Morgunblaðið - 16.05.1995, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
PflLLflWflLFUN
Gillian Sveinsson þolfimikennari heldur eins dags
verklegt námskeið í PALLAÞJÁLFUN með tveimur
pöllum fyrir kennara og áhugafólk um pallaþjálfun.
m TÆKNIÞJÁLFUN
■ PALLAÞJÁLFUN
■ SAMSETNINGAR MEÐ
TVEIMUR PÖLLUM
Námskeiðið hefst
laugardaginn
20. maíkl. 12.00 -16.30
Notið tækifærið
og lærió eitthvað nýtt!
Aóeins þetta eina námskeið!
Takmörkuð þátttaka!
Skráning og nánari upplýsingar
í Mætti í síma 568 9915.
VIÐSKIPTI
Þjóðaratkvæði um ljósvakamiðla á Ítalíu
Rupert Murdoch með
hræðsluáróður
Mílanó. Reuter.
VINSTRI menn hafa sakað Silvio
Berlusconi, fyrrverandi forsætis-
ráðherra Ítalíu, um að koma af stað
umtali um að ástralski fjölmiðla-
kóngurinn, Rupert Murdoch, hafí
hug á að kaupa sjónvarpsstöðvar
hans þijár.
Talsmenn vinstri lýðræðisflokks
fyrrverandi kommúnista, PDS,
segja að Berlusconi og Fininvest,
fjölmiðlafyrirtæki hans, reyni að
vekja ugg um að ítalskt sjónvarp
komist í hendur útlendinga til þess
að afstýra ósigri í þjóðaratkvæði
um Ijósvakamiðla 11. júní.
„Fininvest vill vekja andúð á
þjóðaratkvæðagreiðslunni og löguin
gegn einokun á sjónvarpi," sagði
málsvari PDS í fjölmiðlamálum,
Vincenzo Vita. „Fininvest vill
minnka eignaraðild sína og skapa
hræðslu um leið með erlendu fjár-
magni,“ sagði Vita í flokksmál-
gagninu L’Unita.
Óformlegt tilboð
Fininvest er annað stærsta fjöl-
miðlafýrirtæki Evrópu og'skýrði frá
því á föstudag að það hefði til at-
hugunar tilboð frá fyrirtækí
Murdochs, News Corp, um kaup á
sjónvarpsrásunum Rete Quattro,
Canale 5 og Italia Uno og auglýs-
M0K6l\
BLADSINS
Brúbkaup
í blíbu og stríbu
Sunnudagsblaði Morgunblaðsins, 28. maí nk., fylgir blaðauki sem heitir
Brúðkaup - í blíðu og stríðu. í þessum blaðauka verður fjallað um fatnað
brúðhjóna, athöfnina sjálfa, undirbúninginn, veisluna og brúðkaupsferðir,
bæði innanlands og utan. Rætt verður við hjón sern hafa verið gift Iengi
og önnur sem eru nýgift eða á leið í hjónaband. Þá verður litið á
giftingarhringa, brúðarmyndir og brúðarvendi, skreytingar og gjafir og
vöngum velt yfir siðum og venjum sem skapast hafa í kringum brúðkaup.
Þeim sem áhuga hafa á að auglýsa í þessum blaðauka er bent á að
tekið er við auglýsingapöntunum til kl. 17.00 föstudaginn 19. maí.
Nánari upplýsingar veita Rakel Sveinsdóttir og Dóra Guðný
Sigurðardóttir, sölufulltrúar í auglýsingadeild, í síma 569 1171 eða
með símbréfi 569 1110.
-kjarni málsins!
FJÖLMIÐLAKÓNGURINN ítalski og forsætisráðherrann fyrrver-
andi, Silvio Berlusconi, er sakaður um að dreifa hræðsluáróðri á
Italiu fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um ljósvakamiðla sem verður
þar í landi 11. júní nk.
ingaskrifstofu fyrirtækisins.
News Corp staðfesti að fyrirtæk-
in hefðu haft samband sín í milli,
en sagði að ekkert ákveðið tilboð
lægi fyrir og kvað fréttir um tilboð
upp á 2,8 milljarða dollara orðum
auknar.
Heimildir í fyrirtækinu herma að
engin ákvörðun verði tekin fyrr en
eftir þjóðaratkvæðið í júní.
Hagnaður Ericson
jókst um nærhelming
Kaupnmnnahöfn. Morgunblaðið.
SPAR símafyrirtækisins LM Erics-
son í ársbyrjun um að það stefndi
í gott ár hjá fyrirtækinu virðast
ætla að rætast. Á fyrsta ársfjórð-
ungi ársins jókst hagnaður þess
fyrir skatt um 48 prósent, miðað
við sama tímabil árið áður og er
nú sem samsvarar tólf milljörðum
íslenskra króna. Lars Ramqvist,
framkvæmdastjóri fyrirtækisins,
bendir á að undanfarið þijú og hálft
ár hafi pantanir aukist jafnt og þétt.
Jafnhliða hagstæðri útkomu hef-
ur fyrirtækið nýlega gert stóra
samninga um sölu og uppsetningu
símakerfa. í Osaka mun fyrirtækið
til dæmis setja upp farsímastöð að
verðmæti tíu milljarða íslenskra
króna og í Brasilíu reisir fyrirtækið
aðra stöð að verðmæti sex milljarða
íslenskra króna.
LM Ericsson er stærsti framleið-
andi símakerfa fyrir farsíma og
þriðji stærsti framleiðandi farsíma-
tækja. Meira en fjörutíu prósent
þeirra, sem nota farsíma, eru tengd
kerfum frá fyrirtækinu. Markaðs-
hlutdeild þess á farsímatækjamark-
aðnum er tíu prósent. Mikill vöxtur
á þessum markaði kemur því fyrir-
tækinu mjög til góða og Lars Ram-
qvist hefur látið svo um mælt að
þetta sé aðeins upphafið fyrir far-
símaiðnaðinn. Næststærsti fram-
leiðandi farsíma er finnska fyrir-
tækið Nokia, en skýringin á vel-
gengni norrænna fyrirtækja liggur
meðal annars í hve snemma tókst
að koma á norrænu farsímakerfi,
svo markaðurinn tók fljótt við sér.
Norðurlönd eiga heimsmet í far-
símavæðingu.
I M P E X
Sterkt • auðvelt • fljótlegt
Hillukerfi
sem allir geta sett saman
í~n r
i
I
0DEXION SINDRI
-sterkur í verki
BORGARTÚNI 31 ■ SÍMI 62 72 22