Morgunblaðið - 11.04.1995, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1995 23
LISTIR
Trúarleg
tónlist í
dymbilviku
SÖNG-
TÓNLEIK-
AR verða
haldnir á
morgun kl.
20 í Víði-
staðakir-
kju. Flytj-
endur eru
Þórunn
n 5 j JKorunn
Guðmunds- Guðmundsdóttir
dpttir sópr-
an, Kristinn Örn Kristinsson
píanó og Eydís Franzdóttir
óbó.
A efnisskránni eru söngv-
erk af trúarlegum toga eftir
Ralph Vaughan Williams,
Samuel Barber, Jón Leifs og
Johannes Brahms.
Sögukvöld
í Kaffileik-
húsinu
ÞRIÐJA sögukvöldið í Kaffi-
leikhúsinu í Hlaðvarpanum
verður á morgun kl. 21.
Sögukvöld eru samvinnu-
verkefni Kaffileikhússjns og
Rithöfundasambands íslands
og er tilgangur þeirra að fá
fólk til að koma saman og
segja og hlýða á góðar sögur
og rækta um leið þá sagna-
hefð sem býr með þessari
þjóð.
Sögumenn og konur sögu-
kvöldsins verða; Brynja Bene-
diktsdóttir lausamanneskja,
Helga Guðbrandsdóttir vík-
ingahausamálari, Ingibjörg
Helgadóttir geðhjúkrunar-
fræðingur, Sóley Davíðsdóttir
skáldkennari, Árni Björnsson
jólasveinafræðingur, Erling-
ur Gíslason ársleyfishafi og
Halldór Þorsteinsson bóka-
flóttamaður.
Sögukvöldin verða annað
hvert miðvikudagskvöld fram
á sumar og það næsta verður
miðvikudaginn 26. apríl. Boð-
ið er upp á kaffiveitingar og
húsið er opnað kl. 20.
Málverk á
••
Ara í Ogri
UM þessar mundir stendur
yfir málverkasýning á verk-
um eftir Alexander Ingason
á veitingahúsinu Ara í Ögri,
Ingólfsstræti.
Um er að ræða sautján
verk máluð með blandaðri
tækni, bæði í olíu og teikning-
ar. Sýningin stendur út apríl-
mánuð og er þetta þriðja sýn-
ing hans í Reykjavík.
wlett-Packard prentara
HP LaserJet 4L geislaprentarinn.
Tilvalinn prentari fyrir
einstaklinga og smærri fyrirtæki.
Tilboðsverð:
kr. 59.900 stgr.
HP ScanJet llcx litaskanninn.
Glæsilegur hágæða borðskanni.
Hérástórlækkuöuverði.
Tilboðsverð:
kr. 99.900 stgr.
Liturinn er galdurinn. Hewlett-Packard er trygging fyrir gæðum, endingu
og endalausri ánægju í litaútprentun.
Hátækni tii framfara •=
m Tæknival
Skeifunni 17 • Sími 568-1665 • Fax 568-0664