Morgunblaðið - 25.03.1995, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 25.03.1995, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MARZ 1995 31 LISTIR BANDARÍSKI sendiherrann, Parker W. Borg, (fyrir miðju) ásamt Gunnari Kvaran forstöðumanni Kjarvalsstaða og Guð- rúnu Jónsdóttur, formanni menningarmálanefndar. Tjarnar- kvartettinn í Logalandi Borgames. Morgunblaðið. TÓNLISTARFÉLAG Borgarfjarðar stendur fyrir tónleikum í Logalandi sunnudaginn 26. mars nk. kl. 16 en þá er von á Tjamarkvartettinum úr Svarfaðardal. Tjamarkvartettinn fæst einkum við A capella-söng, þ.e. söng án hljóðfæra- undirleiks, en einnig eiga þau til að syngja hvert með sínu nefi eða tvö og tvö saman við eigin undirleik. Efnis- skráin er fjölbreytileg: Gamlir evrópsk- ir madrigalar, negrasálmar, íslensk og erlend þjóðlög, jazz og dægurlög. Síðasta haust sendi kvartettinn frá sér sinn fyrsta hljómdisk sem hlotið hefur ágætar viðtökur og í ágúst nk. hefur honum verið boðið að koma fram fyrir íslands hönd á alþjóðlegu leiklist- arhátíðinni í Tamperer í Finnlandi. fyamarkvartettinn skipa þau Rósa Kristín Baldursdóttir, sópran, sem jafnframt er stjómandi, Kristjana Am- grímsdóttir, alt, Hjörleifur Hjartarson, tenór, og Kristján Hjartarson, bassi. Síðasta verkefni Tónlistarfélags Borgarfjarðar á þessu starfsári verða svo einleikstónleikar Ingibjargar Þor- steinsdóttur í Borgameskirkju á sum- ardaginn fyrsta. Bandarísk bókagjöf FIMMTUDAGINN 23. mars af- henti sendiherra Bandaríkj- anna, hr. Parker W. Borg, bókasafni Listasafns Reykja- víkur á Kjarvalsstöðum, um- fangsmikla bókagjöf. Hér er um að ræða bækur um banda- ríska list, annars vegar fræðibækur sem snerta lista- sögu og listfræði og hins vegar ríkulega myndskreyttar lista- verkabækur. Þetta er mikil við- bót við hið ört vaxandi bóka- safn Listasafn Reykjavíkur. Bókasafn Listasafns Reykja- víkur var sett á laggirnar árið 1993. Uppisthðan í safninu eru einkabókasöfn Kjarvals, Ás- mundar Sveinssonar og Errós, en safninu hafa líka borist veg- legar gjafir svo sem stór bóka- gjöf frá franska ríkinu. Aðal- áherslan hefur verið lögð á myndlist 20. aldar en einnig eru í safninu bækur um ýmis tíma- bil listasögunnar, uppsláttarrit um listamenn, efni og aðferðir og ýmist fræðileg efni tengd myndlist. Nú þegar eru rúmlega 2.600 skráð eintök í bókasafninu fyr- ir utan einkaafn Jóhannesar Kjarvals sem eru um 550 ein- tök. Safnið er stöðugt að stækka og þróast, og er þessi höfðinglega bókagjöf frá Bandaríska sendiráðinu mikil- vægur þáttur í þeirri þróun. Bókasafnið er opið í samráði við bókavörð alla virka daga frákl. 8.15-16.15. Undir forystu Alþýðuflokksins er nú verið að ráðast í eitt stærsta nýsköpunarverkefni sem stjórnvöld hafa staðið að hér á landi. Iðnþróunarsjóður veitir á þessu ári styrki og fjármagn til nýsköpunar og áhættuverkefna. A næstu 15 mánuðum verður varið 230 milljónum króna til nýsköpunarverkefna og útflutnings á tækni- og verkþekkingu. Nýsköpun í atvinnulífinu snýst þó ekki aðeins um nýjungar í fram- leiðsluvörum og framleiðsluaðferðum, eða nýjungar í þjónustugreinum. Hún snýst einnig um markaðssetningu og útflutning. Efla þarf stuðnings- kerfi ríkisins við útflutning og markaðsöflun og samhæfa krafta þeirra fyrirtækja sem stefna að útflutningi. Aðstoð við smáfyrirtæki herur hins vegar verið stóraukin á síðustu árum. Minna má á styrki til þróunar smáiðnaðar í dreifbýli, styrki til vöruþróunar og markaðsstarfs og styrki til minni fyrirtækja til markaðsstarfs á evrópska efnahagssvæðinu. Þess er að vænta að Iðnþróunarsjóður geti í auknum mæli stuðlað að þróun smáiðnaðar. Miklar breytingar urðu einnig til batnaðar á samkeppnisstöðu lítilla fyrirtækja í kjölfar EES-samningsins þegar um er að ræða viðskipti milli íslands og EES-landa.* Markaðurinn er nú opinn og starfsskilyrði fyrirtækja svipuð. Evrópskar samkeppnisreglur tryggja rétt lítilla fyrirtækja gagnvart stórum markaðsráðandi fyrirtækjum og stjórnvöldum sem vilja vernda eigin heimamarkað. *Alger umskipi urðu í íslenskum iðnaði á síðasta ári. Heildarvelta i iðnaði jókst um 7,2% og útflutningsverðmœti um 27%. íslemkur iðnaður er því kominn í stórsókn. Nær 70% af útflutningi þjóðarinnar fer til fanda Evrópusambandsins. ínm í/iww. Alþýðuflokkurinn - Jafnaðarmannaflokkur Islands Hægt er aö nálgast eítirtalin upplýsingablöð hjá kosningamiðstöövum Alþýðuflokksins um land allt: Evrópumál, Sjávarútvegsstefna ESB, Atvinnumál, Iðnaðarmál, Matarverð og lífskjörin, Sjávarútvegsmál, Jöfnun kosningaréttar, Fjölskyldumál, Húsnæðismál, Menntamál, Landbúnaðarmál, Umbótastefna jafnaðarmanna, Heilbrigðismál, Umhverfismál, Ungir jafnaðarmenn, Jafnaðarstefnan - mannúðarstefha okkar tíma. Upplýsingasímar: 552 92 44 og 552 80 17. Fleiri sögukvöld í Kaffileik- húsinu FYRSTA sögukvöldið var haldið í Kaffileikhúsinu í Hlað- varpanum miðvikudaginn 15. mars. Það kvöld var aðsóknar- met slegið í Kaffileikhúsinu, 135 gestir komu til þess að hlýða á sagnakonur og sagna- menn kvöldsins. Næsta sögukvöld verður miðvikudaginn 29. mars. Sögukvöld er samvinnuverk- efni Rithöfundasambands ís- lands og Kaffileikhússins. Til- gangur þeirra er að fá fólk til að koma saman og segja og hlýða á góðar sögur og rækta um leið sagnahefðina. Sagnamenn og -kona ann- ars sögukvöldsins verða: Erpur Þórólfur Eyvindarson fulltrúi ungu kynslóðarinnar, Eyvindur Erlendsson leikari, skáld og kvikmyndagerðar- maður, Hlín Agnarsdóttir leik- stjóri, Jón Böðvarsson ritstjóri og sagnaþulur, Sveinn Krist- insson Strandamaður, veiði- maður og kennari, Tryggvi G. Hansen torfhleðslumaður og hofsmiður. Kvikmynd eftir leikriti Kaj Munks í NORRÆNA húsinu sunnu- daginn 26. mars kl.16 verður sýnd danska kvikmyndin „Ordet“, myndin er gerð eftir leikriti Kaj Munk og leikstjóri er Carl Th. Dreyer. Lars Brink prófessor við Háskóla íslands mun flytja inngang að mynd- inni. Árið 1924, þegar Kaj Munk sendi verk sitt „En Idealist“ til Det kgl. Teater, æskudrama sem fjallar um Herodes hinn mikla, áttu eftir að líða fjögur ár þar til verkið að lokum var sett upp á fjalir leikhússins. Biðtíminn var erfíður og Hans Brix, listrænn ráðunautur leik- hússins, sem strax hafði tekið eftir hæfileikum Munks, ráð- lagði honum árið 1925 að skrifa leikrit um bændur á meðan hann biði átekta, því að „við höfum engin stykki sem taka bændur alvarlega“. Þetta gerði Munk, og á sex dögum árið 1925 varð „Ordet" til. • • Pétur Orn sýnir í Gerðu- bergi PÉTUR Örn Friðriksson opnar myndlistarsýningu í Menning- armiðstöðinni Gerðubergi sunnudaginn 26. mars. kl. 15. Þar hefur verið sett upp „tilraunastofa" þar sem gerðar verða athuganir á ljósi og ýmsum eiginleikum þess fram- kvæmdar af „tölvuvæddum átjándualdar vísindamanni“. Pétur Örn stundaði nám í myndlistarskólanum á Akur- eyri 1985-1986, Myndlista- og handíðaskóla íslands 1987-1991 og AKI i Enschede í Hollandi 1991-1994. Þetta er fyrsta einkasýning Péturs Arnar hérlendis en hann hefur áður tekið þátt í ýmsum sýningum. Sýningin er opin frá kl. 13-19 mánudaga-fimmtu- daga og frá kl. 13-16 föstu- daga-sunnudaga.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.