Morgunblaðið - 25.03.1995, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 25. MARZ 1995 13
FRÉTTIR
Olafur Ragnar Grímsson formaður Alþýðubandalagsins á sljórnmálafundi á Akureyri
Sterkari G-lista
þarf til að koma
stj órninni frá
OLAFUR Ragnar Gríms-
son, formaður Alþýðu-
bandalagsins, sagði á
stjórnmálafundi á Akur-
eyri á fimmtudagskvöld að hann
vissi þess engin dæmi að stjóm-
málaflokkur færi fram með höfuð-
mál sitt í kosníngabaráttu sem
byggt væri á hreinu og kláru rugli
og vísaði þar til Alþýðuflokksins
sem kynnt hefði að fyrsta árið
innan EES hefði skilað hverri fjöl-
skyldu í landinu 44 þúsund króna
tekjuaukningu og að verð búvara
myndi lækka um 30-40% við inn-
göngu í Evrópusambandið.
Ólafur Ragnar sagði Alþýðu-
flokksmenn hafa gleymt að kanna
staðreyndir. Heildarútflutnings-
magn sjávarafurða á Evrópusvæð-
ið hefði ekki aukist á liðnu ári,
en aftur á móti tvöfaldast til Jap-
an.
Byggt á tjöru
Hann gerði einnig að umtalsefni
matarkörfu þá sem Jón Baldvin
Hannibalsson, formaður Alþýðu-
flokksins, hefði kynnt í Bónus á
dögunum með þeim orðum að frá
fyrsta degi aðilar að Evrópusam-
bandinu myndi verð búvara lækka
um 30-40%. Alþýðubandalagsfólk
hefði aflað sér upplýsinga frá opin-
berum aðilum í Svíþjóð um verð
búvara þar í landi og samkvæmt
þeim hefði verð búvara hækkað
um 1% frá því landið gekk í Evr-
ópusambandið. Örlítil lækkun
hefði orðið í Finnlandi, mun minni
en menn væntu. Það málefni sem
Alþýðuflokkurinn setti á oddinn í
kosningabaráttunni væri því byggt
á hreinu og kláru rugli og vissi
Ólafur Ragnar þess engin dæmi
að stjórnmálaflokkur færi fram í
kosningabaráttu með höfuðmál
sitt „byggt á annarri eins tjöru,“
eins og hann orðaði það „og er
búinn að eyða 5-6 milljónum í að
kynna þessa dýrð.“
Formaður Alþýðuflokks-
ins segi af sér
Steingrímur J. Sigfússon efsti
maður á lista Alþýðubandalags og
óháðra á Norðurlandi eystra sagði
það furðu sæta að menn kæmust
upp með að fara með slíkt fleipur.
Jón Baldvin Hannibalsson hefði
orðið ber að blekkingum á síðustu
árum, sem kostað hefðu sambæri-
lega stjórnmálamenn erlendis
starfið. Nefndi hann sem dæmi
ónákvæmni af frásögn dansks
stjómmálamanns um símtal sem
aldrei átti sér stað, hann hefði
misst trúverðugleika og sagt af
sér í kjölfarið. „Það er kominn tími
til að formaður Alþýðuflokksins
sem orðið hefur ber að grófum
blekkingum axli ábyrgð og segi
af sér,“ sagði Steingrímur.
Slæmur viðskilnaður
Formaður Alþýðubandalagsins
dró upp dökka mynd af viðskilnaði
núverandi ríkisstjórnar, skuldir
hins opinbera hefðu tvöfaldast á
kjörtímabilinu, skattbyrði hefði
hækkað umtalsvert og væri hærri
en nokkru sinni hefði þekkst, sjúk-
lingar væru skattlagðir sérstak-
lega og atvinnuleysi væri meira
en þekkst hefði síðustu 30 ár.
Stöðugleikinn væri nánast það
eina sem ríkisstjórnarflokkunum
hefði ekki tekist að spilla á kjör-
tímabilinu, en hann væri árangur
fyrri ríkisstjórnar.
Þjóðin væri þannig á vegi stödd
að hún ætti enga möguleika á að
standast samkeppni ef ekki kæmu
til afgerandi breytingar á sviði
atvinnumála. Stöðnun væri ríkj-
andi og út úr því ástandi væri
brýnt að brjótast. íslendingar sem
vildu bera höfuðið hátt á nýrri öld
yrðu að horfa til fleiri átta en
gömlu nýlenduveldanna í Evrópu
og nefndi Ólafur Ragnar mörg
dæmi þess að fyrirtækjum sem
haslað hefðu sér völl utan Evrópu-
ríkja hefði vegnað vel.
Atvinnuleysi meinsemd
í þjóðfélaginu
„Það er verkefni okkar í þessum
kosningum að knýja á um breyt-
ingar á þeirri stöðnun og því mis-
rétti sem ríkt hefur síðasta kjör-
tímabil," sagði Ólafur Ragnar.
Aukinn styrkur G-listanna gæti
komið ríkisstjóminni frá völdum,
FUNDARMENN á fundi Alþýðubandalagsins. Frummælendur voru Ólafur Ragnar Grímsson, Stein-
grímur Sigfússon, Bryndís Hlöðversdóttir og Árni Steinar Jóhannsson.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
ÓLAFUR Ragnar ræðir við unga kjósendur á Akureyri.
hann réði úrslitum um að ekki
tæki við enn verri íhaldsstjórn eft-
ir kosningar, stjórn Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks.
Bryndís Hlöðversdóttir sem
skipar 2. sætið á lista flokksins í
Reykjavík hafði einnig framsögu
á fundinum og ræddi m.a. um
útflutningsleiðina. Ráðast yrði til
atlögu við atvinnuleysisvandann
sem væri mikil meinsemd í þjóðfé-
laginu og yrði það höfuðverkefni
nýrrar ríkisstjórnar. Mikilvægt
væri að reyna nýjar leiðir í þeim
efnum, fólk vildi nýjar áherslur.
Nefndi hún m.a. vaxtarmöguleika
í grænni ferðaþjónustu. Fjárfesta
þyrfti í hugviti og þekkingu fólks-
ins sem væri grundvöllur allra
framfara, því væri atlaga núver-
andi ríkisstjórnar að menntakerf-
inu beinlínis hættuleg. Þá ætti það
áð vera hlutverk stjórnvalda að
greiða fyrirtækjum leið í leit að
nýjum mörkuðum.
Árni Steinar Jóhannsson, sem
er í 2. sæti á lista Alþýðubanda-
lags og óháðra á Norðurlandi
eystra, sagði í framsöguræðu sinni
að stóriðjutækifæri íslendinga
lægi í fullvinnslu sjávarafurða sem
menn væru nú að byija að fíkra
sig áfram með. Kvaðst hann binda
vonir við að sú umræða sem orðið
hefði um fisksölumál á Akureyri
í vetur hefði opnað augu manna
fýrir þessum möguleikum. Líka
risanna, fisksölufyrirtækjanna, en
á þeim bæjum væri ekki auraleys-
inu fyrir að fara þegar opna ætti
verksmiðjur úti í heimi til úr-
vinnslu afla af íslandsmiðum.
Umræðan hefði leitt það af sér að
þeim væri nú skylt að líta til byggða
landsins hvað þetta varðar.
Hagnýta á stuðning við
menntakerfið
Afskiptaleysi ráðherra, per-
sónulegur metnaður frambjóðenda
Sjálfstæðisflokksins í Reykjanes-
kjördæmi að afgreiða grunnskóla-
frumvarpið og að þættir eins og
breyting á vinnutíma og starfstil-
högun í skólum .hefðu verið uppi
á borði, sagði Ólafur Ragnar
Grímsson að spillt hefðu mjög fyr-
ir lausn deilunnar við kennara, en
formaður Alþýðubandalagsins var
spurður til hvaða ráða flokkurinn
hefði gripið til að leysa kennara-
verkfallið hefði hann verið í ríkis-
stjórn.
Ólafur Ragnar sagði að hagnýta
ætti sér ríkan vilja allra flokka sem
kepptust nú við að lýsa yfir stuðn-
ingi sínum við menntakerfið í land-
inu. Hann hefði á tilfinningunni
að hægt væri að ná fram breiðri
samstöðu um veija auknu fé til
að efla menntakerfið og leysa deil-
una.
Fjölmargar fyrirspurnir bárust
framsögumönnum, m.a. um veru
hersins á Keflavíkurflugvelli, heil-
brigðismál, jafnlaunastefnuskýrsl-
una, skattamál, afnám verndar-
tolla á innfluttum bjór og um
vanda sauðfjárbænda svo eitthvað
sé nefnt.
Fjármálaráðherra á fundi á Hvammstanga
Heildarskattar lækk-
aðir á kjörtímabilinu
Hvammstanga. Morgunblaðið.
HÚSFYLLIR var á fundi sem
Sjálfstæðismenn á Norðurlandi
vestra boðuðu til á Vertshúsinu,
Hvammstanga, sl. miðvikudag.
Aðalframsögumaður var Friðrik
Sophusson ijármálaráðherra, en
einnig fluttu efstu menn fram-
boðslista Sjálfstæðisflokksins í
kjördæminu stuttar framsögur.
Fram kom hjá fjármálaráð-
herra, að í fyrsta sinn um langt
árabil, skilaði ríkisstjórn þeim ár-
angri við verðbólguna, að hún
mældist innan 5% á öllu kjörtíma-
bilinu. Hann sýndi með glærum
árangur ríkisstjórnarinnar í lækk-
un ríkisútgjalda og batnandi
greiðslujöfnunar við útlönd, sem
nú væri jákvæður þriðja árið í
röð. Þýddi þetta, að svigrúm gæf-
ist til greiðslu erlendra skulda.
Skattlagning lækkuð
Ráðherrann sagði að heildar-
skattlagning á íslandi hefði lækk-
að um 1,9 milljarða króna á kjör-
tímabilinu, en hjá fyrri ríkisstjóm
jukust skattar um 11 milljarða
króna. Þáverandi ráðherrar töluðu
nú hæst um skattpíningu og gerðu
kröfu um aukin ríkisútgjöld. Væri
tal þeirra um tafarlausa samninga
við kennarastéttina aðeins ávísun
á mikið launaskrið og stóraukna
verðbólgu.
Ráðherrann sagði að störfum
hjá hinu opinbera hefði fækkað
mjög á þessu kjörtímabili, þótt
atvinnuframboð hafi aukist. Hann
sagði einkavæðingarstefnuna hafa
leitt til sölu ríkisfyrirtækja um 1,8
milljarða, en þar hefðu 2.200 ein-
staklingar eignast hlut í seldum
fyrirtækjum.
Ráðherrann sagði glænýja þjóð-
hagsspá gefa Iandsmönnum vonir
um áframhaldandi bata í íslensku
þjóðarbúi, Sjálfstæðisflokkurinn
hefði leitt þjóðina í gegnum afar
erfítt tímabil og ekki mætti fóma
áunnum árangri í samsteypu
margra vinstriflokka ríkisstjórnar
eftir kosningar.
Ný atvinnutækifæri
Vilhjálmur Egilsson ræddi einn-
ig batann í íslensku þjóðfélagi,
þótt benda mætti á margt sem
betur þyrfti að fara. Sagði hann
1.500 ný atvinnutækifæri hafa
skapast á liðnu ári og útlit fyrir
1.300 á þessu ári. Ein aðalfor-
senda fyrir árangri væri rétt skráð
gengi íslensku krónunnar, það eitt
skipti sköpum fyrir landsbyggðina.
Sjávarútvegsfyrirtæki fengju sum
hver nú tilboð frá bönkum um við-
skipti, í stað bónarvegar fyrrum.
Hjálmar Jónsson sagðist finna
mikla bjartsýni hjá íjölda viðmæl-
enda. í Vestur-Húnavatnssýslu
væm sífellt fleiri að auka tekjur
sínar af ferðamennsku og væri það
að þakka markvissu starfi heima-
manna.
Sigfús Jónsson sagði mjög áríð-
andi að finna lausn á afurðasölu-
málum sauðijárbænda, sífellt
minni framleiðsluréttur setti stór-
an hluta stéttarinnar á hausinn.
Átak verði að hefja í markaðsleit
og aukinni úrvinnslu. Neysluvenj-
ur fólks og óskir kaupenda væru
sífellt að breytast. Fylgja yrði því
eftir.
Margar fyrirspurnir komu,
einkum til fjármálaráðherra, um
skattlagningu á endurvinnslu
brotamálma, plastefna o.fl. Rætt
var um kennaraverkfall, spamað
í heilbrigðiskerfi og launajöfnun.
Leystu fmmmælendur úr fyrir-
spurnum eftir bestu getu.
í fundarlok færðu sjálfstæðis-
menn fjármálaráðherra mynd-
bandsspóluna Bændur og býli, en
hún er tekin á árunum, þegar
Friðrik var ungur drengur hjá
frændfólki á Auðunnarstöðum í
Víðidal.
Ungir sjálfstæðismenn
með útvarp
Ungir _ sjálfstæðismenn starf-
ræktu „Útvarp XD“ á Hvamms-
tanga þennan sama dag. Fengu
þeir m.a. fjölda viðmælenda úr
héraðinu og um kvöldið var út-
varpað frá fundinum.