Morgunblaðið - 25.03.1995, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 25. MARZ 1995 2'.
ERLENT
Ráðmenn í Kína reyna með öllum ráðum að tryggja stöðu sína að Deng Xiaoping gengnum
Peking. Reuter.
Jiang’ Zemin hyllt-
nr á veggspjöldum
NYTT veggspjald með
mynd af Jiang Zemin,
leiðtoga kommúnista-
flokksins, og Deng
Xiaoping, voldugasta
manni landsins, hefur
verið kynnt í Kína.
Spjaldið er eftirprentun
af málverki sem lista-
maður á vegum hersins
í Nanking gerði og ber
það yfirskriftina „Kátur og áhyggjulaus".
Myndin sýnir Jiang brosandi, með hendur
krosslagðar á maganum og hann horfír með
mikilli virðingu á hinn aldna Deng er stend-
ur fyrir framan hann, styður sig við staf
og réttir fram aðra höndina.
Búin hafa verið til 10.000 veggspjöld og
50.000 dagatöl með myndinni og þeim dreift
í verslanir í Peking. „Málverkið sýnir hve
nánir mennirnir tveir eru - arkitektinn
Deng og Jiang sem nú er forystumaður-
inn“, sagði Nie Dawei, ritstjóri útgáfufyrir-
tækis ríkisins í samtali við fréttamann Reut-
ers.
Nafnið á myndinni minnir á ummæli sem
höfð voru eftir Mao Tse Tung, fyrsta leið-
toga kínverska alþýðulýðveldisins, um Hua
Guo Feng sem Mao hafði skipað eftirmann
sinn: „Með þig við stjórnvölinn get ég verið
áhyggjulaus". Hua hvarf þó fljótt í skugg-
ann af Deng eftir andlát Maos 1976.
Deng, sem er níræður og orðinn heilsu-
veill, hefur ávallt forðast að láta efna til
taumlausrar persónudýrkunar á borð við þá
sem Mao, Jósef Stalín og fleiri kommúnista-
leiðtogar víða um heim notuðu til að treysta
sig í sessi.
Öðru hveiju hafa birst fréttir af Deng í
kínverskum blöðum að undanförnu þar sem
mörgum þykir gæta dýrkunar og segja sér-
fræðingar í kínverskum fjölmiðlum að
mærðin vaxi þegar heilsufar leiðtogans sé
talið óvenju lélegt en síðan dragi úr henni
þegar hann verði hressari.
Heimildarmenn segja að Jiang, sem á sér
öfluga keppinauta, sé ekki búinn að tryggja
sér æðstu völd að Deng gengnum en ljóst
sé að hann og stuðningsmenn hans reyni
nú að treysta stöðuna með öllum ráðum.
Lítill halli
hjá Bretum
HALLI á viðskiptum Breta við
útlönd minnkaði verulega í
fyrra og var þá sá minnsti í níu
ár. Var hallinn aðeins 168 millj-
ónir punda en 11,8 milljarðar
punda 1993. í fyrra dró úr at-
vinnuleysi, útflutningur jókst
og verðbólgunni var haldið í
skefjum. Stjórn íhaldsflokksins
vonast til, að þetta bæti stöðu
hennar í skoðanakönnunum
þótt þess sjáist engin merki enn.
Bolshoi-
stjórnandi
endurráðinn
VLADÍMÍR Kokonín, sem sagt
var upp sem stjórnanda Bols-
hoi-ballettsins fyrir viku, var
skipaður aftur í stöðuna í gær.
Búist er við, að það muni kynda
undir nýjum deilum innan bal-
lettsins en Kokonín hefur átt í
útistöðum við ýmsa stjómendur
hans og dansara. Er meðal ann-
ars deilt um hvort taka skuli
upp tímabundna samninga við
dansara í stað æviráðningar.
Hveitibrauðs-
dögum lokið
TVEGGJA daga viðræður
Warrens Christophers, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, og
Andrejs Kozyrevs, utanríksráð-
herra Rússa, lauk í fyrradag í
Genf án nokkurs árangurs. Var
umræðuefnið Tsjetsjníja og
áætlanir um stækkun Atlants-
hafsbandalagsins. „Hveiti-
brauðsdögunum er lokið,“ sagði
Kozyrev eftir fundinn.
Hjúkrunar-
fræðingar
semja
FJÖGURRA vikna verkfalli -
fmnskra hjúkrunarfræðinga
lauk í gær eftir að samkomulag
náðist um 4,5 - 4,7% launa-
hækkun en krafist var 10%
hækkunar. Um 80.000 hjúkr-
unarfræðingar voru í verkfalli.
Dollar
fellur enn
SKAMMVINN hækkun dollars
á gjaldeyrismörkuðum rann út
í sandinn í gær þrátt fyrir að-
gerðir, Japana til að styrkja
dollar. Hafði gengi han farið
niður í 88 jen er gengi hans
styrktist nokkuð. I lok gær-
dagsins hafði gengi hans fallið
að nýju.
Vinsælustu hliómtækjasamstæðurnar
hió okkur til fermingagjafa, með
geislaspiiara, Karaoke-möguleika o.fl
Sjónvarpstæki með breiðtj
Hi-Fi Nicam Stereo, Black C
TELEFUNKEN
myndbandatækninni
uk Pro-Logic Surround
hótalarabúnaðar o.fl.
MTX í bílinn
It sem seaia !
Gos og snokk fyrir ollo og heitt kaffi á könnunni
SKIPHOLTI 19
SÍMI29800
fÍL ÁLLT ÁÖ ZÁ MÁIVAOA
NORDMEINIDE
IMORDMENDE
RAOGREIÐSLUR