Morgunblaðið - 11.04.1995, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 11.04.1995, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Vaxandi útflutningur á súkkulaði frá sælgætisgerðinni Mónu Risastórt páska- egg vekur athygli í Svíþjóð TÆPLEGA mannhæðarhátt páskaegg frá sælgætisgerðinni Mónu hefur vakið mikla athygli þar sem það er til sýnis í stór- markaði í Karlstad í Svíþjóð, en þangað hefur Móna nú í fyrsta sinn flutt út, páskaegg til reynslu. Páskaeggið er úr hreinu súkkulaði og vegur hátt í 90 kíló, og mun það vera stærsta páskaegg úr hreinu súkkulaði sem framleitt hefur verið hér á landi. Þetta er ekki fyrsti útflutn- ingur Mónu til Svíþjóðar því hann hófst fyrir nokkrum árum og í fyrra flutti fyrirtækið út þangað 12-13 tonn af súkkulaði í neytendaumbúðum, en það er þó aðeins brot af framleiðslu Mónu. Það sem af er þessu ári hefur á fjórða tonn verið flutt út til Svíþjóðar, en áður hefur Móna flutt út sælgæti til Dan- merkur, Noregs, Færeyja og Grænlands. Gautaborg og Stokkhólmur í sigtinu Að sögn Sigurðar E. Marinós- sonar, framkvæmdasljóra Mónu, hefur súkkulaðið frá fyr- irtækinu aðallega verið til sölu í Mið-Svíþjóð, en ætlunin er að hefja dreifingu á framleiðslunni í Gautaborg og Stokkhólmi. Hann sagði að nú hefði í fyrsta sinn verið gerð tilraun til að selja þangað páskaegg, en þar væri við nokkuð ramman reip að draga þar sem ekki væri hefð fyrir súkkulaðieggjum í Svíþjóð, heldur pappaeggjum sem notuð væru ár eftir ár. „Það fóru nokkrir tugir kassa af páskaeggjum í þennan stórmarkað í Karlstad, og þótt þetta sé kannski ekki mikið magn þá má segja að dropinn holi steininn. Þetta skapar líka fólki atvinnu, en hjá fyrirtæk- inu starfa nú um 20 manns,“ sagði hann. Ekki vandalaust verk Sigurður sagði að ákvörðun um frekari útflutning á páska- eggjum til Svíþjóðar í framtíð- inni yrði tekin þegar árangur sölunnar lægi fyrir eftir pásk- ana. Samkvæmt þeim fregnum sem honum hefðu borist hefðu páskaeggin frá Mónu hins vegar vakið mikla athygli og góðar viðtökur, og sérstaklega hefði risapáskaeggið vakið athygli fólks. „Það er ekki vandalaust verk að koma svona stóru og brot- VIÐSKIPTAVINIR stórmarkaðarins í Karlstad virða fyrir sér risapáskaeggið frá Mónu sem vakið hefur mikla athygli. hættu páskaeggi heilu frá ís- landi og yfir hafið til Svíþjóðar og síðan inn í stórmarkaðinn. Við flutninginn nutum við hins vegar góðrar aðstoðar starfs- fólks Eimskips og á það skilið mikið lof og þakklæti fyrir,“ sagði Sigurður. Ottó Jónsson. Andlát OTTO JÓNSSON OTTÓ Jónsson menntaskólakenn- ari er látinn á 75. aldursári. Ottó var kennari við Menntaskólann í Reykjavík frá 1955 til 1984, þar af yfirkennari frá 1962. Hann var kennari við Menntaskólann á Eg- ilsstöðum frá 1984 til 1987. Ottó var stundakennari við heim- spekideild Háskóla íslands vetur- inn 1968-1969 og starfaði sem túlkur og leiðsögumaður hjá Skip- aútgerð ríkisins í Skotlandsferðum Heklu sumrin 1949-1956. Þá var hann ieiðsögumaður hjá Ferða- skrifstofu Útsýnar á Spáni 1964 til 1977, hjá Ferðaskrifstofu Sunnu 1977-1980 og hjá Samvinnuferð- um Landsýn á Ítalíu og Grikklandi 1980-1983. Fyrri eiginkona Ottós var Rann- veig Jónsdóttir en þau skildu 1972. Seinni eiginkona hans er Bergþóra Gústafsdóttir. Ottó lætur eftir sig sex uppkomin börn. • • • • Hvaða laun þurfa vinnandi að hafa til ^ . IÞ /H } að ná ráðstöfunartekjum atvinnulausra? nf t*I1 Hjón með 2 börn A vinnu- Atvinnu- markaði laus Einst. for. m. 2 böm A vinnu- Atvinnu- markaöi laus Hjón með 3 börn Avinnu- Atvinnu- markaði laus Einst. for. m. 3 börn A vinnu- Atvinnu- markaöi laus Laun 240.200 - 119.000 - 279.400 * - 165.000 - Atvinnuleysisbætur - 105.600 - 55.600 - 108.400 - 58.300 Uppbót frá félagsst. Rvk - - - 3.600 - - - 3.600 Meðlag og mæðralaun - - 25.600 25.600 - - 41.700 41.700 Skattur -51.800 -2.700 -34.800 -7.600 -68.300 -5.100 -53.800 -10.100 Barnabætur og bamabótaauki 5.500 20.600 21.100 29.700 10.300 33.000 26.000 45.100 Húsaleigubætur - 17.400 17.400 17.400 - 20.400 10.800 20.400 Stéttarfélag og lífeyrisgjöld -12.000 -4.000 -5.900 -2.000 -14.000 -4.000 -8.300 -2.000 Brúttó ráðstöfunartekjur 181.900 136.900 142.300 122.200 207.500 152.700 181.400 157.000 - kostn. við að vera á vinnumarkaði - Dagvistunarkostnaður frá 1. mars -39.200 - -17.200 - -49.000 - -21.500 - - Strætisvagnakort -5.800 - -2.900 - -5.800 - -2.900 - Nettó ráðstöfunartekjur 136.900 136.900 122.200 122.200 152.700 152.700 157.000 157.000 TAFLAN sýnir hvaða heildarlaun eru að baki sömu ráðstöfunartekjum hjá hjónum og cinstæðum for- eldrum með 2 og 3 böm og hjá þeim sem em á atvinnuleysisbótum og fá aðstoð hjá Félagsmálastofn- un Reykjavíkur, en upplýsingamar em fengnar úr fréttabréfinu. Tekið er tillit til kostnaðar sem fellur til við það að vera starfandi ef bömin em á tilteknum aldri, þ.e. dagvistargjalda og strætisvagna- korts. Einnig em baroabætur, bamabótaauki, húsaleigubætur og meðlög tekin með í reikninginn. Útreikningar VSÍ á launum hjóna með tvö böm á dagvistunaraldri Þurfa 240 þús. til að hafa tekjur eins og atvinnulausir ÚTIVINNANDI hjón með tvö böm þurfa að hafa um 240 þúsund krónur í mánaðartekjur til þess að ná sömu ráðstöfunartekjum og. atvinnulaus hjón með tvö böm, að því er fram kemur í nýju fréttabréfi Vinnuveit- endasambands íslands Af vettvangi. Einstætt foreldri þarf að hafa á bilinu 85-165 þúsund krónur í at- vinnutekjur eftir því hvað börnin eru mörg til að standa jafnfætis atvinnu- lausu einstæðu foreldri í ráðstöfunar- tekjum, samkæmt útreikningum I fréttabréfinu. I útreikningunum er reiknað með að dagvistunarkostnaður tveggja bama frá 1. mars sé 39.200 og kostn- aður, við að koma sér í úr vinnu með strætisvagni sé 5.800 krónur til við- bótar þegar um hjón er að ræða, en dagvistargjöld einstæðs foreldris tveggja bama er 17.200 kr. og ferðir í og úr vinnu með strætisvagni eru 2.900 kr. Hjón miðað við þessar for- sendur þurfa að vera með 240.200 kr. í tekjur á mánuði. Staðgreiðslu- skattur verður 51.800, og stéttarfé- lags- og lífeyrisiðgjöld eru 12 þúsund krónur, bamabætur og bamabóta- auki eru 5.500 kr. á mánuði. Hins vegar eru 2.700 kr. teknar af at- vinnuiausu hjónunum í staðgreiðslu- skatt af 105.600 kr. bótum. I barna- bætur og barnabótaauka fá hjónin 20.600 kr. á mánuði og í því dæmi sem tekið er fá hjónin einnig 17.400 kr. í húsaleigubætur, en stéttarfé- lags- og lífeyrissjóðsiðgjald nemur 4 þúsund krónum. Miðað við þessar forsendur eru ráðstöfunartekjur beggja hjónanna þær sömu 136.900 krónur á mánuði. í fréttabréfinu segir að þessi dæmi sýni að stór hluti þjóðarinnar sé verr settur í vinnu en á bótum. Stöð 2 Utsending næst aðeins með nýjum myndlykli NÝTT útsendingarkerfi Stöðv- ar 2 verður tekið í notkun í kvöld klukkan 20. Eftir þann tíma verður ekki hægt að ná útsendingum stöðvarinnar með eldri gerðum af myndlyklum. Sjónvarpsstöðin Sýn tekur við hinu gamla útsendingarkerfi Stöðvar 2 og endurvarpinu. Myndlyklaverkefnið hefur staðið yfir í rúmt ár að sögn Jóns Axels Ólafssonar verkefn- isstjóra og hefur hátt í 50.000 nýjum myndlyklum verið dreift. Að því hafa komið hátt í 700 manns að hans sögn og vanda- mál verið óveruleg. „Þeir sem eru áskrifendur að dagskránni í apríl og hafa ekki fengið nýjan myndlykil geta haft samband við okkur í dag og fengið hann. Það eru 3-400 manns á skrá hjá okkur sem eitt sinn hafa keypt áskrift og þeir eiga rétt á að fá hjá okkur lykil án sérstaks gjalds ef þeir vilja gerast áskrifendur aftur,“ segir Jón Axel. Utanríkisráðuneyti Seturáð- herra verði skipaður JÓN Baldvin Hannibalsson, ut- anríkisráðherra, er vegná einn- ar af 120 umsóknum um stöðu háskólamenntaðs fulltrúa í ráðuneytinu vanhæfur að ráða í stöðuna samkvæmt stjórn- sýslulögum. Skipaður verður seturáðherra til að ráða Lstöð- una. Róbert Trausti Árnason, ráðuneytisstjóri í utanríkis- ráðuneytinu, segir að 120 um- sóknir hafi borist um starf há- skólamenntaðs fulltrúa í ráðu- neytinu í kjölfar auglýsingar í byrjun mars. Hins vegar hafi tafið ráðningu að einn af um- sækjendunum sé skyldur ráð- herra og geri stjórnsýslulög í því tilviki ráð fyrir að hann víki sæti og annar ráðherra og aðrir embættismenn taki ákvörðun um ráðninguna. Róbert Trausti sagðist vona að fljótlega yrði tekin ákvörðun og ráðið í stöðuna. Kosningu að ljúka KOSNINGU meðal kennara um nýgerða kjarasamninga kenn- arafélaganna lauk í flestum skólum í gær. Kosning hófst sl. fimmtudag. Atkvæði verða ekki taiin fyrr en 21. apríl. Ástæðan er sú að atkvæði eru póstsend, auk þess sem allmargir vinnudagar falla út í dymbilviku. Skattrann- sókn á Akranesi EMBÆTTI skattrannsókna- stjóra hefur vísað til Rann- sóknarlögreglu ríkisins rann- sókn á meintum skattsvikum Bifreiðastöðvar Þórðar Þ. Þórðarsonar á Akranesi. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er um að ræða meint undanskot á tekjuskatti en hvorki skattrannsóknadeild né RLR vildu tjá sig um málið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.