Morgunblaðið - 25.02.1995, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1995 43
MINIMINGAR
GUÐMUNDUR
SVEINSSON
+ Guðmundur
Sveinsson fædd-
ist í Djúpuvík í
Strandasýslu 11.
desember 1946.
Hann lést í Borgar-
spítalanum 17. febr-
úar síðastliðinn og
var jarðsunginn frá
Hafnarfjarðar-
kirlqu 23. febrúar.
FALLINN er frá einn
af hornsteinum Fim-
leikafélags Hafnar-
fjarðar, Guðmundur
Sveinsson kennari, langt um aldur
fram.
Guðmundur kenndi við Öldutúns-
skóla í Hafnarfirði að loknuk kenn-
aranámi og átti glæstan kennarafer-
il. Eiginleikar hans nutu sín svo sann-
arlega vel í kennslunni. Hann hafði
yndi af börnum og unglingum og
náði eyrum þeirra svo unum var. Sem
fræði- og skólamaður var hann ein-
stakur og ætíð tilbúinn að tileinka
sér nýjar hugmyndir og aðferðir í
kennslunni.
Okkar kynni urðu fyrst veruleg
er hann gerðist stundakennari við
Flensborgarskólann með kennara-
náminu, þá um tvítugt. Þrátt fyrir
ungan aldur vann hann hug og hjarta
okkar unglinganna og í þessum hópi
urðu síðan margir góðir vinir hans.
Það var þetta hlýja og manneskju-
lega viðmót og réttsýni sem við fund-
um strax er gerði Guðmund að frá-
bærum kennara og félaga.
Guðmundur var aldrei keppnis-
maður í íþróttum en engu að síður
áttu þær hug hans allan. Hann var
í forystusveit Fimleikafélags Hafn-
arfjarðar yfir 30 ár. Hann kom víða
við, sat m.a. í stjóm Handknattleiks-
deildar, var dómari í knattspyrnu í
mörg ár og kom á fót Dómararáði
Hafnarfjarðar sem hann veitti for-
mennsku í mörg ár. En knattspyrnan
var þó í fyrirrúmi og átti hann sæti
í stjóm knattspymudeildar í mörg
ár. Sl. átta ár hefur hann verið rit-
ari hennar og haft yfirumsjón með
útgáfumálum deildarinnar. Hann
lagði mikinn metnað í öll útgáfumál
og bera FH-fréttir þess glöggt merki.
Þar var fagmaður að verki. Sem fé-
lagsmaður var Guðmundur einstak-
ur, ætíð tilbúinn til allra verka og
alltaf hafði hann tíma fyrir FH. Þá
var gott að eiga hann að er erfið og
viðkvæm mál komu upp, því hann
var næmur að fínna bestu lausnirn-
ar. Guðmundur var mjög félagslynd-
ur og hrókur alls fagnaðar. Oftar en
ekki var hann í aðalhlutverki á sam-
komum FH-inga; sem veislustjóri, í
FH-bandinu, stjórnandi fjöldasöngs
og eða í hlutverki einsöngvara. Allt
þetta gerði Guðmundur snilldarlega.
Við FH-ingar eigum Guðmundi
margt að þakka og hans verður
minnst sem félaga sem þótti sælla
að gefa en að þiggja.
Elsku Gulla og börn. Guð styrki
ykkur í sorginni. Minningin um góð-
an dreng mun lifa.
F.h. Knattspyrnudeildar FH,
Þórir Jónsson.
Það var á miðju sumri 1965 að
ég frétti af tveim ungum mönnum
úr Hafnarfirði í kennaranámi. Ég var
þeim nokkuð kunnugur og vissi að
þar fóru tvö ágæt kennaraefni. Til
þess að laða þá að skólanum bauð
ég þeim nokkra fasta tíma í stunda-
kennslu. Annar þessara manna var
Guðmundur Sveir.sson. Starf hans
I hafði því staðið í hart nær 30 ár við
Oldutúnsskóla þegar hann lést. Hann
' átti mikinn þátt í mótun skólans og
þess starfs sem þar hefur verið unn-
ið. Eigi voru þar ráð ráðin öðru vísi
en hann kæmi þar nálægt. Það er
því stórt skarð fyrir skildi þegar svo
góður starfsmaður hverfur á braut
eftir langa og góða þjónustu við sömu
stofnun.
Guðmundur var ekki bara starfs-
| maður minn, hann var einnig félagi
I °g vinur. í mörg ár hittumst við fimm
félagar vikulega og ræddum þjóðfé-
i 'agsmál. Þar sat höfðinginn Þorgeir
Ibsen í öndvegi en nær þrír áratugir
skildu þá Guðmund og
hann að í aldri. Við
höfðum allir breytileg
viðhorf til þjóðfélags-
mála. Þannig að skoð-
anaskiptin auðguðu
okkur að víðsýni og
skilningi. Guðmundur
átti ekki síst þátt í þeim
gjöfum sem þessar
samverustundir veittu.
Guðmundur var list-
rænn maður. Kom það
ekki hvað síst fram í
tónlistinni. Hinn bjarti
tenór hans naut sín oft
á góðum stundum enda
varð hann burðarás í söngflokknum
Randver sem kennarar úr Öldutúns-
skóla stofnuðu.
Þegar nokkrir kennarar við skól-
ann hófu útgáfu vikublaðsins Fjarð-
arfrétta var Guðmundur einn í þeim
hópi og síðar varð hann ritstjóri
blaðsins. Þannig væri hægt til að
taka fjölda mála sem Guðmundur
lagði gjörva hönd á, en hann átti
sæti um lengri tíma í stjómum bæði
Byggðasafns og Bókasafns Hafnar-
fjarðar. Það sem lengst lifir og ríku-
legastan ávöxt ber eru þau frækom
kærleika og fróðleiks sem hann sáði
í hjörtu nemenda sinna. Hann var
mjög næmur á barnssálina og ólatur
að hlúa að henni. Fljótur að sjá út
þá sem halloka stóðu og veita þeim
hjálparhönd. Þessir mannkostir hans
sköpuðu nemendum hans góð vaxt-
arskilyrði sem endurspeglast í þeirri
tryggð og vináttu sem þeir hafa sýnt
honum í veikindum hans.
Sjúkdómsbarátta hans var bæði
löng og ströng. Þar sýndi hann það
æðruleysi og þann kjark sem ein-
kennir sterkan einstakling. En engin
fær flúðið sín örlög og hvíld og frið-
ur tekur við eftir hart stríð.
Söknuður vina og ættingja er mik-
ill. Það er mikill missir þegar svo
ágætur drengur er kallaður burt á
besta aldri.
Hjartans samúðarkveðjur vil ég
senda henni Gullu og börnunum
þeirra og hlýtt faðmlag henni Emmu
móður hans sem ávallt bar svo mikla
umhyggju fyrir honum Guðmundi
sínum.
Guð veri með ykkur.
Haukur Helgason.
Mig setti hljóðan þegar sú harma-
fregn barst mér frá íslandi að Guð-
mundur Sveinsson væri látinn, langt
fyrir aldur fram, en hann hafði bar-
ist hetjulega við illvígan sjúkdóm úm
nokkurt skeið.
í mínum huga var Guðmundur
einstakur maður, lítillátur, góðhjart-
aður og alltaf tilbúinn að hlusta,
staldra við og spjalla þegar manni
lá eitthvað á hjarta. Oftast var talað
um fótbolta og þar var ekki komið
að tómum kofunum, enda Guðmund-
ur einn mesti FH-ingur sem ég hef
kynnst. Eftir leiki í Krikanum var
farið upp í Sjónarhól og málin rædd.
Leikurinn var krufinn til mergjar og
ýmis atvik sem honum tengdust.
Guðmundur var ávallt jákvæður og
álit hans skipti mig mikiu máli. Hann
hallmælti engum leikmanni þrátt
fyrir að þeir ættu misjafna daga,
„þetta kemur bara næst“ var iðulega
viðkvæðið.
í mörg ár var Guðmundur kynnir
á heimaleikjum FH í fótboltanum.
Hann gerði það á sinn hátt, ekki
með látum og öskrum heldur með
virðuleik og stolti. Guðmundur starf-
aði fyrir knattspymudeild FH svo
lengi sem ég man eftir mér. Á sínum
yngri árum dæmdi hann oft leiki hjá
okkur í yngri flokkunum og ekki
þorði maður mikið að gagnrýna dóm-
gæsluna enda Guðmundur mikill að
sjá með sitt mikla skegg.
Auk þess að vera stjórnarmaður í
knattspymudeild FH sá hann alfarið
um blaðaútgáfu KD-FH og gerði það
raunar allt til dauðadags. FH-fréttir,
hans hugarfóstur, hófu göngu sína
í kringum 1980 og hafa með elju
Guðmundar komið reglulega út síð-
an. Hann hélt utan um alla tölfræði
sem tengdist FH, leikjafjölda leik-
manna o.fl. Hann gerði þetta ekki
skyldunnar vegna heldur hafði hann
einfaldlega gaman af þessu. Þrátt
fyrir að vera mjög veikur skrifaði
hann í jólablað FH knattspyrnuanná-
linn fyrir 1994 og gerði hann það
af sinni alkunnu vandvirkni og já-
kvæðni. Þessi annáll reyndist vera
sá síðasti sem Guðmundur Sveinsson
skrifaði fyrir FH. Guðmundur vann
sín verk af hreinskilni og fórnfýsi
og aldrei heyrði maður hann hreykja
sér af þeim störfum sem hann vann
fyrir KD-FH. Hann skilur eftir sig
stórt skarð hjá FH sem einhver besti
félagsmaður sem við í knattspymu-
deildinni höfum átt.
Ég votta fjölskyldu hans mínar
dýpstu samúðarkveðjur, en orð era
fátækleg á slíkri stundu. Ég mun
sakna þess mikið að geta ekki rætt
við hann um fótboltann, fengið ráð-
leggingar og krufið leikina til mergj-
ar.
Því miður get ég ekki verið við
útför Guðmundar þar sem ég er
staddur erlendis en hugur minn og
hjarta verða heima á íslandi. Minn-
ingin um Guðmund Sveinsson mun
aldrei víkja úr huga mér, röddin sem
glumdi í Krikanum í gegnum árin
er kannski þögnuð en minningamar
lifa áfram um einstakan mann.
Barcelona, 21. febrúar 1995.
Hörður Magnússon.
Okkur langar að skifa nokkurð orð
um kennarann okkar, Guðmund
Sveinsson.
Ekki datt okkur í hug að við ætt-
um eftir að skrifa minningargrein
um hann. Öll báram við virðingu
fyrir honum enda var hann góður
kennari.
Okkur finnst svo stutt síðan að
hann kom hress og kátur í stofuna
okkar á tréklossunum sínum.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Við sendum fjölskyldu hans okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Kveðja,
8. bekkur K, Öldutúnsskóla.
+
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu
okkur samúö og vinarhug við andlát og
útför elskulegrar eiginkonu minnar,
móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
KRISTÍNAR EINARSDÓTTUR
frá Vestmannaeyjum,
Hraunbæ 128,
Reykjavík.
Bjarni Bjarnason,
Jónína Bjarnadóttir,
Erna Bjarnadóttir, Magnús Karlsson,
Helga Bjarnadóttir, Hjalti Jóhannsson,
Einar Bjarnason, Ester Ólafsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför eiginmanns
míns, föður, sonar, bróður og tengda-
sonar,
JÓNS STEINSEN.
Sérstakar þakkir til Guðmundar M. Jó-
hannessonar, starfsfólks D-11E Land-
spítala og Heimastoðar Karítas.
Fyrir hönd aðstandenda,
Brynja Sigurðardóttir,
Rakel Steinsen,
Steinunn Steinsen, Eggert Steinsen.
+
Innilegar þakkir til allra, er sýndu okkur samúð og vinóttu við
andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu,
BIRNU BJÖRNSDÓTTUR,
Ólafsfirði.
Borghildur Kristbjörnsdóttir, Magnús Ólason,
Gígja Kristbjörnsdóttir, Arngrímur Jónsson,
Rakel Kristbjörnsdóttir, Hreinn Bernharðsson
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför móður minnar og tengdamóður,
GUÐBJARGAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
Álfaskeiði 60,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks annarrar hæðar Sólvangs.
Guðmundur Guðmundsson, Sólveig Guðbjartsdóttir.
+
Innilegar þakkir til þeirra, er sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför föður míns, tengdaföður, afa og langafa,
MARÍUSAR G. GUÐMUNDSSONAR
Hrafnistu í Hafnarfirði.
Dagmar Marfusdóttir, Hólmbert Friðjónsson,
Friðjón Hólmbertsson, Sæunn Magnúsdóttir,
Ásgerður Hólmbertsdóttir,
Marius Hólmbertsson,
og barnabarnabörn.
Dalvegi 24, Kópavogi
Almenn samkoma í dag kl. 14.00
í umsjá unglinga.
Allir hjartanlega velkomnir.
FERÐAFÉLAG
© ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 SÍMI 682533
Sunnudagur 26. febrúar
- dagsferðir F.í.
Kl. 10.30 Skíðagönguferð:
Stfflisdalur - Svartagil. Mjög
skemmtileg skíðagönguleið í
Þingvallasveit. Gengið í 4-5 klst.
Frá Stiflisdal liggur leiðin um
Kjósarheiði, sunnan Búrfells að
Svartagili.
Kl. 13.00 Þingvellir - Öxarár-
foss. Kjörin fjölskylduferð.
Gengið frá Vatnskoti um Skógar-
kot að Öxarárfossi (í klakabönd-
um). Kynnist Þingvöllum í vetrar-
búningi.
Kl. 13.00 Skíðaganga á Mos-
fellsheiði. Skíðaganga fyrir þá,
sem vilja styttri og auðveldari
göngu. Gengið í um 3 klst.
Verð í ferðirnar er kr. 1.200, frítt
fyrir börn m/fullorðnum.
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin og Mörkinni 6.
Allir eru velkomnir í ferðir
Ferðafélagsins, en félagar fá
fría dagsferð eftir 10 ferðir -
geymið farmiðana!
Næsta myndakvöld F.í. verður
miðvikudaginn 1. mars í Breið-
firðingabúð. Ingvar Teitsson
frá Ferðafélagi Akureyrar sýnir
myndir frá gönguleiðum norð-
anlands.
Ferðafélag Islands.
Hvftasunnukirkjan
Ffladelfía
Bænastund kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagskrá vikunnar framundan:
Sunnudagur: Almenn samkoma
kl. 16.30. Ræðumaður Hafliði
Kristinsson.
Miðvikudaguar: Skrefið kl.
18.00. Biblíulestur kl. 20.30.
Föstudagur: Unglingasamkoma
kl. 20.30.
Laugardagur: Bænastund
kl. 20.30.
Hallveigarstíg 1 »sími 614330
Dagsferð laugardaginn
25. febrúar kl. 10.30
Kjörganga um Álftanes.
Verð kr. 500.
Skíðaganga sunnudaginn
26. febrúar kl. 10.30.
Gengið verður frá skíöasvæðini
í Bláfjöllum að Þrengslavegi.
Reikna má með um 5 klst. langri
göngu. Verð 1.000/1.100. Brott-
för I dagsferðir er frá BSl bensín-
sölu. Miðar við rútu.
Helgarferð 4.-5. mars
Skíðaganga við rætur Hengils.
Gist á þeim fráþæra stað Nes-
búð. Fararstjóri Óli Þór Hilmars-
son. Nánari uppl. á skrifstofu
Útivistar.
Myndakvöld 2. mars
Á næsta myndakvöldi mun Sig-
urður Sigurðarson sýna m.a.
vetrar- og sumarmyndir frá Að-
alvík, frá vetrarferð yfir Vatnajök-
ul og fleira.
Útivist.