Morgunblaðið - 13.06.1995, Side 2

Morgunblaðið - 13.06.1995, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Stöðuveiting setur meirihluta- samstarf í Hafnarfirði í hættu Úrslit ráðast í bæjarstjóm BÆJARRÁÐ Hafnarfjarðar sam- þykkti að vísa til bæjarstjórnar til- lögu Magnúsar Gunnarssonar, odd- vita Sjálfstæðisflokks, um ráðningu Bjöms Inga Sveinssonar jarð- skjálftaverkfræðings í stöðu for- stöðumanns framkvæmda- og tæknisviðs. Jóhann G. Bergþórsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks og einn umsækjenda um stöðuna, segir að með þessari tillögu hafi Magnús brotið samning sem bæjarfulltrúar meirihlutans skrifuðu undir í fyrra. Magnús segist engan samning hafa brotið. Á fundi bæjarráðs í gær gerði undimefnd bæjarráðs grein fyrir við- tölum sínum við umsækjendur um starfið. Að því loknu lagði Magnús fram tillögu um að Björn Ingi yrði ráðinn. Ellert Borgar Þorvaldsson, bæjarfuiltrúi Sjálfstæðisflokks, bók- aði að viðtekin venja í meðferð um- sókna sem þessara væri að bæjarráð vísaði þeim til bæjarstjómar. Bæjarráðsmenn Alþýðuflokks lögðu til að tillögu Magnúsar yrði vísað til bæjarstjórnar og var það samþykkt. Jóhann G. Bergþórsson segist taka afstöðu til tillögunnar um ráðn- ingu þegar niðurstaða liggi fyrir á fundi bæjarstjómar í dag. Hann muni sitja fund bæjarstjórnar og vÆja sæti eða kalla inn varamann þegar komi að afgreiðslu málsins. Flokkurinn styður oddvita sinn Magnús Gunnarsson segir að hann hafi mælt með Birni Inga á þeirri forsendu að hann væri hæfast- ur. Bæjarmálahópur Sjálfstæðis- flokksins í Hafnarfirði hittist síðdeg- is í gær og segir Magnús að þar hafi, líkt og venja væri, verið farið yfir verkefni næsta bæjarstjórnar- fundar. „Það er óhætt að segja að flokkurinn styður oddvita sinn,“ seg- ir Magnús. Aðspurður hvort hann telji meirihlutann í hættu svarar Magnús að Jóhann sé einn umsækj- enda, en hann geti ekki stutt hann þar sem það fari ekki saman að vera bæjarfulltrúi og bæjarverk- fræðingur. „Ég vil ekki spá um hvaða áhrif þetta mál hefur á meiri- hlutasamstarfið." Viðbúnaður vegna ammoníaksleka LÖGREGLA og slökkvilið höfðu mikinn viðbúnað er vart varð við ammoníaksleka í frystigeymslum Granda hf. á Grandagarði í Reykja- vík í gærkvöldi. Lögreglan rýmdi Kaffivagninn, sem stendur við hlið hússins, og lokaði Grandagarði fyr- ir allri umferð á meðan slökkviliðs- menn, sem voru sérbúnir til að fást við eiturefnaslys, fóru inn í fisk- vinnsluhúsið ásamt vélstjóra hjá Granda. Ammoníak reyndist þar leka úr kælileiðslu í vélasal, sennilega vegna bilaðrar pakkningar, og lagði megnan fnyk af efninu um næsta nágrenni. Slökkviliðsmönnum tókst í annarri tilraun að skrúfa fyrir leiðsluna og stöðva lekann. Ammoníak er víða notað í kæli- kerfum frystihúsa. Efnið er ban- vænt, nái mettun þess í andrúms- lofti 0,5 -1% og var því talin ástæða til að halda almenningi frá svæð- T Morgunblaðið/Júlíus inu. Sjúkrabílar voru til taks og var slysadeild Borgarspítalans gert að- vart, kynni að þurfa að meðhöndla fólk vegna eitrunar. Að sögn varð- stjóra hjá slökkviliðinu var þó aldr- ei nein hætta á ferðum. Flugleiðavél lenti á einum hreyfli í gær Morgunblaðið/Júlíus FLUGVÉL Flugleiða í aðflugi á einum hreyfli. Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi Flugleiða, segir að flugstjórinn hafi brugðist hárrétt við þegar hann ákvað að drepa á öðrum hreyfli vélarinnar. Ohugnanlegt að sjá hreyfilinn stöðvast Morgunblaðið/Golli KATRÍN Theódórsdóttir var fegin að hafa fast land undir fótum eftir flugferðina frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur. FLUGVÉL Flugleiða á leið frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur með um fimmtíu farþega lenti á einum hreyfli á Reykjavíkurflug- velli um sjöleytið í gærkvöldi. Lendingin gekk að óskum, að sögn Einars Sigurðssonar blaða- fulltrúa Flugleiða, og fullyrðir hann að engin hætta hafi verið á ferðum. „Þegar vélin var komin áleiðis kom merki um lækkandi olíu- þrýsting á öðrum hreyflinum," sagði Einar. „Flugstjórinn fór eft- ir viðurkenndum vinnureglum og tók þá ákvörðun að drepa á öðrum hreyfli vélarinnar. Vélin lenti síð- an eðlilega á einum hreyfli," sagði hann. Einar segir að við skoðun vélar- innar í gærkvöldi hafi komið í ljós leki í olíukerfinu. Skipt hafí verið um varahluti en vélin verði prufu- keyrð í dag. „Öll viðbrögð voru samkvæmt bókinni og flugstjór- inn brást því hárrétt við,“ sagði Einar. Hefði átt að fara með Herjólfi „Mér hefði verið nær að fara með Heijólfi,“ sagði Katrín Theó- dórsdóttir sölumaður og einn far- þega Flugleiðavélarinnar. Hún sagði að óhugnanlegt hafi verið að verða vitni að því þegar annar hreyfill vélarinnar stöðvaðist. „Hjarta mitt stoppaði eitt augna- blik um leið og ég gerði mér grein fyrir því að drepist hefði á hreyfl- inum. Ég hugsaði með mér að þetta hlyti að vera mitt síðasta," sagði Katrín. „Eftir nokkra stund ávarpaði flugstjórinn okkur í kallkerfinu og sagði að nauðsynlegt hefði reynst að drepa á öðrum hreyflin- um. Bæði hann og flugfreyjan fullyrtu að engin hætta væri fyrir hendi. Þau náðu þó ekki að hug- hreysta mig að fullu því að ég er svo hræðilega flughrædd," sagði hún. Of langur tími leið Katrín sagði að allir hafi staðið sig vel, flugfreyjan hafi verið ynd- isleg og farþegar rólegir. „Mér hefði þó fundist að þeir hefðu átt að segja okkur allt af létta mun fyrr. Mér fannst of langur tími líða frá því að hreyfillinn stoppaði og þangað til flugstjórinn ávarp- aði okkur í kallkerfinu," sagði hún að lokum. Milljóna- tjón vegna vatnavaxta MILLJÓNATJÓN hefur orðið vegna vatnavaxta og aurskriða á norðan- verðu landinu. Mest varð tjónið þeg- ar Fnjóská gróf undan nýlegri brú yfir í Vaglaskóg, og í gærkvöldi komu í Ijós talsverðar skemmdir við brúna yfir Glerá á Akureyri. Einnig varð umtalsvert tjón í Sveinbjarnar- gerði á Svalbarðsströnd á sunnudag. Vatnsdalur í A-Húnavatnssýslu er nú eins og fjörður yfir að líta. Gróðurlendi hefur víða spillst, vegir grafist í sundur og girðingar eyði- lagst. Áfram er talin hætta á aur- skriðum um allt miðnorðurland, og voru hjálparsveitarmenn í viðbragðs- stöðu í nótt í Steinhólaskála við Sölvadal í Eyjafirði. Þá er fylgst vel með í Svarfaðardal, Höfðahverfi og á öðrum svæðum í utanverðum Eyja- firði. ■ Viðvarandi skriðuhætta/12 iViorguiiuiaoi(j/ivuHa.r UNNIÐ var að viðgerð við Glerárbrú í gærkvöldi, en eystri akreininni yfir hana var lokað á meðan. Skrúfuðu frá brunaslöngu á Esju TVEIR drengir gerðu sér að leik síðdegis í gær að skrúfa frá bruna- slöngu á brunagangi á þriðju hæð Hótel Esju og fossaði vatn alla leið niður í kjallara. Drengjunum var tvívegis vísað út af hótelinu í gær, fyrst fyrir að leika sér í lyftu og síðan fyrir að fikta í hurð. Þeir eru síðan taldir hafa komist inn bakdyramegin og inn á brunagang. Starfsmaður hót- elsins sagði að hann teldi þá hafa verið 8-10 ára gamla. Búið var að skrúfa fyrir þegar slökkvilið kom á staðinn og rétt náðist að koma í veg fyrir að vatn flæddi inn á nýlögð gólfteppi á veit- ingastaðnum Pizza Hut. Hreinsa þurfti burt vatn með vatnssugum og skafa gólf. Eftir að slökkviliðið fór hélt starfsfólk hót- elsins og Pizza Hut áfram að þurrka teppi og hreinsa vatn undan stórum tækjum eins og frystiskápum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.