Morgunblaðið - 25.03.1995, Page 42
42 LAUGARDAGUR 25. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Eru hvalveiðar =
náttúruvernd?
Eg er EKKI Grænfriðungur!
ÉG VAR staddur á fyrirlestri
Fiskifélags íslands nú nýverið þar
sem frummælandi var Magnús Guð-
mundsson kvikmyndagerðarmaður.
Magnús var á fundi þessum að
skýra frá nýjustu herferð Grænfrið-
unga (Greenpeace) á hendur fisk-
veiðiþjóðum, þ.e. að banna þurfi
tiltekin veiðarfæri til að koma í veg
fyrir það að sjómennimir (vondu
kallamir) veiði síðasta þorskinn eða
í raun síðasta fiskinn í sjónum.
Það er margbúið að sýna fram á
í sjónvarpi, og svo var einnig gert
á þessum fundi með Magnúsi, að
Greenpeace-samtökin hika ekki við
að falsa staðreyndir til að koma
áróðri sínum á framfæri til almenn-
ings í þeim aðaltilgangi að græða
peninga til að geta haldið áfram
að græða meiri peninga.
Allt okkar samfélag virðist snú-
ast um peninga og helst til að hagn-
ast sem mest á einfaldan hátt!
Skiptir í mörgum tilfellum engu
hvort heiðarlega er staðið að gróða-
leitinni eða ekki.
Magnús Guðmundsson hefur að
mínu mati staðið sig vel við að elta
uppi falsanir og lygi Grænfriðunga
en fyrr má nú rota en dauðrota.
Magnús þarf að sjálfsögðu áð hafa
laun fyrir sína vinnu eins og aðrir.
Mín tilfinning er að Magnús hafi,
eins og stofnandi Greenpeace forð-
um, farið af stað í baráttu sinni af
hugsjón einni saman.
Spurningin sem ég
velti nú fyrir mér er
sú hvort Magnús sé
eftir margra ára starf
orðinn líkur umrædd-
um samtökum, þ.e.
að megintilgangur-
inn sé orðinn sá að
græða á málefninu.
Til þess freistast
hann til að þyrla upp
eins miklu ryki og
mögulegt er og reyn-
ir þar með að fá fleiri
aðila til að styrkja
þessa einkaherferð
sína á hendur mjög
svo mistækum frið-
unarsamtökum.
Ég tek fram að ég hef enga þekk-
ingu á því hvað Magnús hefur lagt
út í fjárhagslega í upphafi baráttu
sinnar og vel getur verið að hann
eigi fyllilega rétt á því að fá þá
umbun sem hann nú hlýtur.
Ég tel hins vegar fullvíst að
Magnús þurfi að gæta að því að
líkjast ekki þessum svokölluðu
„grænu hryðjuverkasamtökum“ í
gífurlegum fullyrðingum sínum.
Magnús hélt því t.d. fram á fundi
Fiskifélagsins að það væri algjört
kjaftæði að regnskógamir væru í
hættu og að í raun skiptu þeir litlu
sem engu máli varðandi lífríkið á
jörðinni. Jafnafdráttarlaus fullyrð-
ing kom fram varðandi kjarnorku-
ver í Skotlandi eða Eng-
landi sem og kjarn-
orkukafbát er liggur
sokkinn í Barentshafi.
Hann telur að það skipti
engu máli hvort geisla-
virkt úraníum fari í sjó-
inn eða ekki því slíkt
muni engu breyta í lífríki
jarðar.
Þetta finnst mér álíka
sennileg fræði og að
hella mjólk í skál og
halda því fram að engu
máli skipti hve miklu
hellt sé, aldrei muni
flæða yfir barmana.
Ég tek fram að ég hef
enga sérþekkingu til að meta hvort
Magnús fer með rétt mál í þessum
tilfellum eða ekki, aðeins heilbrigða
skynsemi.
Ég tel aftur á móti að almenning-
ur trúi fjölmörgum stofnunum og
vísindamönnum sem halda því fram
að við jarðarbúar séum að vinna
skemmdarverk á ýmsum hlutum
náttúrunnar, þ.á m. með gengdar-
lausri eyðingu regnskóganna og
með losun úrgangsefna í jörð og
haf. Samkvæmt fullyrðingum
Magnúsar Guðmundssonar er engin
ástæða til að óttast þetta, því þessi
áróður er, samkvæmt hans skilningi
aðeins sprottinn af gróðahugmynd-
um Grænfriðunga. Það sama á lík-
lega við um eyðingu ósonlagsins?
Ásbjörn Björgvinsson
25. mars kl. 13.00-16.00 Skálanum Hótel Sögu
Kl. 13.00 Eiga Reykvíkingar þingmenn?
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri
Kl. 13.20 Skyldur höfuðborgar og réttindi
Svavar Gestsson alþingismaður Æft&r
Kl. 13.40 Skóli og dagvistun í Reykjavík isfi&m
Árni Þór Sigurðsson borgarfulltrúi
Málefni fatlaðra í Reykjavík
Helgi Seljan félagsmálafulltrúi
Öryrkjabandalagsins
Húsnæðisvandi í Reykjavík
Leifur Guðjónsson starfsmaður Dagsbrúnar
Kl. 14.10 Almenningssamgöngur í Reykjavík
Lilja Ólafsdóttir forstjóri SVR
Kl. 14.25 Atvinnuleysi í Reykjavík
Sigrún Harðardóttir og Óttar Ólafsson
atvinnuráðgjafar Vinnumiðlunar Reykjavíkur
Kl. 14.45 Reykjavík borg athafna og atvinnu
eða borg vaxandi atvinnuleysis og fátæktar
Ögmundur Jónasson formaður BSRB
Bryndís Hlöðversdóttir lögfræðingur ASÍ
Kl. 15.15 Kaffihlé
Kl. 15.30 Fyrirspumir og almennar umræður
Kl. 16.00 Reykjavík-betriborg
Guðrún Helgadóttir alþingismáður
Kl. 16.15 Ráðstefnuslit
Fundarstjóri
Guðrún Ágústsdóttir
Alþýðubandalagið og óhóðir
Ég hef því áhuga á að fá fram
álit náttúruvísindamanna eða eðlis-
fræðinga á þessum fullyrðingum
Magnúsar, þ.e. þeirra sérfræðinga
sem ekki eru tengdir alþjóðlegum
umhverfíssamtökum því að þeim
trúir maður síður eftir að Magnús
hefur lagt spilin á borðið.
Hérlendis sem og erlendis hafa
veiðar úr einstökum fiskistofnum
minnkað. Aðalástæðan fyrir minni
afla er ekki sú að sjómenn vilji
ekki lengur draga fisk úr sjó heldur
sú að þeir hafa á undanförnum
árum veitt of mikinn fisk. Eða er
það eingöngu vegna þess að selir
og hvalir éta of mikið af físki eins
og sumir segja ?
Fyrr á öldinni voru selveiðar og
hvalveiðar stundaðar við strendur
fiestra landa á norðlægum slóðum
og nóg var af físki í sjónúm. Síðan
íslendingar eiga að
koma fram sem nátt-
úruverndarsinnar á
heimsvísu, að mati
Asbjörns Björgvins-
sonar, og hafa að kjör-
orðum: Vemdun og
veiðar fara saman.
hófu umhverfissamtök baráttu fyrir
friðun hvala og sela áður en, að
þeirra mati, síðasta hvalnum yrði
útiýmt.
Ég hef ekki heyrt sérfræðinga
Hafrannsóknarstofnunar mótmæla
því að sumar hvalategundir hafí
vissulega verið í hættu, s.s. Græn-
landssléttbakurinn og fleiri hæg-
vaxta hvalategundir.
Bágt ástand hvalastofnanna varð
vegna ofveiði þessara tegunda. Síld-
in kom og fór og er að koma aft-
ur. Af hveiju hvarf síldin ? Var það
vegna þess að sela- og hvalafjöldi
var allt of mikill á þessum tíma,
svo haldið sé nú áfram í sama dúr?
Nei, vegna þess að um þetta leyti
voru sumir hvalastofnar í lágmarki
vegna ofveiði en aðrir í ágætu ásig-
komulagi.
Að mínu mati átti selur og hval-
ur ekki stærstu sökina á því að síld-
in hvarf heldur við sjálfir. Á þessum
tíma, eins og undanfarna áratugi,
var íslenski fískveiðiflotinn að end-
urnýjast, stærri og afkastameiri
fiskiskip komu til sögunnar og við
veiddum meira en nokkru sinni og
græddum í samræmi við það.
Það má leiða líkur að því að á
undanförnum öldum eða árþúsund-
um hafí ávallt verið mikið af fiski
og sjávarspendýrum í heimshöfun-
um því veiðar voru auðvitað mjög
takmarkaðar af frumstæðri tækni
þeirra tíma.
Þegar alvöruveiðar á fiski og
hval hefjast er nóg af hvoru tveggja
í sjónum. Merkilegt! Sjávarspendýr-
in höfðu ekki étið allan fiskinn þrátt
fyrir að hafa haft til þess árþúsund-
ir. En á einni öld er svo komið að
fískur er takmarkaður og sumar
tegundir sjávarspendýra í útrým-
iCITIZEN
Fermingartilbqp
Falleg, vatnsvarin stálúr með
gyllingu.
Urin eru sériega þunn og fara
þess vegna vel á hendi
Stelpuúr
Verð áður kr. 15.200,-
Tilboðsverð
kr. 10.600,-
Strákaúr
Verð áður kr. 15.900,-
Tilboðsverð
kr. 10.900,-
úra- og skartgripaverslunj
Axel Eiríksson úrsmiður
ISAnRDI.AOALSTRÆ-I'l 22-SlMI 94-3023
ALFABAKKA 16.MJ0DD-SIMI 870706
Póstsendum fritt
ingarhættu. Hverjum er þetta að
kenna? Ég bara spyr!
íslendingar! Við verðum að vera
sjálfum okkur samkvæmir þegar
við gagnrýnum þá aðila sem stuðla
vilja að umhverfísvernd, þ.e. þá sem
nota réttmætar aðferðir og rök við
gagnrýni sína á veiðar í úthöfunum
eða eyðingu regnskóganna og óson-
lagsins.
Það er í okkar eigin þágu að
vernda náttúruauðlindir hafsins.
Við höfum stærstra hagsmuna að
gæta þegar horft er til viðgangs
fiskistofna og sjávarspendýra og
við verðum að vera menn til að
axla þá ábyrgð er fylgir því að við-
halda lífríki sjávar.
Það þýðir lítið að ofveiða fisk eða
önnur sjávardýr og kenna svo bara
einhverjum öðrum um og bölva
þessum „hryðjuverkasamtökum"
sem ekkert gera annað en að gagn-
rýna okkur og rífa niður ímynd sem
okkur hefur mistekist að viðhalda,
þ.e. þá skyldu að vernda og nýta
sjávarfang skynsamlega eins og
flest okkar vilja.
Fiskifræðingar og tillögur þeirra
eru hundsuð og sagt að nóg sé af
fiski í sjónum, það sé bara árans
selurinn og hvalurinn sem éti allt
frá okkur. Ég mótmæli því ekki að
hrefnu og sel þarf að veiða og það
í nokkuð stórum stíl. Bæði selur
og hrefna virðast stefna í offjölgun
miðað við núverandi ástand físki-
stofna nema gripið verði inn í og
þessum dýrum fækkað verulega.
Að þessu þarf að stefna, en með
ýtrustu gætni.
Ég tek fram að ég er leikmaður
í þessum efnum en hef haft gaman
af því að kynna mér þessi mál. Ég
vil forðast öfgar í báðar áttir, jafnt
ofverndun lífríkis sem ofveiði úr líf-
ríkinu. En margs er að gæta. Þá
ber sérstaklega að varast málflutn-
ing á borð við þann sem Magnús
Guðmundsson hefur í frammi.
Magnús fullyrðir að það sé aðeins
eitt af áróðursbrögðum Grænfrið-
unga að bera út sögusagnir um að
fiski sé fleygt frá skipum okkar af
því að ekki henti að koma með
hann að landi. Svona málflutningur
er ekki til þess fallinn að auka til-
trú á vinnubrögðum Magnúsar eða
annarra sem hafa uppi samskonar
fullyrðingar.
Ég tel að við íslendingar höfum
ekki staðið okkur sem skyldi við
veiðar og verndun og að í einstaka
málum höfum við klúðrað málunum
þannig að andstaða við afstöðu
okkar hefur jafnvel leitt til öfga-
fullra atburða, sbr. árásir á mark-
aði með íslenskan fisk.
Þegar allt kemur til alls verðum
við að taka til í okkar garði áður
en við skjótum á nágrannann fyrir
að laga ekki til hjá sér. Með því
að laga til hjá okkur sjálfum eigum
við að geta orðið góði gæinn í huga
almennings í stórborgum erlendis.
Fremur auðvelt er að höfða til fólks
þar eins og sést á árangri Grænfrið-
unga.
Islendingar eiga að koma fram
sem náttúruverndarsinnar á heims-
vísu og leggja á það áherslu að
skynsamleg nýting og umgengni
við allt lífríki á jörðinni sé heiminum
fyrir bestu. Fjármagni og mannafla
verður að vetja til þessa verkefnis
svo áhrifin komi fram sem fyrst.
Við eigum að taka forystu í þessum
efnum og vera öðrum þjóðum til
fyrirmyndar.
Ég geri það að tillögu minni, að
á meðan hvalveiðar liggja niðri verði
allir hval- og hrefnuveiðibátar okkar
sendir til Evrópu og Bandaríkjanna
í áróðursherferð fyrir málstaðnum:
Verndun og veiðar fara saman.
Ég er viss um að það vekti meiri
athygli en mótmæli öfgasamtaka á
borð við Grænfriðunga.
Einnig á tvímælalaust að dreifa
upplýsingabæklingum um núver-
andi og tilvonandi verndunarsjón-
armið okkar íslendinga til allra er-
lendra ferðamanna sem hingað
koma til þess að þeir fari héðan
upplýstir um mikilvægi náttúru-
verndar.
Höfundur er áhugamnður um
skynsamlega nýtingv sjávarfangs
og náttúruvernd.