Morgunblaðið - 11.04.1995, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 11.04.1995, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Vísitala neysluverðs lækkar vegna 2,2% verðlækkunar á húsnæði Um 0,1% verðhjöðnun frá því ímarsmánuði Sala ríkisvíxla tók kipp á eftirmarkaði í gær VÍSITALA neysluverðs í aprílmán- uði reyndist vera 171,8 stig og lækk- aði um 0,1% frá því í marsmánuði. Þetta samsvarar um 1,4% verðhjöðn- un á einu ári. Vísitala gildir til verð- tryggii^gar í maí. f / y y y y s s s s s s s s s s s Full búð af íallegum fötum ogskóm ■ Fótin sem börnin vilja • EN&LABORNIN SBankastrœti 10 sínii 552-2201 ’ÆÆÆÆa Lækkun vísitölunnar má rekja til 2,2% lækkunar á markaðsverði hús- næðis sem hafði í för með sér 0,2% lækkun á vísitölu neysluverðs. Lækkun á iðgjöldum húftrygginga bifreiða um 9% olli 0,03% lækkun vísitölunnar og sömuleiðis olli 6,7% lækkun heimilistrygginga 0,04% lækkun hennar. Nýjar bifreiðar hækkuðu aftur á móti um 0,4% sem olli 0,3% hækkun vísitölu neysluverðs. Hækkun launa í viðhaldskostnaði húsnæðis hafði í för með sér 0,03% hækkun og hækk- un á vinnu vegna bifreiðaviðgerða um 2,5% olli 0,03% hækkun neyslu- verðsvísitölu. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísi- tala neysluverðs hækkað um 1,1% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 0,7%. Undanfama þijá mánuði hefur vísitala neysluverðs lækkað um 0,2% sem jafngildir 0,7% verð- hjöðnun á ári. Vísitala neysluverðs án húsnæðis síðastliðna þrjá mánuði er óbreytt. í tilkynningu Hagstofunnar er einnig skýrt frá því að verðbólga hér á landi var á tímabilinu febrúar 1994 til febrúar 1995 um 1,7% en 3,1% að meðaltali í ríkjum Evrópu- sambandsins. Þannig var verðbólg- an 1,7% í Frakklandi, 1,8% í Finn- landi, 1,8% í Belgíu og 2,2% í Lúx- emborg. Lækkun vísitölunnar kom á óvart á verðbréfamarkaði í gær þar sem flestir höfðu búist við einhverri hækkun. Þetta hafði þau áhrif að eftirspurn jókst verulega eftir ríkis- víxlum á eftirmarkaði. Þannig höfðu selst ríkisvíxlar fyrir um 430 milljón- ir síðdegis í gær sem er mun meira en á venjulegum degi. VísitaEa neysluverðs 'apríl 1995 (171.8) Ferðir og flutningar (20,0) 1+0,1% Húsnæði, rafmagn og hiti (18,1) | -0,9% Matvörur (16,2) +0,5% Tómstundaiðkun og menntun (11,8) ■ -0,2% Húsgögn og heimilisbúnaður (6,6) | 0,0% Föt og skófatnaður (5,9) Drykkjarvörur og tóbak (4,4) Heilsuvernd (2,8) Aðrar vörur og þjónusta (14,1) | 0,0% ■ +0,1% 1+0,1% m -o,2% Breyting frá fyrri mánuði VÍSITALA NEYSLUVERÐS 1-0,1% Tölur í svigum vísa til vægis einstakraliða af 100. Sala varnarliðseigna lögð niður í óbreyttri mynd Sala til varnar- liðs gefin frjáls SAMNINGAR um kaup varnarliðs- ins á vöruM og þjónustu verða gefn- ir fijálsir skv. tilkynningu frá utan- Farþegar á Saga farrými: þogar tlogiö er á Saga farrýnii til Kaupmannaliafnar, Oskiareöa Stokkhölms á tímabilinu 1S. apríl - 30. júní í samvinnu viö hótcl í Kaupmannahöfn, Ósló og Stokkhólmi bjóða Fluglciðir farþegum á Saga fanými tvær fyrstu gistinæturnar á aðeins 100 ísl. kr. hvora nótt fyrir manninn. Tilboðið giklir á eftirtöldum hótelum: Kaupmannahöfn Ósló Stokkhólmur Hotel Richmond Hotel Imperial Hotel Mercur Öll Flugleiðahótel í borginni Öll Flugleiðahótel í borginni Titboöió gitdir í feróir á Saga-farrými til Kaupmannahafnar, Óslóar og Stokkliólms sem bókaöar eru frá og með 11. apríl og farnar á tímabilinu frá 15. apríl til 30. júní. Gisting á hinum sérstöku kjörum er boóin meö týrirvara um nægilegtgistirými á tilgreindum hótelum á hvcrjum tíma. Hafðu samband við söluskrifstofúr okkar, umboðsmenn um allt land, ferðaskrifstofurnar eöa söludeild Flugleiða í síma 690 300 (svarað mánudaga - föstudaga FLUGLEIÐIR kl. 08 -19 Og laugardaga kl. 08 -16). Traustur íslenskurferðafélagi ríkisráðuneytinu. Öllum sem áhuga hafa á slíkum viðskiptum verður gefinn kostur á að taka þátt í útboð- um, uppfylli þeir ákveðin efnisleg skilyrði. Tilgangur breytingarinnar mun vera að tryggja öllum seljendum vöru og þjónustu jafnan aðgang að samningum við varnarliðið og skapa aðstæður fyrir eðlilega sam- keppni í þeim viðskiptum. Meðal skilyrða sem sett eru fyrir þátttöku í útboðum eru ströng skilyrði um eiginfjárstöðu og starfsreynslu fyr- irtækja sem vilja keppa um samn- inga af þessu tagi. Þá verður tekið tillit til þess hvort fyrirtækin séu reiðubúin til þess að láta íbúa á Suðurnesjum njóta forgangs að þeim störfum sem skapast með samningunum. Umsýslustofnun stofnuð í tengslum við þá breytingu sem verður á viðskiptum við varnarliðið hefur verið ákveðið að leggja SÖlu varnarliðseigna niður í núverandi mynd. í hennar stað mun taka til starfa Umsýslustofnun varnamála, sem auk þess að taka við hlutverki Sölu varnarliðseigna mun sinna hlutverki innkaupastofnunar vegna kaupa varnarliðsins á aðföngum. Stofnunin mun ennfremur hafa umsjón með forvali verktaka vegna verka á vegum Mannvirkjasjóðs Atlantshafsbandalagsins. Alfreð Þorsteinsson, forstjóri Sölu varnarliðseigpia, sagði í sam- tali við Morgunblaðið, að ekki væri búið að ganga frá þessum breyting- um í smáatriðum. „Sala varnarliðs- eigna hefur verið með bækistöð á Keflavíkurflugvelli jafnt og j Reykjavík og þar munu verða meiri umsvif með þessari breytingu," sagði Alfreð. Hann sagði hins vegar að sér sýndist að helsta tekjuöflun stofnunarinnar, þ.e. bílasalan, yrði áfram í Reykjavík þar sem væri stærsta markaðssvæðið. í tilkynningunni frá utanríkis- ráðuneytinu segir að með breyting- unum sé brugðist við ítrekuðum athugasemdum við rekstur Sölu varnarliðseigna með hagræðingu og því að fela stofnuninni aukin verkefni. Ekki sé gert ráð fyrir að breyting þurfi að verða á heildar- starfsmannafjölda Sölu vamarliðs- eigna í kjölfarið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.