Morgunblaðið - 16.05.1995, Page 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 1995
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Lakeshore með þrjár kvik-
myndir á prjónunum
Hollywood. Variety.
LAKESHRE Entertainment, fimm
mánaða gamalt fyrirtæki Siguijóns
„Joni“ Sighvatssonar, hefur ákveðið
gerð þriggja kvikmynda, og þar með
kemur óvenjulegur samningur þess
við Paramount-kvimyndaverið (Par)
til framkvæmda.
Siguijón sagði í samtali við Daily
Variety að Lakéshore mundi fjár-
magna kvikmyndimar að öilu leyti
og helminginn af kynningar- og aug-
lýsingakostnaði í samræmi við samn-
inginn við Paramount.
Par fær sýningarrétt innanlands,
en Lakeshore erlendis, og filmumar
verða eign Lakeshores. Lakeshore
hefur frelsi til að ákveða hvaða
myndir eru gerðar og Siguijón segir
að fyrirtækið hyggist framleiða fyrir
kvikmyndaverið um Ijórar kvikmynd-
ir á ári, sem hver muni kosta 15-25
milljónir dollara.
' Hefur mikið svigrúm
Stofnandi Lakeshores, Tom Ros-
enberg, mun hafa náið samstarf með
Siguijóni, en hefur veitt honum
óvenjumikið svigrúm til þess að
stjórna fyrirtækinu.
„Joni gerði Propaganda Films að
100 milljóna dollara fyrirtæki á að-
eins fimm árum,“ sagði Rosenberg.
„Eg er mjög hrifínn af verkefnunum,
sem hann hefur valið fyrir Lakeshore
á jafnstuttum tíma.“
Höfundur og leikstjóri fyrstu kvik-
myndar Lakeshores, 5 milljóna doll-
ara myndar sem kallast Box of Mo-
onlight, er Tom DiCiIlo, leikstjóri
Johnny Suede, sem einnig we kunnur
fyrir Living in Oblivion.
Hermt er að viðræður um að John
Turturro fari með aðalhlutverkið í
Box séu langt komnar og myndataka
Samningur Sig’iir-
jóns Sighvats-
sonar við Para-
mount kemur
til framkvæmda
á að hefjast í júlí. Um er að ræða
óvenjulega gamanmynd um mann,
sem frelsast þegar hann híttir af til-
viljun ungan og uppreisnargjarnan
dreng.
Fyrirtækið hefur einnig ráðið leik-
stjóra The Adventures of Priscilla,
Queen of the Desert, Stephan Elli-
ott, til þess að stýra gerð 15 milljóna
dollara kvikmyndar eftir handriti
hans, Eye of the Beholder. Myndin
fjallar um spæjara, sem verður ást-
fanginn af konu sem er fjöldamorð-
ingi.
Lakeshore býr sig einnig undir
gerð 20 milljóna dollara rómantí-
skrar gamanmyndar eftir höfunda
rómaðs framhaldsþáttar í sjónvarpi,
My So-Called Life. Leikstjóri þátt-
anna, Scott Winant, semur kvik-
myndarhandrit og leikstýrir. Verkið
kallast Till There Was You. Viðræður
standa yfir við Jeanne Tripplehorn
um að hún fari með aðalhlutverk.
Siguijón Sighvatsson á í lokavið-
ræðum við Paramount um sameig-
inlega framleiðslu 10 milljóna doliara
gamanmyndar með Lorne Michaels
byggða á rómuðum, kanadískum
framhaldsmyndaflokki, Kids in the
Hall. Leikstjórinn yrði einn stjórn-
enda sjónvarpsþáttarins, Kelly Mak-
in, og framleiðsla gæti hafizt eftir
tvo mánuði.
Lakeshore hefur einnig í bígerð
kvikmynd eftir skáldsögunni Now
You See Her eftir Whitney Otto,
höfund métsölubókarinnar How to
Make an American Quilt. Kvikmynd-
in Now You See Her fjallar um þijár
konur, sem hafa þekkzt síðan í há-
skóla og fara í ferðalag í tilefni af
því að þær verða fertugar. Handritið
er eftir Hanna Weg.
Sérstæðar myndir
Lakeshore hefur komið á fót sér-
stakri deild, sem mun framleiða ódýr-
ar kvikmyndir fyrir sérstaka áhuga-
hópa, á borð við Red Rock West, og
verður deildin undir stjórn Julie Gold-
en.
Siguijón vinnur einnig að gerð
annarrar óvenjulegrar kvikmyndar
upp á 4 milljóna dollara ásamt Ros-
enberg. Um er að ræða rómantíska
gamanmynd, sem kallast Just Look-
ing og er með James LeGros og
Michelle Forbes í aðalhlutverkum.
Banque Paribas tekur þátt í kostnaði
af kvikmyndagerðinni, sem er að
mestu lokið.
Siguijón segir að hann muni ráð-
færa sig við framkvæmdastjóra Par-
amounts í sambandi við öll verkefni
Lakeshore, sem kvikmyndaverið
dreifir. „Mjög þægilegt er að vita
að framleiðandi á við Sherry Lansing
stjómar verinu," sagði Sigurjón.
Lakeshore hyggst einnig hasla sér
völl í sjónvarpi og margmiðlun, en
ekki fyrr en kvikmyndadeildin verður
farin að starfa af krafti.
Lakeshore er í eignatengslum við
Capital Associates, fasteignafyrir-
tæki í Chicago upp á einn og hálfan
milljarð doilara í eigu Rosenbergs
og Terry McKays.
Síldarvinnslan hf.
Almennt hlutafjárútboð
Útgefandi:
Sölutímabil:
Forkaupsréttur:
Nafnverð hlutabréfanna:
Sölugengi:
Sölutrygging:
Söluaðilar:
Skráning:
Umsjónaraðili útboðs:
Útboðs-
Síldarvinnslan hf.
16. maí 1995 - 16. september 1995.
Hluthafar hafa forkaupsrétt að hlutabréfum félagsins á tímabilinu
16. maí til 7. júni. Þau hlutabréf sem óseld kunna að verða að loknu
forkaupsréttartímabili mun félagið selja á almennum markaði frá 12. júní.
56.000.000
2,57
Kaupþing hf., löggilt verðbréfafyrirtæki, ábyrgist sölu bréfanna
á genginu 2,57 við lok útboðstímabilsins.
Kaupþing hf., Kaupþing Norðurlands hf., Landsbréf hf.,
Samvinnubréf Landsbankans, Fjárfestingarfélagið Skandia hf., _
Verðbréfamarkaður íslandsbanka hf., Handsal hf., afgreiðslur
sparisjóðanna og Búnaðarbanka Islands.
Hlutabréf Síldarvinnslunnar hf. eru skráð á Verðbréfaþing íslands.
Sótt liefur verið um skráningu þess viðbótarhlutaljár sem nú er boðið út.
Kaupþing hf.
og skráningarlýsing liggur frammi hjá söluaðilum og útgefanda.
KAUPÞING HF
löggilt verdbréfafyrirtœki
Kringlan 5. 103 Reykjavik - Sími 91-689080. telefax 91-812824
Vísbendingar um eftirspurn eftir vinnuafli
í apríl 1994 og 1995
Forráðamenn 240
fyrirtækja vildu fjölga
starfsmönnum um 145
nú í apríl, en í apríl (fyrra
töldu þeir að fækka þyrfti
um samtals365.
SAMDRÁTTUR
VOXTUR
135
Byggingarstarfsemi
Verslun og veitingastaðir
April 1995
itfej Apríl 1994
-45ff3 Onnur þjónustustarfsemi
........—: ......-^^—14S
_15p Sjúkrahúsrekstur
-201
Atvinnuleysi og laus störf
á vinnumarkaði 1985-95
sem hlutfall af mannafla
Atv innule ysi-\
A íJ
V K i K h j
fxj \á
A i rL aus st< irf
'85 ’86 '87 '88 1989 1990 1991 1992 1993 1994 '95
ASASASASJASJASJAS JAS'JASJASJA
Könnun Þjóðhagsstofnunar leiðir
í ljós veruleg umskipti á vinnumarkaði
Atvinnurekend-
ur vilja fjölga
fólki um 0,2%
Mest þörf á fjölgun í byggingariðnaði
og fiskvinnslu á landsbyggðinni
ATVINNUREKENDUR í 240 fyrir-
tækjum á landinu öllu töldu æskilegt
að fjölga um 145 starfsmenn í apríl
sem er um 0,2% af áætluðum mann-
afla. Hér er um að ræða veruleg
umskipti frá sama tíma fyrir ári þeg-
ar atvinnurekendur vildu fækka um
365 manns. Þá er þetta í fyrsta sinn
frá árinu 1991 sem könnunin leiðir
í ljós þörf á fjölgun starfsmanna.
Þetta kemur fram í könnun Þjóð-
hagsstofnunar þar sem atvinnurek-
endur eru beðnir um að meta hvort
þeir telji starfsmannafjölda hæfileg-
an miðað við umsvif fyrirtækjanna í
mánuðinum. Ef fram kom vilji tii
breytinga voru þeir beðnir um að
meta hversu marga þyrfti að ráða
eða segja upp.
Af einstökum atvinnugreinum var
talin mest þörf á fjöigun í bygginga-
starfsemi en þar töldu atvinnurek-
endur þörf á 135 manns til viðbótar.
Þetta er um 1,6% af áætluðum mann-
fjölda í greininni. í fiskiðnaði á lands-
byggðinni var talin þörf á að fjölga
um 125 manns, sem er um 2% af
áætluðum mannafla í greininni á
landsbyggðinni.
Hins vegar var talin mest þörf á
fækkun í iðnaði á höfuðborgarsvæð-
inu en þar vildu atvinnurekendur
fækka um 85 manns eða sem svarar
til um 1,2% af áætluðum mannafla.
Fækkunin kemur nær eingöngu fram
í málm- og skipasmíðaiðnaði.
Á höfuðborgarsvæðinu vildu at-
vinnurekendur fækka um 110 manns
sem er um 0,2% af áætluðum mann-
afla en á landsbyggðinni vildu þeir
fjölga um 255 manns eða um 0,9%
af áætluðum mannafla. Munar þar
mest um fjölgun í fiskiðnaði og bygg-
ingarstarfsemi. Framboð sum-
arstarfa er um 14.300 í sumar sem
er heldur meira en á sama tíma í
fyrra.
„Þessi könnun bendir í aðalatrið-
um til þess að ástandið á vinnumark-
aðnum sé hægt og sígandi að batna,“
segir Þórður Friðjónsson, forstjóri
Þjóðhagsstofnunar. „Þetta er í fyrsta
skipti síðan 1991 sem atvinnurek-
endur telja aðstæður vera þannig að
rétt sé að fjölga starfsfólki. Allar
fyrri kannanir sýndu tilhneigingu til
þess að draga saman í starfsmanna- |
haldi. Það er í samræmi við það sem
annað efni gefur til kynna. Bæði
má benda á það að auglýsingar eftir
starfsfólki virðast vera fyrirferðar-
meii'i heldur en áður og eins virðast
vera meiri umsvif víða heldur en
verið hefur. Atvinnuleysið er þó enn
töluvert mikið og á fyrstu mánuðum
þessa árs var það sambærilegt og í
sömu mánuðum í fyrra.“
Landsbyggðin að sækja
í sig veðrið
Þórður sagði það athyglisvert að
landsbyggðin væri greinilega að
sækja í sig í veðrið - mun meira en
höfuðborgarsvæðið. „Mest er eftir-
spurnin eftir fólki í fiskiðnaði en það
er einnig athyglisvert að byggingar-
starfsemi virðist aðeins vera að auka
við sig, þó það sé ekki ýkja mikið.
Þetta er stór grein og væntanlega
kemur helst á vorin fram tilhneiging
í þessa áttina. Þegar tölur fyrir bygg-
ingarstarfsemi eru skoðaðar fyrir
allan tímann hefur ekki áður á þess-
um tíma árs frá 1991 verið vilji til
að fjölga starfsfólki. <
Það er alveg ljóst að samdráttartil-
hneigingin er einna mest í þjónustu-
greinunum, sérstaklega á höfuðborg-
arskeiðinu. Eins eru greinilega erfið-
leikar í vissum hlutum iðnaðar og
það tengist sérstaklega einni grein,
þ.e. skipasmíðaiðnaðinum og málm-
smíði. Annars staðar er meira jafn-
vægi í eftirspurn sem er í samræmi
við það að iðnaður hefur verið að
sækja í sig veðrið. Meðal annars
hefur útflutningsiðnaður aukið tölu-
vert framleiðslu sína.“