Morgunblaðið - 11.02.1995, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
Landssamtökin
heimili og skóli
Sýning í
Kolaporti
HEIMILI og skóli, ein stærstu
hagsmunasamtök barna og
unglinga, hafa staðið fyrir
bama og unglingaviku sem
lýkur sunnudaginn 12. febr-
úar.
Vikunni lýkur með sýningu
í markaðshúsi Kolaportsins
dagana 11. og 12. febrúar þar
sem þátttakendur eru fyrir-
tæki, félagasamtök og ein-
staklingar.
Listi sjálf-
stæðismanna
á Norður-
landi vestra
FRAMBOÐSLISTI Sjálfstæð-
isflokksins í Norðurlandskjör-
dæmi vestra við alþingiskosn-
ingarnar 8. apríl nk. hefur
verið ákveðinn.
Listann skipa eftirtaldir:
Hjálmar Jóhsson, prófastur,
Sauðárkróki, Vilhjálmur Eg-
ilsson, alþingismaður,
Reykjavík, Sigfús Jónsson,
framkvæmdastjóri, V-Húna-
vatnssýslu, Þóra Sverrisdótt-
ir, bóndi og skrifstofumaður,
A-Húnavatnssýslu, Friðrik
Hansen, verkfræðingur,
Reykjavík, Björn Jónasson,
s_parisjóðsstjóri, Siglufirði,
Agúst Sigurðsson, bóndi, A-
Húnavatnssýslu, Elvur Þor-
steinsdóttir, skrifstofumaður,
Siglufirði, Gunnlaugur Ragn-
arsson, hagfræðinemi, V-
Húnavatnssýslu og Pálmi
Jónsson, alþingismaður, A-
Húnavatnssýslu.
Hamingjan
rædd á ITC-
fundi
FERTUGASTI fundur 1. ráðs
ITC á íslandi verður haldinn
í dag kl. 10.15 í gömlu Rúg-
brauðsgerðinni, Borgartúni 6.
Á ráðstefnunni verða m.a.
fyrirlesararnir Vilhjálmur
Árnason og Þórkatla Aðal-
steinsdóttir sálfræðingur og
rætt verður um hamingjuna
og hvemig við getum höndlað
hana. Allir velkomnir.
Félag heyrn-
arlausra
35 ára
FÉLAG heyrnarlausra var
stofnað 11. febrúar 1960 í
Málleysingjaskólanum í
Stakkholti. Stofnfélagar voru
33. Síðan þá hefur félagið
vaxið og heldur nú upp á 35
ára afmælið laugardaginn 11.
febrúar.
Afmælishátíðin hefst með
messu á táknmáli í Áskirkju
í Reykjavík kl. 12.30. Prestur
er sr. Miyako Þórðarson. Kl.
14-17 verður boðið upp á
kökur og kaffi á Hótel ís-
landi. Ymis skemmtiatriði
verða, m.a. mun danski lát-
bragðsleikarinn Rodtop sýna.
LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 1995 55
FRÉTTIR
TAFLFÉLAG Reykjavíkur býð-
ur börnum og unglingum 14 ára
og yngri á ókeypis skákæf ingu
í dag, laugardaginn 11. febrúar,
kl. 14. Æfingin er haldin í fé-
lagsheimilinu í Faxafeni 12.
Verðlaun verða veitt fyrir þrjú
efstu sætin.
Keppt er eftir Monrad-kerfi,
en það leiðir til þess að þeir sem
eru svipaðir að styrkleika tefla
saman eftir því sem líður á
mótið. Því ættu bæði byrjendur
og þeir sem eru lengra komnir
að fá mótherja við hæfi.
Skákæfíng
fyrir böm
hjá TR
Samhliða æfingunni geta þeir
sem vilja spreytt sig á skákverk-
efnum. Verkefnin skipast í þijú
stig, brons, silfur og gull og er
sérstök viðurkenning veitt fyrir
hvert stig. Brons-stigið er auð-
veldast og ættu flestir að hafa
gaman af að reyna.
Taflfélagið útvegar töfl og
klukkur og því þurfa þátttak-
endur ekkert að hafa með sér
til að geta tekið þátt í æfing-
unni.
Vegna mikils fjölda þátttak-
enda er nauðsynlegt að mæta
tímanlega, en allt að 70 krakkar
hafa tekið þátt í mótum og æf-
ingum hjá Taflfélaginu undan-
farna laugardaga.
Fúría
frumsýn-
ir Morfín
í kvöld
FÚRÍA, leikfélag Kvennaskólans í
Reykjavík, frumsýnir í kvöld kl.
20 leikritið Morfín eftir Svend
Engelbrechtsen. Leikstjóri er
Þröstur Guðbjartsson og verður
sýnt í Héðinshúsinu, Seljavegi 2.
í kynningu
segir: „Leikrit-
ið ijallar um
ungan mann
sem lagður er
inn á sjúkrahús
með snert af
magasári.
Hann býst ekki
við að þurfa að
liggja lengi en
sér fljótlega að
ekki er allt með
felldu og að
hann gæti
þurft að eyða ailri ævinni innilok-
aður ef hann tekur ekki strax í
taumana. Leikritið er gamanleikur
með lifandi tónlist og mörgum leik-
urum.“
Sýningar verða alls sjö og er
miðaverð 400 krónur fyrir nem-
endur Kvennaskólans og 600 krón-
ur fýrir aðra.
Umræðufundur
FF J um fisk-
veiðistjómun
Einar Oddur Ágúst Þorvaldur
Kristjánsson Einarsson Gylfason
MORGUNBLAÐ-
INU hefur borist
eftirfarandi
fréttatilkynning
frá Félagi fijáls-
lyndra jafnaðar-
manna:
„Útlit er fyrir
að sjávarútvegs-
mál verði meðal
helstu kosninga-
mála að þessu
sinni. Þar kemur
meðal annars við
sögu útspil vestfirskra sjálfstæðis-
manna fyrir nokkrum vikum þar sem
þeir lýsa hugmyndum sínum um
breytt stjómkerfí fískveiða. Kristján
Ragnarsson, ■ formaður Landssam-
bands íslenskra útvegsmanna, og
Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráð-
herra, hafa lýst sig andvíga þessum
hugmyndum. Á sama tíma hafa Al-
þýðuflokkur og Þjóðvaki kynnt tillög-
ur sínar í þessum málaflokki, þar sem
gert er ráð fyrir upptöku veiðigjalds
o g „uppstokkun" kvótakerfisins,
hvað sem það nú þýðir.
Er óánægjan með núverandi
stjórnkerfi að verða því um megn?
Er unnt að slá á gagnrýnisraddir
með lítilsháttar leiðréttingum eða er
þörf á alveg nýju kerfi? Er sókn-
arstýring betri kostur? Eru aðrir
valkostir? Er unnt að beita veiði-
gjaldi sem stjórntæki? Hvemig ætti
að reikna slíkt gjald — sem hlutfall
af afla, sem hlutfall af sókn eða á
annan hátt? Á að selja veiðileyfi til
hæstbjóðanda eða úhluta þeim undir
markaðsverði eftir aflareynslu eða
til byggðarlaga? Eiga smábátar að
njóta sérstakra ívilnana? Hver eiga
markmið fiskveiðistjórnkerfis að
vera? Hvaða leiðir eru færar að þeim
markmiðum, pólitískt og parktískt?
Er unnt að fjalla um sjávarútvegs-
mál frá sjónarhóli almannahags-
muna?
Til að ræða þessi mál efnir FFJ
til fundar á Kornhlöðuloftinu við
Bankastræti þriðjudagskvöldið 14.
febrúar nk. kl. 20.30.
Einar Oddur Kristjánsson, útgerð-
armaður, kynnir hugmyndir vestfir-
skra sjálfstæðismanna um nýtt
stjómkerfi í fiskveiðum. Hvað er
nýtt í þessum tillögum og hvað hafa
þær umfram núverandi kvótakerfi?
Er opnað á veiðileyfagjald? Getur
sóknarstýringin tryggt hagkvæmni
veiða og öryggi sjómanna? Hver er
staða sjávarútvegsmála í Sjálfstæðis-
flokknum?
Ágúst Einarsson, prófessor og rit-
ari Þjóðvaka, fjallar um kosti og
galla kvótakerfís og ber það saman
við sóknarstýringu. Hvemig sér hann
fyrir sér útfærslu veiðigjalds, sem
Þjóðvaki hefur á stefnuskrá sinni?
Hvemig metur hann pólitíska mögu-
leika á breytingum á næsta kjörtíma-
bili?
Þorvaldur Gylfason, prófessor,
fjallar um hagræn og siðferðileg rök
í þessum málaflokki og hvort og
hvernig beita megi veiðigj aldi sem
hagstjórnartæki. Þorvaldur skrifaði
nýlega grein í Morgunblaðið undir
nafninu Hollenska veikin, þar sem
hann varaði við því að sjávarútvegi
væri gert of hátt undir höfði með
hjálp gengisskráningar og ókeypis
afnota af auðlindum sjávar á kostnað
annarra atvinnugreina, sérstaklega
■ útflutningsiðnaðar og þjónustu.
Fundurinn er öllum opinn. Að
loknum framsögum verða fyrirspurn-
ir og umræður. Fundinum lýkur kl.
23. Kaffigjald er 500 kr. Fundar-
stjóri er Vilhjálmur Þorsteinsson, rit-
ari FFJ.“
mest seldu fólks-
bílategundirnar
í janúar 1995
Fjöldi %
Br.frá
fyrraári
%
1. Hyundai 50 18,2 25,0
2. Toyota 49 17,8 -47,3
3. Nissan 37 13,5 -14,0
4. Volkswaqen 36 13,1 50,0
5. Opel 27 9,8 800,0
6. Mitsubishi 11 4,0 -69,4
7. Renault 11 4,0 0,0
8. Volvo 10 3,6 25,0
9. Jeep 8 2,9 -27,3
10. Skoda 6 2,2 -33,3
Aðrar teg. 30 10,9 -60,5
Samtals 275 100,0 -22,3
354
Innflutningur
bifreiða í
janúar
1994 og
1995
275
| - FÓLKSBÍLAR,
nýir
VÖRU-,
SENDI- og
HÓPFERÐA-
BÍLAR, nýir
29
37
1993 1994 1993 1994
NOKKRAR villur slæddust inn i tðfluyfir bílainnflutning í janúar
sem birtist á viðskiptasíðu (gær. Taflan er því endurbirt hér um
leið og beðist er velvirðingar á þessum místökum. Eins og fram
hefur komið fækkaði nýskráningum um 22% i janúar frá sama
mánuði í fyrra. Þá hafa að sama skapi orðið miklar sveiflur í sölu
einstakra tegunda milli ára og vekur þar sérstaka athygli að
Hyundai hefur leyst Toyota af hólmi í efsta sætinu.
Frönsk vika á
Kaffi Reykjavík
VIKUNA 10.-16. febrúar stendur
yfir frönsk vika á veitingastaðnum
Kaffi Reykjavík, Vesturgötu 2.
Dagskrá með frönsku ívafi verður
alla daga og á boðstólum verður
einungis franskur matur og frönsk
vín. Þá verður frönsk tónlist ráð-
andi á veitingastaðnum þessa viku.
Opnað af franska
sendiherranum
Franska vikan var formlega
opnuð í gærkvöldi af franska
sendiherranum Robert Cantoni. Á
eftir borðhaldi voru kynningar á
matvælum, snyrtivörum og vínum,
en átta fyrirtæki munu kynna vör-
ur á þessari viku. í dag, laugar-
dag, verður snyrtivörukynning
klukkan 17. Jóna Einarsdóttir leik-
ur frönsk lög á harmóníku og stig-
inn verður dans við undirleik
hljómsveitarinnar Vanir menn.
Á morgun, sunnudag, og á
mánudag verður snyrtivörukynn-
ing klukkan 17. Klukkan 21 lesa
Bragi ólafsson og Sigurður Páls-
son frönsk ljóð og síðan leika
hljómsveitirnar Texas Jesús og
Kolrassa krókríðandi. Heiða Ei-
ríksdóttir, Jóhann G. Jóhannsson
og Margrét Örnólfsdóttir syngja.
Kennir margra grasa
Á franska matseðlinum kennir
margra grasa. Meðal annars er
boðið upp á fisksúpur, andalifrar-
paté, snigla í pemod-sósu, rauð-
víns-kjúklinga, kálfasneið Paillard
Bordelaise og lambahryggjarsteik
með tricastin-kartöflum, svo eitt-
hvað sé nefnt.