Morgunblaðið - 12.03.1995, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 12. MARZ 1995 33
I
I
:
i
i
•:
i
.!
<
I
I
<
i
i
i
í
i
Í
i
i
i
H
________MINNINGAR
RAGNAR
STEINBERGSSON
+ Ragnar Steinbergsson
fæddist 19. apríl 1927 á
Siglufirði. Hann lést á
Hjúkrunarheimilinu Seli 26.
febrúar sl. og var jarðarför
hans gerð frá Akureyrarkirkju
6. mars.
RAGNAR Steinbergsson er látinn,
hann hefur fengið hvíldina eftir
mjög erfið veikindi.
Ragnar var um áratuga skeið
forstjóri Sjúkrasamlags Akureyrar
sem síðar breyttist í umboð sjúkra-
trygginga Tryggingastofnunar
ríkisins hér á Akureyri. Fáum hef
ég kynnst sem voru jafn vel að sér
í almannatryggingalögunum og
þróun sjúkratrygginga á íslandi.
Hann var í einstaklega góðum
tengslum við fólkið sem þjón-
ustunnar naut og gætti þess að
sérhver fengi það sem honum bar.
Jafnframt var Ragnar mjög virkur
í samfélaginu og áhugasamur um
skipulag heilbrigðisþjónustunnar.
Hann vann ötullega að stofnun
Læknamiðstöðvarinnar á Akureyri
og varð framkvæmdastóri hennar
í hlutastarfi. A læknamiðstöðinni
batnaði starfsaðstaða heimilis-
lækna á Akureyri og seinna sam-
einuðust Læknamiðstöðin og
Heilsuverndarstöð Akureyrar er
Heilsugæslustöðin á Akureyri var
stofnuð árið 1985, en Ragnar var
jafnframt framkvæmdastjóri
hennar fyrstu árin.
Ég kynntist Ragnari fyrst þegar
hann kenndi mér bókfærslu í
Menntaskólanum á Akureyri.
Hann var afar skýr og skemmtileg-
ur kennari. Við vorum nokkrir
bekkjarfélagarnir sem sóttum
aukatíma á heimili hans skömmu
fyrir vorprófið. Ég man hvað mér
fannst notalegt að kynnast Ragn-
ari, hlýju hans og ljúfmannlegri
framkomu en jafnframt var hann
hressilegur og snöggur upp á lagið
og alltaf heilsaði hann mér á löngu
færi, glaðlegur á svip. Já, hann
vann öll sín störf af brennandi
áhuga, rösklega gekk hann eða
hálf hljóp við fót á milli staða í
miðbænum, alltaf að flýta sér, en
hafði samt alltaf tíma ef maður
átti við hann erindi.
Það var ánægjulegt að endunýja
kynni mín við Ragnar er ég flutt-
ist til Akureyrar árið 1972. Við
unnum mikið saman um dagana á
Læknamiðstöðinni, í stjórn Heilsu-
verndarstöðvar Akureyrar, í Heil-
brigðismálaráði Norðurlandshér-
aðs eystra og í Heilsugæslustöð-
inni á Akureyri. Enn átti ég eftir
að læra af Ragnari, er ég tók við
trúnaðarlæknisstarfinu af Þóroddi
Jónassyni hjá Sjúkratryggingum á
Akureyri. Alltaf var Ragnar jafn
brennandi í andanum, eldheitur
áhugi og djúp réttlætiskennd ein-
kenndu störf hans öll. Hann var
hafsjór af fróðleik um heilbrigðis-
og tryggingamál og kunni einnig
góð skil á öðru sem var að gerast
í þjóðlífinu.
Eins og hendi væri veifað, mitt
í önn dagsins, missti Ragnar heils-
una fyrir rúmu ári. Við tóku erfið
veikindi, en í þeirri baráttu naut
Ragnar ástríkis og umhyggju fjöl-
skyldu sinnar. Eg sendi Sigur-
laugu, dætrunum og fjölskyldum
þeirra mínar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Guð blessi minningu Ragnars
Steinbergssonar.
Ólafur Hergill Oddsson.
Opið til sýningar sunnudag
milli kl. 14og 16
Hálsasel 44
Glæsilegt einbhús með þríbýlismögul.
Stórglæsilegt 345 fm einbýli með innbyggðum bílskúr og falleg-
um ræktuðum garði. 3-4 svefnherbergi uppi og stórar stofur,
vandaðar innréttingar. Niðri eru 2 stór herbergi, bað og stórt
óinnréttað rými. Möguleiki á 1 eða 2 litlum íbúðum, báðum
með sérinngangi. Verð 17,5 milljónir.
★ ★ ★
Víðiteigur 22 - Mosfellsbæ, nýlegt einbýli
196 fm einbýli, timburklætt með dönskum múrsteini ásamt
46 fm bílskúr. 4-6 svefnherbergi og góðar stofur. Vandaðar
innréttingar og tæki, gólfefni, parket og flísar. Panelklædd
loft. Góð staðsetning. Áhv. 8,7 milij. Verð 15,5 milljónir.
★ ★ ★
Gerðhamrar 9 - nýlegt einbýli
138 fm einbýli ásamt 39 fm bílskúr. 3 svefnherbergi og góðar
stofur. Húsið er fullbúið að innan, ómálað að utan en með
fullfrágengnum garði og hita í stéttum. Áhv. 7,8 millj.
Verð 14,8 milljónir.
★ ★ ★
Hvassaleiti 12 - 3ja-4ra herb. íbúð + bílsk.
87 fm 3ja-4ra herbergja endaíbúð á 3. hæð í nýviðgerðu húsi.
Ný eldhúsinnrétting og parket. 24 fm bílskúr fylgir.
Gott verð 8,2 milljónir.
★ ★ ★
Miðleiti 8 - 3ja herbergja glæsiíbúð
101 fm íbúð ásamt bílskýli í nýlegu fjölbýli, þar sem aðeins 4
íb. eru í stigagangi. íbúðin er öll hin vandaðasta, nýtt eldhús,
flísalagt bað, parket og sérlega góð sameign. Áhv. 1,4 byggsj.
Verð 10,9 milljónir.
íbúð merkt 0301
★ ★ ★
Frakkastígur 24 - uppgert eldra parhús
116 fm eldra parhús á 'þremur hæðum, mikið endurnýjað
m.a. nýtt þak, nýjar lagnir, nýtt eldhús og bað. Fallegur lítill
garður fyrir framan hús. Óinnréttaður kjallari. Góð kaup -
verð aðeins 7,7 miiljónir.
jy SUÐURLANDSBRAUT 52 v/FAXAFEN
HUSAKAUP
682800 FASTEIGNAMIÐLUN 682800
Almennur fundur um aukakílóin
á Háaleitisbraut 58, Miðbæ, 3. hæð - lyfta á staðnum -
þriðjudaginn 14. mars kl. 20.30.
Rædd verða vandamál umframþyngdar og leiðir til úrbóta.
Gunnar Valtýsson, sérfræðingur í efnaskiptalækningum, og
Ingigerður Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur flytja erindi.
María Ásgeirsdóttir, lyfjafræðingur, kynnir NUPO-létt eina
læknisfræðilega rannsakaða megrunarkúrinn.
Fyrirspurnum svarað.
Gerum sameiginlegt átak og mætum öll sem eitt.
LYF HF. NupO-létt
Litlagerði 2 - einbýli
Til sölu þetta fallega 170 fm og mikið endumýjaða einbýli á
tveimur hæðum, ásamt bílskúrsrétti á 46 fm skúr. Húsið er
vel staðsett með miklu útsýni og góðum ræktuðum garði.
Verð 12,7 millj. ákv. sala og möguleiki að taka minni íbúð/íbúð-
ir uppí kaupverðið.
HUSAKAUP Suðurlandsbraut 52, Rvík, sfmi 68 28 00.
OPIÐHUSIDAG KL. 14-17
hÓLl
F ASTEIGN ASALA
® 10090
Miklabraut 26, raðhús. i dag
getur þú skoðað 160 fm vel skipu-
lagt raðh. í miðbæ Rvíkur sem skipt-
ist í tvær hæðir og kj. Mögul. á
séríb. í kj. Bílskúr fylgir með fyrir
frúna. Hún Valgerður sýnir þér slot-
ið í dag kl. 14-17. Verð 9.950 þús.
Makaskipti vel ath. á minni eign.
6996.
Sæviðarsund 13 - 2ja. Á
þessum rómaða stað bjóðum við
uppá einstaklega glæsilega 65 fm fb.
á 3. hæð í fallegu nýmáluðu fjölb-
húsi. Hún Kristín tekur vel á móti
þér í opnu húsi í dag kl. 14-17.
Verð 6,5 millj. Þú mátt til að skoða
þessa! 2010.
Viðarrimi - einb. Guiifaiiegt
einbhús á einni hæð með stórum
bflskúr. 4 svefnh. Afar glæsileg
maghóní-innr. í eldh. Áhv. 6,0 millj.
Verð 14,9 millj. Er þetta sú rétta?
5624.
Austurberg 2 - 3ja. Mjög fai-
leg 67 fm íb. í nýklæddu og fallegu
fjölbh. Sérgarður fyrir þig og þína.
Láttu þessa ekki renna úr greipum
þér f opnu húsi í dag kl. 14-17.
Áhv. byggsj. 2,8 millj. Verð 5,5
millj. (Bjalla merkt Eyrún.) Nú er
bara að drífa sig og skoða. 3991.
Ugluhólar 12 - 3ja - laus.
Afar falleg og hugguleg 3ja herb. íb.
á 1. hæð til vinstri í vinalegu 3ja
hæða fjölb. Sérgarður. Já, hér er
allt til alls! Líttu inn í opið hús f dag
kl. 14-17. Sjáðu verðið aðeins 5,7
millj. 3833.
Kleppsvegur 144 - 4ra-5
herb. Virkiklega eiguleg og rúm-
góð 120 fm íb. á 3. hæð á frábærum
útsýnisstað inn viö Sundin blá. Hún
Ásta tekur á móti þér og þinni fjöl-
skyldu í dag kl. 14-17. Verðið er
sanngjarnt aðeins 7,3 millj. 4519.
OPIÐ A HOLII DAG KL. 14-17
Seiðakvisl 6, opið hús
Á sunnudag milli kl. 14.00-17.00 ætla Erla og Kolbeinn
að sýna húsið sitt sem er um 160 fm ásamt rúmlega
30 fm bílskúr. í húsinu eru 4 svefnherbergi, stofa og
borðstofa. Arinn í stofu. Verð aðeins 15,9 millj.
Skógarhjalli 17, einb.
Húsið, fasteignasala,
Suðurlandsbraut 50, (bláu húsin),
sími 568-4070.