Morgunblaðið - 11.04.1995, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 11.04.1995, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1995 35 MINNINGAR + Axel Svein- björnsson var fæddur í Reykjavík 10. desember 1904. Hann lést á sjúkra- húsi Akraness 4. apríl sl. Foreldrar hans voru Svein- björn Sæmundsson í Sæmundarhlíð í Reykjavík og Ses- selja Magnúsdóttir frá Hávarðsstöðum í Leirársveit. Hann fluttist níu mánaða gamall til Akraness og ólst upp hjá færndfólki sínu á Traðarbakka hér á Akranesi. Axel kvæntist heitkonu sinni Lovísu Jónsdóttur Ólafssonar frá Litla-Teigi á Akranesi 25. nóvember 1933. Hún var fædd 28. ágúst 1909. Hún lést á sjúkrahúsinu á Akranesi 9. jan- úar síðastliðinn. Þau eignuðust þrjár dætur. Elst er Jóna Alla, húsmóðir á Seltjarnarnesi, mað- ur hennar var Gústaf Þór Ein- arsson, þá er Gunnur, húsmóðir í Reykjavík, gift Steinþóri Þor- steinssyni, og yngst er Lovísa, húsmóðir á Selfossi, gift Ægi Magnússyni. Einnig ólst elsti dóttursonur þeirra, Axel Gúst- afsson, að verulegu leyti upp þjá þeim. Hann starfar við versl- un afa síns á Akranesi. Kona hans er Kristín Halldórsdóttir. Barnabörnin eru níu talsins og barnabörnin fimm, eitt þeirra er látið. Axel Sveinbjörnsson verður jarðsunginn frá Akra- neskirkju í dag, 11. apríl, og hefst athöfnin kl. 14.00. AFI sagði mér oft frá gamla tím- anum, þegar hann var ungur og því sem hann og amma upplifðu. Langar mig til að rifja það upp í fáeinum orðum. Afi fór ungur að vinna. Sjór- inn heillaði hann, enda var um fátt annað að velja. Afi var ekki nema 11-12 ára þegar hann bytjaði að stunda sjóinn með uppeldisbróður sínum, Sigurði Guðmundssyni frá Traðarbakka. Þegar afí var 14 ára fékk hann vinnu hjá Böðvari Þorvaldssyni (föð- ir Haraldar Böðvarssonar). Böðvar var með verslun og þar vann afi í 5 ár á vetuma. Ungur fór afí í Stýri- mannaskólann og útskrifaðist þaðan 1930. Strax fór hann að gera út með uppeldisbróður sínum, Magnúsi Guðmundssyni. Gerðu þeir út 2 báta, Sjöfn og Sæfara, og var afí skipstjóri á þeim til skiptis. Afi og amma vom mjög samrýnd. Það hefur örugglega verið sjaldan, ef að það hefur nokkurn tíma gerst að þau rifust. Afi og amma áttu fallegt heimili. All- an sinn langa búskap bjuggu þau í sama hús- inu í Merkigerði 2, hús- inu sem þau byggðu sjálf áður en þau giftu sig. Einu sinni var mér sagt að húsið þeirra hafí verið eitt vandaðasta hús á Akranesi á sínum tíma. Árið 1938 hætti afí á sjó og fór að vinna hjá Haraldi Böðvarssyni sem verkstjóri og í versluninni. Þar vann afi til 1942 og 18. desember stofnaði afi sína eigin verslun sem er enn í fullum rekstri, Verslunin Axel Sveinbjörnsson hf. Ámma vann mikið í búðinni fyrstu árin. Eins var það með afa, hann rak búðina með miklum áhuga. Einu sinni sagði afí mér frá atviki sem gerðist fyrir mörgum árum. Hann var að snúast niðri í bæ og hitti mann sem hann þekkti vel. Afí var þá í nýlegri úlpu sem hann var að selja í búðinni. Manninum leist svo vel á úlpuna, að afí seldi honum úlpuna á staðnum. Afi starfaði í fjölda ára í Slysa- varnafélagi íslands á Akranesi og var meðal annars formaður þess í mörg ár. Hann sá um það t.d. að afla fjár fyrir Bjamalaug á sínum tíma, t.d. með happdrætti og ýmsu fleiru. Eitt af áhugamálum afa var að fara á laxveiðar. Hann fór í mörg ár vestur í Dalasýslu að veiða, tvisv- ar til þrisvar á hverju sumri. Og þá fórum við oft með, ég og amma, ásamt vinafólki þeirra. Afí og amma voru ein af stofnend- um Oddfellow-stúkunnar Agli á Akranesi og voru þau mjög virk á meðan heilsan leyfði. Það var alltaf gott að koma til afa og ömmu. Hjá þeim var ég alltaf eins mikið og ég gat, í öllum jólafríum, páskafríum og sumarfríum og fór þá alltaf beint niður í búð til afa. Og eftir að ég hætti í skóla flutti ég til þeirra að fullu. Og ólst upp hjá þeim, sem eitt af bömum þeirra. Það var 1978 sem afí fékk fyrst áfall og eftir það fékk hann hvert áfallið á fætur öðm. Og ég sem fylgdist með afa á hverjum degi í gegnum árin, ég dáðist að honum hvað hann var alltaf duglegur, alltaf reif hann sig upp eftir áföllin. Það var í maí 1990 sem afi og amma fluttu á dvalarheimilið Höfða. Það fór vel um þau þar. Amma fékk ekki að vera lengi þar, hún varð veik og var flutt á Sjúkrahús Akra- ness og þaðan kom amma aldrei aftur á Höfða . Þótt afí hafí verið búinn að missa heilsuna þá fór hann á hverjum degi að heimsækja ömmu á Sjúkrahúsið. Afi lét hvorki veðrið, færðina, heilsuna né nokkuð annað stjórna sér. Hann fór á hveijum degi til ömmu. Eins var það í mörg ár að hann kom niður í búð á hverj- um degi hvernig sem heilsan var eða færðin. Þegar afí og amma voru ný flutt á dvalarheimilið Höfða fengu þau ung hjón í heimsókn. Hjónin spurðu afa hvernig þeim ömmu líkaði dvölin á Höfða, og afi var ekki lengi að svara og sagði: „Þetta eru eintóm gamalmenni hérna.“ Hann var þá sjálfur 85 ára. Einu sinni þegar afí var að drekka kvöldkaffi með vistfólkinu á Höfða, voru tveir fyrrverandi bændur að rifja upp gamla tímann í sveitinni. Ég spurði afa hvort honum hafí ekki fundist gaman að hlusta á bændurna. Þá svarði afi: „Það var ekkert varið í þetta, þeir töluðu bara um rollur og fjós.“ Stundum þegar ég var að heim- sækja afa á Höfða og sjúkrahúsið var hann ekki viðræðuhæfur. Hann var nefnilega að horfa á fótbolta í sjónvarpinu. Afí og amma voru mér alltaf sérstaklega góð. Það var alltaf gott að vera í návist þeirra. Þetta er aðeins brot af því sem ég get sagt um afa og ömmu. Allar þær góðu minningar sem ég fékk að upplifa geymi ég I hjarta mínu með- an ég lifi. Það er gott að vita það að núna þegar afi er að kveðja okk- ur þá hittast þau aftur afi og amma. Og þar eigum við öll eftir að hitt- astj hjá Guði. Ég vil þakka afa og ömmu fyrir allt það sem þau hafa fyrir mig gert, það er ómetanlegt. Ég bið góðan Guð að styrkja alla afkomendur og ástvini afa og ömmu. Axel Gústafsson. Ef lífið ber oss kaldan storm um villu vegi, lát vinarþelið lyfta hug mót ijósum degi, því „ber er hver að baki, nema sér bróður eigi“. (Á.B.) Axel byijaði að sækja sjó um fermingaraldur eins og títt var unga menn í sjávarplássum þess tíma. 16 ára gamall fór hann fyrst á vertíð sem fullgildur háseti. Hann fór til náms í Stýrimannaskólanum í Reykjavík og lauk þaðan hinu meira AXEL SVEINBJÖRNSSON + Guðrún Rós- mundsdóttir fæddist í Reykjavík 13. mars 1947. Hún lést á Borgarspíta- lanum 31. mars síð- astliðinn. Guðrún var dóttir Rós- mundar Tómasson- ar, f. 20.2. 1913, d. 24.10. 1976, og Bergu G. Ólafsdótt- ur, f. 21.6. 1919. Systkini hennar eru: Ólafur, f. 27.12. 1941, og Birgitta, f. 15.6. 1961. 4. október 1969 giftist Guðrún Þorsteini Þorsteinssyni, f. 9.2. 1943. Börn þeirra eru: Þröstur, f. 23.9. 1972, og Hólmfríður Berglind, f. 21.6. 1974. Guðrún stundaði nám við Verslunarskóla íslands og lauk þaðan prófi. Útför bennar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin kl. 13.30. VIÐ viljum með fáum fátæklegum orðum minnast systur okkar Guð- rúnar Rósmundsdótt- ur, sem ólst upp eins og við í foreldrahúsum á Laugamesvegi 66. Þegar við hugsum tii baka, til æskuáranna, kemur margt upp í hugann, t.d. hve allt var hreint og snyrtilegt í kringum systur okkar. Sem unglingur várð hún þeirrar gæfu að- njótandi að fá að dvelja sumarlangt á Búrfelli í Grímsnesi. Þótti henni gaman í sveitinni og því að fá að taka virkan þátt í öllu sem þar þurfti að gera. Þeirra samverustunda sem við systkinin áttum með Guðrúnu nut- um við til fulls og munu minningar frá þeim stundum fylgja okkur og ylja á ógenginni braut. Búskaparár sín bjuggu Guðrún og Þorsteinn í Gnoðarvogi 54, þar til þau fluttu, fyrir rúmu ári, í Reyr- engi 9 hér í borg. Oft vill erill setja mark sitt á daglegt líf okkar, en heima hjá þeim var tekið á móti okkur af gestrisni og ást. Fyrir allt þetta og svo ótal margt annað ber að þakka nú þegar leiðir skilja. Móður okkar varð að orði nokkm eftir að henni barst andlátsfregnin: Það var eins og klakakiungur klemmdi hjarta mitt' Sálin rifnaði í ótal sprungur er ég heyrði látið þitt Við, ásamt móður okkar, kveðjum þig með sárum söknuði er fyllir bijóstið en jafnframt huggun, að hafa átt svo góða dóttur og systur, því áfram lifa dýrmætar minningar. Við kveðjum þig með þessum ljóðl- ínum: Þú áttir þrek og hafðir verk að vinna og varst þér sjálfri hlífðarlaus og hörð. Þú vaktir yfir velferð bama þinna. Þú vildir rækta þeirra ættaijörð. Frá æsku varstu gædd þeim góða anda, sem gefur þjóðum ást til sinna landa og eykur þeirra afl og trú. En það er eðli mjúkra móðurhanda að miðla gjöfum - eins og þú. (Davíð Stef.) Elsku Þorsteinn, við viljum þakka þér alla þína umhyggju og umönnun í veikindum Guðrúnar. Að lokum sendum við þér, börnum þinum og tilvonandi tengdadóttur Kristínu, okkar dýpstu samúðarkveðjur og biðjum Guð að styrkja ykkur á erf- iðri skilnaðarstundu. Blessuð sé minning Guðrúnar. Þín systkini, Ólafur og Birgitta. GUÐRÚN RÓSMUNDSDÓTTIR fískimannaprófi, árið 1930. Eftirþað var hann stýrimaður og skipstjóri á ýmsum bátum, meðal annars á mb. Sæfara og mb. Sjöfn, en þá báta rak hann í félagi við Magnús Guðmunds- son og Ólaf Gunnarsson. Á sjómannaferli sínum var Axel einkar farsæll, virtur og metinn fyr- ir dugnað og drengskap af öllum þeim sem störfuðu með honum eða voru undir hans stjórn. Á árinu 1936 hætti Axel sjómennsku af heilsuf- arsástæðum og gerðist þá verslunar- maður hjá Haraldi Böðvarssyni og Co. Axe! Sveinbjömsson var mikill félagsmálamaður. Hann vann mikið að slysavarnamáium, var meðal ann- ars formaður slysavarnadeildarinnar Hjálparinnar og formaður björgun- arsveitarinnar. Hann var í stjórn Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Hafþórs og formaður í nokkur ár. Hann var formaður Sjómannadags- ins á Akranesi fyrstu fjögur árin eftir að hann var stofnaður. Um það leyti var Bjarnarlaug byggð og ann- aðist hann fjárreiður fyrirtækisins af mikilli festu og skömngsskap. Árið 1942 hóf Axel verslunar- rekstur í húsi því er hann hafði til þess reist við Hafnarbraut. Sérstak- lega verslaði hann með nauðsynjar til skipa og útgerðar og einnig ýmis- legt fleira. Ólafur B. Björnsson lýsir honum þannig í bók sinni „Saga Akraness" 1959: „Hann er mjög lag- inn verslunarmaður, reglusamur og ábyggilegur, snyrtimenni hið mesta og þrifnaðarmaður.“ Þarna verslar hann til ársins 1950 er hann kaupir húsakynni á horni Hafnarbrautar og Suðurgötu og þar stendur verslun hans enn. Ég fiuttist ásamt fjölskyldu minni til Akraness 1955. Þá stóð verslun Axels Sveinbjörnssonar með miklum blóma og fór það orð af henni að þar væri allt til milli himins og jarð- ar. Sömu starfsmennimir störfuðu áratugum saman hjá Axel og sýnir það best að hann var vel látinn af starfsmönnum sinum, jafnt og við- skiptavinum. Axel Sveinbjömsson var maður samviskusemi og heiðar- leika. Hann tók sér ekki oft frí frá störfum sínum, heldur stundaði þau af mikilli kostgæfni. Hann hafði þó mikið yndi af veiðiskap og lét eftir sér margar ferðir til laxveiða með ” ' félögum sínum. Vorið 1956 verða okkar kynni meiri, er hann gerðist leiðsögumaður minn í Oddfellow- regluna. Hann hafði verið félagi í Oddfellowfélaginu Agli Skallagríms- syni, er starfaði á Hvanneyri í Borg- arfírði. Axel var einn af stofnendum Oddfellowstúkunnar nr. 8, Egils á Akranesi, og í fyrstu stjóm stúkunn- ar. Axel starfaði mikið innan stú- kunnar Egils og þar vom honum falin mörg trúnaðarstörf. Við Egils- bræður þökkum honum öll þau störf er hann vann fyrir okkur í mörg ár. Hann var ekki maður margmáll, en hnitmiðaði orð sín við meiningar sín- ar svo að eftir var tekið. Með okkur tókst mikil vinátta, sem alla tíð stóð meðan hann lifði og ekki minnist ég þess að nokkru sinni hafi borið skugga á. Ég heimsótti þau hjón á heimili þeirra í Merkigerði 2, en það hús hafði Axel reist í byijun hjúskapar þeirra og þar bjuggu þau síðan allan sinn búskap. Þar hafði Lovísa búið manni sínum og börnum yndislegt heimili, sem gott var að koma og njóta samvista við gott fólk og höfð- ingsskapar þeirra. Árið 1990 var heilsu þeirra farið að hraka og fluttust þau þá á Dval- arheimilið Höfða í maímánuði. Árið 1992 þurfti Lovísa að fara á Sjúkra- hús Akraness og ári seinna fór Axel þangað líka. Þau höfðu sama her- bergi á E-deild sjúkrahússins. Alltaf hafði Axel jafn gaman af að spjalla þegar ég heimsótti hann og þá aðallega um gamla daga, sjó- mennsku og fiskveiðar. Þarna á sjúkrahúsinu andaðist Lovísa eins og fyrr segir 9. janúar síðastliðinn og var þá eins og eitt- hvað sloknaði í bijósti hans. Við hjónin sendum ástvinum hans ^ okkar innilegustu samúðarkveðjur. Megi góður guð blessa okkur minn- inguna um þessi mætu hjón. Kristján Kristjánsson. t Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, JÓNAS O. SIGURÐSSON, Miðvangi 33, Hafnarfirði, lést mánudaginn 10. apríl. Jarðarförin auglýst síðar. Guðríður Elfasdóttir, Sjöfn Jónasdóttir, Elías Jónasson. t Eiginmaður minn, faöir okkar, tengdafaðir, fósturfaðir, afi og langafi, KRISTINN HELGASON, Hringbraut 87, Keflavfk, lést í Landspítalanum 9. apríl. Jarðarförin auglýst síðar. Málfriður Larsdóttir, Lárus Kristinsson, Kristín Jóhannsdóttir, Þuríður Kristinsdóttir, Arnór Hannesson, Jakobína Jónsdóttir, Gunnar Ólafsson, barnabörn og barnabarnabörn. Islenskur efnivlður íslenskar steintegundir henta margar afar vel í legsteina og hverskonar minnismerki. Eigum jafnan til fyrir- liggjandi margskonar íslenskt efni: Grástein, Blágrýti, Líparít og Gabbró. Áralöng reynsla. Leitið upplýsinga. II IS. HELGAS0N HF STEINSMIÐJA SKEMMUVEGI 48 • SÍMI 91-76677

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.