Morgunblaðið - 09.02.1995, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Yiðræður VMSÍ og vinnuveitenda
Langur samn-
íngafundur
FULLTRÚAR félaga innan
Yerkamannasambands íslands
(VMSÍ), þ. á. m. fulltrúar Dags-
brúnar, Hlífar og Verkalýðs- og
sjómannafélags Keflavíkur og ná-
grennis (Flóabandalagsins), komu
til fundar með samtökum vinnu-
veitenda í húsnæði ríkissáttasemj-
ara kl. 14 í gær til viðræðna um
nýjan kjarasamning og stóðu
fundir viðsemjenda yfír til kl. 19.
Bjöm Grétar Sveinsson, for-
maður VMSÍ, sagði að ekki væri
neinn rífandi gangur í viðræðun-
um en annar samningafundur yrði
haldinn í dag.
Horfir þunglega
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bands íslands, sagði að umræðum
um kauptryggingarmál fisk-
vinnslufólks hefði verið haldið
áfram í gær. Þar væri um að ræða
mjög snúið mál en auk þess hefði
verið rætt um sérkröfur annarra
hópa.
„Grundvallarvandamálið er að
Verkamannasambandið kemur
fram með kröfur af gamla taginu,
sem eru mældar í tugum prósenta
og ef það er virkilega ætlunin að
standa á þeirri stefnumörkun, þá
er það ósk um að innleiða hér aft-
ur mjög mikla verðbólgu. Við
munum kosta kapps um að ná
þessu saman á öðrum grundvelli
en þetta horfír þunglega," sagði
Þórarinn.
Morgunblaðið/Kristinn.
BJÖRN Grétar Sveinsson, formaður VMSÍ, og Þórarinn V. Þórar-
insson, formaður VSÍ, takast í hendur við upphaf samningafund-
ar Verkamannasambandsins og samtaka vinnuveitenda í gær.
Islenzkar sjávarafurðir verða áfram á höfuðborgarsvæðinu
Vahð stendur um Reykjavík,
Hafnarfjörð eða Kópavog
HÖFUÐSTÖÐVAR íslenzkra ^jávarafurða hf. verða áfram á höfuð-
borgarsvæðinu, þótt að minnsta kosti átta kaupstaðir úti á landi
hafí sótzt eftir þeim. Þetta var ákveðið á stjómarfundi ÍS í gær.
Benedikt Sveinsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir að
skoðað verði hvort einhver hluti starfseminnar verði færður út á
land og tengdur rekstri framleiðenda ÍS.
„Það var tekin ákvörðun um að
vera hér á höfuðborgarsvæðinu í
staðinn fyrir að setja sig niður í
höfuðstað Norðurlands," sagði
Benedikt. Hann sagði að þijú
sveitarfélög kæmu til greina;
Reykjavík, Kópavogur og Hafnar-
fjörður.
Benedikt segir að ekki hafí bor-
izt formleg tilboð frá þessum sveit-
arfélögum um fyrirgreiðslu, en öll
hefðu þau sýnt áhuga á fyrirtæk-
inu og viljað bjóða því að koma.
„Við förum eftir því hvað er þén-
ugast fyrir íslenzkar sjávarafurð-
ir. Við þurfum að kaupa, leigja
eða byggja og þurfum að fara
yfír hvað er í boði og hvað hentar
okkur bezt,“ sagði hann.
Að sögn Benedikts höfðu Vest-
mannaeyjabær, Suðumesjabær,
Akranes, Sauðárkrókur, Akureyri,
Dalvík, Húsavík og Egilsstaðir
sýnt áhuga á höfuðstöðvunum,
auk sveitarfélaga á höfuðborgar-
svæðinu.
Óvissu starfsfólks eytt
Hann sagði að rétt hefði þótt
að gera út um staðsetningu fyrir-
tækisins að þessu leyti, ekki sízt
með tilliti til starfsfólksins, sem
staðið hefði þétt við bakið á stjóm-
endum. Það hefði orðið að eyða
óvissu þess um framtíðina.
Benedikt sagði að endanlegt
staðarval færi fram í þessari viku
eða næstu. Hann sagði að sam-
kvæmt samningi ætti fyrirtækið
að rýma núverandi húsnæði 1.
ágúst næstkomandi og ætti hann
ekki von á að því yrði breytt, þótt
það væri heldur ekki útilokað.
Þróun og eftirlit
úti á land?
Til greina kemur, að sögn Bene-
dikts, að stjórn ÍS skoði hvort það
henti rekstri fýrirtækisins að hafa
eitthvað af rekstrinum úti á landi
í samvinnu við annað slíkt. „Við
gefum okkur góðan tíma til að
skoða það með okkar fólki og okk-
ar framleiðendum,“ sagði hann.
Héraðsdómur
Reykjavíkur
Dæmdur
fyrir svik
í aug-
lýsingu
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur fyrir nokkm dæmt 25 ára
gamlan mann í 30 daga skilorðs-
bundið fangelsi fyrir að hafa gert
tilraun til fjársvika en maðurinn
auglýsti í Morgunblaðinu 10. apríl
síðastliðinn í nafni tilbúins fyrir-
tækis og bauð um 300 störf erlend-
is gegn greiðslu.
„Atvinnutækifæri
lífs þíns“
Auglýsing mannsins birtist und-
ir yfírskriftinni Atvinnutækifæri
lífs þíns og þar var óskað eftir 90
manns til starfa við skemmtistað
á vinsælum ferðamannastað á
Spáni, 125 manns til starfa við
fiskvinnslu í Mexíkó og 86 manns
til sjómannsstarfa í Mexíkó.
Ahugasamir áttu að senda upplýs-
ingar ásamt 25-pundum til Global
Employment Agency í London en
fíárhæðin yrði endurgreidd þegar
umsókn yrði síðan skilað.
Eigendur fengu peningana
aftur vegna mistaka
í ákæra kom fram að tíu aðilar
hafi látið blekkjast af auglýsingu
mannsins og sent greiðslu til hins
uppgefna auglýsanda. en vegna
mistaka við póstdreifingu hjá um-
boðsmanni mannsins í London
vora peningasendingarnar ekki
framsendar honum heldur vora
þær gerðar upptækar og endur-
sendar greiðendunum sem þess
vegna urðu ekki fyrir tjóni.
Maðurinn játaði brot sitt fyrir
dómi og taldi dómari að hæfíleg
refsing væri 30 daga fangelsi,
skilorðsbundið í tvö ár. Auk þess
var honum gert að greiða allan
sakarkostnað.
Óánægja innan
víkingasveitar
Misjafnt hvort kennaraverkfall
nær til einkaskóla
Kennarar í Mið-
skóla o g Tjarnar-
skóla ekki í verkfall
ÓÁNÆGJA er innan sérsveitar
lögreglunnar í Reykjavík, víkinga-
sveitarinnar svonefndu, í kjölfar
breytinga sem gerðar háfa verið
á starfsumhverfi hennar og fela
m.a. í sér breytingar á vinnutíma
og launaskerðingu til hinna 18
lögreglumanna sem sveitina
mynda. Böðvar Bragason lög-
reglustjóri kveðst ekki kannast við
óánægju innan hennar.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins blossaði óánægja sér-
sveitarmanna upp í kjölfar þess
að lögreglustjóri ákvað að fara að
tillögum starfshóps innan
embættisins í þá veru að sérsveit-
armenn skyldu ganga sömu vaktir
og almennir lögreglumenn.
Launabilið minnkar
Undanfarin ár hafa sérsveitar-
menn gengið sólarhringsvaktir líkt
og almennir lögreglumenn en sam-
kvæmt eigin kerfí, sem er ólíkt
mjög umdeildu vaktakerfí al-
mennrar löggæslu. Þetta fyrir-
komulag hefur m.a. valdið tog-
streitu við yfírmenn almennu lög-
reglunnar.
Jafnframt þessum breytingum
hefur verið ákveðið að skera niður
ýmis fjárframlög til sérsveitarinn-
ar, þar á meðal þjálfunartíma, og
samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins getur niðurskurðurinn
numið 20-30%. Meðlimir sveitar-
innar hafí haft einna hæst laun
lögreglumanna en eftir þær breyt-
ingar, sem gerðar verða og skerði
ýmsar greiðslur til þeirra, minnki
það bil verulega.
í kjölfarið hafa nokkrir meðlim-
ir sérsveitarinnar sótt um flutning
til annarra starfa innan lögregl-
unnar og aðrir hugsa sér til hreyf-
ings að sögn viðmælenda blaðsins
í hópi sérsveitarmanna. Auk þess-
ara breytinga þykir lögreglumönn-
unum að starfsemi sérsveitarinnar
hafi notið lítils skilnings lögreglu-
yfírvalda, sem ekki hafí tekið af
skarið um hvert hlutverk sveitar-
innar skuli vera eða hvort hún
skuli yfirhöfuð starfrækt. „Mönn-
um er farið að fínnast að þeir líði
fyrir að gefa sig í þetta, frekar
en að þeir njóti þess,“ sagði sér-
sveitarmaður við Morgunblaðið í
gær.
Jón Fr. Bjartmarz, aðalvarð-
stjóri og yfírmaður sérsveitar lög-
reglunnar, vildi ekki ræða þetta
mál við Morgunblaðið í gær.
Kannast ekki við óánægju
Böðvar Bragason lögreglustjóri
kveðst ekki kannast við óánægju
innan sérsveitar lögreglunnar.
Hann hafí þingað með sveitinni í
samtals á fjórðu klukkustund um
þessi mál og geri ráð fyrir að
meðlimir hennar geri sér grein
fyrir því, eins og aðrir starfsmenn
embættisins, að samdráttur hafí
átt sér stað.
Ekki sé hægt að minnka fjár-
framlög til lögreglunnar í Reykja-
vík mörg ár í röð án þess að það
komi áþreifanlega niður einhvers
staðar. Menn hafí vitaskuld mis-
jafnar skoðanir á niðurskurði, eft-
ir því hversu nálægt hveijum og
einum hann er.
BOÐAÐAR verkfallsaðgerðir
Kennarasambands íslands og
Hins íslenska kennarafélags
myndu hvorki hafa áhrif á
skólastarf í Miðskóla né Tjarn-
arskóla. Stjórnir skólanna eru
viðsemjendur kennara á hvorum
stað. Óvíst er hvort verkfallið
hefur áhrif á skólastarf í Landa-
kotsskóla. Verkfallið nær til
ísaksskóla og Verslunarskólans.
Hjá Þorsteini Kristinssyni,
trúnaðarmanni kennara í Mið-
skólanum, fengust þær upplýs-
ingar að kennarar við skólann
væru hvorki í KÍ eða HÍK. Skól-
inn væri sjálfseignarstofnun og
kennararnir semdu við stjórn
hans. Átta kennarar kenna um
50 nemendum á aldrinum 9 til
13 ára í Miðskólanum.
Margrét Theodórsdóttir,
skólastjóri Tjarnarskóla, sagði
að kennarar semdu við skólann
og myndu ekki leggja niður
störf kæmi til verkfalls. Skóla-
starf ætti að vera með eðlilegum
hætti að því frátöldu að gert
væri ráð fyrir að sundnámskeið
nemenda í SundhöIIinni félli nið-
ur. Átta kennarar kenna um 70
nemendum á aldrinum 13 til 15
ára í Tjarnarskóla.
Óvíst tneð skólastarf
í Landakotsskóla
Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins hefur ekki ver-
ið tekin ákvörðun um hvort
skólastcirf fellur niður í Landa-
kotsskóla ef verkfall verður að
veruleika. Tíu kennarar starfa
við skólann og eru þeir ýmist í
KI eða ófélagsbundnir. Nemend-
ur eru hátt á annað hundrað.
, Verkfall myndi ná til kennara
í ísaksskóla, sem eru í KÍ, og
kennara við Verslunarskólann
sem ýmist eru í KÍ eða HÍK.