Morgunblaðið - 25.03.1995, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 25. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Skjálfta-
hrina við
Hveragerði
SKJÁLFTAHRINA hófst norðan við
Hveragerði um fjögurleytið í fyrra-
dag. Aðfaranótt föstudags, nánar
tiltekið klukkan hálffimm, urðu síðan
skjáiftar norðvestur af Hveragerði
að styrkleika 2-3 á Richters-kvarða.
„Tíu mínútur yfír sjö í gærmorgun
mældist síðan skjálfti sem var um
tveir á Richter og dálítil hrina af
smáskjálftum, um fjóra kílómetra
norðvestur af Hveragerði, fylgdu í
kjölfarið," segir Ragnar Stefánsson
j arðskj álftafræðingur.
Einhveijir skjálftar fundust síð-
degis í gær að hans sögn en þeir
fóru minnkandi.
♦ ♦ ♦----
Stúlka varð
fyrir bíl
STÚLKA var flutt á slysadeild síð-
degis í fyrradag eftir að hafa lent
fyrir bíl á Norðurbrún í Reykjavík.
Stúlkan hljóp aftur fyrir strætis-
vagn sem stöðvaði. Úr gagnstæðid
átt kom bíll sem stúlkan lenti á.
Ökumaðurinn náði að beygja frá
stúlkunni en hún lenti samt sem
áður á hlið bílsins og var flutt á slysa-
deild með minniháttar meiðsl. Oku-
maður bílsins var miður sín eftir slys-
ið og var einnig fluttur á slysadeild.
-----♦ ♦ ♦----
Þrír árekstrar í
Artúnsbrekku
ÞRÍR árekstrar þar sem átta bílar
komu við sögu urðu nokkurn veginn
á sama tíma í Ártúnsbrekku á níunda
tímanum í gærmorgun.
Árekstramir urðu allir á mjög
stuttum kafla í brekkunni. Fyrst
lentu tveir bllar saman, síðan fjórir
og í þriðja árekstrinum tveir. Flytja
þurfti farþega úr einum bílanna á
slysadeild.
Lögreglunni í Reykjavík var til-
kynnt um á annan tug árekstra í gær
og tvö umferðarslys þar sem minni-
háttar meiðsl urðu á fólki.
FRÉTTIR
STYTTAN af Nonna er 2,70 metrar á hæð og við hlið hennar
er Heinz Plein eigandi fyrirtækisins Kunstgiesserei Plein.
Morgunblaðið/Sigurþór Einarsson
FRUMMYND Nínu Sæmundsdóttur af Nonna við hlið bronsaf-
steypunnar, sem gerð hefur verið í Þýskalandi.
Darmstadt. Morgnnblaðið.
LOKIÐ hefur verið við bronsaf-
steypu af styttu Nínu Sæmunds-
dóttur af rithöfundinum Jóni
Sveinssyni, Nonna. Afsteypan var
gerð í Speicher í Þýskalandi og
er styttan væntanleg til landsins í
júni næstkomandi en frummynd
hennar, sem er úr gifsi, var gerð
árið 1958. Anna S. Snorradóttir
fann styttuna á lofti Korpúlfsstaða
þann 9. október 1992 og hafði þá
ekki verið hugað að henni í um
20 ár.
Það var fyrirtækið Kunstgiesse-
rei Plein í bænum Speicher í
Þýskalandi sem annaðist gerð
bronsafsteypunnar, en bærinn er
í nálægð Kölnar þar sem Jón
Sveinsson bjó og starfaði um ára-
bil, auk þess sem gröf hans er í
Köln. Fyrirtækið óskaði þess við
eiganda styttunnar, Zontaklúbb
Búið að steypa
Nonna í brons
Akureyrar, aíl fá að nota hana á
vörusýninguni Stone + Tech í
Niirnberg í lok maí, og var orðið
við því. Eigandi fyrirtækisins,
Heinz Plein, sagði í samtali við
Morgunblaðið að nokkuð sjaldgæft
sé að fá svo stórar styttur til af-
steypu og því sé skemmtilegt að
geta stillt Nonnastyttunni upp á
sýningunni í Niirnberg. Styttan af
Nonna er rúmir 2,70 metrar á hæð.
„Einnig væri skemmtilegt ef
einhver sýningargesta kannast við
Nonna“, sagði Plein. „Sjálfur hafði
ég ekki heyrt á hann minnst þegar
styttan kom hingað en margir
samstarfsmanna minna þekktu
nafn hans undir eins og líktu hon-
um við H.C. Andersen og Grimms-
bræður." Jón Sveinsson skrifaði
bækur sínar á þýsku og náðu þær
töluverðri útbreiðslu hér í landi.
Þá nutu sjónvarpsþættimir um
Nonna og Manna sem sýndir voru
í Þýskalandi fyrir fáum árum vin-
sælda. Plein sagði að styttan hefði
komið í október og verkinu hefði
lokið um miðjan mars. „Þetta er
eðililegur tími við gerð svona
stórrar styttu en við vinnum vepju-
lega aðeins tvær til þijár slíkar á
ári, auk tíu til fimmtán styttna í
eðlilegri líkamsstærð. Okkar
helsta framleiðsla er hins vegar
hverskyns smávara úr bronsi, ekki
síst fyrir kirkjugarða, en slíkar
vörur seljum við um Mið-Evrópu
alla“.
Fyrirtækið hefur um 150 starfs-
menn og hefur starfað linnulítið
allt frá aldamótum.
Styttan er sem fyrr segir í éigu
Zontaklúbbs Akureyrar, sem held-
ur uppi minningu Nonna. Henni
hefur ekki verið valinn endanleg-
ur staður, en líklegt er að hún
muni standa í námunda við Nonna-
hús.
V erkfallsréttur
sterkari rétti
til menntunar
Morgunblaðið/Júlíus
FRÁ ráðstefnu um sljómsýslulög, upplýsingaskyldu og aðgengi að sjúkraskrám.
Aðgangur að sjúkraskrám
nær ætíð leyfður frá 1972
RÁÐSTEFNA um stjórnsýslulög,
upplýsingaskyldu og aðgengi að
sjúkraskrám var haldin á Hótel
Loftleiðum í gær, en að ráðstefn-
unni stóðu Félag um heilbrigðis-
löggjöf, Landssamband sjúkra-
húsa og Landssamtök heilsu-
gæslustöðva. Fjallað var um nú-
verandi réttarástand í sambandi
við sjúkraskrár, meðal annars með
tilliti til ákvæðis stjórnsýslulag-
anna frá 1993 um upplýsingarétt.
Á ráðstefnunni var skipst á
skoðunum um hvort það ástand
sem nú ríkir varðandi aðgengi að
sjúkraskrám væri hið besta sem
völ væri á eða hvort einhverra
breytinga á því væri þörf. í um-
ræðunni kom fram að mögulegt
væri að hagsmunir heilbrigðis-
þjónustunnar annars vegar, af því
að hafa undir höndum tæki til að
vinna með að hagsmunum sjúkl-
inga, og hins vegar hagsmunir
annarra, og þá einkum sjúklinga,
af því að hafa aðgang að sjúkra-
skrám gætu vegist á.
Lög fyrst sett 1981
Lög um skráningu og meðferð
persónuupplýsinga voru fyrst sett
hér á Iandi árið 1981 og I þeim
var ákvæði um rétt aðila til að fá
upplýsingar úr sjúkraskrám, en
með ákveðnum takmörkunum þó.
í sömu lögum frá 1989 er svo vís-
að í læknalögin um aðgang að
sjúkraskrám, en þau banna engan
aðgang. í máli Ólafs Ólafssonar
landlæknis kom fram að hér á
landi hefðu almenn viðhorf lækna
hins vegar lengi verið þau að leyfa
sjúklingi að lesa sjúkraskrá, og
auk þess tilviks sem Hæstaréttar-
dómur féll nýverið um væri honum
aðeins kunnugt um eitt tilfelli frá
1972 þar sem sjúklingi hefði verið
neitað um að lesa sjúkraskrá sína.
Ólafur sagði að frá 1973 hefði
landlæknir leyft sjúklingum að
lesa eigin sjúkraskrár eftir samráð
við lækna þeirra, sem nær undan-
tekningalaust hefðu gengið eftir
því. Nú sýndi Hæstaréttardómur
að þetta hefði verið rétt þrátt fyr-
ir að ekki hefði verið að fínna
ákvæði um slíkt í lögum.
UMBOÐSMAÐUR barna telur að
réttur kennara til verkfalls gangi
framar almennum rétti um skóla-
skyldu bama og rétti þeirra til
menntunar. Hins vegar sé með öllu
óheimilt að aftra börnum og ung-
mennum frá því að taka þátt í fé-
lags- og tómstundastarfi, jafnvel
þótt það fari fram í skólahúsnæði,
nema það teljist vera liður í skóla-
starfinu sjálfu.
Landssamtökin heimili og skóli
leituðu til umboðsmanns barna í
febrúar og inntu meðal annars eftir
því hvort það væri brot á mannrétt-
indum barna að loka skólum vegna
verkfalla. í áliti sínu rifjar umboðs-
maður upp ákvæði um skólaskyldu,
sem tryggi börnum rétt til menntun-
ar. Hins vegar veiti lög um kjara-
samninga opinberra starfsmanna
kennurum heimild til verkfalls. Ann-
ars vegar sé því um að ræða lögvar-
inn rétt kennara til að leggja niður
vinnu og hins vegar lögákveðna
skólaskyldu barna og rétt þeirra til
menntunar. Augljóst sé að þessi rétt-
indi séu ósamþýðanleg. Það sjónar-
mið hafi verið ríkjandi að hinn sér-
tæki réttur, í þessu tilviki réttur
kennara til að gera verkfall, gangi
framar hinum almenna rétti, þ.e.
skólaskyldu barna og rétti þeirra til
menntunar, því að öðrum kosti væri
hinn sértæki réttur, verkfallsréttur-
inn, þýðingarlaus.
Fús til viðræðna
Landssamtökin heimili og skóli
inntu umboðsmann barna einnig eft-
ir því hvort hann hefði í hyggju að
hafast eitthvað að til að koma I veg
fyrir það í framtíðinni að kjaradeilur
kennara bitni á skólagöngu barna.
Umboðsmaður svarar á þann hátt,
að í fljótu bragði virðist afnám eða
takmörkun verkfallsréttar kennara
eina urræðið sem gæti komið í veg
fyrir að deilur kennara og hins opin-
bera um kaup og kjör bitni á skóla-
göngu barna í framtíðinni. Það sé
aftur á móti ekki í verkahring um-
boðsmanns barna að taka afstöðu
til Þess hvort slíkt bæri að gera.
„Með hagsmuni barna að leiðarljósi
er ég hins vegar að sjálfsögðu reiðu-
búin til viðræðna við þá aðila, sem
hlut eiga að máli, um hugsanlegar
leiðir til að fylgja eftir þeirri stefnu-
mótun um nám og kennslu, sem lög
kveða á um, ef það mætti verða til
þess að koma, I framtíðinni, I veg
fyrir að kjaradeilur bitni á skóla-
göngu barna,“ segir Þórhildur Lín-
dal, umboðsmaður barna, í áliti sínu.
I
I
\
I
i
I
I
I
I
I