
að bijóta áfengislög þar sem
kveðið er á um að áfengisaug-
lýsingar eru bannaðar. Þetta
er greinilega auglýsing, það er
verið að koma skilaboðum til
almennings og mér finnst full
ástæða til að ríkissaksóknari
athugi málið,“ sagði Ólafur
Haukur Árnason framkvæmda-
stjóri Áfengisvarnaráðs.
Ólafur Haukur sagði að
Áfengisvarnaráð hefði ekki tek-
ið afstöðu til þess hvort það
kærði málið til ríkissaksóknara.
„Kæran ætti að berast frá lög-
regiunni í Reykjavík. Við erum
ekki aðili sem á að sjá um fram-
kvæmd laga. Það er lögreglan
sem á að sjá um það. Það eina
sem við bendum á er að í áfeng-
islögum eru áfengisauglýsingar
bannaðar og við teljum að það
sé hlutverk lögreglunnar á
hvetjum stað að fylgjast með
því að þau lög séu virt eins og
önnur.“
Deilan á Eskifirði
Deilan
í hnút á ný
FISKVERÐSDEILA áhafn-
anna á Hólmatindi og Hólma-
nesi og útgerðarinnar, Hrað-
frystihúss Eskifjarðar, er aftur
komin í hnút, að sögn Svans
Pálssonar, sem á sæti í samn-
inganefnd sjómannanna.
Hann sagði að fundinum
hefði þó ekki verið slitið í fússi
en það væri ekki samnings-
grundvöllur fyrir hendi. Svanur
vildi lítið tjá sig um málið að
sinni en sagði að tilboð hefðu
gengið á milli manna.
Verkfalls-
heimiid
samþykkt
SAMÞYKKT var í gær hjá Sjó-
mannafélagi Reykjavíkur heim-
ild til verkfallsboðunar með 75
atkvæðum. í félaginu eru 107
sjómenn á bátakjarasamning-
um og greiddi 31 atkvæði gegn
heimildinni en einn seðill var
auður.
Heimildin gildir ekki um þá
félaga í Sjómannafélagi
Reykjavíkur sem eru undir-
menn á stóru togurunum Akur-
ey, Engey og Viðey. Þeir eru
26 og greiddu 18 atkvæði gegn
verkfallsheimild, 7 með og einn
seðill var auður.
Aðspurður hvers vegna sjó-
menn á fyrrnefndum togurum
hefðu ekki samþykkt heimildina
sagði Jónas Garðarson, formað-
ur Sjómannafélags Reykjavík-
ur, ástæðuna þá að þeir fengju
greitt samkvæmt endanlegu
söluverði afla, en togaramir
sigla með ísfisk á erlendan
markað. Hið sama gilti ekki hér
þar sem rekstraraðilar væru
gjarnan bæði kaupendur og
seljendur aflans.