Morgunblaðið - 11.04.1995, Page 15

Morgunblaðið - 11.04.1995, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1995 15 VIÐSKIPTI VERIÐ Barma séryfir styrk marksins Þýzk stórfyrirtæki óttast áhrif um- rótsins í gjaldeyrismálum Frankfurt. Reutcr. ÞRJÚ stórfyrirtæki í Þýzkalandi hafa barmað sér yfir áhrifum um- rótsins á gjaldeyrismörkuðum Fraktflug Breytingar á flugi Cargolux VIKULEGT fraktflug Cargolux frá Lúxemborg til íslands og þaðan til Bandaríkjanna færðist yfir á mið- vikudaga í stað sunnudaga frá og með 29. mars. Áfangastaðir Cargolux í fluginu frá íslandi til Bandaríkjanna verða með breytingunni, Kennedy flugvöll- ur í New York og Houston í Texas. í frétt frá Cargolux á íslandi segir að þessi breyting sé gerð vegna heildar endurskipulagningar á áætl- unum Cargolux um allan heim. Frá og með 30. apríl nk. hefur Cargolux vikulegt flug frá Detroit og New York til Keflavíkur og áfram til Lúxemborgar. I frétt Cargolux segir að þetta flug eigi að geta þjón- að vel íslenskum innflytjendum sem og útflytjendum til Evrópu. heims á útflutning fyrirtækjanna. Fyrirtækin, Porsche, Lufthansa og Hugo Boss, segja að hækkun marksins gagnvart dollar og öðrum evrópskum gjaldmiðlum sé farin að skaða samkeppnishæfni þeirra. Forstjóri Porsche, Wendelin Wie- deking, hvatti jafnvel iðnríki til þess að hefta starfsemi gjaldeyrisbrask- ara og kvaðst hneykslaður á því að Þjóðverjar hefðu ekki gert ráðstaf- anir til þess að vega á móti styrk marksins. Wiedeking sagði í viðtali við tíma- ritið Stern að sjö helztu iðnríki heims, G7, ættu að „torvelda spá- kaupmönnum að þrýsta gengi gjaldmiðils niður um 20% eða meira á einni nóttu.“ „Það þýðir að einhver spákaup- mennska hefur áhrif á atvinnuöryggi í Þýzkalandi," sagði hann. Wiedeking hneykslaðist líka á því að Bonn-stjórnin hefði veitt hækkun marksins þegjandi samþykki eins og ekkert væri við hækkuninni að gera, þótt hún neyddi þýzka útflytjendur til að flytja framleiðsluna úr landi til ódýrari staða. Lufthansa kvaðst hafa haft tíma- bundinn ávinning af lækkun dollars, en benti á að veikleiki hans gæti bætt samkeppnisaðstöðu bandarí- skra flugfélaga í Þýzkalandi ef til lengri tíma væri litið. 7/7 hluthafa í Lvfjaverslun íslands hf. Viö þökkum fyrir mjög góð viðbrögð við auglýsingu, sem við birtum í Morgunblaðinu þriðjudaginn 4. apríl sl. Fundur verður haldinn með hluthafahópnum, sem þegar hefur myndast, miðvikudagipn 12. apríl kl. 17.30 í Fóst- bræðraheimilinu við Langholtsveg. Þeir hluthafar, sem ekki hafa þegar haft samband, en vilja slást í hópinn, eru velkomnir á fundinn eða beðnir að hafa samband við undirritaðan næstu daga. F.h. fundarboðenda: Jón Þorsteinn Gunnarsson, rekstrarhagfræðingur, Austurstræti 17, sími 562Ö8860. Fax 562Ö2877. Hádegisverðarfundur Miðvikudaginn 12. apríl 1995 Skáli, Hótel Sögu frá kl. 12:00 -13:30 Markaössetning áfengis „Below the line marketing“ - óhefðbundin markaðssetning. Simon Lyons, markaðsstjóri Famous Grouse í Skotlandi. Líklegt er talið að á næstunni muni heildsöludreifing áfengis verða gefin frjáls. í kjölfaríð má búast viö aukinni samkeppni á þessum markaði. Þar sem ólöglegt er að auglýsa þessa vöru þarf önnur meðul til. Hér á landi er staddur Simon Lyons, markaðsstjóri Famous Grouse viskísins frá Skotlandi. Á fundinum mun hann fjalla um eftirfarandi: ■ Hvaða þættir eru mikilvægastir vlð markaðssetningu áfengis? ■ „Below the line marketing‘% eða óhefðbundin markaðssetning. ■ Kostun (Sponsorship); Famous Grouse er aðalkostandi helmsmelstaramótsins í Rugby. Þeir áætla að kostnaður þessu samfara verði 300 milljónir ísl. króna. Hádegisveröur 1.500 kr. FELAG VIÐSKIPTA- OG HAGFRÆÐINGA Opinn fundur - allir velkomnir Seiðaskiljur á öllum úthafsrækjuveiðum Kolluál lokað án skilju vegna smáýsu REGLUGERÐ sjávarútvegsráðu- neytisins um bann við rækjuveiðum í ákveðnu hólfi í Kolluál án seiða- skilju tók gildi í gærkvöldi. Ástæð- an er mikið af smáýsu á rækjuslóð- inni. í togararalli Hafrannsókna- stofnunar kom í ljós að mikið var að smáþorski á rækjumiðunum fyr- ir norðan. Því hefur verið ákveðið að flýta áformum um notkun seiða- skilju og frá 1. maí verða öll skip að nota þannig búnað við úthafs- rækjuveiðar við landið. Seiðaskiljur eru þannig útbúnar að rækjan fellur niður á milli rimla og inn í poka vörpunnar en fiskur- inn skilst frá. Guðni Þorsteinsson, fiskifræðingur hjá Hafrannsókna- stofnun, segir að rannsóknir hér og í Noregi sýni að seiðaskiljur sleppi öllum fiski yfir 20 sentímetrum að stærð og miklu á bilinu 10 til 20 sm. Á rækjumiðunum er oft mikið af smákarfa og þorski sem farið hefur í rækjuvörpurnar en skilst nú frá. Seiðin fara eftir sem áður með rækjunni. Mikið af grálúðu- og karfaseiðum er á rækjumiðunum fyrir Norður- landi og með reglugerð sem gefin var út fýrr á árinu voru rækjuveið- ar bannaðar í nokkrum hólfum á þessu svæði nema notuð væri seiða- skilja. Smáþorskur fyrir Norðurlandi Guðni segir að í togararalli Haf- rannsóknastofnunar hafí fengist meira af smáþorski á rækjumiðun- um en reiknað hafi verið með. Haf- rannsóknastofnun hafi því endur- skoðað fyrri áætlanir um notkun seiðaskilju og lagt til að notkun skilju á öllum rækjuveiðum yrði flýtt. Allir hagsmunaaðilar hafi tek- ið því vel. í framhaldi af því var ákveðið að gera skilju að skilyrði fyrir öllum úthafsrækjumveiðum frá 1. maí. Við eftirlit varðskips í Kolluál út af Breiðafirði kom í ljós að mik- ið var af smáýsu á rækjumiðunum þar og í framhaldi af því var gefin út reglugerð í gær sem bannar rækjuveiðar nema seiðaskilja sé notuð. Tók hún gildi kl. 21 í gær- kvöldi. Reglugerðin er ekki tíma- bundin og segir Þórður Árelíusson, veiðieftirlitsmaður hjá Fiskistofu, að hún eigi að gilda til frambúðar enda verði notkun seiðaskilju fljót- lega gerð að skilyrði fyrir öllum úthafsrækjuveiðum við landið. Morgunblaðið/J6n Páll Ásgeirsson RÆKJAN fer inn um grindurnar sem sjást á þessu rækjutrolli en fiskurinn sleppur. Útgerðarmenn gagnrýna kröfur um notkun seiðaskilju í Kolluál Veiðarnar borga sig ekki ÚTGERÐARMENN á Snæfells- nesi eru afar óánægðir með þá ákvörðun að gera notkun seiða- skilju að skilyrði fyrir rækjuveið- um í Kolluál. Einn þeirra sagði i gær að með þessu væri grund- vellinum kippt undan rækjuveið- um bátanna því bolfiskurinn sem kæmi með í rækjutrollið væri forsenda veiðanna. Héldu þeir fund um málið fyrir helgi og fulltrúar þeirra fóru í gær á fund Kristján Ragnarssonar formanns LIÚ til að leita liðsinnis hans við að fá reglunum breytt. Gunnlaugur Árnason útgerð- armaður í Stykkishólmi, sem gerir út ÁrsæÞog Gretti, segir að rækjuaflinn sé lítill í Kolluál og meðaflinn geri .útgerðina mögulega. Segir hann að verð- mæti rækjuaflans sé aðeins lið- lega 60% af heildaraflaverðmæti skipa á þessum veiðum. Hann segir vitað að smáýsa gangi yfir þetta svæði á ákveðnum árstíma, það ætti ekki ekki að koma nokkrum manni á óvart. Hins vegar hverfi hún alltaf í byrjun maí. Og þarna séu hvorki grá- lúðu- né karfaseiði, einungis góð- ur þorskur. Því sé algerlega út í hött að gera seiðaskilju að skil- yrði fyrir rækjuveiðum á þessu svæði þó það geti átt við fyrir Norðurlandi þar sem þörf sé á að friða smáþorsk og karfa- og grálúðuseiði. Segir hann að út- gerðarmenn vilji miklu frekar láta loka svæðinu algerlega fyrir rækjuveiðum þar til ýsan sé kom- in yfir svæðið en að gera seiða- skilju að varanlegu skilyrði fyrir veiðunum. Breytt á miðju tímabili Þá gagnrýnir hann vinnu- brögðin við setningu reglnanna. „Ég var búinn að skipuleggja út- gerð bátanna út fiskveiðiárið. Við hættum á netum og geymdum þorskkvóta til að nota við rækju- veiðarnar í Kolluál. Siðan er grundvellinum kippt undan þeim með einu pennastriki með þriggja vikna fyrirvara á miðju rækju- veiðitímabili. Þetta nær ekki nokkurri átt,“ segir Guunlaugur. Það kostar á þriðju milljón að útbúa báta með seiðaskilju og tilheyrandi aflanema og segist Gunnlaugur ekki vera tilbúinn til að leggja út í þaim kostnað fyrir veiðar sem ekki stæðu und- ir sér með þeim skilyrðum sem verið væri að setja. Ef þessum reglum fengist ekki breytt væri útgerð bátanna í óvissu það sem eftir er fiskveiðiárs. Gengur illa á Breiðaf irði Seiðaskilja er gerð að skilyrði fyrir rækjuveiðum í hólfi í Breiðafirði, rétt fyrir utan Ólafs- vík og hafa nokkrir bátar reynt þar fyrir sér. Magnús Soffanías- son, útgerðarmaður í Grundar- firði, segir að veiðarnar gangi illa. Þeir fái minni afla á togtím- ann en áður en skiljan var sett í. Það geti þó hugsast að það séu byijunarerfiðleikar sem lagist. Flatfiskur hefur náð að festast á sumar skiljurnar og nánast lokað og afraksturinn þá orðið eftir því. Þá segir Magnús að erfitt sé að hafa seiðaskiljur á þeim bátum sem taka rækjutrollið inn á siðunni, auðveldara sé að eiga við það ineð skutrennu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.