Morgunblaðið - 02.02.1995, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 02.02.1995, Blaðsíða 30
30 FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1995 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Dýrmætt en ódýrt EIN leið til bættrar heilsu felst í því að minnka sykurneyslu. Ungir íslendingar borða hundrað grömm af hvítasykri á dag. Helmingur sykursins sem ungmennin setja í sig er úr gosdrykkjum og tæplega helmingur- inn af þeim sykri sem fullorðnir borða sömu- leiðis, ef tekið er mið af rannsóknum Mann- eldisráðs á undanförn- um árum. Þess vegna minnkar sykumeyslan vemlega ef við spöram okkur gosdrykkja- þambið og drekkum hreint vatn í staðinn. íslenskt vatn er svaladrykk- ur sem hefur gleymst, það er dýr- mætur vökvi sem stendur okkur öll- um til boða ódýrt. Vatn er lífsnauðsynlegt Við fáum vatn bæði með neyslu matar og drykkjar. Maturinn eða föst fæða eins og brauð, ostur, fisk- ur og kartöflur veitir tæpan hálfan lítra af vatni daglega og meira ef mikið er borðað af vatnsríku græn- meti og ávöxtum. Grautar, skyr, jógúrt og súpur bæta síðan svolitlu við þessa tölu. Stærstan hluta þessa lífsnauðsynlega efnis, vatnsins, fáum við með drykkjarneyslunni, eða einn til tvo lítra á dag. Við skulum nú að gamni nota niðurstöður rannsókna Manneldis- ráðs til þess að skoða hvemig við íslendingar uppfyllum þessa vatns- þörf. Vinsælasti drykkurinn meðal fullorðinna er kaffi, en þeir drekka að meðaltali sex desilítra af því dag- lega. Sykraðir gosdrykkir eiga vinn- inginn meðal stálpaðra bama og unglinga og drekka þeir um hálfan lítra daglega af þessum drykkjum. Krakkar drekka lítið sem ekkert af kaffi en fullorðna fólkið drekkur gos, þó í minna magni en unga fólk- ið, eða rúmlega tvo desilítra á dag. Fullorðnir drekka daglega um hálfan lítra af mjólk og undanrennu og tíu til fimmtán ára börn níu desilítra. Bæði böm og fullorðnir drekka að meðaltali einn desilítra af ávaxta- safa á dag og tvo af hreinu vatni. Dagleg drykkjarneysla meðal full- orðinna og tíu til fimmtán ára bama er að jafnaði 1,7 desilítrar á hvern einstakling, eða átta til tíu venjuleg glös, og þar af er eingöngu eitt glas af hreinu vatni. Það þarf vart að skýra að þessar tölur era nefndar til að lýsa því hvernig neyslan er að jafnaði, en breytileiki er mikill til dæmis milli kynja og einstakra aldurshópa. Karl- ar drekka að jafnaði meira af kaffi, gosi og mjólk, en minna af vatni en konur. Kaffineyslan er mest meðal fólks milli tvítugs og fimmtugs og minni bæði meðal þeirra sem eldri eru og yngri, gosneysl- an er eins og áður sagði mest meðal ungs fólks, tíu til nítján ára. Mikið af sykri Hver desilítri af venjulegum sykraðum gosdrykk veitir um það bil tíu grömm af sykri og hálfur lítri þess vegna fimmtíu grömm af sykri. Sykurneysla skólabarna og unglinga er mikil, eða að jafnaði um hundrað grömm af strásykri á dag. Og gosdrykkir veita um helming þessa sykurs. Ef reiknað er með þeim sykri sem er í ýmsum fæðutegundum frá náttúr- unnar hendi, borðar hvert barn auð- vitað enn meira, en sá sykur er hins vegar ekki talinn slæmur frá heilsuf- arslegu sjónarmiði. Hundrað grömm af hvítasykri Sykur er næring fyrir bakteríur, segir Inga Þórsdóttir. Þær eru þekktar undir nöfnun- um Karíus og Baktus. veita um 400 hitaeiningar sem er um 15 hundraðshlutar af heildar- orkuneyslu unglinganna. Næring- arríkt mataræði sem veitir hæfilega heildarorku getur sjaldan innihaldið meiri sykur en sem svarar tíu hundr- aðshlutum orkunnar. Meiri sykur- neysla leiðir oft til ofáts auk verra mataræðis hvað varðar samsetningu næringarefna. Þar að auki veldur mikil sykurneysla tannskemmdum. Sykur er næring fyrir bakteríur sem þekktar era undir nöfnunum Karíus og Baktus, en það er þó fyrst og fremst neyslumunstrið sem sykurát- inu fylgir sem ýtir undir eyðilegg- ingu tannanna. Tíð sykur- og gos- neysla sem veldur óæskilegum sýru- breytingum í munni auðveldar bakt- eríum aðgang að tönnunum. Minna gos og betra heilsufar Ef íslensk ungmenni breyta neysluvenjum sínum og skipta um svaladrykk, úr gosdrykk í vatn, eru verulegar líkur á að heilsufar batni. Sykurrík máltíð eða gosdrykkja- þamb kemur oft í veg fyrir næring- arríkari máltíð. Þetta kemur auðvit- að verst út varðandi neyslu þeirra næringarefna sem era af skornum skammti í fæðinu almennt. Má þá til dæmis nefna járn í fæði ungra stúlkna og D-vítamín í fæði þeirra sem ekki taka lýsi. Auk þess veitir íslenskt mataræði Iítið af trefjaefn- um, en athuganir hafa sýnt að syk- urríku mataræði fylgir enn minni neysla grófmetis og þar með trefja- efna. Það má því ætla að aukin vatnsneysla og minna gosþamb bæti jámbúskap og minnki blóðleysi með- al ungra kvenna. Auk þess mun slík breyting á neyslunni minnka tíðni ofáts og hægðatregðu hjá fólki al- mennt. Bein áhrif minni sykurneyslu myndu svo að auki sýna sig í bættri tannheilsu. Það er reyndar ekki bara sykur í gosdrykkjum sem hefur slæm heilsufarsleg áhrif. Nefna má að gosdrykkir eru oft súrir, þótt sykur- bragðið feli það reyndar, og lágt sýrustig þeirra leikur glerung tann- anna illa og eykur líkur á tann- skemmdum. Og hvað eru gosdrykkir eiginlega? í gosdrykk er kolsýrt vatn, litarefni, rotvarnarefni, bragð- efni og svo auðvitað sykur eða sætu- efni. Og dæmi svo hver sem vill um hollustugildið. Að verða enn ríkari Gosneysla barna og unglinga í nágrannalöndum okkar er minni en helmingur þess sem hérlendir jafn- aldrar þeirra neyta. Hvernig stend- ur á þessari gosdrykkjaást íslend- inga? Eru auglýsingar gosdrykkja- sala kraftmeiri hérlendis? Er ungt fólk áhrifagjarnara? Er þekking og áhugi fólks á hollustu kannski minni? Er vatn dýrara eða bragð- verra? Við vitum öll að sum þessara svara standast engan veginn. Ekki er hægt að láta hjá líða að nefna eina skýringu enn, en hún er sú að ótrúlega erfitt getur reynst að nálg- ast vatn hérlendis og má þá til dæmis nefna íþróttahús og skóla. Nýlega fóru Norðmenn að flytja neysluvatn til fjarlægra landa í stór- um pokum sem dregnir eru, að ég held, af enn stærri skipumr í frétt- um kom fram að hér færi saman mikil þörf fyrir hreint .vatn í öðram löndum og gróðavon Norðmanna. Tíminn á eftir að leiða í ljós hvernig þessi viðskipti munu ganga hjá frændum okkar en þetta ætti þó að minna okkur á ríkidæmið sem felst í hreinu vatni. Við verðum enn rík- ari ef við notum meira af því og kennum börnum og unglingum að nota íslenskt vatn. Höfundur er dósent og forstöðu- maður Næringarstofu Lsp. Inga þórsdóttir Hvernig’ tennur og venjur erfa börnin okkar? MARGIR hafa vafa- laust velt því fyrir sér hvemig tennur bömin þeirra erfa. Ég hef í það minnsta heyrt foreldra segja: „Blessað bamið hefur erft „lélegu" tennumar mínar.“ Líf- fræðilega erfum við öll tennur foreldra okkar en við megum ekki gleyma því að við erfum líka venjur sem geta haft áhrif á tennurnar. Þegar ég tala um venjur í sambandi við tennur á ég við hollt og reglulegt mataræði og góða munnhirðu til að viðhalda heilum tönnum. Daglegt líf okkar byggist að mestu leyti á venjum, því ég tel æskilegt að við ásköp- um okkur þær nauðsyn- legu venjur sem við vit- um að börnin okkar erfa. Flestir vita að það þarf að bursta tennurn- ar minnst kvölds og morgna til að fjarlægja þær bakteríur (tann- sýklu) sem myndast daglega sem annars geta valdið tannholds- bólgum. „Sífellt nart skemm- ir tennur" er staðreynd sem við öll ættum að huga betur að. í hvert sinn sem við látum bita upp í okkur myndast sýra, sama hversu bitinn er lítill. Munnvatnið sér síðan um að hreinsa burt sýruna en þá verð- um við að láta vera að borða eða drekka annað en vatn sem sjaldnast yfir daginn, sjá sykurklukku. At- hugið að magnið af fæðunni skiptir ekki máli, heldur tíminn sem hver máltíð tekur og hversu oft er borð- að. Efnasambandið baktería + syk- ur verður sýra sem veldur tann- skemmdum. Þriðji febrúar er tannverndardag- urinn, af því tilefni vil ég hvetja alla landsmenn, ekki síst foreldra, til að endurskoða matarvenjur sínar. Með því að hafa reglulegar mat- arvenjur og munnhirðu stuðlum við að minni tannskemmdum, minni fjárútlátum, ánægjulegri samveru- stundum og heilbrigðara lífi. Hollar venjur — heilar tennur! Höfundur er tannfræðingur. Guðný Ævarsdóttir Rangar áherslur í skattamálum SKATTAMÁL era meðal mikil- vægustu kjaramála. Þó ekki þannig, að skattar eigi að vera sem lægstir, heldur að reynt sé að dreifa byrðun- um með sem réttlátustum hætti og þannig, að ekki trufli gangverk sam- félagsins. Hins vegar er öllum al- menningi hagfellt, að ríkið afli nægilegra tekna til þeirrar þjónustu, sem því er ætlað að veita. Eðlilegt er, að fólk í fullri vinnu greiði að jafnaði nokkurn beinan skatt, jafn- vel þótt af litlum launum sé, til þess að það sé meðvitað um framlag sitt til samfélagsins. Almenningur á hins vegar kröfu á, að vel sé farið með skatttekjurnar. Mest skortir á, að nægilega miklu sé kostað til menntamála. Því fé sem aflað er með sérstakri skattlagningu á bens- ín til eflingar atvinnu væri, bæði í bráð og lengd, tvímælalaust betur varið til að afla þekkingar og miðla henni en til ævintýra- legra umferðarmann- virkja. í skólakerfið vantar milljarða. Ég bendi til dæmis á grein Ólafs Ólafssonar land- læknis í Mbl. 20. des. sl. um nauðsyn aukinn- ar tæknimenntunar. Reyndar leikur sterkur grunur á, að markmið- ið hafi verið að skaffa verktökum viðfangs- efni fremur en að draga úr atvinnuleysi. Samkvæmt því sem sést og heyr- ist í ijölmiðlum leggur verkalýðs- hreyfingin einkum áherslu á hækk- un skattleysismarka og afnám tví- sköttunar lífeyris. Hið síðartalda er sanngirnismál, en Iítilvægt. Hið fyrrtalda getur vegið þungt, en er umdeilanlegt. Því er haldið á lofti, og ég held að flestir trúi því, að með stað- greiðslu tekjuskatts sé uppgjöri hans að jafnaði lokið. T.d. er haft eftir Bolla Þ. Bollasyni í Mbl. 16. des. sl.: „Frádráttarliðir [t.d. lífeyr- issjóðsiðgjöld] myndu ragla stað- greiðslukerfið, taka yrði upp eftirá- sköttun að hluta á nýjan leik. Það yrði stílbrot á núverandi kerfí, á sama hátt og hátekjuskatturinn." Þetta má ef til vill kalla hálfsann- leik, en „hálfsannleikur oftast er óhrekjandi lygi“. í tekjuskatts- kerfínu era skerðingarliðir vegna barnabóta, vaxtabóta og húsaleigu- bóta. Þessir liðir, sem ná til fjölda skattgreiðenda, era endanlega gerð- ir upp eftir á. í stuttu máli sagt hafa þeir þau áhrif, að hjá hjónum, sem era að greiða af húsnæðisskuld- um og/eða eiga böm, er skattlagn- ingin 48-70% en ekki 42% (41,84%) af tekjum frá skattleysismörkum upp í 201.000 (1 bam) til 231.000 (4 börn, og 34.400 í viðbót fyrir hvert bam úr því) samanlagt hjá báðum. Miðað er við það sem gilti 1994. Álagningin er því meiri sem börnin era fleiri, sjá upplýs- ingabækling Skattstofunnar og grein eftir mig sem birtist í Mbl. 13. des. sl. Hjá fólki í leiguhúsnæði er álagningin 18 .prósentustigum hærri (á þrengra bili þó), og að meðtaldri greiðslu í lífeyrissjóð, stéttarfélagsgjaldi og tekjutengdri afborgun af námsláni getur frá- drátturinn orðið 97-100%. Til ein- földunar sleppi ég skattlagningu einhleypra. Annar hálfsannleikur (= lygi) er, að skattleysismörk séu um 57.000. Það lætur þó nærri hjá bamlausu fólki. Hjá fólki með börn á fram- færi era þau um 46.500, þá tekur við 7-22% skerðing á barnabóta- auka, sem frá sjónarmiði skattgreið- andans er auðvitað ekkert annað en hreinræktaður tekjuskattur. Reyndar getur orðið skerðing á vaxtabótum við enn lægri tekjur, en það er annað og meira vanda- mál, ef fólk með svo litlar tekjur þarf að standa skil á afborgunum af húsnæðisskuldum. Ég leyfí mér að fullyrða, að um- bylting þess kerfís, sem ég hef lýst í mjög grófum dráttum, sé hið mikil- vægasta sem nú er um að ræða til kjarabóta almennings. Hún myndi fela í sér flutning skattbyrði frá fólki með börn á framfæri og minna en 100.000 á mann í mánaðartekjur til þeirra sem hafa mun meira, og e.t.v. einhverja lækkun tekjuskatts í heild. Ég tel ekkert óeðlilegt, að skattleysismörk séu lág, ef álagn- ingin er hófleg næst þeim. En það má ekki eiga sér stað, að álögur séu þyngri á lágtekjur en hátekjur. Ef menn vilja haida tekjutengdum barnabótum er einföld lausn, að skerðingin sé t.d. 2% af jaðartekjum vegna hvers barns þar til hinar tekjutengdu bætur era upp urnar, en þá taki við samsvar- andi hátekjuskattur. Ef þessi tekjutenging nær til allt að fjögurra barna þyrfti hátekju- skatturinn að vera minnst 8% í stað 5% eins og nú er. Miðað við 90.884 kr. á bam á ári og að mörk hátekju- skatts séu 500.000 hjá hjónum eins og verður 1995, þyrfti skerðingin að byija við rúm 120.000, eða 60.000 hjá hvoru hjóna, þ.e. rétt um skattleysis- mörk eins og þau verða. Þessi leið fellur betur að staðgreiðslukerfínu en núgildandi aðferð. Auðvitað koma margar aðrar leiðir til greina, til dæmis að skerðingin komi i áföngum eða jafnt og sígandi, og einfaldar lausnir eru ekki alltaf best- ar. Umbylting skattkerfis- ins er hið mikilvægasta, að mati Hólmgeirs Björnssonar, sem nú er um að ræða til al- mennra kjarabóta. Nokkur orð um tvísköttun lífeyr- is. Hún er óveraleg vegna þess, að tekjur lífeyrisþega eru að megin- hluta undir skattieysismörkum. Kórvilla margra þeirra, sem um þetta Ijalla, er að þeir setja þetta upp eins og jafnvægi í bókhaldi, ekki sem rekstrardæmi. Vandi skattgreiðandans er ekki þessi tví- sköttun, heldur að með núverandi kerfí er hann að greiða skatt af tekjum sem hann fær ekki í hendur og hefur ekki ráðstöfunarrétt yfir. Staðgreiðslan er því í rauninni 43,70%, ekki 41,84%, og þeir sem bera 60-70% skatt eða meira er íþyngt mjög mikið með skattlagn- ingu lífeyrissjóðsiðgjaldsins. Afnám tvísköttunar er ekki það sama og minnkun skattheimtu. Það er því alveg ástæðulaust að reikna með, að skatttekjur minnki um 1,8-2.0 milljarða, ef lífeyrissjóðsgreiðslur verða undanþegnar skatti eins og Bolli Þ. Bollason gerir í áðurnefndu viðtali. Hins vegar færðist skatt- lagningin að einhvetju leyti af grann- launum á aukatekjur, sem ekki er greitt af í lífeyrissjóð. Og að endingu smámál. Skattar af orlofsgreiðslum ættu ekki að gjaldfalla fyrr en launþeginn fær þær í hendur. Onnur leið væri að lækka greiðsluna inn á orlofsreikninginn sem staðgreiðslunni nemur. Núver- andi kerfí felur í sér fyrirfram- greiðslu á skatti, ekki staðgreiðslu. Höfundur er tölfræðingur hjá Rannsóknarstofnun land- búnaðarins. Hólmgeir Björnsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.