Morgunblaðið - 25.03.1995, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 25. MARZ 1995 27
ERLENT
Hermenn
af götum
Belfast
BRESK yfirvöld tilkynntu í gær
að þau hefðu stöðvað allt eftir-
lit hermanna á götum Belfast-
borgar í fyrsta sinn í 25 ár.
Er þetta gert til þess að fá
Sinn Fein, stjórnmálaarm írska
lýðveldishersins, til að taka
þátt í viðræðum háttsettra
embættismanna um lausn
vandans á N-írlandi.
Genarofi
fundinn
SVISSNESKIR vísindamenn
kveðast hafa fundið erfðarofa
eða aðallykil að arfberanum
sem stýrir því að augu mynd-
ast í dýrum. Til að sanna mál
sitt ræktuðu þeir ávaxtaflugur
með augu á vængjum, fótum
og fálmurum. Nýi arfberinn
nefnist ey og sagði einn vís-
indamannanna það „alveg
undravert. Það er fullkomið
dæmi um yfirstjórnunargenið
sem gangsetur þúsundir ann-
arra gena til að búa til líffæri."
Forsetafrú
meinaður
aðgangur
FULLYRT er að Danielle Mit-
terrand, eiginkonu Frakklands-
forseta, hafi verið meinaður
aðgangur að einni byggingu
Bandaríkjaþings er hún neitaði
að fara í gegnum málmleitar-
hlið sökum þess að hún er með
gangráð.
Verk
McCartneys
frumflutt
PAUL McCartney, fyrrum Bít-
ill, hélt á fimmtudagskvöld tón-
leika þar sem frumflutt var sí-
gilt verk sem hann samdi fyrir
píanó. Verkið kallast „Lauf“
og var góður rómur gerður að
flutningi Rússans Anja
Alexíjev.
frökum leyft
að selja olíu
BRETAR og Bandaríkjamenn
búa sig nú undir að leggja fram
tillögu fyrir öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna sem gerir ráð
fyrir að Irökum verði veitt leyfi
til að selja olíu fyrir sem svarar
2 milljónum dollara á sex mán-
uðum, til að byija með. Er
ætlunin að fá íraka til þess að
kaupa mat og hjálpargögn fyr-
ir söluandvirðið.
Fölsuð gögn
um alnæmis-
sjúkling?
GÖGN sem talin eru sanna það
að Breti sem lést á sjötta ára-
tugnum hafi verið fyrsta fórn-
arlamb alnæmisveirunnar,
kunna að vera fölsuð, að sögn
breska blaðsins Independent.
Telja bandarískir vísindamenn
að líkamsvefur sá sem rannsak-
aður var, sé úr bandarískum
sjúklingi sem lést úr alnæmi
árið 1990 en ekki úr Bretanum.
Reynist þetta rétt grefur það
undan þeim kenningum sem
settar hafa verið fram um upp-
runa sjúkdómsins.
Reuter
Mæður
mótmæla í
Argentínu
MÆÐUR þeirra sem biðu bana eða
hurfu í stríði hersins í Argentínu
gegn vinstrimönnum á áttunda
áratugnum efndu til mótmæla við
skóla hersins í Buenos Aires í
gær. Þær kröfðust þess að herinn
birti lista yfir þá sem voru drepn-
ir. Á myndinni er Hebe de Bonaf-
ini, formaður hreyfingarinnar
Mæður Plaza de Mayo, sem ásamt
þúsundum annarra Argentínu-
manna hafa aldrei fengið að vita
fyrir víst um örlög ættingja sinna.