Morgunblaðið - 11.04.1995, Side 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1995
ALÞINGISKOSNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
Jón G. Tómasson, formaður
yfirkjörstjórnar í Reykjavík
Talning gekk
vel eftir stíflu
í upphafi
„TAFIR, sem urðu á að birta tölur
í Reykjavík, eiga sér eðlilegar
skýringar. Það myndaðist ákveð-
inn tappi í ferlinu í upphafi, en
eftir að sá vandi var leystur gekk
talningin vel,“ sagði Jón G. Tóm-
asson, formaður yfirkjörstjórnar í
Reykjavík, í samtali við Morgun-
blaðið.
Tölur um skiptingu atkvæða í
Reykjavík bárust óvenju seint frá
talningarstað í Ráðhúsi Reykjavík-
ur að þessu sinni. Jón sagði að
ferlið við talningu hefði verið þann-
ig, að fyrst hefði atkvæðum úr
öllum kjördeildum verið steypt
saman í stóran kassa, en fulltrúar
framboða svo flokkað þau gróflega
í mötuneyti Ráðhússins. „Við gróf-
flokkun voru allir kjörseðlar, sem
hafði vecið breytt, auðir og ógildir
seðlar og atkvæði sem féllu á
minnstu framboðin tekin frá i einn
bunka, en önnur atkvæði flokkuð
eftir listabókstaf og sett í kassa,“
sagði Jón. „Kassarnir voru þessu
næst fluttir í ráðhússalinn, þar sem
atkvæði á hvert framboð voru sett
í hendur umboðsmanna annarra
framboða, sem fóru yfir flokkun-
ina. Þaðan fara atkvæðin í hendur
starfsfólks sýslumanns. Þeir fín-
kemba flokkunina, jafnvel tvisvar.
Þessu næst fara atkvæðin til taln-
ingarmanna, sem tvítelja þau. Þau
eru sett í búnt, 100 saman, og
fara þannig í hendur yfirkjörstjórn-
ar, sem telur búntin og gengur frá
þeim í 1.000 atkvæða stafla."
Skökk mynd af
skiptingu atkvæða
Jón sagði að milli kl. 18 og 22
hefði myndast stífla í ferlinu, sem
starfsmenn hefðu ekki talið sig
hafa aðstæður til að breyta. Þegar
yfirkjörstjóm hefði komið til skjal-
anna, eftir lokun kjörstaða kl. 22,
hefði hún gripið í taumana og eft-
ir það hefði talning gengið vel.
Kl. 22 hefðu hins vegar legið fyrir
tölur, sem hafi augljóslega gefið
mjög skakka mynd af skiptingu
atkvæða. og brenglað tölvuspár,
hefðu þær birst. „Það kom í ljós
að það voru ekki nógu margir að
vinna að einum verkþættin,um og
ekki var hægt að bæta við fólki
Málmleitartæki sett upp
Morgunblaðið/Sverrir
FULLTRÚAR framboðanna hófu flokkun atkvæða í Ráðhúsinu milli kl. 18 og 22 á laugardag.
Lögreglan gætti öryggis og í samráði við framboðin var m.a. komið upp málmleitartæki, til að
tryggja að enginn gæti tekið með sér GSM-síma inn í flokkunina.
eftir að talningarmenn voru lokað-
ir inni.“
Jón sagði að enn hefði talning
tafist hátt í klukkustund þegar
uppgötvaðist að 100 atkvæða
bunki hafði lagst á rangan stað,
þannig að flokki voru reiknuð
1.000 atkvæði þegar hann hafði
fengið 900.
Jón sagði að aðstaðan í Ráðhús-
inu væri ekki góð til talningar, þar
sem bera þyrfti atkvæði eftir gróf-
flokkun upp í ráðhússalinn. „Það
næst betri yfirsýn þegar talningin
er öll á einum gólffleti.“
Enginn skar sig úr
með breytingar
Jón sagði að enginn einn fram-
bjóðandi eða flokkur hefði skorið
sig úr hvað breytingar á kjörseðl-
um og útstrikanir varðaði. „Yfir-
kjörstjórn í Reykjavík sendir upp-
lýsingar til Reiknistofnunar, sem
fer yfir allar breytingar með það
í huga hvort slíkt hafi einhver
áhrif á niðurstöðu kosninga. Því
er hins vegar fjarri að um svo
miklar breytingar hafi verið að
ræða að þær hafi áhrif. Tölur, sem
hafa verið nefndar um útstrikanir,
get ég engan veginn staðfest. Það
er alltaf meira um að menn í efstu
sætum séu strikaðir út, en það var
enginn einn sem skar sig úr svo
áberandi væri.“
Gott veður á kjördag tryggði að kjörgögn komust á talningarstaði
Talning atkvæða
gekk alls
staðar að óskum
Talning atkvæða gekk að óskum aðfaranótt sunnudags
og birtust tölur jafnt og þétt frá talningarstöðum. Reykja-
vík skar sig að vísu nokkuð úr til að byija með, þar sem
stífla myndaðist í talningu þar. Vel viðraði til kosninga,
svo kjörgögn komust fljótt og örugglega á talningarstað.
Norðurland eystra
Vesturland
„Talningin gekk prýðilega í Vesturlands-
kjördæmi, en við vorum að vísu heldur leng-
ur að ljúka talningu en venjulega, þar sem
atkvæðin komu aðeins síðar til okkar núna.
Það var þó ekkert að færð í kjördæminu,"
sagði Gísli Kjartansson, formaður yfírkjör-
stjórnar í Vesturlandskjördæmi. Gísli sagði
að ekkert hefði verið um breytingar á kjör-
seðlum eða útstrikanir einstakra nafna sem
orð væri á gerandi.
Vestfirðir
Vestfirðingar voru fyrstir til að ljúka taln-
ingu atkvæða aðfaranótt sunnudagsins. Það
þykja tíðindi, því enda þótt þar séu fæst at-
kvæðin hafa erfiðar samgöngur oft sett strik
í reikninginn. „Við vorum búnir að undirbúa
starfið mjög vel,“ sagði Björn Teitsson, vara-
formaður yfirkjörstjórnar í Vestfjarðakjör-
dæmi. „Um tíma óttuðumst við að þoka gerði
okkur erfitt fyrir, en við gátum notað tvær
flugvélar til að safna saman atkvæðum, auk
þess sem Vegagerðin veitti okkur undanþágu
til að nota Vestfjarðagöngin, sem eru ekki
formlega opin til Önundarfjarðar. Síðustu
atkvæði kömu frá Patreksfirði á talningar-
stað á ísafirði kl. 1 um nóttina og við lukum
talningu um kl. 3.“
Bjöm sagði að fá dæmi hefðu verið um
breytingar á kjörseðlum.
IMorðurland vestra
Halldór Þ. Jónsson, formaður yfirkjör-
stjórnar í Norðurlandskjördæmi vestra, sagði
allt hafa gengið snurðulaust við talningu at-
kvæða þar og veður og færð verið með ágæt-
um. „Það varð þó dálítil bið eftir þeim kjör-
gögnum sem lengst þurfti að aka með og
þess vegna lukum við ekki talningu fyrr en
kl. 4 um nóttina."
Halldór sagði að breytingar á kjörseðlum
hefðu einna helst beinst að listum Framsókn-
arflokksins og Sjálfstæðisflokksins. Ekki
hefðu allir kjósendur verið sáttir við niður-
stöður úr prófkjörum flokkanna og algeng-
ustu breytingar því þær að strikað hefði ver-
ið á víxl yfir 1. og 2. mann á báðum listum.
„Breytingar á D-listanum voru um 100, en
eitthvað færri hjá B-lista. Þessar breytingar
höfðu engin áhrif á niðurstöðu kosninganna,
enda þarf miklu meira til.“
„Talningin hjá okkur gekk eins og vel
smurð vél,“ sagði Freyr Ófeigsson, formaður
yfirkjörstjórnar í Norðurlandskjördæmi
eystra. „Við þurftum að bíða eftir atkvæðum
frá fjarlægustu stöðum, auk þess sem smá-
vægilegt afstemmningarvandamál kom upp
á Akureyri. Þetta var þó allt innan eðlilegra
tímamarka."
Fyrir fjórum árum var töluvert um breyt-
ingar á listum og nokkuð um útstrikanir á
D-lista. Freyr sagði að nú hefðu breytingar
verið gerðar á 2-300 kjörseðlum, sem væri
eðlilegur fjöldi og miklu minna en fyrir fjórum
árum. „Það eru alltaf einhverjir einstaklingar
sem vilja breyta uppröðun á listum, en það
var enginn listi eða frambjóðandi sem skar
sig úr núna.“
Austurland
„Við erum afar ánægðir með það sem að
okkur snýr í framkvæmd kosninganna, enda
gekk vel að koma atkvæðum á talningarstað
og talningin sjálf gekk með ágætum,“ sagði
Hjálmar Níelsson, fulltrúi sýslumannsins á
Seyðisfirði og formanns yfirkjörstjórnar.
„Þettaer stórt kjördæmi, en kjörgögn bárust
þó til Seyðisfjarðar á skömmum tíma. Það
eina sem tafði eitthvað var að stemma þurfti
af atkvæði, en okkur tókst þó að ljúka taln-
ingu snemma og erum hinir ánægðustu með
okkur.“
Hjálmar sagði að breytingum á kjörseðlum
hefði verið mjög í hóf stillt. „Breytingar og
útstrikanir voru miklu minni en við áttum í
raun von á og breyta engu. Þær beindust
ekki að einum flokki eða frambjóðanda öðrum
fremur."
Suðurland
„Það eina, sem setti strik í reikninginn hjá
okkur, voru samgönguerfiðleikar við Vest-
mannaeyjar. Vegna þoku var ekki hægt að
fljúga með kjörgögn til talningar á Selfossi,
en björgunarbáturinn Þór fór tvær ferðir
milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar með
kjörgögn," sagði Georg Kr. Lárusson, for-
maður yfirkjörnefndar í Suðurlandskjördæmi.
Báturinn flutti kjörgögn frá Eyjum kl. 16,
en frá öðrum kjördeildum í kjördæminu voru
gögnin tekin kl. 18. Georg segir að þetta
hafi haft það í för með sér að ekki hafi ver-
ið um alveg sambærilegar tölur að ræða,
enda hafi útkoman nokkuð breyst síðar. Síð-
ari ferð björgunarbátsins var farin upp úr
kl. 23 um kvöldið, svo þau gögn voru komin
til Selfoss um kl. 1.30-2 um nóttina.
Flestar breytingar voru gerðar á D-lista,
eða 171. B-listi kom næstur, með 61 breyt-
ingu, en mun færri breytingar voru gerðar
á öðrum seðlum. Flestar útstrikanir voru á
Árna Johnsen, 2. mann á D-lista, eða 85.
Næstur kom fyrsti maður á D-lista, Þorsteinn
Pálsson, með 55 útstrikanir og 40 strikuðu
út nafn efsta manns á B-lista, Guðna Ágústs-
sonar.
Reykjanes
„Það var töluvert um að breytingar væru
gerðar á tveimur listum, A-lista Alþýðuflokks
og D-lista Sjálfstæðisflokks. Bæði var fólk
að breyta röð frambjóðenda á listunum, en
einnig voru útstrikanir. Á A-lista var nafn
Guðmundar Árna Stefánssonar oftast strikað
út og nafn Ólafs G. Einarssonar á D-lista.
Eg hef þó engar opinberar tölur um þetta,
því þeim var ekki haldið til haga af okkar
hálfu," sagði Bjarni Ásgeirsson, formaður
yfirkjörstjórnar Reykjaneskjördæmis.
1 útsendingum sjónvarpsstöðvanna á kosn-
inganótt kom fram, að gerðar hefðu verið um
1.100 breytingar á D-lista og um 700 á A-
lista. „Kjörseðlar, sem breytingar eru gerðar
á, fara í sérstakan kassa og til athugunar hjá
Hagstofu íslands. Við héldum engum tölum
um breytingar eða útstrikanir til haga. Taln-
ingin hjá okkur gekk í heild ljómandi vel.“
Bjarni var inntur eftir því hvort rétt væri
að í einni kjördeild hafi ekki verið hægt að
ganga frá kjörgögnum eins og lög kveða á
um, þar sem ekki hafí verið tiltækir þar til
gerðir strigapokar, sem ber að innsigla og
senda á talningarstað. „Nei, ég kannast ekki
við slíkt,“ svaraði Bjarni. „Yfirkjörstjórn læt-
ur strigapokana fylgja með kjörgögnum, en
ákvæðið um hvernig skal ganga frá kjörgögn-
um er auðvitað hundgamalt, frá þeim tíma
er strigapokar þóttu traustastir til þessara
flutninga. Ef kjörgögn berast þannig að þau
eru innsigluð á fullnægjandi hátt, til dæmis
í læstum kassa, þá er það nægilegt. Margir
hafa gaman af að halda í hefðina og nota
strigapokana, en það varðar engri ógildingu
þótt slíkt sé ekki gert.“