Morgunblaðið - 14.01.1995, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 1995 19
FRETTIR: EVROPA
Island sakað um seinagang við lögfest-
ingu evrópsks tryggingamarkaðar
Tryggingaeftirlit
segir reglurnar
löngu samþykktar
TRYGGINGAEFTIRLITIÐ hafnar
því með öllu að íslendingar hafi
dregið lappirnar og ekki lögfest þær
tilskipanir Evrópusambandsins, sem
nauðsynlegar eru taldar til að sam-
einaður evrópskur tryggingamark-
aður verði til, eins og kveðið er á um
í samningnum um Evrópskt efna-
hagssvæði.
I frétt Reuters-fréttastofunnar í
gær er haft eftir framkvæmdastjóra
evrópsku trygginganefndarinnar,
Francis Loheac, að nokkur Evrópu-
ríki, þar á meðal ísland, hefðu ekki
lögtekið tvær lykiltilskipanir ESB
um tryggingamarkaðinn; 92/96/
EBE og 92/49/EBE, en þær ijalla
um líf- og skaðatryggingar. Tilskip-
anirnar áttu að taka gildi í júlí síðast-
liðnum.
Loheac tiltók einnig Ítalíu, Spán,
Grikkland og Finnland sem ríki, sem
ekki hefðu lögfest tilskipanirnar.
Hann sagði að myndun samevrópsks
tryggingamarkaðar væri að öðru
leyti vel á veg komin.
Vorum með þeim fyrstu
Erlendur Lárusson, forstöðumaður
Tryggingaeftirlitsins, sagði í samtali
við Morgunblaðið að fuilyrðingar
Loheacs væru rangar. Tilskipanirnar
hefðu verið Iögfestar í maí síðastliðn-
um með gildistöku laga um vátrygg-
ingastarfsemi. „Við vorum með þeim
fyrstu í Evrópu að samþykkja þetta,“
sagði hann.
Erlendur sagði að ekki væri búið
að ganga frá útfærslu varðandi t.d.
ársreikninga, reikningsskil og slíkt,
en gagnrýnin virtist ekki beinast að
því
Varnarmálaráðherra Noregs
Mikilvægi sam-
starfsins við
Bandaríkin eykst
Osló. Reuter.
J0RGEN Kosmo, varnar-
málaráðherra Noregs,
segir að mikilvægi örygg-
issamvinnu Norðmanna
og Bandaríkjamanna hafi
aukist til muna eftir að
Norðmenn höfnuðu aðild
að Evrópusambandinu,
ESB, í þjóðaratkvæða-
greiðslu í nóvember. Nið-
urstaða þjóðaratkvæðar-
greiðslunnar þýddi að
Norðmenn hefðu engin
bein áhrif á stefnu ESB
eða Vestur-Evrópusam-
bandsins, VES.
Kosmo sagði, í erindi
sem hann flutti nýlega á
kvöldverðarfundi Her-
fræðisamtaka Osló, að Bandaríkja-
menn yrðu einnig að átta sig á að
varnarmál væru breytileg milli
svæða í Evrópu.
Að mati Kosmo er lífsnauðsynlegt
fyrir Norðmenn að tryggja og efla
samstarf sitt við Bandaríkjamenn á
sama tíma og þeir
reyna að nýta sér
aukaaðildina að VES
til fulls.
Upprunalegur
tilgangur NATO
„Eftir þjóðarat-
kvæðagreiðsluna er
nauðsynlegt að draga
úr áhrifum þess á al-
þjóðavettvangi, sem
sumir myndu vilja líta
á sem ósk Norðmanna
til að standa fyrir
utan hina evrópsku
samvinnu," sagði
Kosmo.
Hann sagði Norð-
menn styðja aukið samstarf við þjóð-
ir Austur-Evrópu en ekki mætti
gleyma hinum upprunalega tilgangi
bandalagsins. Það væri ekki Norð-
mönnum í hag ef Atlantshafsbanda-
lagið breyttist úr varnarbandaiagi í
einhvers konar öryggismálastofnun.
J0RGEN Kosmo
Vill lengja for-
mennskuna í ESB
París. Reuter.
ALAIN Juppé, utanríkisráðherra
Frakklands, segir að sex mánuðir
séu of skammur tími fyrir þau ríki,
sem gegna formennsku í ráðherra-
ráði Evrópusambandsins hverju
sinni. Ekki sé hægt að koma málum
í gegn á skilvirkan hátt á þetta stutt-
um tíma.
„Það er mín persónulega skoðun
að við verðum einhvern tímann að
íhuga það að lengja formennsku-
tímabilið,“ sagði Juppé á blaða-
mannafundi. Þetta er í takt við fyrri
málflutning stærri ríkja ESB, en á
móti hefur verið bent á að með þessu
móti yrði óheyrilega langt á milli
þess að ríki gegndi formennsku í
ráðherraráðinu. Ef formennskutíma-
bilið yrði ár, liðu fímmtán ár á milli.
Hann sagði Þjóðverja, Frakka og
Spánveija, sem gegnt hafa for-
mennskunni undanfarin tímabil hafa
reynt að leysa þetta vandamál með
því að samræma stefnu sína. Það
sé hins vegar enginn frambúð-
arlausn. Juppé vildi ekki tjá sig um
hve langt hann teldi að tímabilið
ætti að vera.
» ♦ ♦
EFTA-ráðið sam-
þykkir breytingar
EFTA-ráðið samþykkti á fimmtu-
dag nýja kostnaðarskiptingu ríkj-
anna, sem eftir eru í samtökunum.
Svisslendingar höfðu þó fyrirvara
við samþykktina.
Eins og sagthefur verið frá
verður hlutur íslands nú 4,37%
af kostnaði við skrifstofurekstur
EFTA, eða um 34 milljónir króna.
íslendingar og Norðmenn eiga
eftir að ganga frá kostnaðarskipt-
ingu vegna Eftirlitsstofnunar
EFTA og dómstóls samtakanna í
Brussel.
Opel fjórhjóladrif
Frumsýning
Opel Vectra 2,0 með fjórhjóladrifi
II
• ABS bremsukerfi 15" álfelgur og
vindskeið (spoiler)
• Rafdrifnar rúður og rafdrifnir upphitaðir útispeglar
• Hágæða útvarp og segulband með þjófavörn
og 6 hátölurum
• Kostar aðeins 2.280.000.- krónur á götuna
með íslenskri ryðvörn.
fesj
Opel Vectra GL 2,0 með framhjóladrifi
Samlæsingar með þjófavara •
Rafdrifnar rúður og rafdrifnir upphitaðir útispeglar •
Hágæða útvarp og segulband með þjófavara •
og sex hátölurum
Kostar aðeins 1.799.000.- krónur á götuna •
með íslenskri ryðvörn.
Verð á Opel
bílum hækkuðu
ekki um
áramótin
Opel Vectra GL 1,8 með framhjóladrifi
• Samlæsingar með þjófavara
• Fjórir höfuðpúðar og lúxusinnrétting með
fjarstýrðum útispeglum
• Hágæða útvarp og segulband meö þjófavara
og 6 hátölurum
• Kostar aðeins 1.639.000.- krónur á götuna
meö íslenskri ryðvörn.
Sýnum einnig Opel Vectra GLS 1,7 turbo dísel,
mjög ríkulega búinn sem kostar aðeins
1.825.000.- krónur á götuna með
íslenskri ryðvörn.
OPIÐ:
lauqardag
kl. 12- 17
sunnudag
kl. 14- 17
Fossháls 1 110 Reykjavík Sími 634000
OPEL
Eöalmerki á uppleiö
Með öllum
Opel Vectra sem
seldir eru í janúar
fylgja álfelgur
og vetrardekk