Morgunblaðið - 25.03.1995, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 25. MARZ 1995 7
FRÉTTIR
Ritröð fyrir grunnskóla
um Norðurlönd
NÁMSGAGNASTOFNUN kynnti
sl. fimmtudag útgáfu á 18 mynd-
böndum og fimm nemendaheftum
sem koma samtímis út á öllum
Norðurlöndunum. Um er að ræða
norrænt samvinnuverkefni Náms-
gagnastofnunar og norrænna
skólasjónvarpsstöðva og nefnist
útgáfan Við Norðurlandabúar.
Undirbúningur útgáfunnar hef-
ur staðið í tvö ár en efnið er eink-
um ætlað miðstigi grunnskóla.
Þijú myndbönd fjalla um hvert
Norðurlandaríkjanna en ein mynd
um Grænland, Færeyjar og
Álandseyjar. Þá er í einu heftanna
fimm fjallað um ísland, Grænland
og Færeyjar.
Aðalhöfundur íslenska heftisins
er Páll Ólafsson en ritstjórar
verksins eru Heimir Pálsson og
Tryggvi Jakobsson, sem einnig
hafði umsjón með gerð íslenska
myndbandsins ásamt Karli Jeppe-
sen.
Þá hefur Námsgagnastofnun
gefíð út sex snældur ásamt prent-
uðum texta, vinnubókum og
kennsluleiðbeiningum undir heit-
inu Hvad siger du? Um er að ræða
kennsluefni í dönsku fyrir 12-14
ára nemendur. Höfundar eru Hlín
Helga Pálsdóttir, Svandís Ólafs-
dóttir, Ása Kristín Jóhannsdóttir,
Þórunn Erna Jessen, Elísabet Val-
týsdóttir og Vilborg H. ísaksdóttir.
Útgáfan er að hluta til styrkt
af Norrænu ráðherranefndinni,
sem einnig annast m.a. ókeypis
dreifíngu á Norðurlöndum á þeim
80 kennsluforritum sem Náms-
gagnastofnun hefur gefið út.
Morgunblaðið/Sverrir
HOFUNDAR hins nýja námsefnis og forráðamenn
N ámsgagnastofnunar.
Neytendasamtökin
Munum
fylgjast
vel með
JÓHANNES Gunnarsson, formað-
ur Neytendasamtakanna, segir að
fylgst verði með því að staðið verði
við yfirlýsingar um hagræðingu
og lægra vöruverð sem gefnar
voru í kjölfar kaupa Esso á hlut
í Olís síðastliðinn laugardag.
„Við höfum gagnrýnt fákeppni
í gegnum árin. Það að einn aðili
kaupi sig inn í annan þannig að
niðurstaðan verði 70% markaðs-
hlutdeild, þýðir að sjálfsögðu
aukna fákeppni. Síðan fer það
dálítið eftir þróun mála á næst-
unni hvaða afleiðingar þetta hef-
ur. Auðvitað óttast maður að hlut-
irnir fari á verri veg en ef nýir
aðilar koma inn á markaðinn, get-
ur það breytt málum verulega. Þá
verður mönnum ekki stætt á öðru
en að standa við yfirlýsingar sínar
um að þessi hagræðing skili sér
til neytenda.
Eina trygging neytandans fyrir
hagstæðu vöruverði er samkeppni.
Fákeppni hefur aldrei tryggt neyt-
endur. Þannig að ég lít svo á að
ekkert sé sjálfgefið í þeim efnum.
Við munum að sjálfsögðu fylgjast
mjög vel með þróun. Það liggja
fyrir yfirlýsingar þessara aðila og
við munum knýja á um að það
verði staðið við þær og vonum að
þær séu settar fram af heilum
hug,“ segir Jóhannes.
-----♦ ♦ ♦
Launavísi-
tala hækk-
ar um 0,7%
LAUNAVÍSITALA hækkar um
0,7% milli mánaðanna janúar og
febrúar og hefur vísitalan hækkað
um 2,1% síðustu tólf mánuði.
Hækkunin síðustu þijá mánuði
umreiknað til árshækkunar er
3,3%.
Þá hækkar leiga sem fylgir vísi-
tölu húsnæðiskostnaðar sam-
kvæmt útreikningum Hagstofu
íslands. Hækkunin er 2,3% frá og
með aprílmánuði og helst ieigan
síðan óbreytt í maí og júní. Leiga
vegna marsmánaðar hækkar einn-
ig samkvæmt frétt Hagstofunnar.
Sjábu hlutina
|e. í víbara samhcngi!
f
- -N v , ^ - .r - H. ^
1
OG ENN KEMUR
TWINGO Á ÓVART.
ÞEIR HENTU KÚPLINGUNNI ÚTU
Nýjasta útspil Renault Twingo er kúplingslaus beinskipting.
Tímamótahugmynd sem á eflaust eftir að verða alsráðandi í framtíðinni
Alan Prost, heimsmeistari I
FORMULA 1 KAPPAKSTRI, OG RÁÐGJAFI
HJÁ RENAULT ER STÓRHRIFINN:
„Sú staðreynd að kúplingunni hefur
verið hent út er til mikilia bóta. Áfram
er notast við hefðbundna gírstöng
þannig að aksturslagið er hið sama.
Það eina sem er breytt er að maður
þarf ckki lengur að vera á fleygiferð
með vinstri fótinn. Afleiðingin er sú
að rnaður er miklu afslappaðri í
umferðinni og þar af leiðandi
ánægðari og ömggari ökumaður.”
SH i N