Morgunblaðið - 14.01.1995, Page 12
12 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Kaffikantata
fluttí
kirkjunni
TÓNLEIKAR verða haldnir í Akur-
eyrarkirkju og Safnaðarheimili
kirkjunnar næstkomandi sunnu-
dag, 15. janúar kl. 16.00.
Flytjendur á tónleikunum eru
Margrét Bóasdóttir, sópran, Sverr-
ir Guðjónsson, kontratenór, Guð-
laugur Viktorsson, tenór, Wolf-
gang Tretzsch, bassi, Sara Buc-
kley, víóluleikari, Örnólfur Krist-
jánsson, sellóleikari, Richard Korn,
bassaleikari, Koibeinn Bjarnason,
flautuleikari, og Guðrún Óskarsd-
ótir, sem leikur á orgel og sembal.
Flutt verða verk eftir þýsku tón-
skáldin Heinrich Schútz og Johann
Sebastian Bach. í kirkjunni verða
fluttir trúarlegir konsertar, en á
seinni hluta tónleikanna í Safnað-
arheimilinu verður gleðin í fyrir-
rúmi, en þar verður flutt Kaffi-
kantata BWV 211 eftir J.S. Bach.
Athygli er vakin á því að Wolf-
gang Tretzsch, þýskur bassa-
söngvari sem starfar við Tónlistar-
skóla Mývatnssveitar syngur á
þessum tónleikum í fyrsta skipti
opinberlega á íslandi en hann kom
inn í hópinn með litlum fyrirvara
vegna veikinda Ragnars Davíðs-
sonar.
Boðið verður upp á kaffi frá
Kaffibrennslu Akureyrar á tónleik-
unum og konfekt frá Lindu.
Messur
AKUREYRARPRESTA-
KALL: Sunnudagaskólinn
byijar aftur 22. janúar. Helgi-
stund verður á FSA á morgun
kl. 10.00. Messað verður í
Akureyrarkirkju á morgrun kl.
14.00. Biblíulestur í Safnaðar-
heimilinu kl. 20.30 næstkom-
andi mánudagskvöld.
HJÁLPRÆÐISHERINN:
Sunnudagaskóli kl. 13.30 á
morgun, hjálpræðissamkoma
kl. 20.00, Miriam Óskarsdóttir
talar. Heimilasamband fyrir
konur á mánudag kl. 16.00.
Krakkaklúbbur ki. 17.00 á
miðvikudögum og hjálpar-
flokkur fyrir konur á fimmtu-
dag kl. 20.30.
HVÍTASUNNUKIRKJAN:
Samkoma í umsjá ungs fólks
í kvöld, laugardagskvöld kl.
20.30. Vakningasamkoma kl.
15.30 á morgun, sunnudag.
Ræðumaður Þórður Jóhanns-
son. Bænavika heldur áfram
frá 16. janúar, tekið við bæn-
arefnum á skrifstofu safnaðar-
ins.
Bindingar á nýju skíðin
Morgunblaðið/Rúnar Þór
ERLA Steinþórsdóttir var að fá ný skíði sem hún
ætlar eflaust að nota óspart í Hlíðarfjalli í vetur, en
hún naut aðstoðar Viðars Garðarsson í Skíðaþjón-
ustunni við að festa bindingarnar á skíðin sín. Tíð
skíðamanna er nú runnin upp og má búast við fjöl-
menni í fjallinu um helgina verði veður skaplegt.
Fulltrúar ÍS ræða
við bæjarfulltrúa
FULLTRÚAR íslenskra sjávaraf-
urða eiga fund með viðræðuhópi
sem skipaður hefur verið til að
ræða við þá aðila sem áhuga hafa
á kaupum á hlutabréfum Akur-
eyrarbæjar í Útgerðarfélagi Akur-
eyringa kl. 10.00 í dag, laugardag.
í viðræðuhópi Akureyrarbæjar
eru Jakob Bjömsson, bæjarstjóri,
Guðmundur Stefánsson, Fram-
sóknarfiokki, Gísli Bragi Hjartar-
son, Alþýðuflokki, Sigurður J. Sig-
urðsson, Sjálfstæðisflokki og Sig-
ríður Stefánsdóttir, Alþýðubanda-
lagi.
Sex aðilar hafa óskað eftir við-
ræðum við bæjaryfirvöld um kaup
á hlutabréfum bæjarins í Útgerðar-
félagi Akureyringa, verði þau seld,
en um það hefur enn ekki verið
tekin ákvörðun. Þetta eru Kaupfé-
lag Eyfirðinga, Samherji, hópur
ijárfesta á vegum Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna, starfsfólk ÚA,
Lífeyrissjóður Norðurlands og í
gær bættist Skandia í hópinn.
Guðmundur Stefánsson sagði að
þesum aðilum hefði verið skrifað
bréf þar sem boðið er upp á viðræð-
ur. „Við eru tilbúin að ræða við
þessa aðila, en engar ákvarðarnir
um sölu hlutabréfanna hafa verið
teknar," sagði Guðmundur.
Tvær kannanir
Á fundi bæjarráðs í síðustu viku
var samþykkt að láta fara fram
könnun á áhrifum þess að sala
afurða Útgerðarfélags Akur-
eyringa færðist frá Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna yfir til íslenskra
sjávarafurða, en verði gengið að
tilboði KEA í bréfin er fyrirhugað
að færa sölumál fyrirtækisins frá
SH til ÍS og jafnframt yrðu höfðuð-
stöðvar ÍS fluttar til Akureyrar.
Tveir aðilar, Nýsir og Andri Teits-
son, hafa verið fengnir til að gera
umrædda könnun og er gert ráð
fyrir að úttekt á áhrifum þessa
flutnings liggi fyrir eitthvað fyrir
mánaðamót.
Ekki eru fleiri fundir fyrirhugað-
ir um helgina með þeim aðilum sem
sýnt hafa ÚA-bréfunum áhuga, en
gera má ráð fyrir að þeir verði í
næstu viku.
■ Enginn kvóti/14
Ber hommunt og lesbíum
hólfur hlutur?
Samtökin '78, bjóða til borgarafundar
sunnudaginn 15. janúar 1995 kl. 14-16 á Hólel Borg.
Tilefniö er nýútkomin skýrsla nefndar
um málefni samkynhneigSra.
w
Avörp flutningsmanna þingsályktunar um afnám
misréttis gagnvart samkynhneig&um.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri.
Gu&rún Helgadóttir alþingismaður.
Ossur Skarphé&insson ráöherra.
Ávörp fulltrúa Dóms- og kirkjumála-,
félagsmála- og menntamálará&uneyta.
Lana Kolbrún Eddudóttir kynnir skýrslu nefndgrinnar.
Frjálsar umræ&ur - fyrirspurnum svaraö.
Hör&ur Torfason flytur eigin tónlist. samtökim
Tíu mánaða fangelsi
fyrir kynferðisbrot
RÚMLEGA þrítugur maður var í
Héraðsdómi Norðurlands eystra
dæmdur í tíu mánaða fangelsi fyr-
ir kynferðisbrot, en fresta skal
fullnustu sjö mánaða af refsing-
unni og hún látin falli niður að
liðnum tveimur mánuðum frá upp-
sögu dóms haldi ákærði almennt
skilorð. Þá var maðurinn dæmdur
til að greiða 50 þúsund krónur í
miskabætur ásamt vöxtum auk
sakarkostnaðar.
Lagðist til svefns
Maðurinn var ákærður fyrir
kynferðisbrot, með því að hafa
snemma að morgni þriðjudagsins
1. mars á síðasta ári haft sam-
ræði við 18 ára gamla stúlku sem
sökum svefndrunga og ölvunar gat
ekki spornað við verknaðinum.
Forsaga málsins er sú að tveir
karlmenn og tvær stúlkur sátu að
öldrykkju í íbúð á Akureyri aðfara-
nótt umrædds þriðjudags. Undir
morgun lagðist önnur stúlkan til
svefns og skömmu síðar sótti
þreyta einnig að öðrum karlmann-
inum sem fékk heimild húsráðanda
til að leggja sig í sama herbergi.
Hafði sú stúlkan sem vakandi var
gætur á herberginu. Er hún kom
þar inn snemma morguns var
ákærði að hafa samfarir við stúlk-
una án hennar vitundar.
Ólafur Ólafsson héraðsdómari
kvað upp dóm í málinu í Héraðs-
dómi Norðurlands eystra í gær.
Vernharð
Þorleifsson
íþrótta-
maður KA
YERNHARÐ Þorleifsson, jú-
dómaður var kjörinn íþrótta-
maður KA árið 1994. Kjörið
fór fram fyrir skömmu, en
hver deild tilnefndi tvo íþrótta-
menn úr sínum röðum og einn
úr annarri deild og aðalstjórn
kaus síðan á milli manna.
Að þessu sinni hlutu 11
íþróttamenn tilnefningu og var
Vernharð Þorleifsson júdómað-
ur kjörinn úr hópnum. Hann
varð íslandsmeistari í 85 kg.
og opnum flokki, Norðurlanda-
meistari í 95 kg flokki og opn-
um flokki, hann hlaut gullverð-
laun á opna Skandinaviska
mótinu í 95 kg flokki, 9. sæti
á Evrópumótinu í 95 kg flokki,
7. sæti á opna tékkneska mót-
inu, og 9. sæti á opna ung-
verska mótinu. Vernharð er í
23. sæti á styrkleikalista Evr-
ópu sem er annað besta sæti
sem íslendingur hefur náð.
Hann var kjörinn júdómaður
ársins af Júdósambandi íslands
og mun hann dvelja við æfing-
ar og keppni á Spáni næstu
misseri.
í öðru sæti varð Eggert Sig-
mundsson, markvörður meist-
araflokks KA í knattspyrnu og
aðalmarkvörður landsliðs ís-
lands í flokki 21 árs og yngri
og í þriðja sæti varð skíðamað-
urinn Vilheim Þorsteinsson
sem hefur verið í hópi fremstu
skíðamanna íslands undanfar-
in ár. Hann dvelur nú við æf-
ingar í Austurríki.
Félagsheimili
KA reyklaust
FÉLAGSHEIMILI KA hefur
verið reyklaust frá nýliðnum
áramótum. Eitt af markmiðum
KA er að skapa félagsmönnum
sínum og þeim öðrum sem í
heimili koma eins heilsusam-
legt og aðlandi umhverfi og
kostur er og er samþykkt aðal-
stjórnar Knattspyrnufélags
Akureyrar um reyklaust fé-
lagsheimili liður í þeirri við-
leitni.
Með reyklausu félagsheimili
er stigið skref i þá átt jafnframt
því að bæta móttöku viðskipta-
vina og annarra sem erindi eiga
við KA-heimilið. Undantekn-
ingar frá þessari samþykkt eru
gerðar ef haldnar eru sérstakar
skemmtanir á vegum KA og
ef félagið leigir út húsnæði við
sérstök tækifæri til annarra
aðila.
Þessi ákvörðun er sú fyrsta
sinnar tegundar en ÍSÍ tók
höndum saman við heilbrigðis-
ráðuneytið um að stefna að því
að gera öll íþróttahús og félags-
heimili landsins reyklaus.
Tvö ný fram-
sóknarfélög
TVÖ félög ungra framsókn-
armanna hafa nýlega verið
stofnuð á Norðurlandi, á Dalvík
og Húsavík. Félagið á Húsavík
nefnist Félag ungra framsókn-
armanna í Þingeyjarsýslum og
gerðust um fimmtíu manns fé-
lagar á stofnfundi. Formaður
þess er Gunlaugur Stefánsson,
en aðrir í stjórn eru Þröstur
Aðalbjarnarson, Öiver Arnar-
son og Jónas Aðalsteinsson.
Félagið á Dalvík nefnist Fé-
lag ungra framsóknarmanna á
Dalvík og gerðust um þrjátíu
manns félagar á stofnfundin-
um. Formaður félagsins er
Eyþór Hauksson, aðrir í stjórn
eru Grímlaugur Björnson og
Ragnheiður Valdimarsdóttir.