Morgunblaðið - 02.04.1995, Side 56

Morgunblaðið - 02.04.1995, Side 56
varða víðtæk fjármálaþjónusta Landsbanki íslands Bankl allra landsmanna MORGUNBLAÐIÐ, KRJNGLAN I, 103 RKYKJA VÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUSCENTRUM.1S / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85 SUNNUDAGUR 2. APRÍL1995 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK ÆR B AR tveimur lambhrút- um á bænum Nýhóli á Hóls- fjöllum 4. janúar síðastliðinn. Ragnar Guðmundsson, bóndi á Nýhóli, sem heldur hér á öðru lambinu í fjárhús- dyrunum á Nýhóli, minnist þess að ær hafi einu sinni * borið á svipuðum árstíma á Nýhóli en það var á nýársnótt fyrir mörgum árum. Býr með sauðfé oggeitur Ragnar var einn þeirra bænda í Fjallahreppi sem þurftu að skera niður fé Nýárslamb bóndans á Nýhóli vegna friðunar Hólsfjalla fyr- ir nokkrum árum. Hann býr einn á Nýhóli og er nú með 21 á, hrúta, sauði ogtvær geitur. Hann segist hleypa út í stutta stund á hverjum degi til að viðra ærnar en segir að veturinn hafi verið frekar leiðinlegur á Fjöllum. Tölu- vert mikill og harðbarinn siyór sé yfir öllu, þótt snjó- þyngslin séu ekkert meiri en oft. Ragnar Guðmundsson seg- ist fara ferða sinna á snjó- sleða og auk þess færi Bragi Benediktsson á Grímsstöðum honum reglulega ýmsar vistir og póst. „Ég hef það bara gott. Það er ágætis verk fyrir mig að hugsa um bústofninn,“ segir Ragnar. Morgunblaðið/Júlíus SLÖKKVISTARFI á Þórs- götu lauk á skammri stundu í fyrrinótt en talsvert fjón varð af völdum sóts og reyks. Morgunblaðið/RAX Ólafsvík Banaslys í höfninni BANASLYS varð í höfninni í Ólafsvík í fyrrinótt þegar 48 ára gamall maður féll milli tveggja báta og drukknaði. Að sögn lögreglu varð slysið þegar menn voru að fara um borð í bátinn Hugin frá Vestmannaeyj- um sem lá utan á tveimur öðrum bátum í höfninni. Suðvestan bylur með hálku og krapi Versta veður var í Ólafsvík, suðvestan bylur með hálku og krapi. Maðurinn féll milli bátanna og er talið að hann hafi fengið höfuðhögg í fallinu og misst með- vitund. Skipveiji fór í flotgalla og í höfnina til að reyna að bjarga manninum. Náðist að koma honum um borð eftir hann hafði verið um það bil tíu mínútur í sjónum. Lífgunartilraunir sem hófust strax og náðist til mannsins báru ekki árangur og var hann úrskurð- aður látinn. Ekki er unnt að greina frá nafni i„ns látna að svo stöddu. Starfshópur um samkeppnisstöðu íslands 2010 Þriðjungiir starf- semi án samkeppni NÆRRI þriðjungur atvinnustarfsemi á íslandi er rekinn án þess að um neina samkeppni sé að ræða. Eitt brýnasta verkefni til þess að bæta samkeppnisstöðu Islendinga felst í því að auka samkeppni í atvinnulífinu. Þetta kemur meðal annars fram í drögum að samantekt starfshóps um samkeppnisstöðu íslands árið 2010, sem skila mun fjármálaráðherra skýrslu með ítarlegum tillögum. Sig- urður B. Stefánsson; forstöðumaður Verðbréfamarkaðar Islandsbanka, er formaður starfshópsins. í drögunum kemur fram að eigi íslendingar að ná því markmiði að hagvöxtur hér á landi næstu fimmtán árin verði svipaður og í öðrum ríkjum OECD, eða um 2,6% á ári að jafn- aði, sé þörf á áherzlubreytingum og hliðstæðum aðferðum og samkeppn- isþjóðir íslendinga hafa beitt. íslend- ingar þurfi einkum að nýta sér styrk- leika á þremur sviðum, sem séu sjáv- arútvegur, nýting orku í fallvötnum og jarðvarma og ferðaþjónusta. Starfshópurinn nefnir hins vegar Efla þarf menntun og samkeppni og gæta hófsemi í fjármálum þrjú svið, þar sem úrbóta sé einkum þörf. í fyrsta lagi verði að bæta al- menna menntun og tækniþekkingu. íslendingar hafi þar dregizt aftur úr. Nefnt er að efla þurfi tæknimenntun á lægri skólastigum til að rétta hlut íslands gagnvart samkeppnisþjóðum og bæta úr takmarkaðri málakunn- áttu, sem sé íslendingum fjötur um fót. í öðru lagi telur hópurinn að tryggja þurfi fijálsa og eðlilega sam- keppni hvar sem er í atvinnulífinu. Vísað er til þess að OECD telji að ein undirstaða samkeppnishæfni sé að framleiðsla í efnahagslífinu fari fram við skilyrði frjálsrar og eðlilegr- ar samkeppni. Hins vegar telur hóp- urinn að nærri þriðjungur atvinnu- starfsemi sé rekinn án samkeppni. „Sem dæmi um samkeppnisleysi Eldur við Þórsgötu TALSVERT tjón varð í eldsvoða í mannlausri kjallaraíbúð við Þórs- götu í fyrrinótt. Slökkviliði var tilkynnt um eldinn klukkan tæplega fjögur og logaði út um glugga þegar að var komið. Reykkafarar gengu úr skugga um að íbúðin væri mannlaus og slökktu eldinn á skammri stundu. Umtalsvert tjón varð á íbúð og innanstokksmunum af völdum reyks og sóts. Eldsupptök eru til rannsóknar hjá RLR en ekki var talið útilokað að um íkveikju væri að ræða. og mikla opinbera íhlutun má nefna framleiðslu og dreifíngu á raforku, umfangsmikla starfsemi ríkisins á fjármálamarkaði (ríkisbanka, opin- bera fjárfestingalánasjóði, íbúða- lánakerfið, hluta af starfsemi Seðla- banka), hluta af samgöngu- og fjar- skiptakerfi þjóðarinnar (hafnir og flugvelli, Póst og shna, Ríkisútvarp- ið) og loks má nefna sjúkrahús, heil- brigðisgæzlu, skóla og flestar aðrar menntastofnanir," segir í drögunum. Aðhald og skipulag Loks telur starfshópurinn að að- halds og hófsemi verði að gæta í fjár- málum og skipuleggja þau til lengri tíma en áður. Þetta eigi jafnt við um heimili, fyrirtæki, ríkissjóð og sveit- arfélög. „Betra aðhald og festa í fjár- málum er því grundvöllurinn fyrir því að tekjuaukning íslendinga næstu tíu til fimmtán árin verði að jafnaði hliðstæð því sem gerist hjá samkeppnisþjóðum okkar,“ segir hópurinn. Fjöldi bíður eft- ir flug’i MIKIL röskun hefur orðið á flug- samgöngum innanlands undan- farna tvo sólarhringa vegna ill- viðris og ókyrrðar í lofti. Allt innanlandsflug Flugleiða lá niðri á föstudag og fyrir hádegi í gær hafði ekki tekist að fljúga á neinn áfangastað félagsins innanlands en ein vél fór til Færeyja í gær- morgun. Mikið hvassviðri var í Reykja- vík í gærmorgun og áttu starfs- menn Flugleiða í erfíðleikum með að ná flugvélum út úr flugskýl- um. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá Flugleiðum bíður talsvert á annað þúsund farþega eftir að komast á milli áfanga- staða. Hjá íslandsflugi fór ein vél til Egilsstaða í gærmorgun og farn- ar voru tvær ferðir á Bíldudal á föstudag. Flug til annarra stað lá niðri og biðu um 150 manns flugi hjá Islandsflugi. Vandræði á Hellisheiði Tveir árekstrar urðu í Kömb- unum um svipað leyti á hádegi í gær og skemmdust alls fímm bílar í þeim. Þeir sem í bílunum voru urðu hins vegar ekki fyrir teljandi meiðslum. Að sögn lögreglu á Selfossi gekk á með dimmum éljum og sá vart út úr augum á köflum. Dimm él gengu einnig yfir Reykjavík og nágrenni í gær en lögreglu var ekki kunnugt um að vandræði hefðu hlotist af fyr- ir umferð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.