Morgunblaðið - 25.03.1995, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 25. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Bæjarráð
Ólafsfjarðar
Sóun við
úreldingu
smábáta
BÆJARRÁÐ Ólafsfjarðar harmar
þá gegndarlausu sóun á verðmæt-
um sem felst í því að þegar smá-
bátar eru samþykktir í úreldingu
eru þeir venjulega malaðir mélinu
smærra, áður en úreldarstyrkur-
inn er greiddur út, eins og segir
í ályktun bæjarráðs.
Gætu hentað sem skemmti-
bátar fyrir ferðamenn
Stór hluti þeirra báta sem feng-
ið hafa úreldingarstyrki og hafa
verið eyðilagðir hefðu hentað vel
sem skemmtibátar fyrir ferða-
menn, segir í ályktun bæjarráðs.
Uppbygging þessarar iðngreinar
er kostnaðarsöm og það er hörmu-
legt til þess að vita að einfaldasta
leiðin til að koma bátum varanlega
af skipaskrá verði þannig til þess
að önnur grein nái ekki að nýta
sér þessa kostnaðarlækkun smá-
báta sér til eflingar.
Bæjarráð Ólafsfjarðar skorar á
alþingismenn að íhuga hvort ekki
megi fínna aðrar leiðir sem séu
færar sem komi í veg fyrir hvort
tveggja, að stöðva óhreyrilega sóun
verðmæta og tryggja að bátar sem
fengið hafa úreldingarstyrki komi
ekki inn á skipaskrá á ný.
-----» «------
MESSUR
AKUREYRARPRESTAKALL:
Sunnudagaskóli kl. 11.00 á morg-
un. Guðsþjónusta í Akureyrarkirkju
kl. 14.00 á sunnudag. Michael Jón
Clark syngur einsöng í athöfninni.
Aðalsafnaðarfundur Akureyrar-
sóknar í Safnaðarheimilinu eftir
messu. Guðsþjónusta á dvalar-
heimilinu Hlíð á sunnúdag kl.
16.00. Kór Glerárkirkju syngur.
Organisti Jóhann Baldvinsson.
Prestur sr. Gunnlaugur Garðars-
son. Æskulýðsfélagið heldur fund
í kapellunni á sunnudag kl. 17.00.
Bibíulestur í Safnaðarheimili
mánudagskvöld kl. 20.30.
GLERÁRKIRKJA: Guðsþjónusta
verður á Fjórðungssjúkrahúsinu kl.
10.00 árdegis á sunnudag og í
Hlíð kl. 16.00. Biblíulestur og
bænastund í dag, laugardag, kl.
11.00. Barnasamkoma kl. 11.00 á
morgun. Messa kl. 14.00. Sigur-
björn Einarsson biskup prédikar.
Kvennakór kirkjunnar syngur.
HJÁLPRÆÐISHERINN, Hvanna-
völlum 10: Sunnudagaskóli kl.
13.30 á morgun, Hjálpræðissam-
koma kl. 20.00 sama dag, Miriam
Óskarsdóttir talar. Heimilasam-
band fyrir konur mánudag kl.
16.00. Hjálparflokkur kl. 20.30 á
fimmtudag, flóamarkaður á föstu-
dag frá 10-18 og Ellefu plús kl.
18.00.
HVÍTASUNNUKIRKJAN: Sam-
koma í umsjá ungs fólks í kvöld
kl. 20.30. Vakningarsamkoma á
morgun kl. 15.30, stjórnandi Rúnar
Guðnason. Biblíulestur á miðviku-
dag kl. 20.30, KKSH á föstudag
kl. 17.15, Vakningarsamkoma með
biblíukennaranum og predikaran-
um Absolon Dlamini frá Swazi-
landi, en hann er einnig orku- og
umhverfisráðherra landsins.
KFUM og KFUK í Sunnuhlíð: Há-
tíðarsamkoma á morgun, sunnu-
dag, kl. 16.00. Ræðumaður verður
dr. Sigurbjörn Einarsson biskup.
Björg Þórhallsdóttir syngur ein-
söng og fleira verður á dag-
skránni. Öllum boðið í afmæli-
skaffi á eftir. Þessari samkomu
sem efnt er til í tilefni af 10 ára
vígsluafmæli hússins varð að
fresta vegna ófærðar sl. sunnu-
dag.
AKUREYRI
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Frambjóðendur keppast
við að kaupa inn
STEINGRÍMUR J. Sigfússon sigraði aðra þá fram-
bjóðendur í Norðurlandskjördæmi eystra sem þátt
tóku í innkaupakeppni sem efnt var til vegna
Norðlenskra daga sem Kaupfélag Eyfirðinga
stendur fyrir þessa dagana. Tilgangur daganna
er að minna neytendur á norðlenska framleiðslu.
Frambjóðendur fengu í upphafi keppni minni-
smiða með yfir 20 vörutegundum og höfðu þeir
sjö mínútur til að safna vörunum saman í inn-
kaupakörfuna. Sigurvegari varð sá sem gerði
hagstæðustu innkaupin á sem skemmstum tíma
og vitanlega var sérstakur plús gefinn fyrir þær
norðlensku vörur sem voru í innkaupakörfunni.
Gleðihlátur hinna dalvísku hagsýnu húsmæðra,
Elínar Antonsdóttur, Kvennalista og Svanhildar
Árnadóttur, Sjálfstæðisflokki, raskaði ekki ró sig-
urvegarans meðan hann gæddi sér á risaijómat-
ertu, en formaður Neytendafélags Akureyrar,
Vilhjálmur Ingi Árnason, keppandi Þjóðvaka,
hyggst greinilega fá nánari upplýsingar frá Stein-
grími um galdurinn á bak við hans hagstæðu inn-
kaup.
Stofnun hlutafélags um Glerárgötu 26 vísað til bæjarráðs
Bæjarfulltrúar skoði
kostnað við breytingar
SAMÞYKKT var á fundi bæjar-
stjórnar Akureyrar í vikunni að
vísa stofnun einkahlutafélags
Akureyrarbæjar og Lífeyrissjóðs
Norðurlands um rekstur fasteign-
arinnar Glerárgötu 26 til bæjar-
ráðs með heimild til fuilnaðaraf-
greiðslu.
Fyrir fundi bæjarstjórnar lágu
drög að stofnsamningi og sam-
þykktum félagsins en tilgangur
þess er eign, útleiga og rekstur
fasteignarinnar Glerárgötu 26.
Þangað er fyrirhugað að flytja
starfsemi Félagsmálastofnunar
Akureyrarbæjar, Fræðsluskrif-
stofu Norðurlands eystra og
Svæðisstjórnar um málefni fatl-
aðra á Norðurlandi eystra.
Sigurður J. Sigurðsson, Sjálf-
stæðisflokki, lagði til á fundi
bæjarstjórnar að málinu yrði
frestað þar til fyrir lægi hver
kostnaður yrði við breytingar á
húsnæðinu en áætlun þar að lút-
andi mun verða tilbúin innan
skamms. Hann sagði ekkert knýja
bæinn til að taka ákvörðun í
málinu.
Athuga hver
kostnaðurinn verður
Gísli Bragi Hjartarson sagði
málið lengi hafa verið til umfjöll-
unar og varla skipti ein vika til
eða frá máli varðandi hvenær fé-
lagið yrði stofnað. Væri það ein-
hverra hagur að ræða málið leng-
ur væri sjálfsagt að verða við því.
Björn Jósef Arnviðarson, Sjálf-
stæðisflokki, benti á að það væri
hygginna manna háttur að festa
sig ekki í snörunni, betra væri
að skoða hver kostnaður yrði við
breytingar á húsnæðinu áður en
bærinn færi inn í slíkt hlutafélag,
ef vera kynni að kostnaður yrði
bæjarfulltrúum ekki að skapi.
Sigríður Stefánsdóttir, Alþýðu-
bandalagi, taldi bæjarfulltrúa alla
samstíga í að koma húsnæðinu í
gagnið, en væntanlega vildu
menn ekki koma sér í þá aðstöðu
að geta ekki bakkað út ef í ljós
kæmi að kostnaður yrði meiri en
menn héldu. Hún Iagði því til að
málinu yrði vísað til bæjarráðs til
frekari skoðunar og með heimild
til fullnaðarafgreiðslu.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Foreldrar
þungbúnir
FJÖLMENNUR fundur foreldra
barna í grunnskólum sem hald-
inn var í Dynheimum á Akureyri
í fyrrakvöld lýsti yfir miklum
áhyggjum vegna þess ástands
sem skapast hefði í kjölfar verk-
falls kennara. Skoraði fundurinn
á deiluaðila að ganga nú þegar
til samninga svo þeirri miklu
óvissu sem ríkti um framhald
skólastarfs yrði aflétt. Foreldrar
voru þungbúnir og allt annað en
kátir yfir ástandinu, en það voru
foreldrafélög í grunnskólum
bæjarins og landssamtökin Heim-
ili og skóli sem efndu til fundar-
ins.
Pólskir
tónlistar-
menn a
ferðinni
TVEIR pólskir tónlistarmenn,
Tomasz Tomaszewski fiðlu-
leikari og Jarzy Tosik
Warsawik píanóleikari, koma
fram á tónleikum í Safnaðar-
heimili Akureyrarkirkju á
morgun, sunnudaginn 26.
mars, kl. 20.30.
Tónlistarmennirnir verða á
ferð um landið nú í marslok,
en tónleikarnir á Akureyri eru
þeir fyrstu.
Á efnisskránni eru verk
eftir J.S. Bach, W.A. Mozart,
J. Brahms og H. Wieniawski.
Thomasz er konsertmeist-
ari þýsku óperunnar í Berlín,
kennir við Listaháskólann í
borginni og heldur regulega
námskeið fyrir lengra komna
nemendur. Jerzy hefur starf-
að við Tónlistarskóla Borgar-
fjarðar frá árinu 1992, sem
píanókennari og undirleikari.
Gígja sýnir
í Gallerí
AllraHanda
GÍGJA Baldursdóttir opnar
málverkasýningu í Gallerí
AllraHanda, Grófargili á Ak-
ureyri, í dag, laugardaginn
25. mars kl. 15.00
Gígja er fædd í Reykjavík
1959, stundaði nám við
Myndlistarskólann í Reykja-
vík 1980 -’81, Óslo Maleskole
árið á eftir og síðan í Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands
1982-’86. Hún lauk SFA-
gráðu frá Iowa State Univers-
ity 1992.
Þetta er fimmta einkasýn-
ing Gígju, en hún hefur sýnt
bæði heima og erlendis.
Sýningin er opin á opnun-
artíma Gallerísins og henni
lýkur sunnudaginn 9. apríl
næstkomandi.
Vakningar-
kvöld áhuga-
mannaleik-
félagsins
Júlíu
„VAKNINGARKVÖLD“ ný-
stofnaðs áhugamannaleikfé-
lagsins Júlíu á Akureyri verð-
ur haldið nk. mánudagskvöld
á Bjargi við Bugðusíðu og
hefst kl. 20.00.
Þar fer fram samlestur úr
leikriti og sýnd verður mynd-
bandsupptaka af uppfærslu
áhugamannaleikfélags af
sama leikriti.
Félagið var stofnað nú ný-
lega og er öllum opið. For-
maður Júlíu er Jón Hlöðver
Áskelsson.
Félagsvist
í Hamri
FÉLAGSVIST verður spiluð í
Hamri, félagsheimili Þórs á
morgun, sunnudaginn 26.
mars kl. 20.00. Veglegir vinn-
ingar, allir velkomnir.