Morgunblaðið - 25.03.1995, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
BLAFJOLL
Veðurhorfur: Gengur í norðan
stinningskalda með dálitlum élj-
um en lægir aftur með kvöldinu
og léttir til. Frost 2-5 stig framan
af degi, síðan kólnandi.
Skíðafæri gott og nægur snjór.
Opið: Kl. 10-18 fös., laug., sun.
og mán. Á þri., mið. og fim. er
opið kl. 10-22.
Upplýsingar í síma 91-801111.
Skíðakennsla er allar helgar og
hefsthúnkl. 10.30, 12.00, 13.30,
15.00 og 16.30 og stendur í 1 'h
klst. í senn:
Ferðir: Sérleyfisferðir Guðmund-
ar Jónssonar sjá um daglegar
áætlunarferðir þegar skíðasvæð-
in eru opin með viðkomustöðum
víða í þorginni. Uppl. eru gefnar
í síma 683277 eða hjá BSÍ í sími
22300. Teitur Jónasson hf. sér
um ferðirfrá Kópavogi, Garðabæ
og Hafnarfirði. Upplýsingar í
síma 642030.
KOLVIÐARHOLSSVÆÐI
Veðurhorfur: Gengur í norðan
stinningskalda með dálitlum élj-
um en lægir aftur með kvöldinu
og léttir til. Frost 2-5 stig framan
af degi, síðan kólnandi.
Skíðafæri: Gott skíðafæri.
Opið: Kl. 10-18 fös., laug., sun.
og mán. Á þri., mið. og fim. er
opið kl. 10-21.
Upplýsingar í síma 91-801111.
Skfðakennsia er allar helgar kl.
14.30 hjá Skíðadeild Víkings.
Ferðir: Sjá Bláfjöll.
SKALAFELL
Veðurhorfur:
Gengur í norðan stinningskalda
með éljum og skafrenningi, lík-
lega allhvass um tíma. Lægir aft-
ur með kvöldinu og léttirtil. Frost
2-5 stig framan af degi, síðan
kólnandi.
Skfðafæri ágætt, nægur snjór.
Opið: Kl. 10-18 fös., laug., sun.
og mán. Á þri., mið. og fim. er
opið kl. 10-21.
Upplýsingar: í síma 91-801111.
Skíðakennsla er allar helgar og
hefsthúnkl. 10.30, 12.00, 13.30,
15.00 og 16.30 og stendur í 1 'U
klst. í senn.
Ferðir: Sjá Bláfjöll.
ISAFJORÐUR
Veðurhorfur: Allhvass norðaust-
an og éljagangur en heldur hæg-
ari og minnkandi él þegar líður á
daginn. Frost 4-7 stig, kólnandi
síðdegis.
Skíðafæri gott og nægur snjór á
báðum svæðum.
Opið: Skíðasvæðið verður opið
laugardag og sunnudag frá kl.
10-17. Opið virka daga frá kl.
13-18 og til kl. 20 þrið. og fim.
Ath. gönguskíðabrautir eru
troðnar í Tungudal.
Upplýsingar: í síma 94-3125
(símsvari).
Ferðir: Áætlunarferðir á svæðið
alla daga frá kl. 12.
AKUREYRi
Veðurhorfur: Gengur í norðan
og norðaustan stinningskalda
með éljagangi, allhvass um tíma
síðdegis. Frost 4-7 stig, kólnandi
þegar líður á daginn.
Skfðafæri gott og nægur snjór.
Opið: Virka daga kl. 13-18.45
og laugar- og sunnudaga kl.
10-17.
Upplýsingar í síma 96-22930
(símsvari), 22280 og 23379.
Skíðakennsla: Um helgina frá kl.
12 og á klst. fresti eftir þátttöku.
Ferðir á svæðið á virkum dögum
kl. 13.30, 15.30 og 16.30 og síð-
asta ferð kl. 18.30. í bæinn er
síðasta ferð kl. 19.
Samtök um Kvennalista
Helga Sigurj ónsdóttir
segir sig úr samtökunum
HELGA Sigurjónsdóttir, bæjarfull-
trúi í Kópavogi, hefur sagt sig úr
Samtökum um kvennalista. Helga
lýsir yfir vantrausti á skipulag,
starfshætti og stefnu Kvennalist-
ans í greinargerð með úrsögninni.
Hún verður áfram bæjarfulltrúi í
bæjarstjórn Kópavogs.
Helga segir meðal annars í
greinargerðinni að svokallað gras-
rótarskipulag, án formlegrar
stjórnar, eigi að tryggja mest hugs-
anlegt lýðræði. „I reynd er aftur á
móti svo að sjá sem um hreint
stjórnleysi sé að ræða og um leið
ábyrgðarleysi. Framkvæmdanefnd
hefur ekki formleg völd, nema þeg-
ar henni sýnist. Verk- og valdsvið
starfskvenna er óljóst, þingkonur
hafa formlega lítið meira um málin
að segja en hver annar félagsmað-
ur og eru oft allsendis valdalausar,
t.d. þegar ágreiningur kemur upp.
Svokallað framkvæmdaráð mun
vera æðsta vald í málum Kvenna-
listans, en einnig það virðist vera
valdalaust og ábyrgðarlaust. Hver
vísar á aðra í öllum þessum „stofn-
unum“ á meðan stórar og smáar
klíkur fara sínu fram. Þetta er
reynsla mín og fleiri kvenna af
grasrótarlýðræði Kvennalistans,"
segir Helga í greinargerðinni.
Um stefnu samtakanna segist
Helga meðal annars telja fræði-
kenningar, eins og femínisma, var-
hugaverðar sem grundvöllur fyrir
stjórnmálaflokk. „Sérstaklega tel
ég varhugaverðar kenningar, sem
gera ráð fyrir ólíkum eiginleikum
karla og kvenna eða mismunandi
eðli þeirra. Hættulegastar tel ég
þær kenningar sem gera ráð fyrir
yfirburðum annars kynsins yfir
hinu á einhveijum sviðum."
Mega ekki skjóta sér á bak
við heilagan málstað
Hún segir í lokaorðum sínum
meðal annars: „Kvennalistinn má
ekki skjóta sér á bak við „heilag-
an“ málstað og réttlæta með of-
beldi og yfirgangi. Þegar ákveðið
hafði verið að endurtaka prófkjörið
á Reykjanesi var mér ætlað að taka
því þegjandi. Eg átti að sætta mig
við yfirganginn af tryggð við mál-
stað kvenna. Gerði ég það ekki, var
mér tjáð, væri kvennabarátta á
Islandi í hættu! „Heggur sá, er hlífa
skyldi“, varð mér þá að orði og
seint hefði ég trúað, að málflutn-
ingur sem þessi gæti komi frá yfir-
Iýstum talsmönnum kvenfrelsis og
mannréttinda.“
'■m
"‘l Utankjörstaðaskrifstofa
Sjálfstæðisflokksins
Valhöll, Háaleitisbraut 1, 3. hæð
Símar: 588-3322, 588-3323, 588-3327
Skrifstofan gefur upplýsingar um kjörskrá og allt sem lýtur aö
kosningunum 8. apríl. Utankjörfundaratkvæðagreiösla fer fram hjá
sýslumanninum í Reykjavík, Engjateigi 5,
alla daga kl. 10.00-12.00,14.00-18.00 og 20.00-22.00.
Sjálfstæðisfólk!
Hafið samband ef þið verðið ekki heima á kjördag.
LAUGARDAGUR 25. MARZ 1995 9
Pils
Síöur kjóll
Stuttur kjóll
3.500
a.soo
3.500
\P
/H 5
Saumsprettan
Veltusundi 3.
sími 20855
0#9#ð M 9-13
Saumum, breytum
og gerum við fatnað.
Leðurviðgerðir.
Skiptum um rennilása
á úlpum og göllum.
Höfum einnig til sölu
kjóla og pils.
XB Framsóknarflokkurinn
/ ••
Olafur Orn
Haraldsson
er fylgjandi
bættum rekstrar-
skilyrðum smáfyrirtækja
og sjálfstætt starfandi
einstaklinga.
Teg. Ergovar
Stgr. kr. 13.900
Teg. Megata
Stgr. kr. 7.300
Teg. Palermo
Stgr. kr. 14.900
OPIÐ í DAG TIL KL. 16.00
HUSGAGNAVERSLUN
Reykjavíkurvegi 66, Hafnarfirði, sími 654 100
DICO járnrúm
Vönduð, varanleg fermingargjöf
NÝ SENDING - MIKIÐ ÚRVAL - HAGSTÆTT VERÐ
MIKIÐ ÚRVAL AF SKRIFBORÐSSTÓLUM