Morgunblaðið - 12.05.1995, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 1995
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Viðræður við Þjóðverja um
tryggingu fiotkvíar
Koma kvíarinn-
ar mun líklega
tefjast um viku
KOMA flotkvíarinnar sem Akur-
eyrarhöfn hefur fest kaup á og var
afhent í Litháen í liðinni viku tefst
um einhvern tíma, líklega viku.
Ástæðan er sú að sögn for-
manns hafnarstjórnar, Einars
Sveins Olafssonar, að endurtrygg-
ingafélag Vátryggingafélags Is-
lands sem fyrirhugað var að semja
við um tryggingu flotkvíarinnar á
leiðinni frá Litháen til Akureyrar
gerði kröfur sem hafnarstjórn taldi
sig ekki geta gengið að.
Rætt við Þjóðverja
Meðal annars krafðist endur-
tryggingafélagið þess að kvíin yrði
styrkt meira en nú er og að tveir
bátar myndu draga hana yfir haf-
ið í stað eins. „í þessu lágu miklir
fjármunir þannig að við ákváðum
að leita annarra leiða,“ sagði Ein-
ar Sveinn.
Hafnarstjóri og forstjóri Slipp-
stöðvarinnar-Odda eru staddir í
Hamborg þar sem þeir hafa átt
viðræður við þýskt tryggingafélag
og sagði Einar Sveinn í gær að
málið horfði í rétta átt. Annar
fundur verður haldinn í dag og
þá ræðst endanlega hvort samn-
ingar nást við þýska félagið um
tryggingu kvíarinnar.
Lagt af stað í næstu viku
Náist samningar mun dráttar-
báturinn leggja af stað frá Ham-
borg strax í dag áleiðis til hafnar-
borgarinnar Klapeida þar sem kví-
in var smíðuð og vænti formaður
hafnarstjórnar þess að um miðja
næstu viku myndi báturinn leggja
upp með kvína í eftirdragi yfir
hafið. Áætlað er að 3-4 vikur
taki að koma kvínni til Akureyrar.
Unnið er að gerð stæðis fyrir
flotkvína og eru verklok áætluð
7. júní næstkomandi.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Hjólin óspart notuð
TVÍBURABRÆÐURNIR Frið- notað þau óspart til að fara allra
rik og Samúel hafa tekið reið- sinna ferða þessa fyrstu vor-
hjólin sín út úr geymslunni og daga norðan heiða.
Sveitarstjórn Skútustaðahrepps krefst úrbóta á vegi yfir Mývatnsheiði
Hætta vegna aurbleytu
VEGURINN yfir Mývatnsheiði
hefur verið allt að því ófær vegna
aurbleytu eftir að snjóa leysti í
vor. Sveitarstjóm Skútustaða-
hrepps samþykkti í gær ályktun
þar sem skorað er á alþingismenn,
samgönguráðherra og Vegagerð-
ina að bregðast við því ástandi sem
skapast hefur á veginum.
Stórhættulegur vegarkafli
Sigurður Rúnar Ragnarsson
sveitarstjóri Skútustaðahrepps
sagði að um væri að ræða tvo
stutta vegarkafla sem samtals
væm um fimm kílómetrar að
lengd. Þeir hefðu á sínum tíma
ekki verið byggðir upp, en síðar
sett á þá vont burðarlag, mis-
heppnaður Námaskarðsleir. Að
vor- og haustlagi og eins í rigning-
artíð yfir sumarið yrðu þessir veg-
arkaflar stórhættulegir. Sveitar-
stjórinn þekkir það af eigin raun,
en hann varð frá að hverfa eftir
að bíll hans skemmdist þar í gær.
í áskorun sveitarstjórnar er bent
á að undanfarin ár hafi oft skap-
ast hættuástand á veginum og
hefði jafnvel þurft að loka honum
hvað eftir annað vegna aurbleytu.
Ekki er fyrirhugað samkvæmt
vegaáætlun að gera úrbætur fyrr
en árið 1998, en það telur sveitar-
KJARNABYGGÐ
- AKUREYRI
Orlofshúsahverfi við Kjarnaskóg
ÚTBOÐ
Úrbótamenn hf. Akureyri óska eftir tilboðum í að
byggja undirstöður og lagnakjallara ásamt til-
heyrandi lögnum fyrir 10 orlofshús við Kjarna-
skóg, Akureyri. Verktaki skal ennfremur taka við
húsunum á byggingarstað og hífa þau inn á
undirstöður og festa niður. Einnig tilheyrir verk-
inu gerð malarstígs frá húsum að götu.
5 hús skulu vera fullfrágengin eigi síðar en
15. júní nk. Verkinu skal að fullu lokið 31. júlí nk.
Útboðsgögn eru til sölu á Verkfræðistofu
Sigurðar Thoroddsen hf., Glerárgötu 30,
Akureyri, frá og með föstudeginum 12. maí nk.
og kosta þau kr. 5.000. Tilboð skulu hafa borist
Verk-fræðistofu Sigurðar Thoroddsen, Glerárgötu
30, Akureyri, eigi síðar en mánudaginn 22. maí
nk. kl. 14.00 og verða þau opnuð þar í viðurvist
þeirra bjóðenda sem þess óska.
Úrbótamenn hf. Akureyri.
stjórn gjörsamlega ófært, ekki sé
búandi við ástandi svo lengi. Þá
telja sveitarstjórnarmenn vandséð
hvernig nýr vegur yfir Fljótsheiði
sem byijað verður á í sumar nýtist
nema jafnhliða verði hugað að úr-
bótum á Mývatnsheiðinni.
Mikilvæg leið
Benda þeir m.a. á mikilvægi þess
að leiðin sé greið fyrir þá umferð
sem fer um sveitina, þá sem eru á
leið milli Norður- og Austurlands.
„Þessi vegur er helsti tappinn á
þeirri leið,“ sagði Sigurður Rúnar,
„og því þykir okkur rökrétt að huga
að úrbótum á þessum vegarkafla
jafnhliða því sem unnið er að upp-
byggingu betri vegatengingar milli
Norður- og Austurlands."
Sigurður Rúnar sagði Mývetn-
inga ekki ganga svo langt að krefj-
ast þess að fá slitlag á umræddan
vegspotta, en þeir hafa bent á að
einungis er um að ræða 11 kíló-
metra kafla án slitlags á Mývatns-
heiðinni.
„Að okkar mati er ekki búandi
við þetta ástand í fjögur ár í við-
bót, vegurinn er stórhættulegur
og því væntum við þess að úrbæt-
ur verði gerðar fyrr, til að firra
ökumenn vandræðum, kostnaði og
óánægju,“ sagði Sigurður Rúnar.
Skútustaðahrepp-
ur seldi einstak-
lingum tjaldstæði
SKÚTUSTAÐAHREPPUR seldi í
gær Gísla Sverrissyni og fleiri
Mývetningum tjaldsvæði hrepps-
ins við Reynihlíð fyrir 25 milljónir
króna.
Sigurður Rúnar Ragnarsson
sveitarstjóri Skútustaðahrepps
sagði að ákveðið hefði verið að
hreppurinn losaði sig út úr rekstri
tjaldsvæðisins eftir að fram hafi
komið áhugasamir menn sem vildu
standa að þessum rekstri og í boði
hefði verið sanngjamt verð. Alls
væru rekin fjögur tjaldstæði í Mý-
vatnssveit, hreppurinn hefði átt eitt
þeirra en einstaklingár stæðu að
hinum þremur. Óþarfi hefði. þótt
að sveitarfélagið væri í samkeppni
við einstaklinga á þessu sviði.
25-30 þúsund gistinætur
Miklar endurbætur hafa verið
gerðar á tjaldsvæðinu á síðustu
misserum og þar sköpuð ákjósan-
leg aðstaða. Ferðalangar geta val-
ið um gistingu í tjöldum, svefn-
pokapláss með eldunaraðstöðu eða
gistingu í smáhýsum sem á svæð-
inu eru. Alls hafa að meðaltali
verið skráðar á milli 25 og 30
þúsund gistinætur á þessu tjald-
stæði á undanförnum árum.
„Niðurstaðan hjá sveitarstjórn
var sú að hagsmunir sveitarfélags-
ins væru vel tryggðir með þessu
móti,“ sagði Sigurður Rúnar.
Hann sagði óákveðið hvernig það
fé sem fengist með sölu tjaldstæð-
isins yrði notað, „en það er alvég
nóg við þá að gera,“ bætti hann
við.
Ferðafólk er byrjað að sjást í
Mývatnssveit að sögn sveitar-
stjóra, en heldur er enn kuldalegt
um að litast í sveitinni, mikill snjór
enn yfir öllu og fremur kalt.
Frey-
vangsfólk
í Þjóðleik-
húsið
Eyjafjarðarsveit. Morgunblaðið.
FREYV AN GSLEIKHÚ SINU
hefur hlotnast sá heiður að
sýna leikritið Kvennaskólaæv-
intýrið eftir Böðvar Guðmunds-
son með söngvum eftir Garðar
Karlsson, Eirík Bóasson og
Jóhann Jóhannsson í Þjóðleik-
húsinu 11. júní næstkomandi.
Þjóðleikhússtjóri, Stefán
Baldursson, ásamt Sigrúnu
Valgeirsdóttur og Guðrúnu
Stephensen fóru fyrir stuttu og
litu á sýningar áhugaleikfélaga
víðs vegar um landið og varð
niðurstaðan úr þeirri ferð sú,
að Freyvangsleikhúsinu var
boðið að koma með Kvenna-
skólaævintýrið, þannig að nú
geta þær fyrrverandi náms-
meyjar sem ekki treystu sér
norður séð sýninguna í Þjóð-
leikhúsinu í Reykjavík.
Ánægður
Leifur Guðmundsson for-
maður Freyvangsleikhússins
var ánægður með að þessi sýn-
ing skyldi vera talin sú at-
hyglisverðasta á þessum vetri
og lagði áherslu á að margt
hefði hjálpast að, ágætt verk
frá höfundarins hálfu, góð leik-
stjórn Helgu Jónsdóttur og
samstilltur leikhópur.
*
Forseti Is-
lands sér
Guð/jón
FORSETI íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, verður heiðurs-
gestur á síðustu sýningu á leik-
verkinu Guð/jón í Safnaðar-
heimili Akureyrarkirkju næst-
komandi sunnudagskvöld og
hefst sýningin kl. 20.00.
Sýningin var sett upp af
Leikfélagi Akureyrar í tilefni
af Kirkjulistaviku og er sniðin
til flutnings í heimilinu, en 6
leikarar taka þátt í sýning-
unni. Áhorfendur eru leiddir
um húsið og á vegi þeirra verða
atriði og leikpersónur, en verk-
ið íjallar um einsemd mannsins
sem þráir líkn og miskunn.
Tónlist í sýningunni er flutt
af Tjarnarkvartettinum sem
skipaður er Hjörleifi og Krist-
jáni Hjartarsonum, Kristjönu
Arngrímsdóttur og Rósu Krist-
ínu Baldursdóttur, sem jafn-
framt er tónlistarstjóri sýning-
arinnar. Handrit, útlit og leik-
stjórn er í höndum Viðars Egg-
ertssonar, en lýsingu hannaði
Ingvar Björnsson.
Menntasmiðj-
an opin
OPIÐ hús verður í Mennta-
smiðju kvenna, Hafnarstræti
95, 4. hæð í dag, föstudaginn
12. maí, frá kl. 13.00 til 19.00.
Starfsemi Menntasmiðju
kvenna verður kynnt og gest-
um boðið að þiggja veitingar.
Tuttugu konur stunda nám í
menntasmiðjunni, en hú tók til
starfa síðsumars í fyrra.
Bítlahátíð
BÍTLAHLJÓMSVEITIN Six-
ties leikur í Hlöðufelli á Húsa-
vík í kvöld, föstudagskvöld og
annaðkvöld á bítlahátíð í Sjal-
lanum. Hljómsveitin sendir á
næstunni frá sér plötuna
„Bítlaæði". Sixties skipa þeir
Rúnar Örn Friðriksson, Þórar-
inn Freysson, Guðmundur
Gunnlaugsson og Andrés
Gunnlaugsson.