Morgunblaðið - 25.03.1995, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 25. MARZ 1995 41
AÐSENDAR GREINAR
Hrunadansinn
Hátt lætur í Hruna
hirðar þangað bruna;
svo skal dansinn duna,
að drengir megi það muna.
Enn er hún Una,
og enn er hún Una.
Það er kominn tími til, og væri
tímanna tákn, að Þjóðleikhúsið færi
aftur upp Dansinn í Hruna, eftir þá
Indriða Einarsson og Sigvalda Kald-
alóns, sem byggt er á næstum 150
ára þjóðsögu Jóns Árnasonar. Lítið
mun þá félaga hafa grunað, að þetta
verk þeirra reyndist forspá um hrun
þess dans um gullkálfinn, sem nefnt
hefir verið því á yfirborðinu saklausa
felunafni kvótakerfið.
Það hefir fyrir löngu komið í ljós,
að kvótakerfið er aðeins aðferð nokk-
urra útgerða við að leggja undir sig
allar veiðar við ísland, þannig að þær
einar geti búið að þeim til frambúð-
ar. Þetta sannast af því, að þessar
útgerðir hafa þegar lagt undir sig
mestan hluta kvótans og beita nú
hverskonar bolabrögðum til að bægja
öðrum frá. Verst er þó að þessar
útgerðir beita ekki aðeins óarðbær-
um veiðiaðferðum, heldur eyðileggja
veiðarfæri skipanna allt umhverfi
físks til frambúðar, drepa smáfisk
af algjöru blygðunarleysi og valda
Kvótakerfið er glæpur
felldir niður innan 200 mílna línunn-
ar, en línu- og færaveiðar séu fijáls-
ar öllum landsmönnum, enda óheim-
ilt samkvæmt stjórnarskrá að leggja
höft á atvinnufrelsi manna.
Með þessu móti er úthafsveiðiskip-
unum beitt á úthafið og afli þeirra
verður þá hreinn viðauki við veiðarn-
ar innan lögsögunnar og þar með
stækkun þjóðarkökunnar sem myndi
gefa meira til skipta. Þau skip sem
ekki er hægt að nota á úthafinu verð-
ur að gera út með öðrum veiðarfærum
en botnvörpu, td. djúphafslínu.
Það er fyrirsjáanlegt að þorskinum
verður útrýmt á flestum miðum á
næsta kjörtímabili, ef haldið verður
áfram að útiýmingartækni úthafs-
togaranna á grunnmið-
unum. Vel má vera að
Vestfjarðamiðin séu
þegar ofurseld hætt-
unni. Örvæntingin sem
fylgir í slóð fiskleysis-
ins, lýsir sér t.d. í því
að Bolvíkingar hafa
ákveðið að lengja annan
togara þeirra og breyta
honum í frystitogara.
Þetta eykur ekki atvinn-
una í landi, en hvað
skal gera, þegar höfð-
ingjamir við Tryggva-
götu, Skúlagötu og
„þriðja stéttin" við
Kirkjustræti hafa ákveðið að svelta
þá til hlýðni? Þetta er aðein byijunin
á hrunadansinum. Dúsan til Vestfírð-
inga nam 310 milljónum sem stolið
var úr sameiginlegum sjóðum lands-
manna, gegn því að haldið verði
áfram að grípa upp með
botnvörpum allan fisk
sem gengúr á mið
þeirra, eða rúmlega 6
milljarða árlega, eða
5%. Þetta nefnist á er-
lendum málum
genocide, eða útrým-
ingarherferð. Sama
mun yfir aðrar veiði-
stöðvar ganga á næsta
kjörtímabili, ef áfram
verður haldið í undanl-
átsseminni við LÍÚ.
Þetta er hinn mikli
hrunadans sem skipu-
lagður hefir verið af
LÍÚ. í kjölfar hans fylgir hungur
allra Islendinga og landflótti.
Tveir ljósir punktar hafa sést í
svartnættinu. Vestmanneyingar
bjuggu sér til sitt eigið friðunar-
svæði upp við landsteina hjá sér sjálf-
um og hafa náð miklum árangri.
Þetta geta Vestfirðingar ekki gert,
en þar er veitt upp í fjörur þegar
tækifæri gefst. Hinn punkturinn er
fall Tvíhöfðans í prófkosningunum í
NL-vestra, sem sannar að menn eiga
þess nú kost að fella kvótakarlana í
öllum kjördæmum landsins. Kvóta-
kerfið er glæpur aldarinnar, en það
verður ekki af numið nema með sam-
þykki fulltrúaþings þjóðarinnar, Al-
þingis. Því verða allir þjóðhollir menn
að snúast gegn hveijum þeim fram-
bjóðanda sem ekki lýsir yfír stuðningi
sínum við afnám kvótakerfisins.
Framtíð þjóðarinnar veltur á því að
takist að hnekkja þessari aðför að
íslenzku samfélagi. Ekkert annað mál
er svo mikilvægt sem þetta og næstu
kosningar munu snúast um þetta eitt.
Höfundur er fyrrverandi
forsijóri OIís.
ÖnundurÁsgeirsson
• •
aldarinnar, að mati On-
undar Ásgeirssonar,
en það verður ekki af-
numið nema á Alþingi.
slíkri mengun með dauðum fiski og
úrgangi á sjávarbotninn að þorskur
er hættur að hrygna við strendur
landsins, jafnvel þótt öll skilyrði í
sjónum séu hin ákjósanlegustu. Þess-
ir ýldubingir eu á öllum helztu hrygn-
ingar- og gönguslóðum þorsksins,
því að þar halda þessi gjöreyðingar-
tæki á alla fiskistofna sig helzt og
þar menga þau mest. Islendingar
eiga sér enga framtíð, ef þetta verð-
ur ekki stoppað.
Yfirvofandi geigvænleg
hætta vegna fiskleysis
í ágætri grein fiskifræðingsins
Sigfúsar A. Schopka í Mbl. 16.12.
’94, gerir hann ítarlega grein fyrir
þessum vanda og segir: „Hefir klak
verið undir meðallagi nú um 8 ára
skeið, og þrátt fyrir góðæri í hafínu
í ár, brá svo við að enn einn árgang-
ur, sem ekki nær meðallagi bætist í
stofninn." Hann vitnar til skýrslu
Hafró, fjölrit nr. 37, frá sl. vori: „Það
er því afar þýðingarmikið að nú verði
stigin frekari skref í þá veru að draga
úr sókninni í þorskinn." Hann bætir
við: „Eina raunhæfa leiðin til að ná
virkri stjóm á veiðunum er að höggva
að rótum vandans, sem er fólginn i
allt of mörgum skipum miðað við
takmarkaða afrakstrargetu fiski-
stofna. Þetta verðum við að horfast
í augu við og taka á og það fyrr en
síðar.“ Hafí hann og Hafró þökk fyr-
ir. Þetta eru hreinar línur.
Framtíð íslendinga
- breytt fiskistefna
Lausnin er einföld, en hún felst
ekki í að fækka skipum. Hún felst í
að breyta til um veiðiaðferðir og
beita fiskiflotanum á skynsamlegri
hátt en nú er gert. Hættið öllum
togveiðum innan amk. 50 helzt 200
mílna. Hættið veiðum með dragnót
allsstaðar. Önnur og umhverfisvæn
veiðarfæri munu koma í þeirra stað.
Hættið rækjuveiðum innan 50 mílna,
nema á mjög afmörkuðum svæðum.
Hættið netaveiðum á hrygningar-
tíma þorsksins. Takið allan afla
veiddan í landhelginni í land til full-
vinnslu. Samningar eða aðild að
Evrópusambandinu koma að engu
gagni, nema aflinn komi á land til
vinnslu. Hættið allri mengun mið-
anna. Allur úrgangur frá skipum sé
settur í gegn um tætara, og gerður
að æti fyrir fisk. Skip, sem ekki eru
búin tæturum fyrir úrgang eða skila
ekki úrgangi í land, séu svipt veiði-
leyfi fyrirvaralaust. Allir kvótar séu
Davíð
Oddsson
cyjum
Davíð Oddsson forsætisráðherra cfnir til almenns
stjórnmálafundar í Vestmannaeyjum.
Vestmannaeyjar
Sunnudaginn 26. mars í Akoges v/Hilmisgötu kl. 20.30
Fundarstjóri verður Árni johnsen.
Að lokinni ræðu mun Davíð sitja fyrir svörum ásamt
þremur efstu mönnum á lista Sjálfstæðisflokksins í
kjördæminu.
Allir velkomnir
gg§SM0u . í
WtBBSSSk
í I
Þorsteinn Pálsson
Arnijohnscn
BETRA
ÍSLAND
Dríia Hjartardóttir