Morgunblaðið - 11.02.1995, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSEIMDAR GREINAR
LÁUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 1995 43-
i'
i
I
I
I
I
I
I
)
I
>
V
Magnús
Þorkelsson.
hlutverks og ráðherradóms, flölda
erinda, skilvirkni í starfi ráðuneyt-
isins og sosum fleiri brýn mál.
Nú vill svo til að ráðuneytið
hefur um áratugaskeið verið skja-
lagleypir sem litlu skilar frá sér
og má til sönnunar benda á mál
sem hafa endað hjá umboðsmanni
Alþingis af þeim sökum. Þá er líka
haft á orði að skjalaskráningar-
kerfí ráðuneytisins auki ekki skil-
virkni þess, það segi manni bara
hvar mál sitji fast!
Sem dæmi um slíkt má nefna
mál sem er búið að velkjast í kerf-
inu í tíð fjölda ráðherra. Ég kom
að því við endurskoðun laga um
lþgvémdun starfsheita kennara.
Ég hafði m.a. áhuga á málum lít-
ils hóps sem með óljósri lagatúlkun
er sviptur réttindum sem kennar-
ar. Það var veturinn 1989-90.
Endurskoðað frumvarp þess efnis
dagaði uppi vorið 1991, fyrir tíð
Ólafs. Lögum samkvæmt bar að
láta ljúka endurskoðun fyrr-
greindra laga þegar í stað (og
átti að vera búið fyrir kosningar
vorið 1991), en í stað þess voru
öll málefni kennaramenntunar sett
í nefnd sem enn hefur ekki skilað
af sér.
Ég hélt uppi nokkrum þrýstingi
um hríð en sendi loks bréf í desem-
ber 1993 til þeirra er sátu í leyfís-
bréfanefnd og óskaði þess að hlut-
laus aðili legði mat á mál kennara
sem voru með próf frá Kennara-
skóla íslands og a.m.k. 90 e. há-
skólapróf að auki. Þessir kennarar
teljast ekki vera með fullgild rétt-
indi. Þeir aðilar hafa engu svarað,
en munnlega hefur formaður leyf-
isbréfanefndar sagst vilja senda
málið í lagastofnun HÍ til túlkun-
ar. Það frétti ég í lok útmánaða
1994. Um vorið sendi ég erindið
bæði til ráðherra og skrifstofu-
stjóra skólaskrifstofu ráðuneytis-
ins til að ýta á eftir, sem hvorug-
ur hefur svarað. í ársbyijun sendi
ég það til ráðuneytisstjórans og
er enn að bíða svars þaðan.
Þegar ég minnti formann leyfis-
að unnið sé að málum...“
Kattarþvottur?
ar er það ekki merki um dugnað
að daga uppi með stór frumvörp
um menntamál og veifa þeim
framan í kennara sem vonarpen-
ingi um betri tið og blóm í haga.
Vitaskuld verður sú vöm ráðherr-
ans helst að ráðuneytið fer ekki
með launamál sinna manna.
Þegar litið er á menntamálage-
irann og það sem unnið hefur ver-
ið þar, þá hafa nær öll meiriháttar
mál setið á hakanum: námskrár-
gerð á grunn- og framhaldsskóla:
stigum, lagasetning, málefni HÍ
auk þess sem engan veginn var
hægt að vita hver stefnan í
menntamálum á að vera því alltaf
var verið að bíða eftir því að hún
birtist og síðan fest í lög! Og það
merkilega er að þau lög og nám-
skrár sem þegar voru í gildi voru
vart komin til framkvæmda!
„án þess að tala við
ráðherrann...“
Ég óska Ólafi Garðari til ham-
ingju með að vera þaulsætnastþ
menntamálaráðherra síðan 1978.
Ég vona bara að hann komi ein-
hveijum af frumvörpum sínum í
gegnum þingið, hvað sem um þau
má annars segja, og að arftaki
hans sýni þeim meiri virðingu en
ráðherrar síðasta áratugar hafa
gert við mál forvera sinna. Þá
vona ég svo sannarlega að hugsýn
hans um starfshætti ráðuneytisins
rætist.
Ég held að skólakerfíð þoli ekki
meira að sinni.
Höfundur er kennslustjóri
Menntaskólans við Sund.
í sunnudagsblaði Morgunblaðs-
ins 15. janúar síðastliðinn birtist
viðtal Elínar Pálmadóttur við minn
æðsta yfírmann á sviði mennta-
mál, Ól.af Garðar Einarsson, ráð-
herra. Stjórnmálamenn kynna mál
sín fyrir kosningar, Davíð, Jón
Baldvin og Friðrik eru búnir. Nú
kemur Ólafur.
Að treysta ráðuneyti...
Athygli vekur feitletraður texti
í viðtalinu en þar stendur: „Menn
þurfa að geta treyst því að unnið
sé að þeim málum sem þeir bera
fyrir bijósti án þess að þurfa að
fylgja þeim eftir með persónuleg-
um viðtölum og án þess að tala
við ráðherrann." Þessu er fylgt
eftir í greininni með upplýsingum
um vinnutíma ráðherrans, hugleið-
ingum um aðskilnað þingmanns-
bréfanefndar á málið um það leyti
sem bréfíð til hans varð ársgam-
alt hló hann og fannst sniðug til-
laga hjá mér að ítreka það með
afmæliskorti.
Mér detta í hug þessi orð ráð-
herrans: „Það gengur einfaldlega
ekki að reka menntamálaráðu-
neytið gegnum síma eða með við-
tölum við fólk. Ég fullyrði að þetta
séu leifar gamals tíma, sem ekki
kemur aftur.“
Þetta óttast ég að sé draumsýn
en ekki veruleiki.
Þegar litið er á mennta-
málageirann, segir
Magnús Þorkelsson,
hafa nær öll meiriháttar
mál setið á hakanum.
Hvað hefur áunnist?
Staðreyndin er sú að Ólafur
Garðar hefur unnið margt sem
honum ber heiður fyrir. Hins veg-
9
©
BINGO-LOTTO
er fyrir þá sem
vilja vinna
Náðu í miða fyrir kl. 6
DOMINO'S
PIZZA
Munið Domino’s tilboðíd:
Þú kaupir eina pizzu og færö aöra fría
ef þú ert meA BINGÓLOTTÓ-MWA.
Aö auki fá krakkar sem eru meö
Blngó Bjössa póstkort skvisu ef
foreldrar kaupa sér gos.
Gildir ekki um heimsendar pizzur.
Græntnúmer:996060
([Græntn
munið eftir
orðaleiknum
með
Bingó Bjössa
dae
þar sem vinnlngarnlr fást
á laugardagskvoldum
í opinni dagskrá