Morgunblaðið - 25.03.1995, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Jón Páll Ásgeirsson
í fannfergi
á Flateyri
Flateyri - Hér hefur veturinn
ríkt með miklu fannfergi svo
sem annars staðar á Vestfjörð-
um. Þessa mynd tók einn af
ljósmyndurum blaðsins fyrir
nokkru af biðskyldumerki á
gatnamótum Hafnarstrætis og
Oidugötu og samkvæmt því á
umferð um Oldugötu að víkja
fyrir umferð um Hafnarstræti.
En í slíkri færð þurfa menn
sjáifsagt ekki að hafa áhyggjur
af hver skuii víkja, nema menn
séu þá á snjósleðuin. Á hinni
myndinni sést niður á útidyr
húss, sem er hálffennt í kaf.
Væntanlega hafa skaflarnir
eitthvað minnkað i hlákunni
undanfarið.
LAUGARDAGUR 25. MARZ 1995 15
LANDIÐ
Fjárhúsþak gefur si g
Vaðbrekku, Jökuldal - Eftir kóf-
skakið og síðast byljina nú á dögun-
um fór að bera á að snjór hefði
safnast á þök bygginga í Jökuldals-
hreppi og Hlíðarhreppi. Fjárhúsþak
að Þórisstöðum sem eru beitarhús
frá Vaðbrekku í Hrafnkelsdal gaf
sig undan snjóþunga aðfaranótt
miðvikudags.
Þykkur snjóskafl sem lá á þakinu
sligaði þakið þegar hlákan kom á
dögunum því við það þyngdist
snjórinn svo mikið að þakið sligað-
ist'. Betur fór en á horfðist þar sem
aðeins ein stoð brotnaði en við það
brotnaði dregari og þijár sperrur.
Dæld kom við það í þakið sem þó
rofnaði ekki við það og féð sem í
fjárhúsunum var varð ekki meint
af.
Fólk af nágrannabæjum, Eiríks-
stöðum og Brú, brást skjótt við og
kom til hjálpar og var snjónum
mokað af þakinu með þess hjálp
til að forða frá frekari skemmdum.
Önnur fjárhús að Laugarhúsum
fyrir innan Aðalból sluppu við
skemmdir þó mikill snjór sé á þaki
þeirra en bóndinn þar náði að setja
viðbótarstoðir undir þakið áður en
það gaf sig. Við sláturhúsið á Foss-
völlum safnaðist mikill snjór á
gæruskála og hluta fjárréttar við
sláturhúsið.
Að sögn Jónasar Guðmundsson-
ar, sláturhússtjóra, var mikill snjór
ofan á gæruskálanum en hann var
í kafi og einn metri ofan á mæni
hans og þrír metrar ofan á þak-
Morgunblaðið/Sigurður Aðaisteinsson
Betur fór en á horfðist þegar
mikill snjóskafl myndaðist á
þaki fjárhússins á Þórisstöðum.
Stoð brotnaði en þakið rofnaði
ekki sem var mildi fyrir féð sem
var þar inni en ekki mátti tæp-
ara standa eins og sjá má á
myndinni. Fólk af nágranna-
bæjum Þórisstaða brást skjótt
við og hjálpaði til við mokstur.
skegg. Var fengin traktorsgrafa til
að moka húsið upp en ekki urðu
skemmdir þó miklar en Jónas taldi
það hafa bjargað miklu að auka-
stoðir voru settar undir þakið í
vetur. Þakið seig dálítið undan
snjónum og ekki brotnaði nema
dregari og tvær sperrur.
Þá hafði fréttaritari spurnir af
því að moka þurfti af fjárhúsþaki
á Hvanná í bylnum á dögunum.
Snjó mokað af þökum húsa
Skagaströnd - Björgunarsveit nema með aðstoð stórvirkra vinnu- snjór og í vetur. Bílar hafa ekið á
Slysavarnadeildarinnar hefur verið véla sem mokað hafa rásir meðfram sköflum frá því um miðjan janúar
köjluð út nokkrum sinnum að und- húsunum svo hægt sé að koma nema um aðalgötuna sem reynt
anförnu til að moka snjó af þökum snjó af þökunum ofan í rásirnar. hefur verið að halda opinni nema í
húsa.' Er það samdóma álit manna að allra verstu veðrum.
Hefur það stundum reynst erfitt hér hafi aldrei komið eins mikill
Morgunblaðið/Ólafur Bemódusson
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
Allt á kafi
á Hvammstanga
Hvammstangi - Mikið fannfergi varð á Hvammstanga, sem ann-
ars staðar á Norðurlandi. Á efri myndinni er Guðrún Helga
Bjarnadóttir leikskólasljóri við annan mann að leita að leikskóla
kauptúnsins, en hann stendur efst í kauptúninu. Á neðri mynd-
inni er ung Hvammstangamær, Sunna Mary Valsdóttir, komin
upp á ljósastaur. Alla jafna væri slíkt stórhættulegt, en fallið er
nú ekki mjög hátt, slíkt er fannfergið og þá einnig mjúkt undir.
Skíðasvæði opnað á Þórshöfn
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn - Unnendur skíðaíþróttar-
innar kætast nú hér á Þórshöfn því
togbraut fyrir skíðamenn hefur verið
komið upp í Fossárbrekkunum rétt
við þorpið. Brautin er 230 metra
löng og skiptast starfsmenn Þórs-
hafnarhrepps og liðsmenn Björgun-
arsveitarinnar Hafliða á að standa
vaktir við togbrautina.
Skíðaáhugafólk hefur nýtt sér
aðstöðuna og einkum hafa börn og
unglingar verið þar tíðir gestir því
þau hafa úr nægan tíma nú í kenn-
araverkfallinu. Brautin verður í
gangi alla daga frá kl. 13 til 17,
a.m.k. á meðan verkfall kennara
varir.
Allmörg ár eru síðan skíðatog-
braut var síðast starfrækt hér um
slóðir því aldrei var nægilega mikill
snjór til þess. Börnin njóta sín vel
þegar snjórinn er mikill og kunna
mun betur að meta hann en full-
orðna fólkið.
Morgunblaðið/Valur Karlsson