Morgunblaðið - 11.04.1995, Síða 4

Morgunblaðið - 11.04.1995, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1995 ALÞINGISKOSNINGAR MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Þorkell ÞINGMENN Þjóðvaka, Svanfríður Inga Jónasdóttir, Jóhanna Sigurðardóttir, Ásta R. Jóhannesdóttir og Ágúst Einarsson. Þingflokkur Þjóðvaka Svanfríður formaður SVANFRÍÐUR Inga Jónas- dóttir var kjörinn þingflokks- formaður Þjóðvaka á fyrsta þingflokksfundi flokksins í gær. Agúst Einarsson var kjörinn varaformaður þingflokksins og Ásta Ragnheiður Jóhannes- dóttir ritari. Á þingflokksfundinum var einnig ákveðið að varaþing- menn Þjóðvaka, þau Mörður Árnason, Guðrún Ámadóttir, Lilja Á. Guðmundsdóttir og Vilþjálmur Ingi Ámason, hefðu setu- og tillögurétt á þingflokksfundum. Nýr þingflokkur Framsóknar NÝR þingflokkur Fram- sóknarflokksins kom saman í gær til fyrsta fundar eftir kosningarnar, en fjölgað hefur um tvö í þingflokknum frá því fyrir kosningar. Ekki var gengið frá kjöri þingflokks- formanns í gær, en Siv Frið- leifsdóttur, efsta manni á lista flokksins í Reykjanesi færður blómvöndur í tilefni úrslit- anna. Fundað hjá kvennalista K VENN ALISTAKONUR komu saman í miðstöð flokks- ins á Laugavegi 17 síðdegis í gær til að ræða stöðu mála eftir kosningarnar, en Kvenna- listinn missti tvö þingsæti. Þijár þingkonur flokksins, Kristín Ástgeirsdóttir, Kristín Halldórsdóttir og Guðný Guð- björnsdóttir, vom á fundinum, en ekki var haldinn eiginlegur þingflokksfundur í gær. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Morgunblaðið/Þorkeli Breytt valdahlutföll í ríkisstjórninni verði framhald á ríkisstj órnarsamstarfinu Alþýðuflokkur legg- ur áherslu á að halda utanríkisráðuneyti Gengið er út frá því að ráðherrum Alþýðu- flokks fækki og ráð- herrum Sjálfstæðis- flokks fjölgi, haldi stjómarsamstarfíð áfram. Olafur Þ. Stephensen og Omar Friðriksson segja Al- þýðuflokk munu leggja áherslu á að halda utan- ríkisráðuneytinu. T.KIST Sjálfstæðisflokknum og Alþýðuflokknum að ná samkomulagi um áfram- haldandi stjómarsamstarf er næsta víst að breytingar munu eiga sér stað á valdahlutföllum milli flokk- anna í ríkisstjóminni og ráðhermm Alþýðuflokksins verði fækkað, enda hefur Alþýðuflokkur tapað mun meira fylgi í kosningunum en Sjálf- stæðisflokkur. Jafnframt er senni- legt að sjálfstæðismenn geri breyt- ingar á ráðherraliði sínu og hefur Davíð Oddsson forsætisráðherra þegar gefið yfirlýsingar í þá átt. Bæði sjálfstæðismenn og kratar ganga út frá því sem vísu að Sjálf- stæðisflokkurinn fengi sex ráðherra og Alþýðuflokkurinn fjóra í nýrri stjóm. Samkvæmt heimildum innan Alþýðuflokksins gætu alþýðu- flokksmenn jafnvel sætt sig við að Sjálfstæðisflokkurinn fengi emb- ætti forseta Alþingis og for- mennsku í nokkrum lykilnefndum þingsins. Alþýðuflokkurinn mun hins vegar halda f ast við að ráðherr- ar hans verði ekki færri en fjórir. Morgunblaðið hefur jafnframt heimildir fyrir því, að til tals hafi komið innan Alþýðuflokks að ein- hver eða einhveijir ráðherrar flokksins segðu af sér þingmennsku og varamenn þeirra tækju sæti þeirra á Alþingi, enda yrðu ella ekki nema þrír almennir þingmenn eftir í þingflokknum, sem ættu erf- itt með að sinna nefndastörfum og öðmm þingstörfum, sem lentu á þeirra herðum. Sjávarútvegsráðuneyti fyrir utanríkisráðuneyti? Það er síður á hreinu hvaða ráðu- neyti ætti að ganga yfir til Sjálf- stæðisflokksins. Rætt hefur verið um að Alþýðuflokkurinn léti til dæmis heilbrigðis- og trygginga- ráðuneytið frá sér, en ennþá er óljóst hvaða kröfur sjálfstæðismenn gera í þessum efnum. Til greina gæti komið að flokkamir víxluðu einhveijum ráðuneytum. í þingflokki Sjálfstæðisflokksins eru uppi efasemdir hjá einstökum þingmönnum, til dæmis hjá Birni Bjamasyni, formanni utanríkis- málanefndar Alþingis, um að rétt sé að láta Alþýðuflokkinn halda utanríkisráðuneytinu. Það verður hins vegar að teljast ólíklegt að kratar ljái máls á því að láta utan- ríkisráðuneytið af hendi, þar sem Jón Baldvin Hannibalsson myndi telja það veikja persónulega stöðu sína. Reyndar hefur það verið nefnt að Alþýðuflokkurinn fengi ef til vill sjávarútvegsráðuneytið í staðinn, en sterk öfl myndu rísa upp gegn slíku innan Sjálfstæðisflokksins. Ráðherraefni Alþýðuflokksins eru varla önnur en núverandi ráð- herrar, þau Jón Baldvin Hannibals- son utanríkisráðherra, Sighvatur Björgvinsson, heilbrigðis- og trygg- ingaráðherra og iðnaðar- og við- skiptaráðherra, Óssur Skarphéðins- son umhverfisráðherra og Rannveig Guðmundsdóttir _ félagsmálaráð- herra. Guðmundur Árni Stefánsson, varaformaður flokksins, er ekki sagður eiga möguleika á ráðherra- stól en viðmælendur innan Alþýðu- flokks segja hugsanlegt að hann yrði þingflokksformaður ef Alþýðu- flokkurinn verður áfram í ríkis- stjórn. Fleiri kallaðir en útvaldir Af hálfu Sjálfstæðisflokksins munu núverandi ráðherrar allir sækjast áfram eftir ráðherrastól. Auk Davíðs Oddssonar forsætisráð- herra má telja Friðrik Sophusson fjármálaráðherra, traustan í sessi og sama má segja um Halldór Blön- dal, landbúnaðar- og samgönguráð- herra, enda hefur hann styrkt stöðu sína í kjördæmi sínu og á lands- byggðinni yfirleitt. Staða Ólafs G. Einarssonar menntamálaráðherra er hins vegar talin veikust af ráðherrunum. Flokksfélagar hans telja hann ekki hafa verið atkvæðamikinn mennta- málaráðherra og margar útstrikanir nafns Ólafs af framboðslistanum í Reykjaneskjördæmi þykja heldur ekki styrkja stöðu hans. Jafnframt er rætt um að staða Þorsteins Pálssonar sjávarútvegs- og dóms- og kirkjumálaráðherra hafi veikst frá því eftir síðustu kosn- ingar, er hann gat nánast valið sér ráðherraembætti sjálfur. Til þess að tryggja frið innan flokksins eftir harðan formannsslag gat Davíð Oddsson þá ekki gengið hart gegn Þorsteini. Að þessu sinni er rætt um að ekki sé hægt að ganga fram- hjá Þorsteini sem ráðherraefni, en ólíklegt þykir að Davíð samþykki að hann haldi sjávarútvegsráðu- neytinu. Áframhaldandi vera Þor- steins þar myndi tæplega greiða fyrir áframhaldandi stjórnarsam- starfi við Alþýðuflokkinn. Ef ráðherrum og ráðuneytum Sjálfstæðisflokksins fjölgar er rúm fyrir nýja menn í ráðherrastólum. Björn Bjarnason, þriðji þingmaður Reykvíkinga, getur talist næsta öruggur um ráðherrastól, enda leggur Davíð Oddsson mikla áherslu á að fá hann inn í ríkisstjómina. Þá þykir Sturla Böðvarsson, efsti maður á lista Sjálfstæðismanna á Vesturlandi koma til greina í ráð- herrastól. Verði Ólafur G. Einarsson ekki á ráðherralista Davíðs Oddssonar, er líklegt að Reyknesingar geri kröfu um að fá ráðherra. Árni M. Mathiesen er annar maður á listan- um á Reykjanesi, en líklegt er að uppi verði háværar kröfur um að kona verði í ráðherraliði Sjálfstæð- isflokksins, og þá kemur Sign'ður Anna Þórðardóttir, sem skipar þriðja sætið í Reykjaneskjördæmi, sterklega til greina. Hins vegar telja margir að eigi kona að vera í ráð- herraembætti á vegum flokksins, sé erfitt að ganga framhjá Sólveigu Pétursdóttur, sem hefur mesta reynslu af konum í þingflokknum. Konur í Sjálfstæðisfiokknum telja ótækt annað en að kona verði í ráðherraembætti ef flokkurinn fær sex ráðherra og benda á að flokkur- inn þurfi að bæta ímynd sína meðal kvenna. Það gæti því orðið flókið verkefni að koma saman ráðherralista Sjálf- stæðisflokksins, sem allir gætu sætt sig við. Ekki er sjálfgefið að núverandi ráðherrar, að forsætis- ráðherranum undanskildum, héldu núverandi embættum sínum og ein- hveijar tilfærslur eru meira en lík- legar, þótt enn sé of snemmt að giska á hverjar þær gætu orðið. Félagsmálaráðuneyti til Kvennalista? Sá möguleiki hefur verið ræddur að Kvennalistinn yrði þriðja hjól undir vagni með núverandi stjórnar- flokkum. Erfitt er að segja til um hvaða áhrif slíkt gæti haft á ráð- herraskipan. Rætt hefur verið um að kvennalistakonur gætu fengið félagsmálaráðuneytið í slíkri stjórn, enda eru jafnréttismál á þess könnu. Sjálfar nefna þær fleiri ráðuneyti, sem þær hefðu áhuga á, til dæmis menntamála-, heil- brigðis- og dómsmálaráðuneytin. Kvennalistinn fengi tæplega meira en einn ráðherra í stjórninni og kæmi annað hvort Kristín Halldórs- dóttir eða Kristín Ástgeirsdóttir, sem báðar hafa umtalsverða þmg- reynslu, til greina í ráðherraemb- ætti. Stjórnarþátttaka Kvennalista er þó enn ekki annað en vangaveltur og fyrst mun reyna á það hvort Alþýðuflokkur og Sjálfstæðisflokk- ur ná saman á ný.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.