Morgunblaðið - 25.01.1995, Side 36

Morgunblaðið - 25.01.1995, Side 36
36 MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens 'fiftFHLÖPURHAR i STÝRlNGUm ERVebtíAR) Tommi og Jenni Af hverju þurfum við að fara í Svo að við getum lært skólaferðalag? meira um náttúruna... Einmitt það sem mig vant- aði... að skoða rigningu í návígi... BRÉF TLL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 Samúðarkveðjur til Súðavíkur Frá 5. bekk Rosewood Elementary School: KÆRU vinir á íslandi. Við fylltumst sorg er við fréttum af hörmungunum sem riðu yfír Súða- vík og því sendum við íbúunum þar okkar dýpstu samúðarkveðjur og minnumst þeirra í bænum okkar. Við höfum verið í sambandi við Láru Stefánsdóttur í Reykjavík á Intemetinu og í gegnum hana höfum við kynnst íslandi og því dásamlega fólki sem byggir þetta land. Island og íslenska þjóðin er okkur því ávallt ofarlega í huga í skólastofu okkar í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum. Við fengum fregnir af þessum hörmungaratburði frá vinum okkar á íslandi. Þótt við séum svo fjarri viljum við koma því á framfæri við íslendinga (og sérstaklega íbúa Súðavíkur) að sorg ykkar er okkar sorg einnig. Nú hyggjumst við huga að því hvemig við getum komið ykk- ur til hjálpar. Við ætlum að kanna hvemig við getum sent hjálpargögn sem bekkurinn getur safnað saman. Margir nemenda minna hafa ritað hugleiðingar sínar vegna náttúm- hamfaranna í Súðavík. Þær munum við senda Morgunblaðinu um sam- skiptanetið, Intemet. Við íbúa Súðavíkur viljum við segja að um allan heim er að finna fólk sem skilur þjáningar ykkar og hugsar til ykkar með hlýju. Vinir ykkar, JAMIE WILKERSON og bekkur hennarRosewood Elementary School Mrs. Wilkerson’s fifth grade, Rock Hill, South-Carolina29732,Bandr. Samúð vegna snjóflóða VIÐ ERUM hér lítill hópur af Is- lendingum sem hefur fengið sendar fréttir af hörmungunum vestur á Súðavík. Við erum miður okkar yfír þessum hræðilega atburði og þeirri átakanlegu reynslu sem hlutaðeig- andi ganga nú í gegnum. Okkur finnst við ósköp vanmáttug hér svo fjarri heimaslóðum, en gátum ekki látið hjá líða að freista þess að koma samúð okkar með þessu fólki á fram- færi gegnum Morgunblaðið. Okkur langar bara að segja þeim eftirfarandi: Við emm með ykkur í huga okkar og hjarta. Við finnum sorg ykkar og vitum að mannlegur máttur fær litlu áorkað gegn beittum sársaukanum sem þið nú megið þola. Þess vegna biðjum við saman algóðan Guð á himnum að veita ykkur liuggun í þessum mikla harmi og að þið.mégið fínna frið í hjörtum ykkar, mitt í þessari erfíðu reynslu. Guð blessi ykkur. ÍSLENDINGAR í SUÐUR-AFRÍKU. Upplýsingar um Intemettengingu við Morgunblaðið VEGNA fjölda fyrirspuma varðandi Intemet-tengingu við Mórgunblaðið, skal eftirfar- andi áréttað: Tenglng við helmasíðu Morgunblaðslns Til þess að tengjast heima- síðu Morgunblaðsins, sláið inn slóðina: http://www.centmm.is/mbl/ Hér Iiggja ýmsar almennar upplýsingar um blaðið, s.s net- föng starfsmanna, upplýsingar um hvernig skila á greinum til blaðsins og helstu simanúmer. Morgunblaðið á Internetinu Hægt er að nálgast Morgun- blaðið á Internetinu á tvo vegu. Annars vegar með því að tengj- ast heimasiðu Strengs hf. beint með því að slá inn slóðina http://www.strengur.is eða með því að tengjast heimasíðu blaðsins og velja Morgunblaðið þaðan. Þessi þjónusta er endur- gjaldslaus til 1. febrúar nk. Sendlng efnis Þeir sem óska eftir að senda efni til blaðsins um Internetið noti netfangið: mhi@centrum.is. Mikilvægt er að lesa vandlega upplýsingar um frágang sem má finna á heimasíðu blaðsins. Það tryggir öruggar sendingar og einnig að efnið rati rétta leið í blaðið. Senda má greinar, fréttir, auglýsingar og myndir eins og fram kemur á heimasiðu blaðs- ins. Mismunandl tenglngar vlð Internet Þeir sem hafa Netscape/Mos- aic-tengingu eiga hægt um vik að tengjast blaðinu. Einungis þarf að slá inn þá slóð sem gefin er upp hér að framan. Þeir sem ekki hafa Netscape/Mosaic-tengingu geta nálgast þessar upplýs- ingar með gopher-forritinu. Slóðin er einfaldlega slegin inn eftir að forritið hefur verið ræst. Mótöld Heppilegast er að nota a.m.k. 14.400 baud-mótald fyrir Netscape/Mosaic tengingar. Hægt er að nota afkastaminni mótöld með Gopher-forrtinu. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það- an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.