Morgunblaðið - 12.05.1995, Page 22

Morgunblaðið - 12.05.1995, Page 22
22 FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 1995 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Mikíll áhugi á starfi Leikfélags Selfoss Selfossi - Á síðustu 5 árum hefur Leikfélag Selfoss frumsýnt sjö leik- rit þar af sex í fullri lengd. Frá 1958 hefur Leikfélag Selfoss sett upp 45 leikverk. Á nýliðnum vetri sýndi félagið þijú leikrit, tvö fyrir fullorðna og eitt fyrir böm. Þetta eru leikritin Beðið eftir Godot, und- ir leikstjórn Eyvindar Erlendssonar og Íslandsklukkuna sem Vigdís Jónsdóttir leikstýrði og Bangsímon undir leikstjóm Katrínar Karlsdótt- ur. Mikill áhugi er á starfi leikfé- lagsins og hefur aðsókn að verkun- um verið góð og þeim mjög vel tek- ið. Við uppsetningu íslandsklukk- unnar komu nokkrir af eldri félög- um til starfa og vógu þungt í góðri uppsetningu verksins. I fréttabréfi Leikfélags Selfoss segir meðal annars: „Til að leiðrétta landlægan misskilning skal það áréttað að þetta er eingöngu áhuga- starf og enginn fær greitt fyrir vinnu sína nema leikstjórar og ekki einu sinni alltaf þeir. Á útlensku emm við sem í þessu stöndum köll- uð amatörar sem er réttnefni því það þýðir, „þeir sem elska“ og það er víst ástæða alls þessa brambolts, leiklistin er stór ást í lífi áhugaleik- ara.“ Leikfélag Selfoss starfrækir leikhúsið við Sigtún á Selfossi. Þar var fyrsti barnaskólinn til húsa fyrir nokkrum áratugum og Iðn- skólinn á Selfossi áður en Fjöl- brautarskólinn á Suðurlandi varð fullvaxta. Mikill vilji er hjá félaginu að bæta húsakost leikhússins og búa vel að leikurum og áhorfend- um. 40 sm hár er þriggja ára gamalt í endann og að meðaltali hefur það verið þvegið 600 sinnum og burstað 2100 sinnum. Það reynir á! Þegar hárið slitnar hverfur náttúrulega bindiefnið (ceramide) sem límir hornþekjuna við kjarnann. Hárið hrörnar og missir mýkt, y styrk og gljáa. A rannsóknastofum L'OREAL hefur lengi verið unnið að lausn vandamálsins og nú hefur tekist að þróa nýtt bipdiefni sem L'OREAL hefur fengið einkarétt á - CERAMIDE R* - sem kemur í stao þess sem glatast. CERAMIDE R* binst hárinu og gefur því fyrri styrk - glataða æsku - á ný. Nýja hársnyrtilínan frá L'ORÉAL, FORTIFIANCE, er sú eina sem inniheldur CÉRAMIDE R*. Gagnstætt öðrum hársnyrtivörum vinnur FORTIFIANCE ekki utan á hárinu, heldur styrkir það innan frá og vinnur þannig á móti hrörnun þess. Hárið verður sterkt, mjúkt og gljáandi á ný. LORÉAL SJAMPÓ OG NÆRINGAR MEÐ CÉRAMIDE R* SÝNILEGUR ÁRANGUR Á 3 VIKUM SLITIÐ HÁR VERÐUR SEM NVTT! FORTIFIANCE mm&R GUÐMUNDUR Einarsson. Útigönguhöfði 1955. Vatnslitir á pappír. Kjarvalsstaðir Þrjár myndlist- arsýningar ÞRJÁR myndlistarsýningar verða opnaðar á Kjarvalsstöðum laugar- daginn 13. maí. Yfirlitssýning í vestursal á vatnslitamyndum eftir Guðmund Einarsson frá Miðdal, í tilefni af aldarminningu lista- mannsins, sýning á teiknimynda- sögum eftir Bjarna Hinriksson í vesturforsal og sýning á nýjum verkum eftir Kristján Steingrím Jónsson. Sýningamar verða opnar daglega frá kl. 10-18 og er kaffi- tería Kjarvalsstaða opin á sama tíma. Guðmundur frá Miðdal Vatnslitamyndir Guðmundar frá Miðdal eru afmarkaður kafli á löngum og fjölþættum listferli hans. Hann fékkst við vatnsliti í æsku, lagði þá síðan til hliðar í áratugi, en tók upp þráðinn að nýju um 1950. Sýningu Guðmundar frá Miðdal fylgir sýningarskrá með ritgerð eftir Kristínu Guðnadóttur list- fræðing og litmyndum af völdum vatnslitamyndum eftir listamann- inn. Bjarni Hinriksson „Á síðastliðnum misserum hefur Listasafn Reykjavíkur á Kjarvals- stöðum lagt sig fram við að veita óhefðbundnum listrænum viðburíÞ um sífellt meira rými í starfsem- inni,“ segir í tilkynningu. Að þessu sinni er efnt í fyrsta sinn til einka- VORTÓNLEIKAR Kórs Átthaga- félags Strandamanna verða sunnudaginn 14. maí í Seljakirkju og hefjast þeir kl. 17. Á efnisskránni eru innlend og erlend lög. Einig leikur Malcolm Holloway á trompet. Kór Átthagafélags Stranda- manna hefur starfað nær óslitið síðan 1958 og eru kórfélagar nú 36. sýningar á teiknimyndasögum eft- ir Bjarna Hinriksson. Sýndar verða frummyndir af nýjum teikni- myndasögum og myndefni sem fyrst og fremst tengist draumum listamannsins og persónulegri reynslu. í tilefni af sýningu Bjarna hefur verið gefin út bók með völdum myndasögum eftir listamanninn og grein eftir Jón Karl Helgason þar sem hann fjallar sérstaklega um sögurnar Tryggðartröll og Kirkjan í fjallinu. Krislján Steingrímur Á undanförnum misserum er óhlutbundna málverkið á ný komið í sviðsljósið meðal yngri mynd- listarmanna. Kristján Steingrímur Jónsson er einn þeirra listamanna sem hafa tileinkað sér óhlutbundið myndmál, en þó með nýjum áhersl- um þar sem hann notfærir sér aðferðarfræði og myndhugsun konsept-listarinnar. Myndverk Kristjáns Steingríms eru sett sam- an úr iðnaðarteikningum og stærðfræðilegum táknum. Þau bera með sér vísindalegar tilvísan- ir handan við myndrammann en miðla um leið ljóðrænni náttúru- sýn. I tengslum við sýninguna hefur verið gefin út sýingarskrá með ritgerð eftir Ólaf Gíslason gagn- rýnanda auk fjölda mynda af verk- um listamannsins. í desember gaf kórinn út geisla- plötu með úrvali af því efni sem kórinn hefur flutt á síðustu árum. Annast kórfélagar sjálfir dreifingu hennar. Stjórnandi Kórs Átthagafélags Strandamanna er Erla Þórólfs- dóttir og píanóleikari er Laufey Kristinsdóttir. Listnemar heimsækja Ólafsfjörð og Dalvík ÞAR sem nemendur Mynd- listarskólans á Akureyri koma víðsvegar að, hefur í ár verið ákveðið að brydda upp á þeirri nýjung að vera með farandsýningu í ná- grannabæjum Akureyrar. Nemendur fomámsdeildar, fyrsta og annars árs grafí- skrar hönnunar og málunar- deildar sýna þar verk sín. Laugardaginn 13. maí verður sýningin haldin í Barnaskólanum á Ólafsfirði og sunnudaginn 14. maí í Safnaðarheimilinu á Dalvík, báðar sýningamar hefjast kl. 14 og standa til kl. 18. Á staðnum verður kaffísala og auk kynningar á starfsemi skólans og gefst sýningar- gestum kostur á að fá teikn- aðar af sér andlitsmyndir. „Með lífið í lúkunum“ á Vopnafirði LEIKFÉLAGAR á Vopnafírði frumsýna leikritið „Með lífið í lúkunum", trylli í tveim þátt- um eftir Ira Levin, í félags- heimilinu Miklagarði í kvöld kl. 20.30. Önnur sýning verður 14. maí og hin þriðja 15. maí. Allar sýningamar hefjast kl. 20.30. Þá er fyrirhuguð sýn- ing á Borgarfirði eystra laugardaginn 20. maí. Leikstjóri er Aldís Bald- vinsdóttir. Símakórinní Seljakirkju SÍMAKÓRINN, kór félags íslenskra símamanna, heldur vortónleika í Seljakirkju á laugardag 13. maí kl. 17. Auk hans koma fram á tónleikunum kór MFA, menn- ingar og fræðslusamband al- þýðu og Karlakór Reykjavík- ur, eldri félagar. Stjómendur kóranna em Kjartan Siguijónsson og Kjartan Ólafsson, en undir- leikari Hólmfríður Sigurðar- dóttir. Græna smiðjan H AND VERKSHÚ SIÐ Græna smiðjan, Breiðumörk 26, í Hveragerði heldur upp á eins árs afmælið sunnudag- inn 14. maí. Þá gefst kostur á að fylgjast með handverks- fólki að störfum og sjá meðal annars pappírsgerð og körfu- gerð, boðið verður upp á ís- lenskt jurtate og gulrótar- kökur. I handverkshúsinu eru til sýnis og sölu handunnir mun- ir unnir úr hráefni sem feng- ið er úr jurtaríkinu, svo sem skartgripir, tréleikföng, leir- munir, þurrskreytingar, kransar, vefnaður, kort og tágakörfur, auk ýmissa óvenjulegra afurða úr ís- lenskum jurtum svo sem jurt- asápur, nuddolíur, leirmask- ar, jurtatre, kryddolíur og fleira. Allir eru velkomnir. KÓR Átthagafélags Strandamanna. Innlend og erlend lög

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.