Morgunblaðið - 25.03.1995, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 25.03.1995, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 25. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Afturhvarf til samyrkjubúa? Sófíu. Reuter. ÞÚSUNDIR manna mótmæltu fyrir- huguðum breytingum á jarðalögum i Búlgaríu sem þeir sögðu marka afturhvarf til ríkisrekins landbúnað- ar. Búist var við að frumvarpið yrði að lögum fyrir helgi. Stuðningsmenn Sambands lýð- ræðisfylkinga (UDF) og Landbúnað- arflokks Þjóðarsambandsins (PU) efndu til mótmælagöngu úr sitthvor- um enda höfuðborgarinnar Sófíu og gengu til miðborgarinnar veifandi fánum og mótmælaborðum. „Þið tókuð frá okkur landið með blóðsúthellingum, við ætlum að ná því aftur með blóði,“ sagði á borð- um. Stjómarflokkurinn, Sósíalista- flokkur Búlgaríu, sem er arftaki gamla kommúnistaflokksins, beitti sér fyrir lagabreytingum sem tak- marka rétt smábænda. Verður þeim bannað að stunda viðskipti við granna sína og verða skyldaðir til að rækta sömu afurð og þeir. Með þessu verða upprætt lög, sem UDF, þáverandi valdhafar, settu 1992. Með þeim vom samyrkjubú aflögð og land, sem kommúnistar lögðu undir ríkið eftir stríð, fengið fyrri eigendum eða erfingjum þeirra í hendur. í hlut þeirra komu um 59% alls ræktarlands í Búlgaríu. „Boðaðar breytingar em and- stæðar vilja markaðsins, eru í and- stöðu við stjórnarskrána og munu hamla efnahagslegri framþróun. Þær em til þess fallnar að innleiða aftur ríkisrekinn landbúnað," sagði Anastasia Moser, leiðtogi PU. „Nýtt járntjald er að falla á Búlgaríu og tilgangurinn með því er að afmá þau fáu lýðræðisskref sem stigin hafa verið á undanfömum ámm,“ sagði Moser. „Orð sem ættu ekki að vera til“ London. Reuter. KARL Bretaprins tel ur að „rétt“ enska, þ.e. eins og hún er töluð af menntuðu fólki í Bretlandi, eigi að vera helsta tunga í samskiptum manna um allan heim en bandaríska útgáfan af henni hafi „mjög spillandi" áhrif. Prinsinn sagði á fundi iijá bresku menningarstofnun- inni British Council, sem reynir að breiða út bresk menningar- áhrif og tungu um allan heim, að ekki væri hægt að ofmeta þann hagnað sem Bretar hefðu af útbreiðslu málsins. Meira en 700 mil(jónir manna um allan heim notuðu ensku sem sitt fyrsta eða annað tungumál. Um 80% af öllum tölvu- upplýsingum í heiminum væru á ensku. Karl sagði að menn yrðu að keppa að því að'hin eina, sanna enska héldi stöðu sinni sem helsta heimstungan langt fram á næstu öld. Notendur enskr- ar tungu í öðrum löndum væru stöðugt að „finna upp ný nafnorð og sagnir og búa til orð sem ættu ekki að vera til.“ Hann sagðist telja að fólk yrði að gæta nokkurrar varkárni í þessum efnum „ann- ars verður þetta ein- tóm ringulreið". Fyrir réttu ári gagnrýndi prinsinn harkalega hnignun móðurmálsins í hei- malandi sínu, sagði meira að segja að oft væri töluð betri enska utan Bret- lands en í landinu sjálfu. Enskukennsla á vegum einka- stofnana er umfangsmikil iðja, að sögn talsmanna British Council er samanlögð velta í slikri kennslu nær 50 milljarðar króna á ári í heiminum. Bretar óttast mjög samkeppni af hálfu Bandaríkja- manna á nýjum mörkuðum í Aust- ur-Asfu og í fyrrverandi kommún- istaríkjum í Evrópu. Karl Bretaprins UNGAR konur í sértrúarsöfnuðinum Aum Shinri Kyo ráfa um á lóð safnaðarins í þorpinu Kamikuishiki. Lögreglumenn gjóta til þeirra augum. Reuter Gassprengingin í Tókýó Efni til sprengjusmíði hjá sértrúarsöfnuði Tókýó. Reuter. Daily Telegraph. EFNI til þess að búa til dínamit fannst í miklu magni í áhlaupi lög- reglu á vörugeymslu leynilega sér- trúarsafnaðarins Aum Shinri Kyo í borginni Kofu í Japan í gær. Áður hafði efni til þess að búa til taugagasið sarin fundist í Tókýó. Sértrúarsöfnuðurinn hefur verið bendlaður við eiturgastilræði á járnbrautarstöðvum í Tókýó sl. mánudag. í vöruhúsinu í Kofu fundust hundruð tunna af saltpét- urssýru og glýseróli, sem eru uppi- stöðusambönd dínamits. Geymslan var leigð á nafn konu sem tilheyrir sértrúarsöfnuðinum. Blaðið Sankei Shimbun sagði frá fundinum en lögreglan vildi ekki staðfesta frétt þess. Auk fundsins þar hefur lögregl- an fundið efnasambönd í tonnatali í þorpinu Kamiku Isshiki, sem er 100 km vestur af Tókýó. Sértrúarsöfnuður- inn sneri vörn í sókn í gær og hélt því fram að tilræðið á járn- brautarstöðunum væri honum allsendis óvið- komandi. Neitaði hann einnig að söfnuðurinn hefði átt eiturefnin til framleiðslu taugag- ass. „Þau voru ætluð til notkunar í friðsam- legum tilgangi, til leir- kerasmíði og fram- leiðslu illgresiseyðis," sagði Shoko Asahara, safnaðarleiðtogi, á myndbandsupptöku sem söfnuðurinn fékk birta í sjón- varpi. Efnafræðingar dróu sannleiks- gildi yfirlýsinga Asahara vægast sagt mjög í efa. Heilaþvottur Um 50 áhangendur sértrúarsafnaðarins, sem fundust illa haldn- ir af næringarskorti og hálf meðvitundar- lausir í kapellu safnað- arins í Tókýó, voru fómarlöm skelfilegrar hreinsunarmeðferðar, að sögn fyrrverandi safnaðarmanns. Tilgangur hreinsun- arinnar var að brjóta niður mótspymu liðs- mannanna svo auð- veldara yrði að heila- þvo þá. Var þeim haldið í pínulitl- um gluggalausum klefum og neyddir til að drekka óheyrilegt magn af vatni. Jafnframt var þeim gefíð raflost reglulega. Shoko Asahara PANTANIR A GRÆNU BOKINNI! Vegna mikillar eftirspurnar er upplag Grænu bókar- innar á þrotum. Þeir sem hafa hug á að tryggja sér eintak eru vinsamlegast beðnir að snúa sér til l kosningaskrifstofa G-listanna og láta skrá pöntun I sína. Bókin verður þá póstsend sé hún ekki til á ■ viðkomandi skrifstofu. ■ Græna bókin er nú komin á Veraldarvefinn - Internet - og þeir sem hafa aðgang að honum m geta kynnt sér hana eftir þeirri leið. Netfangið er http://strengur.is/~abl/ Alþýðubandalagiö og óháðir Vitnaleiðslur yfir Bemard Tapie „Búinn að vera“ Parls. Reuter. FRANSKI kaupsýslu- og stjóm- málamaðurinn Bemard Tapie sagði við vitnaleiðslur fyrir rétti í borginni Valenciennes á miðvikudag að hann væri „búinn að vera“. Tapie er grun- aður um að hafa staðið fyrir því að úrslit í leik liðs hans Olympique Marseille og Valenciennes árið 1993 hafl verið ákveðin fyrirfram. Mar- seille vann leikinn með einu marki gegn engu. Jean-Pierre Bemes, sem til skamms tíma var nánasti aðstoðar- maður Tapie, sakar hann um að hafa mútað leikmönnum Valenciennes. Lögmaður Tapie reyndi að sannfæra dómara um að engar haldbærar sann- anir lægju fyrir í málinu. Til skamms tíma hélt Tapie því fram að hann hefði verið á fundi með sósíalískum samráðherra sínum, Jacques Mellick, þann 17. júní 1993, daginn sem hann er sagður hafa átt fund með þjálfara Valenciennes. SI. laugardag viður- kenndi Mellick að hann hefði logið við fyrri vitnaleiðslur og ekki komið á skrifstofu Tapie þennan dag. Tapie var fullur sjálfstrausts fyrstu daga réttarhaldanna og hróp- aði ókvæðisorð að öðrum vitnum og saksóknara. Við lok réttarhaldanna var hann hins vegar niðurlútur og fámáll. Dómur verður kveðinn upp í málinu þann 15. maí en saksóknar- inn hefur farið fram á sex mánaða fangelsisdóm. Vinnur þú á laugardögum? Landsleikurinn okkar!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.