Morgunblaðið - 25.03.1995, Síða 26
26 LAUGARDAGUR 25. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
PATRICIA Cochran brestur í grát í dómssal í Los Angeles er
hún lagði fram stefnu á hendur ástmanni sínum, Johnnie L.
Cochran, aðalverjanda O.J. Simpson.
Krefst hárra
bóta af veij-
anda Simpsons
Los Angeles. Daily Telegraph.
JOHNNIE Cochran,
aðalveijandi banda-
rísku fótbolta- og
sjónvarpsstjömunnar
0.J. Simpson, sætir
nú lögsókn úr annarri
átt. Fyrrverandi ást-
kona hans hefur
stefnt honum fyrir
rétt og krefst rúmlega
einnar milljónar doll-
ara í bætur fyrir að
hann hætti fram-
færslugreiðslum til
hennar.
Patricia Cochran er
55 ára og segist hafa
helgað honum 30 af
bestu árum sínum. Samband
þeirra hófst árið 1966 er hann var
lögmaður hennar í skilnaðarmáli.
Lögmaðurinn gekk tvisvar upp að
altari og yfirgaf seinni konu sína
til að hefja búskap með hinni nýju
hjákonu sinni. Hún tók sér eftir-
nafn hans 1976 þó þau gengju
aldrei í hjónaband og ól honum
son, Jonathan, sem nú er 21 árs.
Lögmaðurinn stöðvaði greiðslur
til hennar er hún kom fram í við-
talsþætti í sjónvarpi þar sem hún
ræddi um samband þeirra og hafði
eftir honum ófögur
ummæli um aðra lög-
menn í veijendahóp
Simpsons.
Patricia Cochran
krefst 70 milljóna
króna skaðabóta en
segist í raun aðeins
vilja að Johnnie Coc-
hran hefji framfærslu-
greiðslumar á ný, en
þær námu 4.000 doll-
urum á mánuði, auk
þess að leggja henni
til bifreið og standa
straum af ýmsum út-
gjöldum öðrum.
Johnnie Cochran er
ekki fyrsti lögmaðurinn í Simpson-
málinu sem verður fyrir því að
einkalíf hans kemur fyrir almenn-
ings sjónir. Saksóknarinn Marcia
Clark á sömuleiðis í málastappi
við fyrrverandi eiginmann sem
stefndi henni fyrir rétt. í máls-
skjölum fullyrðir hann að starf
hennar að málinu hafi gert það
að verkum að hún vanrækti böm
þeirra tvö. Neitar hann henni um
auknar framfærslubætur og fer
jafnvel fram á að fá yfírráðarétt
yfír bömunum.
Johnnie L. Cochran
ERLENT
Forystugrein breska tímaritsins The Economist
Verðum að íhuga
sambúðina við islam
OFSTÆKISFYLLSTU stuðnings-
menn islams eru að ná athygli
umheimsins með ofbeldi sínu, seg-
ir í leiðara breska tímaritsins The
Economist. Uppreisnarmenn í Als-
ír skera hvem þann á háls sem
dirfíst að andmæla þeim. Skoðana-
bræður þeirra fara hamförum í
Tyrklandi og í Pakistan eru menn
dæmdir til dauða fyrir guðlast.
Ungir menn eru reiðubúnir að
fóma lífinu fyrir Allah ef þeir
geta í leiðinni tekið nokkra ísraela
með sér.
„Þetta er hræðilegt þegar
þróuninni er lýst á þennan hátt
og eðlilegt að fólk um allan heim
sé hrætt", segir Economist. „En
ætli ráðamenn Vesturlanda að
velta fyrir sér samskiptunum við
heim múslima á skynsamlegan
hátt verður að hafa nokkurn hem-
il á óttanum.
Það er rangt að líta svo á að
viðgangur herskárra afla meðal
múslima sé tákn um einsleitt, illt
ferli. Því fer fjarri. Islömsk heittrú-
arstefna (heiti sem er ekki gott
en er samheiti yfír margar stefnur
bókstafstrúar meðal múslima) er
af ýmsu tagi, kraftbirting hennar
er jafn margvísleg og túlkun kór-
ansins. Þegar best lætur er róttæk
islamstrú afl sem bætir, hún lætur
fólki í té siðferðislegan grundvöll
í heimi þar sem svo sannarlega
er þörf á slíku. Slæmu þættimir
varpa, eins og svo oft gerist,
skugga á þá góðu.“
Economist bendir á að Vestur-
veldin geti ekki spornað við hreyf-
ingu öfgafullra múslima og
hryðjuverkum í nafni hennar með
gagnárás, allt sem minni á kross-
ferðir kristinna gegn islam muni
hafa slæm áhrif. Ummæli Willy
Claes, framkvæmdastjóra Atlants-
hafsbandalagsins, þess efnis að
islamskir heittrúarmenn væru að
taka við hlutverki kommúnista og
verða hættulegustu fjendur Vest-
urlanda, hefðu verið ógætileg.
Hann hefði með þessu gefið í skyn
að Vesturveldin gætu aðstoðað
vinveittar ríkisstjómir í heimi
múslima í baráttunni við ofstækið
og haft sigur.
„Þau geta veitt aðstoð en aðeins
í litlum mæli. Tyrknesk stjórnvöld
ættu auðveldara með að beijast
Reuter
Pakistan mótmæla áfrýjunardómi yfir kristnum
mönnum sem dæmdir höfðu verið til dauða fyrir guðlast.
við sína öfgamenn ef þau gætu
sýnt fram á efnahagslegan ávinn-
ing af samstarfínu við Vesturlönd,
t.d. með öflugri tengslum við Evr-
ópusambandið. Ef til vill gætu
Evrópuríkin beitt sér meira í Norð-
ur-Afríku en Vesturveldin ættu
að gæta ýtmstu varkámi áður en
þau fara að taka þátt í leysa þessi
mál með hervaldi."
Economist segir að vissulega
hafí sums staðar tekist að beygja
hreyfínguna með því að myrða
mörg þúsund liðsmenn hennar,
eins og Assad Sýrlandsforseti hafí
gert 1982. Hann hafí hins vegar
ekki brotið þessa andstæðinga sína
endanlega á bak aftur, þeir bíði
þess eins að hann hverfí af sviðinu.
Rétta leiðin fyrir Vesturlönd sé
að styðja þær stjórnir sem reyni
að fá heittrúarmenn til að taka
þátt í opinberu stjómmálalífí
landsins, þótt þessi stefna hafi
einnig hættur í för með sér. í Als-
ír hafí ráðamenn farið á taugum
þegar ljóst var að heittrúarmenn,
er nýttu sér óánægju almennings
með gjörspillta og vanhæfa stjóm,
hlytu að sigra í kosningum. Afleið-
ingin hafí orðið grimmileg borga-
rastyijöld þar sem skæmliðum
vaxi stöðugt ásmegin.
Vafasöm lýðræðisást
Viðurkennt er að lýðræðisást
heittrúarmanna sé ekki treyst-
andi. Vel geti verið að þeir ætli
að styðja við bakið á fijálsu mark-
aðskerfí í löndum sínu. Enginn
skuli hins vegar halda að treysta
megi loforðum þeirra um að vilji
þjóðarinnar verði virtur þótt
írönsku klerkamir hafi að vísu
veitt þegnunum nokkur lýðræðis-
réttindi, segir Economist.
Ritið segir að Vesturveldin eigi
ekki að reyna að einangra á al-
þjóðavettvangi ríki sem heittrúar-
menn múslima stjórni nema þau
leggi undir sig land granna sinna,
styðji við bakið á hryðjuverka-
mönnum erlendis eða misbjóði
herfilega réttindum eigin þegna.
Aðeins skuli beita refsiaðgerðum,
efnahagslegum eða stjómmálaleg-
um, í sérstökum tilvikum og til
þess að ná vel skilgreindu mark-
miði.
„Er hægt að leggja ákveðinn
grundvöll til viðmiðunar? Islömsk
heittrúarstefna er sannarlega ekki.
eins og kommúnisminn, nokkuð
sem beijast skal gegn með eddi
og egg. Hún er ef til vill líkari
sósíalisma, margþætt stefna sem
að sumu leyti fellur alveg að lýð-
ræðinu, er að öðm leyti andvígari
því, í sumum tilvikum alger and-
stæða þess. Sambúðin við islam
krefst þess að við gemm greinar-
mun, ekki síður en þess að við
séum á varðbergi.“
í DAGFRÁKL.10-16
SIEMENS
#9
í verslun okkar ‘•"'að Nóatúni 4.
Siemens
eignast.
fjölda tækja. Sérstök afeláttarkjör
gilda þennan dag. Bjóðum ýmis lítil raftæki
á algjöru kjallaraverði. Heitt á könnunni.
Látið sjá ykkur og njótið dagsins með okkur.
Sérstök kynning á hinum margrómuðu
Siemens sjónvarpstækjum, myndbandstækjum
og hljómtækjasamstæðum.
Góð fermingartilboð í gangi.
é
SMITH &
NORLAND
Nóatúni 4 • Sími 628300