Morgunblaðið - 17.03.1995, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 17. MARZ 1995 15
Hugsum
við með
heilanum?
DR. MIKAEL M. Karlsson
heimspekingur flytur opin-
beran fyrirlestur á vegum
kennaradeildar Háskólans á
Akureyri í húsi skólans við
Þingvallastræti á morgun,
laugardaginn 18. mars, kl.
14.00 í stofu 24.
Fyrirlesturinn nefndi
Mikael „Hugsum við með
heilanum?“. Þar mun hann
fjalla um hvort það sér rétt
skilið að maður hugsi, skynji,
finni til o.s.frv. með heila sín-
um, hvort hugsun fari fram
í heilanum og hvort hún sé
e.t.v. ekkert annað en heila-
starfsemi.
Dr. Mikael er dósent í
heimspeki við Háskóla ís-
lands, hann hefur ritað um
hin ýmsu svið heimspekinnar
og flutt fyrirlestra víða um
lönd. Á síðasta ári fékk hann
alþjóðlega viðurkenningu
vegna brautryðjandastarfs á
vegum Erasmus-áætlunar-
innar er snýst um stúdenta-
og kennaraskipti milli há-
skóla í Evrópu. Fyrirlesturinn
er ætlaður almenningi.
Fyrirlestur
um vefjagigt
OPINN fyrirlestur um vefja-
gigt verður haldinn á Dvalar-
heimilinu Hlíð á Akureyri,
samkomusalnum, á morgun,
laugardaginn 18. mars, frá
kl. 10.00 til 12.00.
Fyrirlesari er Sigrún Bald-
ursdóttir sjúkraþjálfari sem
mikið hefur aðstoðað vefjag-
igtarfólk á Reykjavíkursvæð-
inu. Fyrirlesturinn er öllum
opinn, aðgangseyrir er 500
krónur.
Samið verði
við kennara
STJÓRN Foreldrafélags
Glerárskóla ítrekar fyrri
áskorun til stjórnvalda og
kennarasamtaka að nú þegar
verði gengið til samninga um
kaup og kjör kennara, svo
ófremdarástandi því sem nú
ríkir linni, segir í ályktun frá
stjórn félagsins.
„Hver dagur sem líður án
þess að samningar náist er
nemendum og framtíð þjóðar-
innar dýrkeyptur," segir enn-
fremur í ályktuninni.
AKUREYRI
Allir vegir ófærir og
flugi aflýst í blindbyl
Hestamenn í Olafsfirði sendir með talstöð til gegninga
BLINDBYLUR var norðanlands í
gær og útlit fyrir að veður verði
slæmt áfram. „Það er vitlaust veð-
ur hér en fáir á ferli,“ sagði lög-
reglumaður í Ólafsfirði síðdegis.
Allir vegir voru ófærir og flugi var
aflýst.
Snjóflóðahætta í
Ósbrekkufjalli
Snjóflóðahætta var í Ósbrekku-
fjalli gegnt Ólafsfjarðarbæ en hest-
húsahverfi bæjarbúa eru undir fjall-
inu. Eigendum hrossanna var gert
að koma við á lögreglustöðinni og
taka þar talstöð áður en farið var
til gegninga en aldrei máttu fleira
en þrír fara í einu, að sögn lögreglu
í Ólafsfirði. Fyrir um 10 árum féll
stórt snjóflóð úr Ósbrekkufjalli og
hreif með sér fiskihjalla. Mikil ófærð
var í bænum og varla jeppafært um
sumar götur.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
BLINDBYLUR var á Akureyri í gær eins og víða á Norður-
landi og reyndu þeir sem gátu að halda sig innandyra, en bens-
ínafgreiðslumenn neyddust öðru hverju til að skjótast út.
Björgunarsveitir á Dalvík að-
stoðuðu fólk við að komast til og
frá vinnustöðum í gærdag, en þar
var vonskuveður. Þá fór sveit
björgunarmanna til aðstoðar öku-
mönnum á Árskógsströnd sem þar
höfðu lent í vandræðum, en að sögn
lögreglu á Dalvík var kolófært inn
til Akureyrar.
Snjóflóðahætta var einnig norð-
an Dalvíkur, en þar hafa iðulega
fallið flóð. „Það veit enginn hvort
flóð hafi fallið þar núna, það kemst
enginn neitt, það verður bara skoð-
að þegar veðrinu slotar,“ sagði lög-
reglumaður á Dalvík.
Mikill erill var hjá lögreglumönn-
um á Akureyri í gærdag en margir
ökumenn lentu í ógöngum þar sem
var mjög blindað og lentu því marg-
ir upp í skafli og sátu þar fastir.
„Við höfum ekki undan,“ sagði
varðstjóri lögreglunnar á Akureyri.
Valgerður Jónsdóttir, móðir handboltakappanna Erlings og Jóns Kristjánssona
Gat ekki heilshugar
haldið með öðm liðinu
Morgunblaðið/Rúnar Þór
VALGERÐUR Jónsdóttir, móðir þeirra
Erlings og Jóns Kristjánssona sem leika
með liðum sínum, KA og Val, til úrslita
um íslandsmeistaratitilinn í handknattleik.
„Þ AÐ vona ég að guð gefi að þetta gerist
ekki aftur," varð Valgerði Jónsdóttur, móð-
ur handboltakappanna Erlings KA-manns
og Jóns Valsara Kristjánssona, að orði eftir
æsispennadi bikarúrslitaleik KA og Vals á
dögunum. Henni varð ekki að ósk sinni,
þeir bræður munu etja kappi í úrslitaleikjum
um Islandsmeistaratitilinn í handknattleik
og verður sá fyrsti í Reykjavík á morgun,
Iaugardag, þegar KA-menn sækja Hlíðar-
endaliðið heim.
Valgerður starfar á Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri, tekur þar hjarta- og lieilal-
ínurit og þá er hún varabæjarfulltrúi Fram-
sóknarflokksins í bæjarstjórn Akureyrar og
formaður leikskólanefndar.
Blendnar tilfinningar
„Þetta var erfitt fyrst, en venst,“ sagði
Valgerður en tilfinningarnar voru í fyrstu
blendnar; hún átti i erfiðleikum að ákveða
með hvoru liðinu hún átti að halda, Erlings
eða Jóns.
Mér þótti alltaf erfitt að horfa á leiki og
geta ekki alveg heilshugar haldið með öðru
liðinu, það hafa alltaf verið dálítið blendnar
tilfinningar þegar lið strákanna eigast við.
I bikarúrslitaleiknum hélt ég hins vegar
heils hugar með strákunum í KA, mér fannst
þeir eiga skilið að vinna titil, Valsmenn eru
svo vanir því,“ sagði Valgerður „og ég held
nú líka með þeim núna og vona að þeir vinni.“
Rólyndir
„Það eru iðulega miklar stimpingar milli
þeirra bræðra á vellinum og mér fannst erf-
itt að horfa á það fyrst, en þeir eru búnir
að vera svo lengi í handboltanum að ég er
hætt að taka það nærri mér. Þeim hefur allt-
af komið vel saman bræðrunum, þeir er ró-
lyndir, voru litlir slagsmálamenn," sagði hún.
Ekki ánægð með ömihuna
Valgerður átti von á að sitja spennt við
sjónvarpstækið þegar sýnt verður frá úr-
slitaleikjunum. „Eg var að passa barnabarn-
ið mitt þegar bikarúrslitaleikurinn var og
hún var orðin dálítið reið við ömmu sína,
sem mátti ekkert vera að því að leika við
hana, þetta var ótrúlega spenna. Eg átti
ekki von á að þessi iið mundu lenda saman
aftur og ég þyrfti að upplifa þessa tilfinn-
ingu á ný. Eg hélt kannski að KA-menn
yrðu saddir af einum titli, en þeir virðast
eflast við hverja raun,“ sagði Valgerður,
en vildi ekki spá neinu um úrslitin, „... en
KA-menn hafa náð ótrúlega langt og alveg
eins trúlegt að þeir fari alla leið.“
Glit hf. hefur starfsemi í Ólafsfirði
15 starfsmenn við
keramikframleiðslu
GLIT hf. í Ólafsfirði hefur starfsemi
í dag, föstudag. Ólafsfjarðarbær á
meirihluta í fyrirtækinu, 98%, en það
var keypt úr Reykjavík í vetur.
Guðbjartur Ellert Jónsson fram-
kvæmdastjóri sagði að starfsemin
færi hægt af stað, en hún ætti að
vera komin vel í gang eftir nokkrar
vikur. „Við ætlum aðeins að átta
okkur á þessu áður en við byrjum á
fullu og þá erum við enn að vinna
að undirbúningi, setja upp fleiri tæki
og annað sem til þarf.“
Fyrirtækið er til húsa á efri hæð
frystihússins og hafa 15 starfsmenn
verið ráðnir til starfa við framleiðsl-
una. „Þetta er mjög góð búbót við
atvinnulífið hérna,“ sagði Guðbjart-
ur.
Hraunaðir vasar til útflutnings
Glit mun framleiða keramikvörur
af ýmsu tagi fyrir innanlandsmarkað,
bæði gjafa- og nytjavörur. Þá er
unnið að því að koma framleiðslunni
á markað erlendis, þar er einkum um
að ræða hraunaða vasa sem Guð-
bjartur sagði að vakið hefðu athygli
ferðamanna og væru vonir bundnar
við þann útflutning. Loks er fyrirhug-
að að bjóða til Ólafsfjarðar listamönn-
um á þessu sviði sem unnið gætu
að hönnun og listsköpun með það í
huga að fyrirtækið gæti hafíð fram-
leiðslu á afrakstri þess starfs. „Við
væntum góðs af slíku samstarfi og
teljum það muni vera vöruþróun á
vegum fyrirtækisins til heilla.“
Ingibjörg Lára S.
Marteinsdóttir Rafnsdóttir
Tónleikar í
Deiglunni
INGIBJÖRG Marteinsdóttir söngkona
og Lára S. Rafnsdóttir píanóleikari
halda tónleika í Deiglunni, Akureyri,
sunnudaginn 19. mars kl. 17.
Á efnisskránni eru m.a. íslensk
og spænsk sönglög og óperuaríur.
Ingibjörg hefúr sungið á Akureyri
m.a. með Karlakórnum, Passíukórn-
um og síðast hlutverk Rósalindu í
Leðurblökunni sem LA sýndi vetur-
inn 1993.
FERÐAFÉLAG AKUREYRAR
Laust er skálavar&arstarf
í Laugafelli á sumri komandi
Varsla er fró 10. júlí til 10. september.
Tungumálakunnátta nauSsynleg og þekking á íslenskri náttúru.
Umsóknarfrestur er til 31. mars nk.
Umsóknir skulu sendast til Ferðafélags Akureyrar, pósthólf 48,
602 Akureýri.
Upplýsingar hjá Ragnhildi, sími 96-25798 og Sigurði, sími
96-12191, eftir kl. 19daglega.
Stjórn FFA.
ÁRÍÐANDI TILKYNNING!
Þeir, sem ætla að gista í skálum Fer&afélags Akureyrar, Bræðrafelli,
Þorsteinsskála, Dreka, Dyngjufelli, Laugafelli og Lamba, á tímabilinu
mars til júní 1995, skulu panta gistingu hjá Ferðafélagi Akureyrar.
Þeir, sem hafa pantað og hafa kvittun fyrir gistingu, sitja fyrir.
Stjórn FFA.