Morgunblaðið - 13.06.1995, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ
BREF TIL BLAÐSINS
ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ1995 43
Agreiningur sjálfstæðis-
manna á Suðurlandi
Þú nærð forskoti
þegar tæknin vinnur með þér
CS - PRO tæknin í Ijósritunarvélum er framtíðarlausn
fyrir þá sem vilja bætt afköst í betra umhverfi.
Frá Gísla Gíslasyni og Árna
Böðvarssyni:
EGGERT Haukdal skrifaði aðra
grein sína um ágreining sjálf-
stæðismanna á Suðurlandi í Morg-
unblaðið 20. maí síðastliðinn. Að
venju fer hann um víðan völl en
megininntakið í þessari grein er
eins og í hinni fyrri, hvað allir
hafi verið vondir við hann og því
sé hann nú fv. alþingismaður.
Hvað sem öðru líður eru stað-
reyndir málsins eftirfarandi:
1. Það hefur um árabil verið
stirt samband Eggerts Haukdals
við Árna Johnsen og Þorstein Páls-
son. Um það er ekki deilt.
2. Fyrir síðustu alþingiskosn-
ingr voru sjálfstæðismenn á Suð-
urlandi ekki á einu máli hvernig
ætti að búa til framboðslista
flokksins fyrir alþingiskosningarn-
ar.
3. Formenn ungliðahreyfinga
sjálfstæðismanna á Suðurlandi
beittu sér fyrir því að flokkurinn
héldi prófkjör, enda voru íjórir
mjög frambærilegir frambjóðend-
ur, sem sóttust eftir þremur efstu
sætum á listanum og töldum við
prófkjör einu leiðina til að raða á
lista flokksins. Niðurstaðan var
að flokkurinn hélt prófkjör.
4. Prófkjörið var haldið og á
fjórða þúsund stuðningsmenn
Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi
tóku þátt í því. Niðurstaðan úr
prófkjörinu var skýr, Þorsteinn
Gísli Gíslason Arni Böðvarsson
skyldi ieiða listann, Árni skipa
annað sæti og Drífa Hjartardóttir
það þriðja. Eggert Haukdal hafn-
aði í fjórða sæti í prófkjörinu.
5. Eggert Haukdal gat ekki
unað þeirri lýðræðislegu niður-
stöðu, sem fékkst í prófkjörinu,
og klauf Sjálfstæðisflokkinn á
Suðurlandi. Hann fór fram með
sérlista undir listabókstafnum S.
6. Eggert Haukdal kom ekki
sjálfum sér á þing með klofnings-
framboði sínu, en felldi samt sem
áður þriðja mann á lista Sjálf-
stæðisflokksins og hjálpaði þar
með krata inn á þing.
Spurningin sem eftir stendur er
hvort Eggert Haukdal lýsi því yfír
að hann sé hættur í stjórnmálum
eða hvort hann boðar endurkomu
sína með framboði í næstu alþingis-
kosningum. Annað um grein Egg-
erts er í raun ekkert að segja, þetta
eru dæmisögur frá hans sjónar-
hóli. Það eru til fleiri sjónarhólar á
þá atburði sem hann segir frá, en
það er að teygja lopann eða eyða
orðum í það. Staðreyndimar tala
sínu máli og er þegar búið að nefna
í síðustu grein og endurtekið í sex
liðum hér á undan.
Það er mikilvægt að í lýðræðis-
legum flokki virði leikmenn lýð-
ræðislegar niðurstöður. Eggert
virti að vettungi lýðræðislega nið-
urstöðu prófkjörsins. Þorsteinn
Pálsson er að okkar mati manna
meðvitaðastur um mikilvægi þess
að virða lýðræðislegar niðurstöð-
ur. Eins og allir vita tókust hann
og Davíð Oddsson á í formann-
slagnum um árið. Þorsteinn hefur
virt þá niðurstöðu sem fékkst í
þeirri kosningu og unnið útfrá
því. Þau vinnubrögð hafa verið
flokknum til heilla og allri íslensku
þjóðinni, en ekki síst þá hefur
þetta styrkt hann mjög, enda er
hann í dag einn af okkar virtustu
stjórnmálamönnum. Sjálfstæðis-
menn á Suðurlandi hafa verið
þeirrar gæfu aðnjótandi að Þor-
steinn Pálsson hefur leitt listann
og verið sú kjölfesta, sem honum
var og er nauðsyn.
Þar sem þetta er seinni og loka-
grein okkar um ágreining sjálf-
stæðismanna á Suðurlandi viljum
við enda þessa grein með að óska
Eggert Haukdal velfarnaðar í
þeim viðfangsefnum, sem hann
nú tekur sér fyrir hendur.
GÍSLI GÍSLASON,
ÁRNIBÖÐVARSSON,
sjálfstæðismenn á Suðurlandi.
Menn sem vilja ekki fara
Frá Ólafi Grétarí Krístjánssyni:
FIMMTUDAGINN 8. júní 1995
birtist frétt á baksíðu Mbl. sem
vakti athygli mína. Er þar sagt
frá Bangladeshbúum sem sækist
eftir því að komast á víkingahátíð
á íslandi í sumar. Ekki sérlega
fréttnæmt í sjálfu sér að útlend-
ingar vilji koma til íslands. Ritara
fréttarinnar þykir hitt greinilega
öllu alvarlegra að mennirnir gætu
hugsanlega ætlað að verða eftir á
landinu þegar hátíðinni lýkur og
neitað að fara heim til sín.
Það hvarflaði að mér hvort ís-
lensk hugsun væri upp á síðkastið
farin að eltast við fyrirbærið
„menn-sem-vilja-ekki-fara“, og
I væri nánast heltekin af þessu ógn-
vænlega samfélagsmeini. Sem
dæmi má nefna Guðmund Árna
sem lengi vel streittist á móti öfl-
um sem vildu að hann færi úr
ráðuneyti heilbrigðis- og trygg-
ingamála á síðasta ári. Annað
dæmi og nýlegra er Jóhann Berg-
• þórsson, bæjarfulltrúi í Hafnar-
’ firði, sem neitar að fara úr bæjar-
stjórn þótt flestir samflokksmenn
hans virðist óska þess. Við íslend-
ingar höfum ekki farið varhluta
af svona köllum á þessari öld:
þaulsetnustu „menn-sem-vilja-
ekki-fara“ eru náttúrlega amer-
ísku hermennirnir sem komu hing-
að í júlí 1941 og eru ekki enn
farnir, þrátt fyrir fögur fyrirheit
í upphafi. E.t.v. eru áhyggjur
Mbl. skiljanlegar þegar horft er
til þessarar reynslu.
íslendingar eru að reyna að
byggja upp ferðamannagreinar.
Liður í þeirri viðleitni er að fá sem
flesta erlenda gesti til landsins.
Ég minnist þess ekki að hafa heyrt
fyrrverandi eðlisfræðikennara
minn úr Hagaskóla, Magnús Odds-
son ferðamálastjóra, lýsa yfir
áhyggjum af því að ferðamenn
gætu hugsanlega neitað að fara
af landi brott. Manni skilst að
vandinn sé sá að fá fólk til að
koma hingað, uppgötva ísland. Þá
spyr maður sig þeirrar spurningar
hvort fréttin sé til orðin vegna
þess að mennirnir sem um ræðir
séu frá Bangladesh. M.ö.o. er
Mbl. að lýsa þeirri skoðun sinni
að íbúar frá einhveijum tilteknum
heimshluta séu óæskilegir hér á
landi? Mér þætti æskilegt að rit-
stjórn blaðsins tæki afstöðu til
þessa máls, þar sem lesendur þess
kunna að vilja taka afstöðu til
þess hvort það samrýmist siðferð-
iskennd þeirra að vera áskrifendur
að blaði sem boðar kynþáttaandúð.
Morgunblaðinu hefur áður verið
bent á að ísland er aðili að alþjóð-
legum sáttmálum þar sem lagt er
bann við boðun kynþáttaandúðar.
Enginn ætti að þurfa að velkjast
í vafa um að fréttin sem hér um
ræðir lítilsvirðir og smánar íbúa
ákveðins lands í heiminum og mis-
býður réttlætis- og sómakennd
allra upplýstra manna. Blaðið ætti
hið allra minnsta að biðjast afsök-
unar á lágkúrunni og tryggja að
„fréttir" af þessu tagi birtist ekki
framar á síðum þess.
ÓLAFUR GRÉTAR KRISTJÁNSSON,
Bræðraborgarstíg 18, Reykjavík.
Framúrskarandi myndgæði
Nýframköllunareining
Sjálfvirkur hreinsibúnaður á myndvalsi
o Sjálvirkur þéttleikaskynjari
MINOLTA
CS-PRO Ijósrilunarvélar
Skreli á undan inn í Iramtíðina
KJARAN
SKRIFSTOFUBÚNAÐUR
SÍEXJMÚL114. 108 REYKJAVÍK, SÍMI 5813022
í SUMAR
TÖLVUSKÓLIFYRIR11-16 ÁRA
Fróðlegur og skemmtilegur
Kennslan miðar að því að veita almenna tölvuþekkingu
og koma nemendum af stað við að nýta tölvuna sér til
gagns og gamans við ritgerðasmíð og ýmis konar
verkefnagerð í skólanum.
Farið er í eftirtalin atriði:
V
Fingrasetningu og vélritunaræfingar
Windows og stýrikerfí tölvunnar
Rltvinnslu
Teikningu
Almenna tölvufræöi
Töflureikni
Tölvuleiki
Internet
Verð: 24 klst. á 11.900 kr.
Innritun er hafln í sima 561 6699
Tölvuskóli Reykjavíkur
BORGARTÚNI 28. 105 REYKJflUÍK, sími 561 6699. fax 561 6696
GR 1400
• H: 85 B:51 D:56 cm
• kælir: 140 I.
Verð kr. 29.350,-
GR 1860
• H:117 B:50 D:60 cm
• Kælir: 140 Itr.
• Frystir 45 Itr.
Ver& kr. 41.939,-
/* Vcri) stgr.
44.916
3
GR 2260
• H:140 B:50 D:60 cm
• Kælir: 180 Itr.
• Frystir 45 Itr.
Ver& kr. 47.280,-
GR 2600
H:152 B:55 D:60 cm
• Kælir 187. Itr.
Frystir: 67 Itr.
Ver& kr.49.664,-
Verd ster.
55.433,-
GR 3300
• H:170 B: 60 D:60 cm
• Kælir:225 Itr.
• Frystir 75 Itr.
Ver& kr. 58.350,-
4índes'rt
...í stödugri sókn!
ORMSSONHF
Lágmúla 8, Sími 553 8820
Umbodsmenn um land allt