Morgunblaðið - 07.04.1995, Síða 52
52 FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ATVIN N U A UGL YSINGAR
Loðnubræðsla á Norðausturlandi
óskar að ráða
vaktformann
til framtíðarstarfa.
Mikil og trygg vinna.
Þeir, sem áhuga hafa á starfinu, sendi um-
sóknir með upplýsingum, m.a. um fyrri störf,
til afgreiðslu Mbl. í umslagi, merktu:
„Vaktformaður", fyrir 12. apríl nk.
Hjúkrunarfræðingur
sem er að missa starfsánægju vegna
sparnaðaraðgerða, sem valda lélegri hjúkrun
við Borgarspítala, óskar eftir starfi þar sem
vinnuveitandi metur gæðavinnu og ábyrgðar-
tilfinningu. 15 ára starfsreynsla.
Tilboð, merkt: „Hjúkrun ’95“, sendist til
afgreiðslu Mbl.
Öllum bréfum svarað fyrir 1. maí.
Stuðningsfulltrúar
óskast til starfa í sérdeild fyrir einhverfa
nemendur í Digranesskóla í Kópavogi.
Upplýsingar veitir Sigrún Hjartardóttir, um-
sjónarkennari, í síma 40269 eða 18881.
Fræðslustjóri Reykjanesumdæmis.
Aðalbókari
Staða aðalbókara við embætti sýslumanns-
ins á Patreksfirði er laus til umsóknar.
Æskilegt er að störf geti hafist sem fyrst.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum
opinberra starfsmanna.
Umsóknir sendist undirrituðum fyrir
11. apríl nk.
Sýslumaðurinn á Patreksfirði,
Þóróifur Halldórsson.
Frá Fræðsluskrifstofu
Austurlandsumdæmis
Laus staða við grunnskóla í Austurlandsum-
dæmi. Umsóknarfrestur er til 3. maí nk.
Staða aðstoðar-
skólastjóra
við Hafnarskóla, Hornafjarðarbæ.
Upplýsingar veitir viðkomandi skólastjóri
og ber að skila umsóknum til hans.
Fræðslustjóri Austuriandsumdæmis.
WtÆKWÞAUGL YSINGAR
Utanríkisráðuneytið
auglýsir eftir fyrirtækjum, sem
áhuga hafa á að taka þátt í útboði
á vegum Mannvirkjasjóðs
Atlantshafsbandalagsins
í samræmi við ákvörðun ríkisstjórnarinnarfrá
í febrúar 1992 verða verk, sem unnin eru á
kostnað Mannvirkjasjóðs Atlantshafsbanda-
lagsins hér á landi, boðin út frá og með
1. apríl í ár.
Fyrir dyrum stendur fyrsta reynsluverkefnið
af þessu tagi.
Um er að ræða viðhald á ratsjárstöðinni á
Stokksnesi.
í samræmi við útboðsskilmála, sem unnir
hafa verið í samstarfi íslenskra og banda-
rískra stjórnvalda, er öllum fyrirtækjum, sem
áhuga hafa á þátttöku í útboðinu, boðið að
senda inn gögn vegna forvals verktaka.
Viðhaldsverkefnið
Verkið sem um ræðirfelst í steypuviðgerðum
utanhúss, endurnýjun á þaki og skyldum
atriðum. Innanhúss yrði um að ræða end-
urnýjun á lögnum, loftræstingu og hreinlæt-
isaðstöðu, auk endurnýjunar á raflögnum.
Þá felst í verkinu tengingar á nauðsynlegum
búnaði, viðgerð á eldvarnakefi og uppsetning
á nýju öryggiskerfi. Kostnaðaráætlun við
verkið er á bilinu kr. 6.500.000 til 16.250.000.
Kröfur til verktaka
Fyrirtæki, sem áhuga hafa á þátttöku í útboð-
inu, þurfa að skila viljayfirlýsingu þar um til
varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins
fyrir 14. apríl nk.
í viljayfirlýsingunni skal greina nafn og kenni-
tölu fyrirtækis og helstu upplýsingar um fyrir-
tækið. Þá þarf að vera unnt að staðreyna
að fyrirtækið uppfylli eftirtalin skilyrði:
- Að vera starfandi í þeirri starfsgrein, sem
efni samningsins hljóðar á um.
- Að hafa nauðsynlega fjárhagslega burði
til að sinna því verki eða þeirri þjónustu,
sem samningurinn felur í sér.
- Að geta uppfyllt samninginn á réttum
efndatíma, að teknu tilliti til annarra fyrir-
liggjandi verkefna.
- Að geta sýnt fram á nauðsynleg gæði
vinnu sinnar, vöru eða þjónustu í fyrri
verkum af sama toga eða við sölu sam-
bærilegrar vöru.
- Sé þekkt að áreiðanleika og heiðarlegum
- viðskiptaháttum.
- Að búa yfir nauðsynlegu innra skipulagi,
reynslu og tæknilegri hæfni til að efna
samninginn eða geta komið slíku á eða
aflað þess.
- Að búa yfir nauðsynlegri framleiðslu-
tækni, mannvirkjum, tækjum og annarri
aðstöðu eða geta orðið sér úti um slíkt.
- Að hafa nauðsynlegt starfslið til að efna
samninginn eða geta sýnt fram á að það
geti orðið sér úti um hæft starfslið.
Jurtalitun
Kl. 14.00 laugardaginn 8. aprfl flytur Áslaug
Sverrisdóttir, vefnaðarkennari, erindi í Norr-
æna húsinu á vegum Heimilisiðnaðarskól-
ans. Fyrirlesturinn nefnist íslensk jurtalitun
á fyrri hluta tuttugustu aldar, efni og aðferð-
ir. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Aðalfundur Gigtarfélags
íslands 1995
Aðalfundur Gigtarfélags íslands verður hald-
inn 8. aprfl (ath. misritun í Gigtinni)1995
kl. 14.00 á Grand Hótel (áður Holiday Inn),
Sigtúni 38, salur: Hvammur.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa mun Sólveig
Eiríksdóttir, kennari, flytja erindi um matar-
æði og gigt.
Gigtarfélag íslands
SVFR
Stangaveiðifélag Reykjavíkur
Opið hús í fundarsal félagsins í Austurveri
kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Veiðileiðsögn um Sogið
2. Happdrætti o.fl.
Félagar fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Góða skemmtun.
Nefndin.
SVFH SVFR SVFH SVFH SVFR SVFH
Til leigu í Hamraborg
Höfum verið beðnir að útvega leigjanda að
3ja herbergja íbúð á 2. hæð í Hamraborg,
Kópavogi. Bílskýli.
Skrifleg svör sendist afgreiðslu Mbl., merkt:
„Leiga - 15788“, fyrir 12. aprfl. ,
Til sölu
glæsileg íbúð (penthouse)
í Berjarima. 90 fm, flísar og gegnheilt park-
et, sérhannaðar innréttingar, geymsla og
bílskýli í kjallara. Húsbréf 3,6 millj. V. 8,9 millj.
Upplýsingar í símum 74511 og 674496.
TÍÍsöÍu
• Veitingaskáli á Brjánslæk (Flakkarinn).
Eignin er 111 fm timburhús, byggt árið
1989.
• Tilboðsfrestur er til 28. apríl 1995.
• Tilboðum sé skilað á skrifstofu Byggða-
stofnunar á ísafirði eða í Reykjavík í lok-
uðu umslagi, merktu: Flakkarinn.
Upplýsingar um eignina veita skrifstofa
Byggðastofnunar á Isafirði, sími 94-4633,
og Páll Jónsson, Byggðastofnun, Engjateigi
3,105 Reykjavík, sími 560 5400, Græn lína
800 6600.
Grófarsmári 18 og 20,
Kópavogi
Til sölu tvö parhús með bílskúr, á mjög glæsi-
legum útsýnisstað, hvort um 200 fm.
Húsin verða afhent að utan tilbúin til máln-
ingar, að innan fokheld með grófjafnaðri lóð.
Húsin verða til sýnis í dag, föstudag, frá
kl. 15.00-18.00 og á morgun, laugardag, frá
kl. 11.00-14.00.
Fasteignasalan Eignaborg,
Hamraborg 12, Kópavogi,
sími 641500, fax 42030.